Morgunblaðið - 13.08.1996, Blaðsíða 1
92 SIÐUR B/C
181. TBL. 84. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR13. ÁGÚST1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Skyndiárás tsjetsjenskra skæruliða á rússneska herstöð
Lebed telur vopna-
hlé hug'sanlegt í tlag-
Moskvu. Reuter.
ALEXANDER Lebed, yfirmaður
rússneska öryggisráðsins, sagði í
gær, að hann og Aslan Mask-
hadov, yfirmaður herráðs aðskiln-
aðarsinna í Tsjetsjníju, hefðu orðið
sammála um það á fundi sínum í
fyrrakvöld að vinna að vopnahléi
og binda enda á bardagana í
Grosní. Skæruliðar gerðu í gær
skyndiárás á Khankala-herstöðina
fyrir austan Grosní.
Lebed fór til Grosní á sunnudag
og var það fyrsta ferð hans til
Tsjetjsníju eftir að Jeltsín skipaði
hann í embætti 18. júní. Var skot-
ið á bílalest Lebeds á leið til fundar
við Maskhadov en jafnvel er talið,
að rússneskir hermenn, sem ekki
vissu um fundinn, hafi verið að
verki.
Lebed sagði eftir komuna til
Bjartsýni á
flokksþingi
repúblikana
FLOKKSÞING bandaríska Repú-
blikanaflokksins hófst í San Di-
ego í Kaliforníu í gær og eru
þingfulltrúar næstum 2.000 tals-
ins. Þar verður Bob Dole útnefnd-
ur frambjóðandi flokksins í for-
setakosningunum 5. nóvember en
hann hefur valið Jack Kemp sem
varaforsetaefni sitt.
Pat Buchanan, flokksbróðir
Doles en lítill skoðanabróðir, lýsti
í fyrrakvöld yfir vopnahléi og
stuðningi við þá Doíe og Kemp
og kvaðst hann mundu leggja
þeim allt sitt lið við að sigra Bill
Clinton.
í gærkvöld var beðið með eftir-
væntingu ræðu Colins Powells
hershöfðingja en einnig munu
þeir forsetarnir fyrrverandi, Ger-
ald Ford og George Bush, ávarpa
þingið. Ronald Reagan verður
ekki á þinginu vegna sjúkleika
síns en Nancy, kona hans, mun
bera því kveðju hans. Þingið sam-
þykkti í gær stefnuskrá flokksins
en þar segir, að innflytjendalög-
gjöfin skuli hert verulega og
stjórnarskránni breytt og fóstur-
eyðingar bannaðar alveg. I ræð-
um manna í gær kom fram bjart-
sýni á, að repúblikanar gætu sigr-
að í kosningunum í haust og í
skoðanakönnun, sem
TODA Y/CNN birti í gær, hefur
Clinton aðeins níu prósentustig
umfram Dole. Er það meðal ann-
ars þakkað vali hans á Jack Kemp
sem varaforsetaefni.
í annarri skoðanakönnun ABC
News kemur hins vegar fram, að
enn munar 20 prósentustigum á
þeim keppinautunum. Hér er
hópur fulltrúa á leið til þingsins
á báti.
■ Maður Doles/18
Moskvu, að Konstantín Púlíkovskí,
yfirmaður rússneska hersins í
Tsjetsjníju, og Maskhadov væru að
ræða vopnahlésskilmálana og væri
hugsanlegt, að byssurnar þögnuðu
í dag.
Sækja að Khankala-
herstöðinni
Interfax-fréttastofan rússneska
sagði í gær, að skæruliðar hefðu
gert skyndiárás úr vestri og norðri
á Khankala-herstöðina fyrir austan
Grosní en þaðan hafa Rússar stýrt
hernaðinum í Grosní. Voru fréttir
um ástandið þar óljósar í gær.
Rússar segja, að þeir sæki fram
í Grosní en Interfax-fréttastofan
sagði, að skæruliðar verðust af
hörku og væru að styrkja varnir
sínar. Meðal annars hefðu þeir lagt
BOSNÍU-Serbar létu í gær undan
óbeinum hótunum NATO um vald-
beitingu og heimiluðu eftirlit í her-
stöð fyrir austan Sarajevo. Áður
hafði NATO gripið til víðtækra ör-
yggisráðstafana í þeim hluta Bosn-
íu, sem Serbar ráða, flutt einangr-
aðar sveitir til stöðva sinna og hvatt
borgaralega starfsmenn til að koma
sér á burt.
Sir Michael Walker, einn af yfir-
mönnum NATO-herliðsins, til-
kynnti í gær að gripið yrði til víð-
tækra öryggisaðgerða, öllum her-
jarðsprengjur til að gera Rússum
sóknina erfiða og búið um sig í
skotgröfum. Talið er að þeir ráði
enn stórum hluta borgarinnar.
