Morgunblaðið - 14.09.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1996 13
AKUREYRI
Óánægja á Akureyri með tillögur um staðsetningu Sjávarútvegsskóla SÞ
Lagt til að Sjávarútvegs-
skóli HSÞ verði í Reykjavík
STARFSHÓPUR um leiðir til að
stofna Sjávarútvegsskóla Háskóla
Sameinuðu þjóðanna á íslandi, legg-
ur til að skólinn verði í eða í nánd
við Sjávarútvegshúsið á Skúlagötu
4 í Reykjavík, hjá Hafrannsókna-
stofnun (Hafró) og Rannsóknastofn-
un fiskiðnaðarins (Rf). Þetta kemur
fram í ágripi af skýrslu starfshóps-
ins og þar segir ennfremur að Há-
skóli íslands (HÍ) stefni að því að
flytja Sjávarútvegsstofnun sína og
meistaranám í sjávarútvegsfræðum,
svo og ýmsa aðra starfsemi tengda
sjávarútvegi og matvælafræði á
sömu torfu. Það muni koma Sjávar-
útvegsskólanum að miklu gagni.
Helgi Jóhannesson, atvinnumála-
fulltrúi Akureyrarbæjar, segir að
Háskólinn á Akureyri hafi sóst eftir
því að fá Sjávarútvegsskóla HSÞ
norður og samnýta þannig öll
kennslutæki sem til staðar eru við
kennslu á sjávarútvegssviði. Hann
segir að gangi tillögur starfshópsins
eftir, þess efnis að hann verði í
Reykjavík, sé það eins og köld
vatnsgusa fyrir HA í baráttu sinni
í að halda úti kennslu í þessari undir-
stöðuatvinnugrein þjóðarinnar.
Sjávarútvegsdeild
HA sannað gildi sitt
Bjarni Kristinsson, framkvæmda-
stjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar
hf., segir að gangi tillögur starfs-
hópsins um staðsetningu skólans
eftir, setji það sjávarútvegsdeild HA
í mjög erfiða stöðu og sé í raun
upphafið að einangrun deildarinnar
norður á Akureyri.
„Menn settu hér niður háskóla
fullir bjartsýni, með sérhæfingu í
sjávarútvegsfræðum og skólinn hef-
ur sannarlega sannað gildi sitt. Hann
hefur virkað sem vítamínsprauta á
atvinnu- og mannlíf norðan heiða.
Háskóli íslands hefur tekið þetta
markvisst upp og sækir á í krafti
þess að hann hefur sérfræðingana
og stofnanirnar í Reykjavík. Það er
einmitt þetta sem háskóiann hér
vantar til að styrkja sig í sessi og
þegar svona nýtt tækifæri kemur,
er upplagt að horfa til Akureyrar
og styrka þá starfsemi sem fyrir er.
Ef menn hins vegar halda áfram að
styrkja starfsemina í Reykjavík og
setja upp þennan sjávarútvegsgarð
kemur að því að sjávarútvegsdeild
HA endi þar líka eða inn í Háskóla
íslands," segir Bjarni.
Heimilisfangið aldrei annað
Helgi segir að menn hafi mátt vita
að barátta HA væri vonlaus þar sem
starfshópur ráðherranna var þannig
samsettur að heimilisfang skólans
gæti aldrei orðið annað en Skúlagata
4. „Það hefði væntanlega verið kölluð
pólitík, jafnvel byggðapólitík hefði
skólinn verið stofnaður á Akureyri.
Að stofna hann í Reykjavík telst hins
vegar ekki pólitík heldur bara eðlilegt
og sjálfsagt," segir Helgi.
í skýrslu starfshópsins kemur
fram að kennarar skólans munu
koma frá mörgum stofnunum, svo
sem Hafró, Rf, HÍ og Háskólanum
á Akureyri (HA). Einnig verði leitað
eftir þátttöku sjávarútvegsfyrir-
tækja. Starfshópurinn er sammála
um að á íslandi séu mjög góðar
aðstæður til að koma á fót og reka
Sjávarútvegsskóla HSÞ til að styðja
þróunarlöndin með sérfræðiþjálfun.
Starfshópurinn leggur til að ís-
lensk stjórnvöld sendi formlegt tilboð
til HSÞ um stofnun skólans hér á
landi. Ef niðurstöður verða jávæðar
og samningar nást má gera ráð fyr-
ir að fyrstu nemendur í Sjávarút-
vegsskóla HSÞ hefji nám á íslandi
vorið 1997.
Ekki náðist í Ingvar Birgi Frið-
leifsson, formann starfshópsins, í
gær, en auk hans áttu sæti í nefnd-
inni Björn Matthíasson, Guðrún Pét-
ursdóttir, Grímur Valdimarsson og
Kári Ævar Jóhannesson.
Skólasetning
Tónlistarskólans
Nemenda-
fjöldi svip-
aður milli
ára
TÓNLISTARSKÓLINN á Ak-
ureyri verður settur á sal skól-
ans að Hafnarstræti 81 á
morgun sunnudag kl. 17.00.
Aðsókn að skólanum er svipuð
og verið hefur undanfarin ár
og fjöldi innritaðra nemenda
um 500.
í vetur er eftir nokkurra ára
hlé boðið upp á kennslu í harm-
onikkuleik og hefur tekist
samvinna við Félag harmon-
ikkuunnenda við Eyjafjörð um
útvegun hljóðfæra til útleigu
til nemenda. Breytingar hafa
orðið á fyrirkomulagi forskóla-
kennslu en innan fárra ára
mun slík kennsla verða hluti
af grunnskólanámi allra barna
á Akureyri í 1. og 2. bekk.
