Morgunblaðið - 13.08.1996, Side 7

Morgunblaðið - 13.08.1996, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1996 7 FRÉTTIR JÓN Thorleifsson háseti á Gullfaxa ÓF 11 bregður sjónum sínum til hafs af þyrlupallinum í Kol- beinsey, skömmu eftir landtökuna. Víst er að fáir vildu veija nótt i eynni einsamlir og gott til þess að vita að Gullfaxi gamli bíður ekki langt undan. sveinn. Hver maður heldur um sinn disk svo hann renni ekki út af borðinu í sívaxandi hliðarvelt- ingi Gullfaxa og Konráð Sigurðs- son skipstjóri líkir sjólaginu við grautarpott. „Vestantrítlan er saklaus, en ég er smeykastur við austanáttina. Hún gæti tafið fyrir landgöngu á Kolbeinsey,“ segir Konráð. Eftir því sem norðar dregur eykst veltingurinn svo að manni er ekki lengur stætt. Þó er stillt veður. „Sjólagið er svo óreglulegt og við siglum ekki upp í ölduna, heldur á hlið við hana,“ segir Konráð. Best er að fleygja sér í koju og láta klukkustundirn- ar líða. „Það brýtur á henni“ Laust fyrir klukkan þijú eftir miðnætti grillir í dökkleitan depil í þokunni, sem nú er lögst yfir. Úti á dekki er um fjögurra stiga hiti og of mikil alda fyrir lendingu á eynni. „Það brýtur helvíti mikið á henni,“ segir Konráð og skipar mönnum að bíða með gúmbátinn. Þremur tímum seinna er ákveðið að freista landgöngu. „Það er æði oft sem það er einhver hreyfmg hérna," segir Konráð. Aldan lemur nú Kolbeinsey lausar og gúmbátn- um er skotið út. Ætlunin er að láta kvikuna. fleyta gúmbátnum upp á syllu í eynni svo hann standi á þurru þegar fellur frá. Þetta heppnast eftir nokkur skipti og menn standa í Kolbeinsey. Þetta er nyrsti hluti íslands á 67. breidd- argráðu. Þetta er ógnarlítið sker með mikilvægt hlutverk og hér vildi enginn eiga nótt. Hvemig væri að vera skilinn eftir á svona stað? Leiðangursmenn gefa sér tíma, hver og einn með sjálfum sér - og útverðinum. Enginn mælir orð. Kolbeinsey var skráð 35 metrar á lengd og 33 metrar á breidd árið 1989. Eyjan er að minnsta kosti fimm metram styttri og mjórri nú og þykir það ekki of- mælt. Þarna rifjast upp aldagamlar sögur um Portúgala nokkurn, sem vildi deyja á Kolbeinsey og lét skipsfélaga sína setja sig úr á eynni. Eigi alllöngu síðar var hann tekinn um borð í annað skip, sem átti leið hjá. Portúgalinn var við hestaheilsu, enda vel alinn á eggj- um og fugli og löngu hættur við að deyja. Áhöfnin á Gullfaxa fær að standa við þessa sögu, en þetta segir sitt um stærð Kolbeinseyjar fyrir 200 árum. Of seint að bjarga? Fyrir fáeinum árum var hafist handa við að styrkja eyna gegn rofmætti sjávar og hafíss og steyptur var þyrlupallur síðar. Það blasir við að eyjan á ekki langt eftir og viðmælendur frétta- manna í Grímsey vora sammála um að líklega væri of seint að fara að steypa og styrkja. „Það er svo lítið eftir af henni og varla nein undirstaða eftir fyrir steypu,“ sagði Sæmundur Ólafsson trill- usjómaður, sem hefur litið eftir eynni á sjóferðum sínum undanfar- in ár. „I vetur brotnaði gífurlega mikið úr henni og ég gæti trúað að hún hyrfi bara alveg í vetur,“ sagði Sæmundur. „Einhverntíma hefur maður heyrt að hún hafi ver- ið um 700 metra löng frá suð- austri til norðvesturs og 15 til 20 metra há,“ sagði Sæmundur. í sama streng tók Jóhannes Magnús- son sjómaður til margra ára. „Sam- kvæmt sögum Færeyinganna sem nytjuðu eynna á ferðum sínum hér áður fyrr hefur hún verið um 20 metra há. Hún verður alveg horfin eftir fáein ár,“ sagði Jóhannes. Satt má það vera að Kolbeinsey sé að hverfa í sæ og spurningar sem leiðangursmenn ræddu á heimstíminu lutu að framtíð Kol- beinseyjar, sem klárlega er háð afskiptum mannsins. Áætlað hefur verið að 2-3 milljarða króna kynni að kosta að styrkja Kolbeinsey til frambúðar, en skiptar skoðanir eru um það hvort Kolbeinsey væri þar með orðin „tilbúin eyja“, sem er í raun ekki eyja, heldur mannvirki, sem enga landhelgi hefur. Einnig er óvíst hvort það skipti sköpum varðandi efnahagslögsögu Islend- inga þótt Kolbeinsey hyrfi. Hvað sem öðra líður er ljóst að til of mikils er ætlast að útvörður- inn í norðri haldi vöku sinni um ókomna framtíð óstuddur, hvort sem tilveru hans er óskað á sögu- legum eða pólitískum forsendum. # • Superior White • • Aleutian Blue • • Antares Red SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17, 108 Reykjavtk. Stmi 568 51 00. Gullverðlaunahafinn í keppninni um: „Spameytnasta bíl Evrópu“ bíllinn fyrir þig? Útvegum bílalán til aUt að 5 ára. 1,3 GX 5 dyra handskiptur d kr. 980.000.- Til afgreiðslu strax: Suzuki Swift með 1,0 lítra vél eyddi aðeins 4,34 lítrum af bensíni að meðaltali á hverja 100 km. á 1500 km. leið frá Bonn til Monte Carlo. Algjör draumur - í staðinn fyrir „enn einn“ notaðan bíll (Á síðustu 12 árum hafa 1.607 íslendingar keypt sér nýjan Suzuki Surift.) Allt þetta í 1,3 lítra SWIFT GLS 3-dyra handskiptum með 68 hestana vél: Öryggi: Öryggisloftpúði í stýri, styrktarbitar í hurðum, krumpsvæði að framan og aftan, hemlaljós í afturglugga, dagljósabúnaður, rafstýrðir útispeglar, skolsprautur fyrir framljós, þurrka og skolsprauta á afturrúðu, barnalæsingar (5 dyra]. Þægindi: Upphituð framsæti, tvískipt fellanlegt aftursætisbak, rafstýrð hæðar- stilling framljósa, hæðarstilling öryggisbelta, samlæsingar á hurðum (5 dyra]. iSWIFT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.