Morgunblaðið - 01.09.1996, Qupperneq 22
22 SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Viltu veröa förðunarfræðingur?
6 vikna til 3ja mán. námskeið
í Ijósmynda- og tískuförðun.
Hægt er að velja á milli
morguntíma (9-13) og
kvöldtíma (19-23).
Kennd eru öll
undirstööuatriði förðunar,
litasamsetninga og
litgreiningu með tilliti til
förðunar.
Aöeins fagfólk með mikla
reynslu sér um kennslu:
Anna Toher, förðun og
litgreining.
Erla Björk Stefánsdóttir,
förðun og litgreining.
Þorbjörg Jónsdóttir,
förðunarmeistari frá Forum
í París.
Gestaleiðbeinendur eru
hárgreiðslu- og
snyrtifræðingar.
Kennsla hefst 10. september.
MAKEUPFOR EVER
Allar nánari upplýsingar og skráning
í MAKE UP FOR EVER búðinni,
SKólavörðustíg 2, sími 551 1080.
... Ipegar
Förðunarskóli Islands
skiPtir méij
• Senjoritur • Kórskóli «
Vetrarstarf kórsins hefst nú senn:
Kórfélagar mæti mánudaginn 16. september kl. 20:30.
Kórinn getur bætt við sig nokkrum félögum og geta áhugasamar
konur mætt í inntökupróf. Kórstjóri er Margrét J. Pálmadóttir
og undirleikari Svana Víkingsdóttir.
Hópurinn hefur vetrarstarfið á námskeiði hjá Sibyl Urbancic
og skulu félagar mæta mánudaginn 2. september.
Stjórnandi Vox feminae er Margrét J. Pálmadóttir.
Hópurinn er fullskipaður.
Félagar í Léttsveit mæti þriðjudaginn 3. september kl. 20:00.
Léttsveitin getur bætt við sig nokkrum félögum og áhugasamar
konur geta þreytt inntökupróf.
Stjórnandi Léttsveitarinnar er Jóhanna Þórhallsdóttir
og undirleikari Aðalheiður Þorsteinsdóttir.
■ Senjoriturnar
munu halda áfram starfsemi sinni enda gerðu þær stormandi
lukku strax á sínu fyrsta starfsári. Hópurinn er fyrir síungar
eldri konur og eru áhugasamir nýir félagar boðnir velkomnir.
Æfingar verða á mánudögum kl. 16:00 og hefjast 16. september.
Stjórnandi er Rut Magnússon.
verður áfram starfræktur og er hann ætlaður áhugasömum
konum sem hafa litla eða enga reynslu af söngstarfi.
Kennd verður raddbeiting, tónfræði og samsöngur.Tímar verða
á mánudögum frá klukkan 18:30 til 20:00 og hefst námskeiðið
þann 9. september. Kennari verður Margrét J. Pálmadóttir.
í Kvennakórinn og Léttsveitina verða þriðjudaginn 3. september
kl. 18:00-21:00 og fimmtudaginn 5. september kl. 17:00-20:00.
Skráning fer fram á skrifstofu Kvennakórsins að Ægisgötu 7.
■ Nýi söngskólinn „Hjartans mál” ■! - MHI
Söngskólinn er starfræktur í húsi Kvennakórs Reykjavíkur
og býður upp á einsöngsdeild og undirbúningsdeild.
Allar æfingar fara fram í húsnæði
Kvennakórs Reykjavíkur að Ægisgötu 7.
Innritun og frekari upplýsingar eru veittar í síma 562 6460 dagana
2. september kl. 10-19 og 3.september kl. 10-12 og 16-20.
Kvennakór Reykjavíkur
svipaðri hæð og margir Alpatindar
(3.750 m). Gömul tíbetsk steinhús
mynda mest af þorpinu en nýtísku
steypu- og glerhýsi, lág þó, eru víða
við auruga aðalgötuna, þar sem
hundar, geitur og uxar spásséra inn-
an um vingjarnlegt fólkið. Þama er
líka kínversk herstöð, skammt frá
vel búnum skóla þar sem kennsla
fer fram á tíbetsku og stóru sjúkra-
húsi. Kínveijar, sem tóku völdin í
Tíbet á 6. áratug aldarinnar, hafa
mörg brot gagnvart sjálfræði og
menningu Tíbeta á samviskunni en
andstæðurnar í Nyalam sýndu að
þeim hefur líklega ekki tekist að
breyta miklu um hefðir, lífshætti og
vilja Tíbeta sem forsmá þó hvorki
nútíma skóla né heilsugæslu. í raun
er Kína svo íjarri Tíbetum í huga og
í stjórnmálum að farsæl framtíð
getur aðeins falist í sjálfræði heima-
manna, hvernig svo sem því verður
á komið eða því háttað.
Stundum duttum við ofan í um-
ræður um Tíbet og Kína, við ferða-
félagarnir; meira að segja þar sem
við lágum í þvældum rúmum í gisti-
húsi með moldargólfum og engri
vatnslögn, og gerðumst íhugulir.
Mestur tíminn fór þó í göngur þessa
þijá daga í „láglendisbyggðinni".
Við fórum m.a. með ökrum og selj-
um upp að fjailavatninu Tara Tso
og sáum fjallarisa Langtang Himal;
firnabratta ístinda eins og Doije
Lapka (6989 m) en Shisha Pangma
var hulið skýjum. Einn tind, nafn-
lausan en rétt um 5.000 metra há-
an, klifum við líka og sáum fjallar-
isa Rolwaling í austrinu. Mér þótti
eigið úthald þokkalegt og tókst
ágætlega að aðlagast hæðinni.
