Morgunblaðið - 14.09.1996, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.09.1996, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÁSÓLFUR PÁLSSON + Ásólfur Pálsson fæddist í Reykjavík 10. júní 1915. Hann lést á Borgarspítalanum 2. september síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Páll Stef- ánsson, f. 16.12. 1876, d. 6.8. 1947, bóndi á Ásólfsstöð- um, og kona hans Guðný S. Jónsdótt- ir, f. 15.11. 1878 á Núpi í Berufirði, d. 15.1. 1933. Alsystk- ini Ásólfs voru Gunnar Páll, f. 15.5. 1911, d. 19.4. 1933, Guðrún Helga, f. 29.10. 1913, d. 20.1. 1941, Sól- veig Þrúður, f. 24.8.1916, Katr- ín, f. 1.10. 1918, d. 15.6. 1966, Stefán, f. 13.2. 1920, d. 30.1. 1989. Hálfsystkini Ásólfs eru Þórunn, f. 30.8. 1935, og Gunn- ar Helgi, f. 18.3. 1941. Hinn 9.7. 1942 kvæntist Ásólfur Ragnheiði Gestsdóttur frá Hæli, f. 7.2. 1918, dóttur Gests Einarssonar, bónda á _ . Hæli, f. 2.6.1880, d. 23.11.1918, og konu hans Margrétar Gísla- dóttur, f. 30.9. 1885, d. 7.6. 1969. Börn Ásólfs og Ragnheið- ar eru: 1) Margrét, f. 12.5.1943, gift Þorsteini Hallgrímssyni. Ásólfur Pálsson bóndi á Ásólfs- stöðum í Þjórsárdal er látinn rúm- lega 81 árs að aldri. Hann var fædd- ur á Elliðavatni en tveggja ára gam- all flutti hann með foreldrum sínum að Ásólfsstöðum. Þar hófu búskap árið 1873 amma hans og afí, Stefán Tlöskuldsson, sem fæddur var á Ásólfsstöðum, en hann lést árið 1882. Móðir hans giftist aftur 1887, og hjá móður sinni, föður og síðar stjúpa ólst Páll upp með systkinum sínum á mannmörgu heimili og róm- uðu stórbýli. Árið 1917 bauðst Páli föðurleifðin, Ásólfsstaðir, til ábúðar, þar sem móðir hans og stjúpi voru farin að eldast, en Ásólfsstaðirnir voru það erfið jörð, að þar þurfti helst að vera fólk sem gæti tekist á við erfiðar smalamennskur og stundað beitarbúskap í ríkum mæli. Páll Stefánsson var fertugur þeg- ar hann flutti heim aftur að Ásólfs- stöðum með konu sinni Guðnýju Jónsdóttur, ættaðri úr S-Múlasýslu -A)g fjórum ungum börnum. Senni- lega myndu ýmsir hugsa sig um tvisvar áður en þeir flyttu á afdala- jörð, að mestu án vegasambands, frá góðbýlinu á Elliðavatni, rétt við vaxandi markað fyrir búvörur í Reykjavík, sem óx á þeim árum hratt, frá því að vera dálítill kaup- staður í umsvifamikla hafnarborg, þar sem allir þræðir viðskiptalífsins tengdust og vaxandi stjórnsýsla tók á sig nýtískulegri blæ með hveiju árinu sem leið. En Páll þurfti ekki að hugsa sig um, því að með því að fá ábúð á Ásólfsstöðum í Þjórs- árdal, sá hann fyrir sér, að allir draumar og vonir hans myndu þar með rætast, því að engin jörð hefði 'upp á það að bjóða, sem Ásólfsstað- irnir buðu fram, óvenjulega veður- sæld, fremur grasgefin tún og sæmilegar engjar, þó að undanfæri væri ekki mikið, úrvals beitarað- stöðu, þó vandnýtt væri í hörðum veðrum og snjóþungum vetrum. Og svo er það ótalið sem ef til vill hefur vegið þyngst í öllum sam- anburði. Hvergi er fegurra bæjar- stæði en á Ásólfsstöðum, og birki- skógurinn, sem óx heim að bæ og um alla hlíðina fyrir innan bæinn, ómaði af fuglasöng, einkum á vorin, ,.og veitti fólki og fénaði skjól, þegar óveður gerðu annars alla útivist erf- iða og fénaði leið illa á bersvæði, en þá var oft dýrmætt afdrep og skjól í birkiskóginum og einkum í jaðri hans. Og svo voru það æskuminning- arnar frá Ásólfsstöðum, sem gott var að hugsa til. Hann hafði átt þar góðan uppvöxt hjá mikilhæfri móð- Börn þeirra eru Gunnar Örn og Kristín Aranka. 