Morgunblaðið - 13.08.1996, Page 21

Morgunblaðið - 13.08.1996, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1996 21 Frábær semballeikari TÓNLIST Skálholt SEMBALLEIKUR Glen Wilson, sembal, 10. ágúst kl. 15. DIETRICH Buxtehude og Glen Wilson voru höfundar tónleikanna sem hófust kl. 15 þennan laugar- dag í Skálholtskirkju. Nótur eru jú aðeins dauð tákn á blaði þar til einhver minni eða stærri töfra- maður kemur og leysir þær úr álögum. Sömu örlögum lýtur lík- lega hver önnur listgrein. Mál- verkið hangir dautt á veggnum þar til augað endurspeglar það og þar bytjar ný fæðing, því ólík- lega lesa nokkur tvenn augu það sama úr myndinni. Þannig mætti feta sig gegnum aðrar listgreinar, og er þá út í loftið að spyija, hver eigi höfundarréttinn o.s.frv. Forleikur að tónleikum dagsins hófst kl. 14 í Oddsbúð, hinum nýja sal Skálholtsbúða, þar sem Glen Wilson spjallaði um organist- ana þtjá, Reincken, Buxtehude og Bach. Heldur var bekkurin þunnt setinn undir spjallinu og datt mér í hug hvort ekki væri æskilegt að segja frá því í kyn- inngu hvort þessir fyrirlestrar væru á vísindalegum nótum eða almennt spjall eins og var í þessu tilfelli og hentar ekki öllum. Glen Wilson, sem er Banda- ríkjamaður, búsettur í Hollandi, hóf tónleikana á Sinfóníu og Canzonettu í G-dúr. Strax var auðheyrt að hann hafði mikið vald á hljóðfærinu og tæknin var óaðfinnanleg. Verkið lék hann nokkuð á rómantísku nótunum, gaf tónhendingunum allfijálst spil sem Buxtehude virtist þola vel (en undirrituðum varð hugsað til næstu tónleika Wilsons, þar sem Bach var á efnisskránni, og hvort hann heimfærði þennan leikstíl einnig yftr á Bach). Svítan í e-moll fékk eðlilega svipaðan leikstíl, var mjög fallega spiluð, en kosið hefði ég örlítið hraðara tempó á sumum dansþáttunum, t.d. Allemande-þættinum og Saraböndunni, sem annars var mjög fallega leikin. Glæsilega lék hann G-dúr Tokkötuna og náði þar ótrúlega breiðum hljómi út úr sembalnum og afsannaði þar með eigin yfirlýsingu í efnis- skránni um að orgelið væri ekk- ert annað en risastór kassi fylltur blokkflautum. Reincken og Bach og þeir aðrir, er þekkja orgelið, vita að orgel verður það fyrst og fremst fyrir allar þær raddir, sem ekki finnast í einum blokkflautu- kór, með fullri virðingu fyrir blokkflautunni. Aría og tvö til- brigði í a-moll, fallega gerð, hljómuðu vel, svo og hin margsl- ungna Tokkata í g-moll, tónsmíð sér á parti, hvað form áhrærir, og ekki auðveld fyrir flytjandann að hafa hemil á. Tónleikunum lauk með Kóral-svítu, „Auf mein- en lieben Gott“ með svo stuttum þáttum, að maður hafði varla átt- að sig þegar henni var lokið. Og spenntur beið maður eftir Bach- tónleikunum. Tveir velvaldir g’estir TÓNUST S k á 1 h o 11 EINLEIKUR OG TVÍLEIKUR Marijke Miessen, blokkflauta, Glen Wilson, semball, 10. ágúst kl. 17. MIKLAR þakkir og heiður eiga inni, þær Helga Ingólfsdóttir semballeikari og Manuela Wiesl- er flautuleikari, fyrir að ýta af stað föstu tónleikahaldi í Skál- holti, því forna höfuðsetri kirkju á íslandi. Tíu ár eru síðan Colleg- ium Musicum var stofnað sem rammi um þetta tónleikahald, og