Hægferð okkar að takmarkinu var
með vilja gerð; til þess að líkaminn,
einkum blóðrás og öndun, aðlagaðist
æ minna súrefni. Einn okkar varð
þó hæðarveikur og varð að snúa
heim eftir bjúgmyndun í lungum.
Skýjum ofar
Eins dags ökuferð, fyrst á vegin-
um til Lasha, síðan á eins konar
„Sprengisandsvegi“, lá fyrir okkur
þar til gönguferðin í grunnbúðir gat
hafist. Norður af Nyalam var land-
ið hijóstrugt nema í dalbotnum.
Litlar þyrpingar steinhúsa og stein-
garða mynda landbúnaðarsambýli
eins og þau hafa verið frá alda
öðli. Akrar í hlíðunum virtust smáir
en í dalbotnum þrífst hirsi og harð-
gerð hrísgijón. Klausturrústir sáum
við en heimsóttum líka fullbúið
klaustur, Pengyenling Gompa. Þar
sýndu elskulegir munkar okkur
helgidóm Milarepa en hann var
munkur og skáld, uppi kringum 100
e.Kr. Þeir blésu fyrir okkur í lúðr-
ana miklu og lærlingar, á aldrinum
7-14 ára, glettust við okkur og
sníktu kúlupenna sem eru mikil
dýrindi í þeirra augum.
Smám saman varð landið nær
alveg gróðursnautt, fjöllin marglit
eða nærri svört og landslagið minnti
víða á íslenska hálendið. Enn sáust
afar stijál þorp, jakuxahjarðir, ríð-
andi menn og stöku geitahirðir með
hópinn sinn. Hæðarmælar ferðafé-
laganna nálguðust 5.000 metrana
á meðan bílarnir paufuðust upp
kollótt fjöll í skarðið Lalung Leh.
Þar efst áðum við. Vörður, lítil alt-
öru, stangir með bænaflöggum og
myndarlegur vegvísir skreyttu mel-
ina en útsýnið fékk okkur til að
grípa andann á lofti. Hásléttur Tíb-
ets að sjá svo langt sem augað
eygði í norðri en snjófjöll Nepals í
austri. I suðvestri fangaði fjallgarð-
ur augu okkar af því að þar hreykti
sér risinn í hópnum; loksins skýjum
ofar og glitrandi: Shisha Pangma
með sína ríflega 8.000 metra hæð
yfir sjó.
Þetta var þá fjallið „mitt“. Nú
leit ég það eftir langa fer og enn
lengri undirbúning heima. Auðnað-
ist mér nokkurn tíma að komast
þama upp, langleiðina i þotuflugs-
hæð? Nú fyrst fundum við flest til
spennunnar sem er ein af lífæðum
fjallamennskunnar.
Þakkir til stuðningsaðila:
Hugrún, Eimskip, MAX,
Líffræðistofnun HÍ með tilstyrk
Landsbankans, Seglagerðin Ægir,
Pharmaco, GYM80, Safalinn,
Glófinn, Snorri Hjnltnson, Bnkarí
Friðriks Haraldssonar og
Morgunblaðið
GATA í Nyalam, Tíbet
Bærin Zangmu (kínverska) eða
Kasha (tíbetska/nepali) líkt og
hangir utan í snarbrattri fjallshlíð.
Ein gata hlykkjast um hann, aur-
borin og þröng. Þama er forn versl-
unarmiðstöð en í nútímanum hópast
hundruð bíla í fullkomnu öngþveiti
að verslunum og vöruskemmum við
götuna einu þar sem skólp, tærar
fjallalindir og olía blandast í graut.
Brennivín, útvarpstæki, plastskór
og ávextir eru seldir í sams konar
bárujárnskompu og geymir glóð-
heitar hnetur, te og fylltar pönnu-
kökur við hliðina á „krambúöinni".
Risastórt og fmmstætt „hótel“
verður næturstaður okkar eftir
kæruleysislega skoðun lögreglu og
tollara við varðstöð bæjarins.
Um kvöldið eru allir flutningabíl-
arnir allt í einu horfnir og gatan
fyllist af misvel búnu fólki að spóka
sig. Kínverskar glæsimeyjar í
þröngum silkikjólum tipla á há-
hælaskóm í leðjunni. Þær eru hér
með hópi her- og embættismanna
kínverska ríksins. Tíbetskar kyn-
systur þeirra eru í síðum þykkum
pilsum með skrauthlöð um mittið
og marglita klúta vafða um höfuð-
ið. Margt er um grænklædda Kína-
dáta og Tíbetkarlar með fínu flétt-
urnar sínar eru sumir vel búnir en
verkamenn margir í tötrum. Þetta
er sérkennilegur og líflegur söfnuð-
ur en hlandlykt, matarlykt og tað-
eimur hangir í loftinu sem fyllist
líka af dægurlagasúpu úr mörgum
útvarpstækjum og hátölurum.
Skyndilega er orðið kalt eftir
sólsetur enda við í 2.350 metra
hæð. Á skömmum tíma tæmist
gatan og ég halla mér, fyrstu nótt-
ina í þessu skrítna landi.
Hæðaraðlögun í Nyalam
Um morguninn silast bílalestin
okkar upp skógivaxnar og brattar
hlíðar uns gróðurinn verður kyrk-
ingslegur og snæviþakin fjöll sjást
ofan við háa kamba. Malarvegurinn
er víða sundurskorinn eða þakinn
hröngli úr skriðum. Það tekur
margar klukkustundir að hækka sig
um þá 1.400 metra sem marka
þennan fyrsta áfanga okkar í Tíbet.
Þrír djúpir dalir skerast við ármót
þar sem þorpið Nyalam stendur í
SHISHA Pangma (t.v.) og Kangbutschen (í miðið), séð
frá Langlung Leh.
TÍBETSK kona með barn sitt í Zangmu (Kasha).