2) Guðný, f. 2.1. 1945, gift Ottari Proppé, d. 11.9. 1993. Synir þeirra eru Hrafn- kell Ásólfur og Kol- beinn. 3) Sigurður Páll, f. 14.10. 1948, kvæntur Hrafnhildi Jóhannesdóttur. Börn þeirra eru Jó- hannes Hlynur og Ragnheiður Björk. 4) Gestur, f. 9.5. 1953, kvæntur Þór- unni Hjaltadóttur. Börn þeirra eru Ragnheiður, Hjalti og Haukur Már. Ásólfur varð búfræðingur frá Hvanneyri 1934. Hann hóf búskap á Ásólfsstöðum árið 1942 og bjó þar til dauðadags að undanskildum sjö árum sem hann bjó í Reykjavík vegna veikinda. Jafnframt búskap rak hann gistihús á Ásólfsstöðum frá 1942 til 1952. Ásólfur gegndi ýmsum trúnaðarstörf- um fyrir sveit sína og sat m.a. í hreppsnefnd, sóknarnefnd og Þjórsárdalsnefnd. Utför Ásólfs verður gerð frá Stóra-Núpskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 14. ur, Helgu prestsdóttur frá Stóra- Núpi, sem sá sem þetta ritar minn- ist sem tilkomumikillar skörungs- konu, en föður sinn missti Páll að- eins fímm ára gamall, en börnin voru þijú, Jón, síðar prestur en dó ungur, Guðrún, síðar húsfreyja í Galtafelli og svo Páll. Móðir hans giftist aftur dugnaðannanni, Ste- fáni Eiríkssyni frá Árhrauni, og_ eignuðust þau tvær dætur, Stefaníu, sem giftist Bjama Jónssyni frá Galtafelli, og Kristínu, síðar hús- freyju í Ásum. Þessi systkinahópur var einstaklega glæsilegur og var Ásólfsstaðaheimilið á þeim árum rómað fyrir reisn og myndarskap, en jörðin var erfið og þar þreifst enginn nema leggja hart að sér. Páll hóf bústörfin af miklum krafti og bætti húsakost og jók tún- ræktina, bætti _slægjulöndin og stækkaði búið. Á Ásólfsstöðum urðu því fljótt mikil umsvif, stórt bú, á sjötta hundrað fjár, 6-8 mjólkurkýr og 10-15 brúkunarhestar. Hér var því mikil vinna af hendi leyst, en allur fénaður var afurðasæll, enda eru beitargæði hér meiri en til þekk- ist annars staðar hér um slóðir. En á Ásólfsstöðum varð brátt mikil gestnauð, því að marga fýsti að sjá hina eyddu byggð í Þjórsárdalnum, dalnum þar sem hetjur og glæsi- menn fornaldarinnar eins og Hjalti Skeggjason á Skeljastöðum og Gaukur Trandilsson á Stöng riðu þá um héruð með alvæpni og öflugt fylgdarlið. Þegar Páll hafði búið á Ásólfs- stöðum í 10 ár sá hann sig tilneydd- an að byggja gistihús með 10-15 rúmum og auk þess veitingaaðstöðu fyrir ferðafólk, og var gistiaðstaða þessi starfrækt í fullan aldarfjórð- ung, og bjargaði það mörgum ferða- mönnum frá fullkomnum vandræð- um, þar sem vegasamband var jafn vont og það var á þessum tímum. Mér er þetta heimili Páls og Guðnýj- ar mjög minnisstætt frá því að ég var að alast upp. Páll var sjálfur einstaklega glæsilegur maður, með- almaður á hæð en teinréttur og bar sig vel, rauðhærður með yfirskegg og lítinn hökutopp. Hann var ágæt- ur söngmaður og góður tækifæris- ræðumaður, en það sem