nú er svo komið að öllum þætti menningarlífið fátækara á ís- landi félli þetta tónleikahald nið- ur. Svo er og komið, að Collegium Musicum getur boðið til Skálholts þekktu tónlistarfólki erlendu, og svo var einmitt þennan laugar- dag. Marijke Miessen er í efnisskrá kynnt sem afkastamikill blokk- flautuleikari með tónleikahald vítt og breitt um heim, er gert hefur merkar hljóðritanir, kenn- ari o.fl. Og nú var komið að Bach, umritunum hans á eigin verkum svo og undiritunum hans á verk- um annarra tónhöfunda. Þau bytjuðu á Tríósónötunni fyrstu, sem var upprunalega skrifuð fyr- ir orgel og þá í Es-dúr, nú aftur á móti í B-dúr fyrir blokkflautuna og sembalinn. Mikið öryggi var í leik þeirra beggja, en þessar tríósónötur Bachs eru erfiðastar í flutningi af öllum hljómborðs- verkum Bachs og um leið frábær- ar tækniæfingar fyrir alla hljóð- færaleikara. Hættan er einnig sú, að hljóðfæraleikarinn líti á þær sem tækniæfingar, sem þær vissulega eru, og flytji þær sem slíkar, og dálítið fannst mér það vera yfirskriftin í umræddum flutningi. Fyrsti þátturinn örlítið of hraður og tónhendingar ekki nákvæmlega mótaðar (fraserað- ar). En í raun er ekki minni tækniæfing að spila hröðu þætt- ina í sónötunni aðeins hægar, en með nákvæmu stakkatói, ná- kvæmri hendingamótun og ná- kvæmri öndun, og þá skilar sér hin leynda músík tríósónötunnar best. Þennan sama ágalla þóttist ég finna í síðasta þættinum, sem var mjög hratt spilaður, en auð- heyrt var að Marijke Miessen er framúrskarandi blokkflautuleik- ari. Þar sem ég sat átti flautan þó í svolitlum erfiðleikum með að ná í gegn þegar Wilson spil- aði á neðra borð sembalsins. Tríó- sónata í A-dúr eftir organistann fræga, Jan Adam Reincken, reyndist þrátt fyrir umritun Bachs, ekki sérlega merkileg tón- smíð, nema kannske fyrir það eitt að vera eftir þann sem talinn var mestur organista á 17. öld og í bytjun 18. aldar. Fyrsti þátt- urinn var einskonar spuni, annar þátturinn invensjón, milliþáttur, þriðji þátturinn stuttur og eins- konar inngangur að síðaseta þættinum, sem einnig var suttur prestó-kafli. Þriðju sónötuna skrifaði Bach upphaflega fyrir fiðlu og sembal, en hér kom blokkflautan í stað fiðlunnar og hér var hraða valið í góðu jafn- vægi. Síðasta tríósónatan var upprunalega skrifuð fyrir orgel og í d-moll. Tveir hægir þættir í röð og síðasti hraður. Og hér sýndu þau Glen og Marijke leik lagt fram yfir það venjulega. Og þar með lauk tónleikum tveggja velvalinna gesta. Ragnar Björnsson. Islenskir rithöfundar fá alþjóðleg verðlaun Tveir íslenskir rithöfundar halda senn til Genova á Italíu til að taka á móti alþjóðlegum verðlaunum fyrir smásögur. Hrafnhildur Val- garðsdóttir hlaut 1. verðlaun fyrir smásögu sína „Jólagjöf heilagrar Maríu“ og Eysteinn Björnsson hlaut 2. verðlaun fyrir smásögu sína „Hvalurinn". Verðlaunin eru kennd við Jean Monnet (1888-1979), sem hefur stundum verið nefndur „faðir“ hugmyndarinnar um sameiningu Vestur-Evrópu. Að verðlaununum, sem eru einu samevrópsku verð- laun sinnar tegundar, stendur for- seti Ítalíu, ásamt utanríkis- og menntamálaráðuneytunum