Sprenging í Moskvu
Sprengja sprakk í yfirfullri lest
í Moskvu í gær og lést einn maður
og nokkrir slösuðust. Kenndi lög-
reglan hryðjuverkamönnum um en
talið er líklegt, að verknaðurinn
tengist átökunum í Tsjetsjníju.
Rússneskir sérfræðingar og
fréttaskýrendur virðast hafa
nokkra trú á, að Alexander Lebed
geti fengið einhveiju áorkað í
Tsjetsjníju, meðal annars vegna
þess, að hann hafi barist í Afganist-
anstríðinu og geri sér því grein
fyrir, að deilan verði ekki leyst með
hernaði.
mönnum skipað að halda til stöðva
sinna auk þess sem skorað var á
borgaralega starfsmenn að yfirgefa
serbneska lýðveldið.
Kom fram í tilkynningu NATO,
að ástæðan fyrir þessum viðbúnaði
væri, að Serbar hefðu hindrað
NATO-hermenn í að skoða Han
Pijesak-herstöðina.
Brot á Dayton-sam-
komulagi ekki liðin
Javier Solana, framkvæmdastjóri
NATO, sagði í Sarajevo í gær, að
Reuter
Sigurhátíð
í Króatíu
KROATAR minntust þess í gær,
að 281 ár er liðið síðan þeir unnu
sigur á Tyrkjum árið 1715 en
þeir hafa minnst þess árlega alla
tíð síðan. Hér er Stipe Simundza
í búningi riddara á hátíðinni.
Serbar yrðu ekki látnir komast upp
með að bijóta Dayton-samkomulag-
ið um frið í Bosníu og eftir fund
með fulltrúum þeirra staðfesti
hann, að Biljana Plavsic, forseti
Bosníu-Serba, hefði fallist á eftirlit
í Han Pijesak.
Er málið ekki síst viðkvæmt fyr-
ir það að talið er að Ratko Mladic,
yfirmaður hers Bosníu-Serba, hafi
þar aðsetur. Hann er eftirlýstur
fyrir stríðsglæpi og NATO-her-
mönnum ber að handtaka hann eigi
þeir kost á því.
Kýpurdeilan
SÞ for-
dæma
ofbeldi
Níkosíu, Ankara. Reuter.
KÝPURSTJÓRN lagði í gær form-
leg mótmæli fyrir Sameinuðu þjóð-
irnar og öryggisráð þess vegna of-
beldisfullra viðbragða Tyrkja á
norðurhluta eyjarinnar á sunnudag,
þegar hópur Kýpur-Grikkja fór inn
fyrir vopnahléslínuna sem skipt
hefur eynni eftir innrás Tyrkja árið
1974.
Ungur maður úr hópi mótmæl-
enda lét lífið í átökunum og fleiri
en 50 særðust, en auk þeirra meidd-
ust 12 úr hópi Tyrkja. Sameinuðu
þjóðirnar brugðust við með því að
fordæma ofbeldið og sögðu kýp-
versk stjómvöld bera ábyrgð á því
að ekki var komið í veg fyrir að til
þess kom. „Það er ekki hlutverk
Sameinuðu þjóðanna að hafa stjórn
á mótmælaaðgerðum," sagði tals-
maður SÞ í gær.
Þetta eru alvarlegustu átök, sem
orðið hafa í mörg ár milli þjóðabrot-
anna tveggja á Kýpur. Þau virðast
ætia að valda alþjóðlegum tilraun-
um til að finna lausn á Kýpurdeil-
unni verulegu bakslagi.
■ Kýpursljórn/17
Bylting í flugvéla-
smíði í vændum
Fimm-
faldur
hljóðhraði
London. Daily Telegraph.
VERIÐ er að þróa nýja þotu
í Bandaríkjunum sem flýtur á
loftflæði á fimmföldum hljóð-
hraða og gæti flogið yfir Atl-
antshafið á innan við klukku-
stund.
Þegar hafa verið gerðar til-
raunir með líkön af lítilli stærð
af flugvélinni, sem gengur
undir nafninu LoFlyte, og tek-
ist hefur að sýna fram á, að
kenningin um svokallað
„bylgjuflot" gengur upp.
Hefðbundnar flugvélar
verða að vinna sig áfram í
gegnum loftpúða sem myndast
framan við vænginn.
LoFlyte-flugvélin vefur hins
vegar um sig höggbylgju, sem
myndast þegar farið er hraðar
en hljóðið, og svífur áfram á
loftflæðinu í bylgjunni með
þeim afleiðingum að verulega
dregur úr viðnámi.
Bandaríski flugherinn og
geimferðastofnun Bandaríkj-
anna (NASA) hafa varið
hundruðum milljóna dollara til
að sanna kenninguna. „Það er
aðeins tímaspursmál hvenær
flugvél í fullri stærð flýgur,“
segir bandarískur flugmála-
fræðingur.
Reuter
Bosníu-Serbar leyfa eftirlit í bækistöðvum Mladics
NATO-herliðið haft
í viðbragðsstöðu
Sarajevo. Reuter.