Morgunblaðið - 13.08.1996, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.08.1996, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1996 17 H Carnival, FERÐASKRIFSTOFAN TYRKNESKIR Kýpurbúar lumbra á manni úr hópi Kýpur Griklga, sem efndu til mótmæla gegn hernámi Tyrkja á sunnudag. Reuter fluslurstræti 17, 4. hæð,101 Reykjavík, sími 56 20 400, fax 562 6564 Blóðug átök á „grænu línunniu á Kýpur SUÐUR UM HÖFIIM! Nýjustu, stærstu og glæsilegustu skemmtiferðaskip heimsins - Umboð á íslandi - CARNIVAL CRUISE LINES: IMAGINATION, INSPIRATION, FASCINATION, SENSATION og DESTINY, stærstu farþegaskip heimsins. Einstakt sértilboð á nokkrum brottfórum í ágúst, sept. og okt. Láttu drauminn rætast í tengslum við draumadvöl á DÓMINIKANA. Verð frá kr. 50 þús. á mann í 7 daga siglingu. TÖFRAR AUSTURLANDA Ferðaævintýri ævi þinnar! STÓRA AUSTURLANDAFERÐIN 5.-23. okt. Perlurnar BALI, SINGAPORE, HONG KONG, BANGKOK, LONDON. Fá sæti laus. HEIMSKLÚBBUR INGOLFS TÖFRAR1001 NÆTUR 17. okt.-6. nóv. BANGKOK, RANGOON, MANDALAY, PHUKET, BAHRAIN, LONDON. Einstök, spennandi og heillandi lífsreynsla. Hágæöaferðir á tækifærisverði núna. Fararstjórar: Ingólfur Guðbrandsson og Jón Ormur Halldórsson, dósent, stjórnmálafræðingur. CARNIVAL CRUISES UMB0Ð Á ÍSLANDI Kýpurstjórn leggur mót- mæli fyrir öryggisráð SÞ Dherinia, Nicosia. Reuter. EINN grískur Kýpurbúi lét lífíð og fleiri en fimmtíu særðust í einhvetj- um verstu átökum síðari ára sem orðið hafa á „grænu línunni" svo- kölluðu, en hún hefur skilið að þjóðabrotin tvö á Miðjarðarhafs- eynni allt frá innrás Tyrkja fyrir 22 árum. Kýpurstjórn lagði í gær inn mótmæli vegna málsins hjá Sameinuðu þjóðunum (SÞ) og hin- um fimm fastameðlimum öryggis- ráðs SÞ. Að sögn sjálfskipaðra yfirvalda Tyrkja á norðurhlutanum hlutu 12 menn úr röðum tyrkneskra öryggis- sveita svo og óbreyttir borgarar meiðsl í átökunum. Atökin upphófust síðdegis á sunnudag, er hópur bifhjólamanna frá gríska hlutanum virti bann yfir- valda að vettugi og efndi til mót- mæla gegn hernámi Tyrkja á norð- urhluta eyjarinnar fyrir innan „grænu línuna", sem gætt er af varðliðum Sameinuðu þjóðanna. Talsmaður varðliða SÞ sagði tyrkneska hermenn hafa tafarlaust bytjað að skjóta á bifhjólamennina, er þeir fóru inn fyrir vopnahléslín- una. Hann gat þó ekki útskýrt hví varðliðarnir hefðu ekki getað hindr- að átökin. Maðurinn sem lézt var 24 ára gamall grískur Kýpurbúi, sem að sögn vitna fiæktist í gaddavír, þar sem tyrkneskir mótmælendur frá norðurhlutanum gengu frá honum með því að betja hann í höfuðið með járnstöng. Alvarlegt bakslag Haft var eftir vestrænum stjórn- arerindreka á Kýpur í gær, að átök- in núna þýddu verulegt bakslag fyrir hinar alþjóðlegu tilraunir til að leysa Kýpurdeiluna. „Ofbeldis- full átök leiða ekki til neins annars en að auka á tortryggni milli beggja aðila,“ sagði erindrekinn. Tansu Ciller, sem nú gegnir emb- ætti utanríkisráðherra Tyrklands, sagði tyrknesku fréttastofunni An- atolian í gær að tyrknesk stjórnvöld álitu mótmæli Kýpur-Grikkja vera „alvarlega ögrun“. Hún sagði að gripið yrði til „nauðsynlegra ráð- stafana“ ef „tilraunir til að vanvirða landamæri tyrkneska lýðveldisins á Norður-Kýpur“ héldu áfram.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.