Morgunblaðið - 22.08.1996, Page 30

Morgunblaðið - 22.08.1996, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR MINNINGAR Frídagur fyrir bílinn NÚ Á að gefa bíln- um sumarfrí. í dag er mælst til þess að Reykvíkingar skilji bílinn eftir heima, gefi honum frí einn dag. Með þessu er meining- in að hvetja fólk til að prófa aðra ferða- máta og skapa um- ræðu um neikvæð áhrif bílsins og um- ferðarinnar á um- hverfi okkar og heilsu og er næsta víst að skoðanir verði skiptar í þeirri umræðu. Því er þó varla hægt að mótmæla að íslendingar eru mjög „framarlega" í notkun bíla til flutninga á fólki og varn- ingi um lengri og skemmri veg, og mun svo líklega verða um fyrir- sjáanlega framtíð vegna stijálbýlis og annarra aðstæðna. Þá er reynd- ar gengið út frá því að við drögum ekki úr kröfum okkar um hreyfan- leika og hraða við að komast úr einum stað i annan, en fjárfesting í almenningssamgöngum um land allt sem dygði til að uppfylla þær kröfur, er okkur einfaldlega of- viða. Þannig má segja að miðað við aðstæður, mannfjölda og höfða- tölu sé hin mikla bílanotkun á ís- landi þrátt fyrir allt ekki afleitur kostur. Á hinn bóginn er jafnljóst að staðbundin áhrif hins mikla bílafjölda í þéttbýli, sérstaklega á Reykjavíkursvæðinu, eru ákaflega mikil og dýr úrlausnar og eng- in vanþörf að leita hagkvæmra lausna á þeim. Á slíkum stöð- um er raunhæft að reka almenningssam- göngur sem geta keppt við einkabílinn hvað varðar hraða og þægindi, í því skyni að draga úr útblást- ursmengun, hávaða, ryki, slysahættu og öðrum samfélagsleg- um kvillum bílaum- ferðar. Einn er sá kostnaðarþáttur sem sjaldan er rætt um í tengslum við einkabílinn, en það er kostnaður við byggingu og viðhald bílastæða. Í Reykjavík eru nærri 45 þúsund í Reykjavík, segir Stefán Haraldsson, er 1,1 milljón fermetra af bílastæðum. bílar og má segja að hver þeirra þurfi tvö stæði, eitt heima og ann- að á áfangastað. Gera má ráð fyr- ir að hvert stæði taki að jafnaði 20-25 fermetra og það þýðir að í Reykjavík er meira en 1,1 milljón fermetra af bílastæðum. Það sam- Stefán Haraldsson svarar landflæmi sem er rúmur kílómetri á kant. Kostnaðurinn við að búa þessi stæði til er aldrei minni en tveir milljarðar króna. Var einhver að tala um ókeypis bílastæði? Umferð einkabíla er mest kvölds og morgna, þegar þúsundir bíla með einni manneskju í hveijum streyma milli borgarhverfa. Mjög margir þessara bíla standa óhreyfðir allan daginn og þræða síðan sömu leið til baka síðdegis. Auðvelt er að gera sér í hugarlund að fólkið sem ferðast með þessum hætti til vinnu sinnar gæti allt eins notað almenningssamgöngur, gengið eða hjólað. Ekki er þar með sagt að selja þurfi bílinn, heldur mætti kannski draga úr notkun hans. Hver veit nema sú verði niðurstaðan á fjölda heimila eftir bílafrídaginn, þegar við höf- um reynt aðrar leiðir. Höfundur er framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs Reykja víkurborgar. Spörum bílinn A HVILDARDEGI bílsins í Reykjavík er gott að staldra við og athuga hvað hægt sé að gera til að draga úr notkun einkabíls- ins. Einkabíllinn er stærsti útgjaldaliður íslenskra heimila og rannsóknir hafa sýnt að rekstur bílsins er sá liður sem fjölskyld- ur eiga einna erfiðast með að skera niður. Einkabíllinn er eini valkostur þeirra sem eru með marga í heim- ili svo sem ungbarna- fjölskyldur og þeirra sem búa utan við þjónustusvæði almenningss- amgangna. Veðurlag á Íslandi eykur enn