Morgunblaðið - 13.08.1996, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 13.08.1996, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1996 33 \ \ \ \ \ > I > 9 9 : I MINNINGAR SVEINN ÓLAFSSON + Sveinn Ólafsson fæddist í Reykjavík 5. des- ember 1917. Hann lést 3. ágúst síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Dóm- kirkjunni í Reykja- vík 12. ágúst. Með nokkrum orð- um vil ég minnast góðs vinar, Sveins Ólafsson- ar. Þótt hann væri far- inn að reskjast var ekki annað vitað en hann væri við góða heilsu. Því kom andlát hans öllum á óvart, einnig hans nánustu. Vel man ég þegar ég sá Svein í fyrsta sinn. Hann var þá forstjóri Sveins Egilssonar hf. en ég í sumar- vinnu hjá Guðjóni Sigurðssyni múrarameistara. Þetta var 1954. Guðjón sendi mig með loftpressu til að brjóta fláa í gólf á verkstæð- inu við Hverfisgötu og Hlemm, þar sem nú er Náttúrugripasafn o.fl. Sveinn sagði mér fyrir verkum en ekki varð þessi fundur okkar til frekari kynna. Svo varð hins vegar sumarið 1960, skömmu eftir að ég hafði tekið við starfi sveitarstjóra í Garðahreppi, sem nú er Garða- bær. Sveinn var þá, og lengi síðan, búsettur í Silfurtúni og einn af for- ystumönnum Framfarafélagsins Silfurtúns. Stjórn félagsins bað hinn nýja sveitarstjóra að koma til fund- ar við sig, enda margt við hann að tala um það sem vantaði í sveitarfé- lagi, sem þá taldi innan við þúsund íbúa, en var að breytast úr sveit í þéttbýli. Fundurinn var haldinn á fallegu heimili Sveins og Aðalheiðar í Silfurtúninu. Og fundir okkar urðu margir eftir þetta. Ég fann í Sveini einlægan og elskulegan mann, áhugasaman um allt það er til framfara og heilla mætti verða hinu vaxandi sveitarfé- lagi, sem hann var nýlega fluttur í með íjölskyldu sinni. Og við sveitungar hans föluð- 1 J Krossar rn á teiði I vióarlit oa maloöir. Mismunanai myns'fur, vönduo vinna. Slxni 583 5939 og 583 8738 Safnaðarheimili Háteigskirkju iSMSSÍ: 991 Hi»9 APÓTEK AUSTURBÆJAR Háteigsvegi 1 BREIÐHOLTS APÓTEK Álfabakka 12 eru opin til kl. 22 Næturafgreiðslu eftir kl. 22 annast Apótek Austurbæjar umst fljótt eftir starfs- kröftum hans. Við sveitarstjórnarkosn- ingar 1962 var í fyrsta sinn iistakosning í Garðahreppi. Sam- komulag var milli for- ystumanna stjórnmála- flokkanna um uppstill- ingu þannig að aðeins einn listi kom fram og skipaði Sveinn eitt af fimm efstu sætunum og var þar með orðinn hreppsnefndarmaður. Næstu kosningar, 1968, mörkuðu þau tímamót að þá buðu fjórir flokkar fram sína lista. Sveinn skipaði þá þriðja sætið á lista okkar Sjálfstæð- ismanna. Þannig sat hann tvö kjör- tímabil í sveitarstjórninni en við kosningar 1972 gaf hann ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Þennan tíma áttum við mjög náið samstarf að málefnum sveitar- félagsins og flokks okkar. Sveinn reyndist þar afburðaliðsmaður, rétt- sýnn og drengilegur í málflutningi og öllum verkum. A þessum árum urðu grundvall- arbreytingar á sveitarfélaginu. Það breyttist úr sveit í bæ, landspildur voru keyptar, hverfi skipulögð, göt- ur lagðar, skólahús byggð og yfír- leitt það gert sem nýrri byggð fylg- ir. Sveinn reyndist einstakur sam- starfsmaður og studdi mig í starfi sveitarstjóra af sérstæðum dreng- skap. Alla tíð síðan hef ég notið stuðn- ings hans í mínu stjórnmálastarfi. Ég átti stuðning hans vísan í öllum prófkjörum og hann lagði þar óbeð- inn á sig mikla vinnu. I öllum kosn- ingum, hvort heldur var til sveitar- stjórnar eða Alþingis lagði hann Sjálfstæðisflokknum lið með ómældri vinnu. Fyrir allt þetta starf Sveins þakka ég persónulega og ekki síður í nafni okkar Sjálfstæðis- manna í Garðabæ og Reykjanes- kjördæmi öllu. Fyrir nokkrum árum gerði Sjálfstæðisfélag Garðabæjar Svein að heiðursfé- laga vegna hans miklu starfa í þágu félagsins. A árum áður kom ég oft á heim- ili Sveins og Aðalheiðar. Þá settist hann gjarnan við píanóið og lék af fingrum fram svo unun var á að hlýða, en Sveinn var mjög músik- alskur maður. Samræður við hann voru ávallt áhugaverðar. Hann var