Morgunblaðið - 01.08.1996, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Biskup endurvígir
F lateyj arkirkj u
Stykkishólmi - HERRA Ólafur
Skúlason biskup íslands endurvígði
Flateyjarkirkju á Breiðafirði sl.
sunnudag eftir gagngerar endur-
bætur og þess var einnig minnst
að 70 ár eru frá því að kirkjan var
reist.
Nú hefir verið gengið frá nýju
gólfi í kirkjunni og hún öll máluð,
gert við bekki og sem sagt allt kom-
ið í gott horf og var þessu öllu lok-
ið nú fyrir vígsluathöfnina. Veður
hefði getað verið betra en það var
rigning og kalsi þar til líða tók á
kvöldið en fólk setti það ekki fyrir
sig, heldur fjölmenntu gamlir
eyjabúar, vinir og velunnarar til
hátíðarmessunnar, og var hvert
sæti kirkjunnar skipað og fjöldi
manns stóð.
Athöfnin hófst með því að ung-
menni og prestarnir gengu inn kirju-
gólfið og voru ungmennin með blóm
og kirkjugripi. Voru átta vígðir
menn mættir. Þar var séra Gísli
H. Kolbeins sem fæddur var í Flatey
sama ár og kirkjan var byggð og
las hann inngönguversið, en prest-
amir lásu ritningargreinar.
Síðan vígði biskup og blessaði
hina fögru og góðu kirkju og flutti
einnig stólræðu þar sem hann
minntist allra þeirra sem lagt höfðu
því lið að þessi dagur skyldi vera
haldinn nú. Minntist hann fyrra
mannlífs í eyjunum, og seiglu þeirri
sem fólkið í eyjunum um árin hefði
sýnt bæði í forystu safnaðarmála
og andlegs atgervis og þá ekki síst
verka þeirra til manndóms, menn-
ingar og menntunar sem Flatey
hefði verið tengd gegnum árin. Bað
hann síðan kirkjunni og öllum bless-
unar guðs í komandi framtíð.
Við athöfnina var sönghópur, sem
við þessa athöfn var samansettur
bæði af gömlum eyjabúum og fólki
víðar að, sitt úr hverri áttinni, sem
söng við stjóm og undirleik Harald-
ar Bragasonar tónlistarkennara og
organleikara á Reykhólum og vakti
kórinn athygli fyrir sérstaklega góð-
an söng og hljómmikinn, þótt æfing-
ar hefðu ekki verið margar.
Ekki messað síðan 1990
Eftir guðsþjónustuna og vígsluna,
flutti Jóhannes Geir Gíslason bóndi
og sóknamefndarformaður frá Ská-
leyjum ræðu, fagnaði þessum fjöl-
menna söfnuði og sagði sögu kirkj-
Morgunblaðið/Ámi
BISKUPINN yfir íslandi, hr. Ólafur Skúlason,
við vígsluathöfn FÍateyjarkirkju.
Flateyjarkirkja.
unnar, en hún var byggð eftir teikn-
ingu Guðjóns Samúelssonar húsa-
meistara ríkisins og var hafist handa
strax á árinu 1926 og var sr. Hall-
dór Kolbeins þá sóknarprestur
þeirra eyjamanna, en af honum tók
við sr. Sigurður Einarsson í Holti
og þjónaði hann þar til Sigurður
Haukdal tók við og þegar hann flutti
sig um set var sr. Lárus Halldórsson
í nokkur ár en seinasti prestur var
Sigurvin Elíasson. Nú er Flatey
þjónað af Reykhólapresti sr. Braga
Benediktssyni. Síðan 1990 hefír
ekki verið messað í kirkjunni fyrr
en nú.
Sandur borinn í poka
Jóhannes lýsti því hvernig bygg-
ing kirkjunnar fyrir 70 árum gekk
og við hvaða erfiðleika var að stríða.
Þetta er steinkirkja og varð að afla
efnisins víða og jafnvel bera sandinn
í pokum á bakinu, en þá var mann-
margt og safnaðarmeðlimir hátt í
300 manns. Hann sagði frá því að
margt hefði verið gert í sjálfboða-
vinnu, og hafí þá sóknargjöld verið
aðei'ns 1,25 kr. á meðlim, en marg-
ar gjafir hefðu kirkjunni áskotnast.
Og eins gat Jóhannes þess að um
tíma hefðu verið 40 manns á vinnu-
skrá við bygginguna.
Þá minntist hann á vinnu Baltas-
ars og sagði hann myndskreytingar
hans á kirkjunni lýsa mannlífi fyrri
aldar og þessarar. Þessar myndir
Baltasars hefðu skemmst og nú
hefði hann endurnýjað þær á betri
hátt en áður.
Loks minntist Jóhannes Sigvalda
Kaldalóns tónskálds sem hefði verið
læknir eyjamanna þegar kirkjan var
vígð af séra Bjarna Símonarsyni á
Btjánslæk og þá hafi verið í fyrsta
sinn sungin hin ódauðiegu lög Sig-
valda, Kirkjan ómar öll og Island
ögrum skorið, sem hann hefði sam-
ið í Flatey og nú voru sungin í
messulok.
Þá voru afhentar gjafir til kirkj-
unnar og má þar til nefna að Sig-
valdi Kaldalóns yngri var þarna við-
staddur og færði kirkjunni öll söng-
lög afa síns og 27 lög eftir Selmu.
Jóhannes sagði kostnaðinn við
endurbyggingu kirkjunnar 12 millj.
en nú væru skuldirnar komnar niður
í 3 milljónir og þakkaði hann velunn-
urúm kirkjunnar fyrir veitta aðstoð
og gjafir sem hún hefði orðið aðnjót-
andi.
Morgunblaðið/Alfons
Hvar er Stebbi hólkur?