einkenndi hann mest var, hve háttvís hann var og framkoman öll kurteisleg og drengileg. Hann varð oddviti sveit- arinnar árið 1922 og endurkosinn alltaf til ársins 1946, enda þá kom- inn á sjötugasta árið. í kveðjusam- sæti sem honum var haldið, flutti Eiríkur Einarsson alþingismaður frá Hæli kvæði og er það eftirfarandi vísa, sem lýsir Páli ágætlega og hljóðar svo: Þú hefur skapið í birtunni baðað bjartsýnið fóstrað í þessari sveit. Þú hefur gullum á geislaborð raðað, gengið á snið við hinn myrkvaða reit. Guðný Jónsdóttir kona Páls var fríð kona, hæglát og bauð af sér mjög góðan þokka. Hún var föður- systir Ólafs Jóhanns Sigurðssonar skálds og hæfileikarík kona eins og hún átti kyn til. Börn þeirra Páls og Guðnýjar urðu 6, þrír drengir og þijár stúlk- ur. Þau náðu öll fullorðinsþroska og urðu bráðmyndarlegt fólk, glað- lynd og skemmtileg, enda var Ásólfsstaðaheimilið ógleymanlegt á þessum árum þegar bömin voru að leggja út á lífsbrautina, ung og fal- leg og með þetta elskulega viðmót, sem fylgdi þeim alla ævi og gerði þau að þeim góðu samfélagsborgur- um sem þau voru. Gurinar, sem var elstur, var fædd- ur árið 1910. Hann var einstaklega geðþekkur ungur maður, en hann smitaðist af berklum, og hann dó aðeins rúmlega tvítugur, öllum harmdauði. Hann eignaðist eina dóttur, en hún flutti til Ameríku og er búsett þar. Elsta dóttirin, Helga, giftist Gísla Eiríkssyni bílstjóra og eignuðust þau eina dóttur, sem býr á Breiðumýri í S-Þingeyjarsýslu. Helga var einstaklega geðþekk kona, en hún var heilsuveil og dó aðeins 28 ára gömul. Yngsti bróðir- inn, Stefán, var um nokkur ár starf- andi lögreglumaður í Reykjavík, en átthagamir kölluðu á hann og hann flutti heim að Ásólfsstöðum árið 1947 og hóf þar búskap í byijun í félagi við bróður sinn Ásólf, en síð- ar stofnaði hann nýbýli á hálfri jörð- inni og bjó á Ásólfsstöðum til 1989, er hann lést. Hann giftist Unni Bjarnadóttur úr Hafnarfirði og eign- uðust þau tvo syni og tvær dætur. Yngsta dóttirin, Katrín, settist að í Bandaríkjnum og giftist William Casy lögfræðingi, og eignuðust þau Qóra syni, en hún lést 1966 aðeins 48 ára að aldri. Sólveig var í miðið af systrunum. Hún er hjúkrunar- kona en giftist Charles Wrigly, starfsmanni í utanrikisþjónustu Breta, og eiga þau þijár dætur og eru búsett í Bretlandi og er hún nú ein á lífi af þessum alsystkinum og er nýlega orðin 80 ára. Guðný húsfreyja á Ásólfsstöðum átti við mikla vanheilsu að stríða síðustu árin, sem hún lifði, en hún lést árið 1933 aðeins 53 ára að aldri. Páll giftist síðar Þuríði Sigurðar- dóttur frá Árkvörn í Fljótshlíð og eignuðust þau tvö börn, Gunnar Helga, sem býr í Hafnarfirði og á tvö börn, og Þórunni, sem er ekkja og á tvo syni og er búsett í Banda- ríkjunum. Ég kynntist Ásólfí fyrst í Ása- skóla haustið 1926. Ég var þá 10 ára og var að hefja skólanám, en hann var 11 ára og var að heija annað ár sitt í skólanum, og var þegar orðinn foringi í hópnum, þroskamikill með fijálslega fram- komu, en einstaklega hjálpfús og viijugur að uppörva okkur, sem vor- um í fyrsta sinn að fara að heiman. Systir hans Sólveig, kom þarna