Morgunblaðið - 03.09.1996, Side 10

Morgunblaðið - 03.09.1996, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Ræðaforseta Islands á Isafirði Togstreita höfuðborg- ar o g lands- byggðar dagar uppi MÖGULEIKAR Vestfjarða í fram- tíðinni felast í milliliðalausum tengslum við fyrirtæki og ein- staklinga um allan heim. Tog- streita höfuðborgar og lands- byggðar mun daga uppi vegna nýrrar tækni í samgöngum, fjar- skiptum og hugbúnaði. Þetta var nieðal efnis í ræðu Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta íslands, sem hann hélt á hátíðarsamkomu í til- efni af opinberrj heimsókn for- setahjónanna á Isafirði um helg- ina. „Togstreitan milli landsbyggð- ar og höfuðborgarsvæðis sem ein- kennt hefur umræðu og ákvarð- anir á vettvangi þjóðmála um marga áratugi er að daga uppi í umbroti breytinga sem umskapa heiminn allan. Sú samkeppni sem úrslitum ræður er ekki lengur milli Reykjavíkur og annarra landshluta heldur íslands alls annars vegar og umheimsins hins vegar. Það er sú glíma sem um- fram annað mun ráða því hvort unga fólkið kýs áfram að eiga ísland að heimkynnum. í krafti þeirrar boðskiptatækni sem færir heimsmarkaðinn beint til hvers og eins geta Vestfirðir, Norður- land eða Austfirðir vissulega skarað fram úr. Reykjavíkur- svæðið er ekki lengur nauðsynleg- ur áfangastaður heldur byggðar- lag á sama báti og hin.“ Forsetinn sagði að um allt land væru byggðirnar að tengjast beint við það markaðskerfi ver- aldarinnar sem í sífellu umskap- aði efnahagslíf heimsins. Þessi nýi veruleiki krefðist ferskrar hugs- unar, nýrrar nálgunar að gömlum vandamálum. „Umræðan um byggðavanda Islendinga þarf að vissu leyti að færast á byrjunarreit. Hún þarf að eignast nýtt upphaf þar sem tækifæri hugbúnaðartækninnar og boðskiptabrautir heimsvið- skiptanna eru forsenda breyttra stefnu og nýrra aðferða. Hún þarf að taka mið af þeirri stað- reynd að dýrmætasta auðlindin felst í fólkinu sjálfu - hæfni, menntun og áræði sérhvers ein- staklings. Mannauðurinn mun ráða úrslitum í samkeppni byggða og þjóðlanda á nýrri öld.“ Forsetinn benti á að fyrr á tím- um hefðu Vestfirðir verið í sterk- um tengslum við umheiminn, og nefndi til sögunnar Asgeirsversl- un á ísafirði. „Og á æskuárum mínum á Þingeyri hönnuðu karl- arnir í smiðjunni, afi minn og nafni Ólafur Ragnar og félagar hans, vélar og tæki sem síðan voru seld víða um lönd. Jafnvel alla leið til Singapore barst hróð- ur hins vestfirska hugvits. Saga Vestfjarða er því ekki saga einangraðs útkjálka. Þvert á móti eru dæmin mörg um mest- an árangur þegar brautin var bein og hindrunarlaus í samskipt- um við umheiminn. Hugvitið og hæfni mannfólksins voru það afl sem úrslitum réð. Senn höldum við á vit nýrrar aldar. Tími nýrra tækifæra er framundan. Eðli og umfang þeirra breytinga skapar Vest- fjörðum og öðrum byggðum ís- lands nýjar leiðir til sóknar. Saga Isafjarðar, sókndjarft mannlif í vestfirskum byggðum á fyrri tíð, ætti að efla áræði okkar til að nýta tækifæri nýrrar aldar, að laga hugsun okkar og aðferðir að möguleikum nýrrar heims- myndar.“ FRÉTTIR Morgunblaðið/HalldórSveinbjömsson FORSETAHJÓNIN við byssuna á Halldóri Sigurðssyni ÍS ásamt Konráð Eggertssyni hrefnuveiðimanni. FJÖGUR ungmenni fengu hvatningarverðlaun forseta íslands. F.v. Auður Sjöfn Þórisdóttir, Albertína Elíasdóttir, Ólafur Ragn- ar Grímsson, Pétur Geir Svavarsson og Ingunn Einarsdóttir. ísafirði. Morgunblaðið. HEIMSÓKN forseta íslands, hr. Ólafs Ragnars Grímssonar og konu hans Guðrúnar Katrínar Þorbergs- dóttur, til norðurhluta Vestfjarða lauk í gærmorgun með heimsókn til þriggja atvinnufyrirtækja á ísafirði. Að kvöldi annars dags heimsókn- arinnar var haldin hátíðarsamkoma í íþróttahúsinu á Torfnesi á ísafírði þar sem öllum íbúum ísafjarðarbæj- ar, Bolungarvíkur