Morgunblaðið - 01.08.1996, Síða 30
30 FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
FORSETASKIPTI
FORSETASKIPTI verða í dag. Frú Vigdís Finnbogadótt-
ir, sem verið hefur forseti íslands í 16 ár, lætur nú
af embætti og við tekur Ólafur Ragnar Grímsson, sem
kjörinn var forseti íslands í forsetakosningunum í lok júní-
mánaðar.
Forsetaembættið er íslenzku þjóðinni hugstætt. Það
hefur komið skýrt í ljós í þeim forsetakosningum, sem
fram hafa farið til þessa svo og við önnur tilefni. Hinn
almenni borgari ber virðingu fyrir forsetaembættinu og
lætur sér annt um það. Fólk kann því ekki vel, að forseta-
embættið sé haft í flimtingum.
Þessi skýra afstaða þjóðarinnar til forsetaembættisins
leggur ríkar skyldur á herðar þeirra, sem því gegna, að
sinna því á þann veg, að tilfinningum fólks til forsetaemb-
ættisins sé ekki misboðið. Þetta hefur þeim fjórum forset-
um, sem setið hafa á Bessastöðum tekizt, hverjum með
sínum hætti.
Það skiptir íslendinga máli, að forsetinn komi fram af
þeirri virðingu, sem hæfir embætti þjóðhöfðingja, en þeim
er líka annt um, að forsetaembættið sé laust við tilgerð
og sýndarmennsku. Á tímum nútímafjölmiðlunar er ekki
sízt vandasamt að gegna embætti forseta íslands svo að
vel fari. Fjölmiðlum hættir til að ýta undir persónudýrkun,
sem ekki á við í okkar fámenna samfélagi.
Það hefur fallið í hlut þeirra forseta, sem setið hafa að
móta embættið hver með sínum hætti. Til þess hafa þeir
haft nokkuð frjálsar hendur vegna þess, að ákvæði stjórnar-
skrár og laga um embættið móta það ekki á afgerandi hátt.
Þótt harðar deilur hafi staðið um kjör allra þeirra ein-
staklinga, sem gegnt hafa embætti forseta íslands hefur
þeim öllum tekizt að halda þannig á embættinu, að þjóðin
hefur lifað í sátt við þjóðhöfðingjann hverju sinni.
Frú Vigdís Finnbogadóttir hefur gegnt embætti forseta
íslands í sextán ár með reisn og virðingu. Hún naut þeirr-
ar sérstöðu í upphafi að verða fyrsta konan, sem kjörin
var forseti í heimsbyggðinni. Þeirri sérstöðu hefur hún
fylgt eftir með þeim hætti, að nafn hennar og íslands
hafa orðið þekkt víða um heim, sem ekki er algengt með
þjóðhöfðingja smáþjóðar. Forystumönnum í viðskipta- og
atvinnulífi ber saman um, að framlag hennar á erlendum
vettvangi í þágu þjóðarhagsmuna hafi verið ómetanlegt.
Heima fyrir hefur frú Vigdís notið hylli þjóðarinnar. Það
kom t.d. berlega í ljós á þjóðhátíðinni á Þingvöllum fyrir
tveimur árum, þegar fagnað var 50 ára afmæli lýðveldis-
ins. Enginn vafi leikur á því, að forsetinn hefur á þessum
16 árum átt einna drýgstan þátt í að móta breytt viðhorf
þjóðarinnar til gróðurverndar almennt og skógræktar sér-
staklega.
Þá hefur áhugi forsetans á málrækt og verndun arfleifð-
arinnar verið þjóðinni hvatning. Áhugi hennar á bókmennt-
um og ekki sízt ljóðlist eru þjóðinni hollt veganesti á þeim
yfirborðslegu tímum, sem við nú lifum.