þar, Ferðamálaráð Lígúríuhéraðs, Genovafylki og ýmsar bæjar- stjórnir á Ítalíu. Verðlaunin voru fyrst veitt 1993 en síðastliðið ár hlaut Sigurður A. Magnússon rithöfundur 1. verð- laun fyrir ritgerðasmíð. Úrslit 1996 Veitt eru verðlaun fyrir ljóðlist, smásögur og ritgerðir. í fyrsta sæti fyrir Ijóðlist var Eda Palatini Passarello (Ítalíu), öðru sæti deildu Paola Insola (ítalíu) og It- alo Bonassi (Ítalíu), og þriðja sæti deildu Georges Lebrat (Frakk- landi) og Leonaidas Panagiotids (Grikklandi). Fyrir smásagnagerð hlaut Hrafnhildur Valgarðsdóttir fyrstu verðlaun og Eysteinn Björnsson önnur verðlaun. Þriðju verðlaun hlaut Pasquale Biscari (Ítalíu). Fyrstu verðlaun fyrir ritgerð hlaut Rosemarie Tsubaki (Italíu), önnur verðlaun Harald Haarmann (Finnlandi) og þriðju verðlaunum deildu með sér Italo Bonassi (ítal- íu) og Panikkos T. Panagiotou (Kýpur). Athöfnin fer fram 31. ágúst að viðstöddum verðlaunahöfum, 11 manna alþjóðlegri dómnefnd og fulltrúum háskóla og annarra menningarstofnana á Norður-ítal- íu. Verðlaunahöfum verða afhent heiðursmerki og silfurbikarar ásamt árbók sem inniheldur verð- launaverki. Tópastríóið á Sólon I KVOLD, þriðjudajgskvöld leikur Tópastríóið á Sólon Islandus kl. 22. Tríóið skipa Haukur Grondal, saxó- fón, Arni Heiðar Jónsson, píanó og Tómas R. Einarsson, kontrabassa. Á efnisskránni eru aðallega þekkt lög frá sjötta og sjöunda ára- tugnum eftir Miles Davis, Cole Porter og John Coltrane meðal ann- arra. Sérstakur gestur tríósins í kvöld verður trommuleikarinn Harvey Burns, sem hefur t.d. leikið inn á flestar plötur Cat Stevens. ...♦ ♦-------- Ljóðalestur Útlegð - rigningar ÚTLEGÐ — rigningar heitir klukkustundarlöng ljóðadagskrá sem Hjalti Rögnvaldsson, leikari, flytur á Kaffi Óliver við Ingólfs- stræti í kvöld kl. 22. Þar verða fluttir tveir fyrstu hlutarnir úr ljóðaflokki eftir Saint- John Perse sem Sigfús Daðason þýddi. Sjálfsafgreidslu- afsláttur Nýttu þér 2 kr. sjálfsafgreiðsluafslátt af hverjum eldsneytislítra á eftirtöldum þjónustustöðvum Olís. • Sæbraut við Kleppsveg + 2 kr* • Mjðdd í Breiðholti + 2 kr* • Gullinbrú í Grafarvogi • Háaleitisbraut • Klöpp við Skúlagötu • Ánanaustum • Hamraborg, Kópavogi • Reykjanesbraut, Garðabæ • Langatanga, Mosfellsbæ • Vesturgötu, Hafnarfirði • Suðurgötu, Akranesi *Viöbótarafsláttur vegna framkvæmda. olis léttir þér lífið amerískar dekurdýnur amerískar lúxusdýnur Margar gerðir og stærðir og allir geta fundið dýnu við sitt hæfi. Serta -14 daga skiptiréttur og allt að 20 ára ábyrqð. Sérþjálfað starfsfólk okkar tekur vel á móti þér og leiðbeinir um val á réttu dýnunni. HÚSGAGNAHÖLLIN Bildshöfði 20-112 Rvik - S:587 1199 PELAG LÖGGILTRA UllRlllMSAIA BMW 520i árgerð 1990 Bíll í sérflokki — ekinn aðeins 64 þús. km. Hlaðinn aukahlutum s.s. leðurinnréttingar, sportstýri, rafmagn í öllu, aukadekk á felgum o.fl. GÓÐ KJÖR VERÐ 1870 þús. FORD LINCOLN TOWN árg. 1992 Stórglæsilegur þíll hlaðinn aukahlutum. Sjón er sögu ríkari. Til sýnis á BORGARBÍLASÖLUNNI. BORGARBILASALAN Grensásvegi 11, Reykjavík, s. 588 5300

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.