Ólafsvík - Fyrir tuttugu árum,
9. júlí 1976, var þetta krotsettá
annan brúarstöpulinn á Fróðá á
Snæfellsnesi en þá fór fram við-
gerð á gömlu brúnni.
Þeir Bjössi, Stebbi og Gísli
hafa verið í brúarvinnuflokknum.
Einhver þeirra hefir svo sett nöfn
þeirra (og gælunöfn) á stöpulinn.
Nú væri gaman að vita hvort
þeir eru allir lífs og hvað þeir
hafa fyrir stafni. Þeir hafa sjálf-
sagt frá mörgu skemmtilegu að
segja frá góðviðrissumrinu 1976.
Franskir dagar
Fáskrúðsfirði -
Franskir dagar voru
haldnir á Fáskrúðs-
firði um síðustu helgi,
þar sem minnst var
samskipta franskra
sjómanna og heima-
manna fyrr á öldinni
og öldinni sem leið.
Dagskráin hófst á
föstudag með minn-
ingarathöfn í franska
grafreitnum þar sem
sóknarpresturinn
stjórnaði athöfninni,
samkór Suðuríjarða
söng, ungmenni léku
á hljóðfæri. Viðstadd-
ur athöfnina var
sendiherra Frakka á íslandi og lagði
hann blómsveig á minnisvarða í
garðinum og auk þess lögðu frönsk
ungmenni sem hér hafa dvalið blóm-
sveig á minnisvarðann.
Að athöfn lokinni var haldið í
skrúðgöngu að Búðagrund þar sem
tendraður var eldur. Sendiherrann
flutti ávarp, síðan var sungið og
spilað fram á nótt. Á laugardag
voru ýmsar uppákomur, sýningar á
frönskum munum og myndum í ráð-
húsi og sýning á gömlum munum
sem safnað hafði verið í bænum og
var þar margt forvitnilegt að sjá.
Um kvöldið var stiginn dans í félags-
heimilinu Skrúð þar sem var mikið
ljölmenni.
Morgunblaðið/Albert Kemp
í FRANSKA grafreitnum á Fáskrúðsfirði
var haldin minningarathöfn í tengslum við
franska daga um síðustu helgi.
Á sunnudag var hátíðardagskrá
í Skrúð þar sem meðal annarra kom
fram Guðný Jónsdóttir sópransöng-
kona við undirleik Ólafs Vignis Al-
bertssonar. Þessi franska helgi þótti
takast vel og undirbúningsnefnd til
sóma. Veðurguðirnir voru hliðhollir
og myndaðist skemmtileg úti-
stemmning í miðbænum sem lokað-
ur var allri bílaumferð meðan á
hátíðinni stóð. Fólk sat við borð úti
á götu þar sem Hótel Bjarg fram-
reiddi kaffi og meðlæti í frönskum
stíl. Marga burtflutta Fáskrúðsfirð-
inga mátti sjá þessa daga auk þess
sem nágrannar komu í heimsókn.
Gefið var út sérstakt blað í tilefni
hátíðarinnar.
Morgunblaðið/Helgi Kristjánsson
GISTIHÚSIÐ Langaholt hefur nú verið stækkað.
Aukið gistirými
á Langaholti
Ólafsvík - Gistihúsið Langaholt á
Snæfellsnesi hefir verið stækkað að
mun. Nýlega voru tekin þar í notk-
un átta rúmgóð herbergi með snyrt-
ingu og eru nú tuttugu herbergi í
gistihúsinu auk svefnlofts.
Hjónin Svava Guðmundsdóttir og
Símon Sigurmonsson hafa nú rekið
gistihúsið Langaholt í allmörg ár
og náð góðum tökum á rekstrinum.
Kemur það fram í síaukinni aðsókn
að staðnum, jafnt útlendinga sem
íslendinga.
Það er margt sem dregur fólk á
þennan stað. Má þar nefna heillandi
fjöru með litfögrum sandi, veiðivötn
og glæstan fjallahring. Hæst ber
þó að skammt frá blasir við sjálfur
„konungurinn“ Snæfellsjökull í allri
sinni tign. Þau Svava og Símon
segja að jökullinn eigi stærstan þátt
í þeirri aukningu sem er í komu
ferðamanna á Snæfellsnes ásamt
því að sífellt sé verið að auka þjón-
ustuna til þess að gera gestum dvöl-
ina sem ánægjulegasta.
Grunnskóla Suðureyrar
færð rausnarleg gjöf
GRUNNSKÓLANUM á
Suðureyri var færð rausn-
arleg gjöf fyrir skemmstu
þegar kvenfélagskonur í
kvenfélaginu Arsól á Suð-
ureyri færðu skólanum
500.000 kr. að gjöf til
kaupa á tækjum og búnaði
fyrir skólann. Það var for-
maður félagsins Ingibjörg
Jónsdóttir sem færði
Magnúsi S. Jónssyni skóla-
stjóra göfina.
í þakkarávarpi sem
Magnús flutti við það tæki-
færi kom fram að Arsólar-
konur hafi löngum stutt
dyggilega við skólastarfið
á Suðureyri með ýmsum
hætti.
Slíkur stuðningur væri
skólanum og byggðarlag-
inu mikil hvatning og
styrkur og þakkaði Magn-
ús kvenfélagskonunum
Ljósmynd/Helga Guðný Kristjánsdóttir
INGIBJÖRG Jónsdóttir formaður Arsólar færir Magnúsi
S. Jónssyni skólæstjóra rausnarlegt framlag Ársólarkvenna
til tækjakaupa í Grunnskólann á Suðureyri.
sérstaklega fyrir mikið og æskulýðsmála í Súganda-
gott framlag til mennta og firði á liðnum árum.