Morgunblaðið - 22.08.1996, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 1996 37
ATVINNUA UGL YSINGAR
„Au pair“ í Brussel
Þriggja manna fjölskylda óskar eftir „au pair“
á aldrinum 19-24 ára til að gæta 2V2 árs
drengs og sinna léttum heimilisstörfum sem
fyrst. Má ekki reykja.
Nánari uppl. í síma 565 6669 eftir kl. 19.00.
Vélavörður
Vélavörður óskast á Núp BA-69 frá Patreks-
firði. Vélarstærð 810 hö.
Upplýsingar í símum 852 2203 (um borð)
og 456 1200 (á skrifstofu).
Oddihf.,
Patreksfirði.
Leikskólakennari
Leikskólinn Eyrarskjól á ísafirði auglýsir eftir
leikskólakennara eða manneskju, með sam-
bærilega menntun, í 100% stöðu frá og með
1. september.
Upplýsingar veitir leikskólastjórinn í síma
456 3685.
Svandís Hannesdóttir,
ieikskóiastjóri.
BVKO
T æknisölumaður
Byko hf. óskar eftir sölumanni.
Starfið felst einkum í sölumennsku til at-
vinnukaupenda, almennri tilboðsgerð ásamt
ráðgjöf í vöruþróun.
Umsækjandi þarf að búa yfir almennri tækni-
menntun, tölvuþekkingu og góðum hæfileik-
um til að selja. Reynsla í sölumennsku æski-
leg en ekki skilyrði.
Boðið er uppá góða starfsaðstöðu hjá
traustu og framsæknu fyrirtæki.
Laun skv. nánara samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 1. september.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl., merkt-
ar: „T - 18280“.
Með allar umsóknir verður farið sem
trúnaðarmál.
Afgreiðslustarf
Vantar skemmtilegan og duglegan starfs-
kraft, 30-40 ára, til að vinna í tískuverslun
fyrir konur á öllum aldri. Vinna frá kl. 12-18.
Möguleiki á meiri vinnu inn á milli.
Upplýsingar sendist til afgreiðslu Mbl.,
merktar: „K - 1123".
Ráðskona
óskast á athafnasamt heimili í miðborg
Reykjavíkur. Heimilisstörf og umönnun
tveggja barna, 4 og 7 ára.
Vinnutími fyrir hádegi. Laun kr. 30.000.
Gott væri ef getið væri um meðmælendur
í umsókn og mynd fylgdi.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl.,
merktar: „Ráðskona - 4039“.
Sölumaður óskast
fyrir gjafavörur
í 50% starf hjá heildversluninni BÁR
Bár hefur starfað að innflutningi síðan 1961.
Starfssvið:
- Umsjón með samskiptum við viðskiptavini.
- Umsjón með sölu og kynningum á Reykja-
víkursvæðinu og landsbyggðinni.
- Umsjón með pöntunum og tollskýrslum.
- Umsjón með lager og sýningarsal.
Hæfniskröfur:
- Að hafa almenna starfsreynslu sem
sölumaður.
- Að sýna frumkvæði í starfi og geta unnið
sjálfstætt.
- Að hafa góða íslensku- og enskukunnáttu.
- Að hafa góða samskiptahæfileika og þjón-
ustulund.
Skilyrði er að viðkomandi hafi stúdents-
próf, hafi áhuga á gjafavörum og möguleika
á að ferðast.
Vinnutími er frá kl. 12-17 fjóra daga vikunn-
ar og frí á föstudögum.
Ráðning er frá og með 2. september.
Upplýsingar um starfið veitir Gunnar Sigur-
geirsson í síma 565 8299 á milli kl. 10 og 12.
Umsóknir sendist til BÁR fyrir 26. ágúst 1996.
BÁR ehf.,
Iðnbúð 5,210 Garðabæ.
„Amma“ óskast
Barngóð kona óskast til að gæta tveggja
barna, 5 og 7 ára, á morgnana í vetur.
Létt heimilisstörf.
Upplýsingar í síma 551 1838 á kvöldin.
Óslóborg Aker sykehus
MARKMIÐ: AKER SYKEHUS
- FYRSTA VAL SJÚKLINGA OG FAGFÓLKS
Aker sykehus er háskólasjúkrahús og eitt af fjórum hverfissjúkra-
húsum Óslóborgar. Sjúkrahúsið hefur ca 850 rúm og ca 3.000
starfsmenn. Þjónustusvaeði sjúkrahússins er baeði hverfisbundið
og almennt. Sjúkrahúsið sinnir einnig svaeðisbundnum verkefnum,
miðað við heilsusvaeði 1 og 2, og verkefnum á landsvísu.
Starfssvið Aker sykehus eru eftirfarandi: Skurðlækningadeild, lyf-
lækningadeild, geðdeild, kvenna-/barnadeild, innanhúss þjónustu-
deild og lyfjaþjónusta.
Svæfingadeildin leitar að
gjörgæsluhjúkrunar-
fræðingum/
hjúkrunarfræðingum
á eftirskurðaðgerðardeild/
gjörgæsludeild
Á deildinni eru lausar fastar stöður
og afleysingastöður.