víðlesinn og áhugasvið hans víð- feðm. Því hafði hann ávallt sitthvað uppbyggilegt til málanna að leggja. Þegar starfsvettvangur breytist og flust er milli sveitarfélaga vill samfundum fækka. Fundir okkar Sveins voru á síðari árum því ekki jafn tíðir og fyrr en við ræddumst oft við í síma. Síðast hittumst við á hátíðarsvæði okkar Garðbæinga þann 17. júní sl. Sveinn og Aðal- heiður sýndu sínu gamla sveitarfé- iagi þá ræktarsemi að koma hingað á þjóðhátíðardaginn til að fagna með fyrri samborgurum. Nú þegar hinn góði drengur er genginn þakka ég kynnin, stuðning- inn og tryggðina. Aðalheiði, börnum og bamabömum vottum við Ragna, kona mín, samúð okkar og hlut- tekningu við hið óvænta og ótíma- bæra fráfall Sveins Ólafssonar og biðjum þeim Guðs blessunar. Ólafur G. Einarsson. + Hjartkær eiginmaður minn og elsku besti afi minn, BJARNI BIRGIR HERMUNDARSON, lést á heimili okkar Sævangi 30 að morgni 11. ágúst. Esther Hurle, Bjarni Birgir Fáfnisson. Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HERMANN MAGNÚSSON, fyrrv. stöðvarstjóri Pósts og sima, Hvolsvelli, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju á morgun, miðvikudaginn 14. júlí, kl. 13.30. Gyða Arnórsdóttir, Jónas Hermannsson, Helgi Hermannsson, Hermann Ingi Hermannsson, Arnór Hermannsson, Magnús Hermannsson, tengdadætur og barnabörn. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, GUNNARGUÐMUNDSSON frá Hóli á Langanesi, Nökkvavogi 42, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 15. ágúst kl. 13.30. Sólveig Kristjánsdóttir, Páll Gunnarsson, Esther Þorgrímsdóttir, Guðmundur Gunnarsson, Bjarma Didriksen, Sigurður D. Gunnarsson, Anna Gunnarsdóttir, Oddur Gunnarsson, Áslaug Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ELÍN HALLGRÍMSDÓTTIR, Aflagranda 40, (áðurtil heimilis Kaupvangstorgi 1, Sauðárkróki), lést á heimili sínu 11. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu föstudag- inn 16. ágúst kl. 13.30. Sveinn Guðmundsson, Guðmundur H. Sveinsson, Hallgrímur T. Sveinsson, Helga Jónsdóttir, Gunnar Þór Sveinsson, Kristín Sveinsdóttir, Ólafur Stefán Sveinsson, Helga Heimisdóttir, Ingunn Elín Sveinsdóttir, Stefán Magnússon og barnabörn. + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, BJÖRG ÁSGEIRSDÓTTIR, Efstaieiti 12, Reykjavík, verður jarðsett frá Neskirkju fimmtudaginn 15. ágúst kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á heimahlynningu Krabbameinsfé- lagsins. Páll Ásgeir Tryggvason, Dóra Pálsdóttir, Jens Tollefsen, Tryggvi Pálsson, Rannveig Gunnarsdóttir, Herdfs Pálsdóttir, Þórhallur F. Guðmundsson, Ásgeir Pálsson, Ásiaug Gyða Ormslev, Sólveig Pálsdóttir, Torfi Þ. Þorsteinsson og barnabörn. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, GUÐMUNDUR JÓNSSON (Muggur), Hverfisgötu 86, Reykjavík. Verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 14. ágúst kl. 13.30. Sigurbjörg G. Sigurbjörnsdóttir (Lillý), Ólaffa I. S. Guðmundsdóttir, Haraldur Björnsson, Einar O. Guðmundsson, Haukur Guðmundsson, Jóna M. Guðmundsdóttir, Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Hrefna Guðmundsdóttir, Guðmundur Guðmundsson, Ólafur B. Guðmundsson, og barnabörn Gunnar Guðmundsson, Sigurgeir O. Þorsteinsson, Ludwig S. Alfreðsson, Karenina K. Chiodo, Ragnheiður Antonsdóttir. + Elskaður unnusti minn, faðir, sonur og tengdasonur, EINAR SÆVAR KJARTANSSON, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju, miðvikudaginn 14. ágúst klukkan 15.00. Ingibjörg Gfsladóttir, Gfsli Dan Einarsson, Elín Salka Einarsdóttir, Jón Kjartan Einarsson, Kjartan Kristófersson, Hafdís Guðmundsdóttir, Gfsli Þorsteinsson, Elfn Jóhannesdóttir. f + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞURÍÐUR jóhannsdóttir, Grænukinn 10, Hafnarfirði, verður jarðsungin fimmtudaginn 15. ágúst kl. 15.00 frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Eyþór Kr. Jónsson, Jóhann Eyþórsson, Valdís Þorkelsdóttir, Kristín Þ. Eyþórsdóttir, Gísli Þorláksson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.