íslenzk æska hefur verið forsetanum hjartfólgin eins
og berlega hefur komið í ljós í ávörpum hennar til þjóðar-
innar af ýmsu tilefni. Hún hefur í raun verið óþreytandi
að undirstrika mikilvægi þess fyrir þjóðina að mennta vel
upprennandi kynslóðir og halda þeim frá þeim hættum,
sem óneitanlega verða á vegi ungs fólks á okkar tímum.
Þegar frú Vigdís Finnbogadóttir kveður Bessastaði í dag
einkennist afstaða fólks til hennar af hlýhug og væntum-
þykju og djúpri virðingu fyrir merku framlagi í embætti
á liðnum fjórum kjörtímabilum. Samfélag okkar íslendinga
einkennist oft af mikilli sundrung. Þess vegna er mikils-
vert að forseti hverfi úr embætti með þann einhug að
baki sér, sem fylgir frú Vigdísi frá Bessastöðum.
Ólafur Ragnar Grímsson tekur við embætti forseta ís-
lands í dag eftir að hafa borið sigur úr býtum í harðri
kosningabaráttu. Hans helzta verkefni í fyrirsjáanlegri
framtíð verður að ná sáttum við þann meirihluta þjóðarinn-
ar, sem kaus aðra frambjóðendur. Það hefur öðrum forset-
um tekizt. Áratuga þátttaka Ólafs Ragnars Grímssonar í
stjórnmálum og umdeild framganga hans á þeim vettvangi
er ein helzta ástæðan fyrir því, að margir eiga erfitt með
að sætta sig við kjör hans. En áratuga reynsla af þjóðmála-
baráttu og þekking á þjóðarhögum, sem fylgir þeirri þátt-
töku getur iíka verið gott veganesti. Hinum nýkjörna for-
seta fylgja góðar óskir um farsæld í starfi.
Islendingar deila um flest. Embætti þjóðhöfðingjans
hefur að langmestu leyti verið hafið yfir dægurþras. Á
undanförnum vikum hefur verið haft á orði, að þetta kunni
að breytast eins og margt annað. Sú breyting yrði ekki
til bóta.
LEIÐ Vigdísar niður tröppur Stjómarráðsins var blómum stráð, í bókstaflegri merkingu, og hér veifar for
úr Götuleikhúsinu í kveðjuskyni.
Morgunblaðið/Sverrir
SIÐASTI ríkisráðsfundurinn undir forsæti Vigdísar Finnbogadótt-
ur var haldinn að Bessastöðum í gær.
FRÚ Vigdís Finnbogadóttir snæddi hádegisverð ásamt ráðherrum
ríkisstjómarinnar og mökum þeirra á Bessastöðum í gær. Hér
tekur forsetinn í hönd Ástríðar Thorarensen og á eftir koma þau
Halldór Ásgrímsson, Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Friðrik
Sophusson og Sigrún Magnúsdóttir.
Fráfaran
þakkað
legt sa
VIGDÍS Finnbogadóttir, fráfar-
andi forseti íslands, sat sinn síð-
asta ríkisráðsfund á Bessastöðum
í gær.
í lok fundar þakkaði Davíð
Oddsson forsætisráðherra Vig-
dísi gott og ánægjulegt samstarf
og árnaði henni og fjölskyldu
hennar heilla í framtíðinni.
Forseti Islands þakkaði forsæt-
isráðherra fyrir samstarfið á liðn-
um árum og góðar óskir og hlý
orð í sinn garð og óskaði rík-
isstjórninni hins sama.
Mikill fjöldi kvaddi forsetann
Vigdís Finnbogadóttir yfirgaf
Stjórnarráðið í síðasta skipti sem
forseti Islands klukkan hálffimm
í gærdag og kvöddu starfsmenn
skrifstofu forseta og forsætis-
ráðuneytis hana með virktum.
Þegar forsetinn steig út fyrir dyr
Stjórnarráðsins beið hennar mik-
FRÁFARANDI forseti fékk þijú
og hér sést Hafsteinn Briem, fin