og Súðavíkur- hrepps var boðið. Húsfyllir var á samkomunni sem þótti takast hið besta. A samkomunni afhenti forsetinn fjórum vestfirskum ungmennum sér- stök hvatningarverðlaun vegna árangurs þeirra á hinum ýmsu svið- um. Sagði hann við það tækifæri að um væri að ræða hvatningu til ungs fólks sem væri að alast upp í landi okkar og sýndi góðan árangur á fjölmörgum sviðum í námi, leik, list, starfi, félagslífi, íþróttum og á ýmsum öðrum sviðum. „Það er mikilvæg skylda forseta íslands að láta í té slíka hvatningu og stuðla þannig að því að við látum í ljós stuðning og hvetjum þau til að halda áfram á sömu braut,“ sagði forsetinn. „Áður en ég kem að þeim Qórum vestfirsku ungmennum sem fyrstu hvatningarskjölin hljóta, þá langar mig að Ieggja áherslu á það að hér er ekki um keppni að ræða og þaðan af síður samkeppni heldur eins konar táknrænan viðurkenn- ingarvott fyrir það sem þau hafa FORSETAHJÓNIN, frú Guðrún Katrín Þorbergsdóttir og hr. Ólafur Ragnar Grímsson þáðu kaffiveitingar hjá einni flótta- mannafjölskyldunni sem kom til ísafjarðarbæjar fyrir stuttu. Heimsókn forsetans til Vestflarða verið að gera þótt fjölmargir aðrir kæmu einnig tii greina." Þau ungmenni sem hlutu hvatn- ingarskjölin eru Auður Sjöfn Þór- isdóttir, 10 ára, sem fékk verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í fiðlu- námi, Ingunn Einarsdóttir, 13 ára, fékk verðlaun fyrir árangur í íþrótt- um, en hún stundar jafnt knatt- spyrnu, skíði og golf og þykir fram- úrskarandi íþróttakona og hógvær og kurteis og Albertína Elíasdóttir, 16 ára, fékk verðlaun fyrir árangur sinn í þeirri nýjung að vinna að rétt- inda- og velferðarmálum nemenda auk þess sem hún hefur sinnt börn- um flóttamanna og unnið ötullega gegn fíkniefnanotkun unglinga. Þá fékk Pétur Geir Svavarsson, 15 ára, verðlaun fyrir góðan árangur í íþróttum en Pétur Geir var nýlega valinn í unglingalandslið íslands í knattspyrnu auk þess sem hann þykir liðtækur í handbolta og körfu- bolta. Forsetinn heimsækir Vigur Þriðji dagur heimsóknar forseta- hjónanna hófst með ökuferð til Súða- víkur. Þar óku forsetahjónin um eldri hluta þorpsins, skoðuðu ummerki eftir snjóflóðið mikla sem féll á byggðina í janúar á síðasta ári og minntust látinna. Að lokinni messu í Súðavíkurkirkju héldu forsetahjón- in með bátnum Halldóri Sigurðssyni IS út í eyjuna Vigur, þar sem eyjan var skoðuð undir leiðsögn heima- manna. Frá Vigur var haldið á ný til Súða- víkur þar sem forsetahjónin voru viðstödd vígslu grunnskólans á staðnum en hann var eins og kunn- ugt er, byggður fyrir gjafafé frá Færeyjum. Að lokinni almennri sam- komu í íþróttahúsinu á staðnum óku forsetahjónin um nýju byggðina- í Súðavík og síðar um daginn voru þau viðstödd skólasetningu Fram- haldsskóla Vestfjarða. Um kvöldið þáðu þau síðan kvöldverðarboð sýslumannsins á ísafirði, Ólafs Helga Kjartanssonar og konu hans Þórdísar Jónsdóttur. Fékk Napóleonskökur að gjöf í gærmorgun, sem var síðasti dagur heimsóknar forsetahjónanna til Vestfjarða, heimsóttu þau þijú atvinnufyrirtæki á Isafirði, Hrað- frystihúsið Norðurtanga hf., Póls- rafeindavörur hf., og Gamla bakarí- ið. Þar hittu forsetahjónin fyrir eig- andann Rut Tryggvason og Rögn- vald Þór Óskarsson, bakara, en hann var kosningastjóri Ólafs Ragnars á Isafirði í nýafstöðnum forsetakosn- ingum. „Forsetinn spurði hvort við ættum Napóleonskökur og þar sem þær voru ekki til þá stundina var ekkert um annað að ræða en að baka þær strax. Það var gert og hélt hann því til síns heima með kassa af Napó- leonskökum,“ sagði Rut Tryggvason í samtali við blaðið, en hún sagði forsetann hafa ætlað að fara með kökurnar í afmælisveislu dætra þeirra hjóna, sem eru 21 árs um þessar mundir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.