Ef þú hefur hug á að vinna við áhugavert
og faglega krefjandi starf, þá getum við
boðið þér:
★ Háan, faglegan staðal ★ Möguleika á
faglega og persónulega þroskandi starfi ★
Þverfaglegt samstarf ★ Kynningardagskrá
fyrir nýráðna ★ Hjúkrunarfaglega ráðgjöf ★
Starfsmannaviðtöl.
Ef þú hefur ekki sérmenntun, getur starfið
yerið góður undirbúningur fyrir frekara nám.
í boði er venjulegt vaktafyrirkomulag með
vakt 3. hverja helgi, eða, ef áhugi er, á nætur-
vaktastarfi, heilu eða hálfu.
Við óskum eftir gjörgæsluhjúkrunarfræðingi
eða hjúkrunarfræðingi með tveggja ára við-
eigandi reynslu.
Sérstakar kröfur eru til umræðu.
Laun í endurskoðun.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri
Solveig Fretland, sími 00 47 22 89 43 81
eða yfirhjúkrunarfræðingur Marianne Næss,
sími 00 47 22 89 44 27.
Umsóknir, með starfságripi, meðmælum og
vottorðum, sendist sem fyrst til forstjóra
Aker sykehus, 0514 Ósló, Noregi.
kommune
OSLO
Aker sykehus
WtÆKWÞAUGL YSINGAR
Verslunarhúsnæði
Stórglæsilegt verslunarhúsnæði til leigu í ný-
legri verslunarmiðstöð miðsvæðis í borginni.
Hentar t.d. fyrir gjafavörur eða líka starfsemi.
Mjög bjart húsnæði og glæsileg sameign.
Upplýsingar í síma 893 4628.
Til leigu
við Ármúla 280 fm lager- og verslunarhús-
næði á götuhæð. Hentar t.d. fyrir heildversl-
un eða skylda starfsemi.
Upplýsingar í síma 893 4628.
Ármúli
Til leigu salur, ca 430 fm, sem skipta má
niður í smærri einingar. í salnum er eldhús,
salerni og tilheyrandi, sem nýta má á ýmsan
hátt. Húsnæðið er í mjög góðu ástandi.
Upplýsingar í síma 893 4628.
FÉLAGSÚF
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SÍMI 568-2533
Helgarferðir
23.-25. ágúst:
1. Landmannalaugar-Álftavatn,
hringferð. Ekið og gengið.
2. Þórsmörk - Langidalur.
3. Yfir Fimmvörðuháls. í Fimm-
vörðuhálsferðinni og Þórsmörk
eru skálapláss að fyllast, en næg
tjaldsvæði eru i Langadal.
Færeyjaferð 13.-16. septem-
ber. Löng og Ijúf helgi í Færeyj-
um fyrir félaga F.l'. Hagstætt
verð. Takmarkað pláss.
Pantið því strax.
Munið Heklu kl. 08.00 og
sveppaferð i Heiðmörk kl.
13.00 laugardaginn 24. ágúst.
Brottför frá BSÍ, austanmegin
og Mörkinni 6.
Ferðafélag (slands.
Sma auglýsingar
Dagsferðir 25. ágúst
Kl. 10.30 Reykjavegurinn, 7.
áfangi; Kolviðarhóll—Nesjavellir.
Ferðin hefst í Sleggjubeinsdal
°g ligguryfir Húsamúlann. Farið
verður um Engidal, Marardal og
Dyrnar uns komið er að Sport-
hellu. Þá er farinn Dyravegur að
Nesjavöllum. Hægt að koma í
ferðina við Árbæjarsafn. Verð
kr. 1.000.
Kl. 10.30 Nytjaferö, 5. áfangi;
Fellur niður af óviðráðanlegum
orsökum.
Helgarferðir 23.-25. ágúst
kl. 20.00 Básar. Síðustu sumar-
dagamir eru ógleymanlegir í
Básum. Sveppir hafa þroskast
vel og berin eru um allar hlíðar.
Verð kr. 4.900/5.600.
Kl. 17.30 Vestmannaeyjar,
pysjuferð. Siglt með Herjólfi til
Eyja. Gist á góðu farfuglaheim-
ili. Farið í skoðunarferð um eyj-
una í rútu og pysjum safnað um
kvöldið með aðstoð heima-
manna. Sigling um eyjarnar á
sunnudag. Fararstjóri er Vest-
mannaeyjamærin Fríða Hjálm-
arsdóttir. Verð kr. 7.900/8.700.
Helgarferð 24.-25. ágúst
Kl. 08.00 Fimmvörðuháls; ein
vinsælasta gönguleið landsins
og það ekki að ástæðulausu.
Gist í glæsilegum Fimmvörðu-
skála.
Kl. 10.00 Jeppaferð f Lakagíga.
Ferðin hefst á Kirkjubæjar-
klaustri og farin er einstaklega
falleg hringferð um þemasvæði
Útivistar. Góðar göngur báða
dagana og leiðarlýsing heima-
manna. Verð kr. 2.000/2.500.
Netfang:
http://www.centrum.is/utivist
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Lofgjörðarsamkoma í kvöld
kl. 20.30. Turid Gamst talar.
Allir velkomnir.
Árbæjarsafn
Söguganga um Elliðaárdal
í kvöld kl. 20.00.
Lagt upp frá miðasölu safnsins.
Ókeypis þátttaka
KENNSLA
HJÓNABANDS-
SKÓLINN
Sími: 562-9911