á mikilvægi bílsins. Stór hluti af daglegu lífi manna tengist notkun einkabílsins enda er hann Þ. Þ0RGRIMSS0N & C0 ABET óijúfanlegur hluti af gangverki alls at- hafna- og atvinnulífs. Það er óraunhæf rómantík að hugsa sér að flestir geti verið án bils og nýtt sér í stað- inn reiðhjól og/eða aðra samgöngumögu- leika, en hver og einn getur lagt sitt af mörkum til að draga úr notkun einkabíls- ins. Hugsaðu um um- hverfið heitir bækling- Runólfur ur frá FÍB og þar er Olafsson ag fjnna nokkur ein- föld ráð sem gera bíleigendum kleift að vinna gegn umhverfis- mengun og þá um leið að draga úr notkun einkabílsins. Eftirfar- andi ráðleggingar er m.a. að finna í þessum bækiingi: • Gakktu eða hjólaðu styttri vegalengdir. • Skipuleggðu samflot í bíl með öðrum þegar hægt er að koma því við. • Notaðu strætó ef mögulegt er. Minni mengun fylgir fullnýttum HARÐPLAST ÁBORÐ ÁRMÚLA 29, SÍMI 553 8640 strætisvagni en ferð farþeg- anna sömu ieið í einkabílum. Að auki eru í bæklingnum ábendingar varðandi eldsneytis- sparnað, viðhald og meðferð spilii- efna. Bíllinn er yfirfrakki, sparar tíma og eykur félags- og atvinnulegan hreyfanleika okkar en það er einn- ig auðvelt að misnota bílinn. Höf- um hugfast að oft má hvíla bíla. Höfum hugfast, segir Runólfur Olafsson, að oft má hvíla bíla. Hvíldardagur bílsins er á heppileg- um árstíma því um þetta leyti geta fleiri verið án bíls. Veðrið er með besta móti, margir eru í sum- arfríi og ekki þarf að skutla börn- um í skóla. Það er gott fyrir bíleigendur að hugieiða að notkun einkabílsins fylgir mengun og mikill kostnaður og því nauðsynlegt að skipuleggja notkun hans vel. Höfundur er framkvæmdasljóri FÍB. Ert þú Stretsbuxur kr. 2.900 Konubuxur kr. 1.680 EINMANA MikiB úrval af Vantar þig vin að allskonar buxum tala við? Opib ó laugardögum VINALÍNAN 561 6464 • 800 6464 öil kvöid 20 - 23 Nýbýlavegi 12, sími 554 4433. INGIBJÖRG H. JÓNSDÓTTIR Hólmfríður Ingibjörg Jóns- dóttir fæddist í Húsey í Skagafirði 21. apríl 1917. Hún lést á Landakoti 12. ágúst síðastliðinn. Hún var yngst sjö barna hjónanna Jóns Ásgrímssonar og Guðlaugar Sveinsdóttur, en aðeins þijú þeira náðu fullorðins- aldri, Hallgrímur, Páll og Ingibjörg. Árið 1925 var Ingi- björg tekin í fóstur af lækn- ishjónunum á Sauðárkróki, Jónasi Krisljánssyni og Hans- ínu Benediktsdóttur. Ingibjörg giftist ekki og eignaðist ekki börn. Að loknu námi á Sauðárkróki var Ingibjörg einn vet- ur í Húsmæðraskól- anum á Hallorms- stað en stundaði síðan nám í Versl- unarskólanum og lauk þaðan námi. Hún vann hjá Sparisjóði Reykja- víkur og nágrennis, siðan var hún gjald- keri árum saman hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur þar til hún hún hóf störf hjá launadeild Reykjavíkur- borgar þar sem hún vann uns hún hætti störfum. Útför Ingibjargar fer fram frá Áskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Hólmfríður Ingibjörg, en það var hún skírð var fædd að Húsey í Skagafirði. Árið 1925 var Ingibjörg tekin í fóstur af læknishjónunum á Sauðárkróki, Jónasi Kristjánssyni og Hansínu Benediktsdóttur, en föður sinn hafði hún misst árið 1916 en móðir hennar lést árið 1926, en áður hafði hún beðið lækn- ishjónin fyrir Ingibjörgu. Ingibjörg ólst síðan upp á hinu fjölmenna læknisheimili með fimm börnum þeirra hjóna og fleiri fóstursystkin- um. Móðir mín Guðbjörg, dóttir Jónasar og Hansínu, hefur sagt mér að hún gleymi aldrei hvað henni fannst Imba, en það var Ingi- björg