I vetur verður starfi blás-
arasveitar haldið áfram og
einnig verður kór skólans
starfræktur áfram.
Morgunblaðið/Kristján
ÞÓREY Aðalsteinsdóttir, Alfreð Gíslason, Kara Guðrún
Melsteð og Auður Dúadóttir hífa leikhússtjórann Trausta
Ólafsson upp í hlaupaketti í nýju húsnæði LA í gömlu
járnsmíðaverkstæði á Oddeyrinni.
Viðamikið leikár framundan hjá LA
Tvær sýningar í
járnsmíðaverkstæði
LEIKÁRIÐ hjá Leikfélagi Akureyrar
er óvenju viðamikið, enda verða marg-
vísleg tímamót hjá félaginu, það fagn-
ar 80 ára afmæli í apríl næstkomandi
og í janúar eru 90 ár frá vígslu Sam-
komuhússins. Þá eiga tveir leikarar
félagsins leikafmæli, þau Sunna Borg
og Þráinn Karlsson. Félagið tekur til
sýninga 6 verkefni og rúmar gamla
Samkomuhúsið ekki alla þá starf-
semi. Forsvarsmenn félagins hafa nú
gert samning við eigendur Gránufé-
lagsins um afnot af húsnæði þess,
en nýja leikhúsið verður í gömlu jám-
smíðaverkstæði sem stendur bak við
veitingahúsið Við Pollinn.
Þar verður rúm fyrir allt að 200
áhorfendur og mun leikfélagið setja
þar upp tvö af verkefnum ársins.
Fyrri frumsýningin verður milli jóla
og nýárs á bandarísku nýtímaleikriti
eftir Steve Tesich en það heitir Und-
ir berum himni. Það gerist í borgara-
styijöld í ónefndu landi og segir þar
frá tveimur mönnum sem leita allra
leiða til að komast af við óbiíðar
aðstæður.
Hitt verkið, sem sýnt verður á
nýja leiksviði félagsins, er Vefarinn
mikli frá Kasmír, leikgerð Halldórs
E. Laxness og Trausta Ólafssonar
eftir bók Halldórs Laxness. Frum-
sýning Vefarans verður í mars, eða
föstudaginn fyrir pálmasunnudag.
Lækurinn þornaði upp í langvarandi þurrkakafla
Dansaði regndans væri ég
ekki svona slæmur í fætinum
LANGUR þurrkakafli hefur ver-
ið norðanlands, en afar lítið hef-
ur rignt í um einn mánuð. Síðast
var talsverð úrkoma 16. ágúst
síðastliðinn, þá mældist dálítil
úrkoma 25. ágúst og 1. septem-
ber mældist úrkoma 2,9 mm, en
0,7 mm 6. september.
Þessi langi þurrkakafli hefur
haft þær afleiðingar í för með
sér að lækurinn í hólfinu hans
Hjálmars Júlíussonar í landi Sól-
borgarhóls skammt norðan Ak-
ureyrar hefur þornað. „Ég hef
verið með hrossin mín í þessu
hólfi I tíu ár og aldrei fyrr hefur
lækurinn þornað. Það kemur
þarna svolítil seyra þegar rignir,
en nú hefur varla deigur dropi
komið úr lofti í langan tíma,“
segir Hjálmar og bætir við að
hann vissi til að svipað væri
ástatt á fleiri stöðum í firðinum.
Vatnið flutt í brúsum
úr bænum
Hjálmar hefur fjögur hross í
hólfinu um þessar mundir og
segir að þau hafi töluvertþurft
að drekka í hlýindunum sem
verið hafa undanfarna daga. Til
að hrossin fái svalað þorsta sín-
um hefur hann komið fyrir
tunnu í hólfinu og við annan
mann flytur hann vatn úr bænum
í 30 lítra brúsum til að fylla á
tunnuna.
„Þetta verða vandræði, fari
ekki að rigna,“ segir hann. „Ég
myndi svo sannarlega dansa
regndans ef ég væri ekki slæmur
í fætinum."
Morgunblaðið/Kristján
HJÁLMAR við lækinn snemma í gærmorgun þegar var
örlítið vatn í honum eftir nóttina, en um miðjan dag hafði
hann þornað aftur.
Messur
AKUREYRARKIRKJA: Guðs-
þjónusta á morgun, sunnudaginn
15. segtember k. 11.
GLERÁRKIRKJA: Guðsþjónusta
verður í kirkjunni á morgun,
sunnudag kl. 14.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 á morgun, bæna-
sund til 19.30, almenn samkoma
kl. 20. Heimilasamband kl. 16 á
mánudag, krakkaklúbbur kl. 17 á
miðvikudag, biblía og bæn kl. 2.30
sama dag og 11 á fimmtudag kl.
17.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Sam-
koma í umsjá unga fólksins í kvöld
kl. 20.30, nemar af biblíuskóla
Hvítasunnumanna í Kirkjulækjar-
koti taka þátt í samkomunni.
Safnaðarsamkoma kl. 11 á morg-
un, vakningasamkoma með þátt-
töku biblíuskólanema kl. 20 sama
dag, stjórnandi Vörður Trausta-
son. Bæn og lofgjörð kl. 20.30
n.k. föstudagskvöld kl. 20.30.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa
kl. 18 í dag, laugardag og kl. 11
á morgun, sunnudag.
HEFST EFTIR
3
DAGA
HEIMSVIÐB URÐUR
íLAUGARDALSHÖLL
Alþjóðlega sjávarútvegssýningin 18.-21. sept.