yfirleitt kölluð, umkomulaus og hvað hún vorkenndi henni mikið þegar hún kom til þeirra föðurlaus og móðirin fársjúk. Imba ólst síðan upp á Sauðárkróki eins og eitt barn þeirra læknishjóna og minntist hún þeirra og æskuáranna á Sauðár- króki ávallt með miklu þakklæti. Ingibjörg giftist ekki og eignað- ist ekki börn, en hún var vinamörg hér áður fyrr, ferðaðist mikið bæði innanlands og erlendis og hafði mikla ánægju af. I góðra vina hópi var hún hrókur alls fagnaðar, hafði yndi af söng og söng sjálf manna hæst. Eg og fyrri maður minn leigðum í nokkra mánuði hjá henni í Eskihlíðinni með son okkar tveggja ára, og mun ég ávallt vera henni þakklát hversu góð hún var honum, það var ekki sjaldan sem hún kom og fékk hann lánaðan eins og hún sagði og fylgdist hún síðan ávallt með honum. Imba varð fyrir áfalli árið 1986 og eftir það var hún að hluta löm- uð. Ekki vat' hægt annað en að dást að hvernig hún tók veikindum sínum. Hún dvaldi að heimili sínu Ljósheimum 6 og gat með aðstoð séð að mestu leyti um sig sjálf. Hún var alltaf kát og hress þegar ég heimsótti hana og innilega þakklát fyrir að einhver skyldi líta inn. Hún eyddi miklum tíma í bók- lestur og hiustaði mikið á útvarp, en segja má að hún hafi varla yfir- gefið íbúðina eftir að hún lamað- ist, nema til að fara til læknis, þar til hún fékk annað áfall í október 1995, en eftir það dvaldi hún á Landakoti þar sem hún lést mánu- daginn 12. ágúst sl. Bróðir Ingibjargar, Hallgrímur lést árið 1932, en Páll og kona hans Lillý hafa alla tíð reynst henni afar vel og aðdáunarvert er hve Lillý hugsaði vel um hana eftir að spítaiavist hennar hófst. Síðustu árin voru Imbu erfið, en hún tók hlutskipti sínu eins og hetja og vona ég að hún hafi nú öðlast frið þegar hún leggur upp í sína síðustu ferð. Guð blessi minningu Ingibjargar H. Jónsdóttur. Regína Birkis. MAGNÚS ÞORBJÖRNSSON + Magnús Þorbjörnsson var fæddur á Grímsstaðaholt- inu í Reykjavík 17. febrúar 1924. Hann lést á heimili sínu á Kleppsvegi 62 í Reykjavík 12. ágúst síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogs- kirkju 21. ágúst. Faliinn er frá kær frændi, Magn- ús Þorbjörnsson, eftir erfið veik- indi, og langar mig að minnast hans með örfáum orðum. Mín fyrstu kynni af frænda voru þau þegar hann var að koma á sínar æskuslóðir í Olfusið að heim- sækja foreldra mína, þá fullorðinn maður, en þar hafði hann verið i sveit á sumrin í nokkur ár sem unglingur. Þaðan átti hann margar góðar minningar og hélt hann mikilli tryggð við sveitina æ síðan. Magnús var ákaflega frændræk- inn maður og má þar nefna áhuga hans á ættfræði. Hann stóð fyrir að eigin frumkvæði útgáfu bókar um niðja afa okkar og ömmu og ber að þakka honum það. Magnús var afar léttlyndur og lundgóður maður og mikið var gott að koma til þeirra hjóna og voru öfáar ferð- irnar á árum áður tii þeirra og foreidra hans á Fálkagötuna og fékk ég oft að gista hjá foreldrum hans er ég var að koma af sjónum. En árin liðu og ferðunum fækk- aði en aldrei þó svo að kynni okk- ar rofnuðu sem betur fer, og heim- sóttum við Magga og Dóru í nýju íbúðina þeirra við Kleppsveg sem þau voru nýflutt inn í um síðustu jól. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem.) Halldóra, Magnús, Vilborg og aðrir ástvinir, innilegustu sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minningin um Magn- ús Þorbjörnsson. Jón Ólafur Óskarsson og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.