með honum, jafnfeimin og við hin, sem vorum að byija, en strax tók ég eftir því, hve kært var með þeim systkinunum og mun það hafa hald- ist fram til þessa, þó að kjörin og umhverfið yrðu ólík. Æskuárin urðu farsæl og veittu okkur ágætan þroska, bæði andlega og líkamlega. Ég man að Ásólfur var óvenju bráðþroska og var strax um fermingu orðinn með karl- mannsgetu til allra verka. Honum var létt um að vinna og létu vel öll sveitastörf. Hann varð fljótt úrvalss- mali og ágætur fjallmaður, enda var hann alla tíð einstaklega ósérhlífínn maður. Hann undi vel sínum hag heima á Ásólfsstöðum og hann fór á bændaskólann á Hvanneyri, þegar hann var 18 ára og lauk búfræði- prófi tvítugur að aldri. Faðir hans hafði á þessum árum gifst aftur og fannst þá, að hann væri ekki tilbú- inn að láta af hendi búskaparað- stöðu til handa Ásólfi, og réð hann sig þá að Blikastöðum, sem starfs- mann. Ásólfur taldi alla tíð, að hann hefði lært mikið af því að starfa við Blikastaðabúið, en nú varð fljótt ljóst, að mikil þörf var orðin á því, að Ásólfur sneri heim aftur, þar sem heimilið og búið þyrftu á honum að halda. Það biðu hans einnig fjöl- mörg störf að eflingu félagslífs í sveitinni, hjá ungmennafélaginu og í Hreppakórnum, en Ásólfur hafði bæði mikla og góða tenórrödd eins og faðir hans, og hefði trúlega get- að lagt fyrir sig störf á þeim vett- vangi. En hugurinn sveigðist frekar að bústörfum og öllu sem gæti stuðl- að að aukinni hagsæld sveit- unganna. Á þessum árum fóru þau systir mín Ragnheiður og Ásólfur að kynn- ast betur, og það leiddi til þess, að þau giftust árið 1942 og hófu þá búskap á hálfri jörðinni á móti Páli. Síðar kom bróðir hans Stefán á jarð- arhluta föður þeirra eins og áður er getið. Ásólfur og Ragnheiður fengu fljótt mikil verkefni að leysa við búskapinn. Þau lögðu mikla áherslu á rekstur kúabúsins, en í fjárrækt- inni, sem Ásólfsstaðir hentuðu vel til, voru íjárpestirnar farnar að grassera svo, að þangað var ekki Iengur mikla hagsæld að sækja. Rekstur gistihússins var að sjálf- sögðu erfíður, þar sem starfstíminn var skammur hvert ár, en þó oft inn á milli miklu meira að sinna en tök voru á að gegna nema með óheyri- legu vinnuálagi. Samt varð gistihús- ið á Ásólfsstöðum mjög vinsæl stofnun, enda leysti það brýnan vanda á þeim árum, þegar sam- gönguerfiðleikar gerðu mikið tilkall til slíkrar fyrirgreiðslu á þessum stað. Árið 1958 veiktist Ásólfur af al- varlegum kransæðasjúkdómi og varð að leggja niður að vinna erfið- isvinnu og tók hann þá til þess ráðs, að bregða búi á Ásólfsstöðum og flytja með fjölskylduna til Reykja- víkur, þar sem honum tókst að fá létt störf að vinna, eftir því sem heilsan leyfði honum. Sem betur fer, þá fór heilsan batnandi, og árið 1965 afréðu þau að fiytja aftur að Ásólfsstöðum, því að þangað leitaði hugurinn alla tíð og ekki síst á vorin. Hann tók þeg- ar til starfa við að undirbúa bygg- ingu nýs íbúðarhúss, og síðan tók hann að sér ýmis störf, sem þá var verið að vinna að í sveitinni, en þá stóð yfir virkjun Þjórsár við Búrfell og mikla vinnu að fá og við margvís- leg störf. En hugurinn stefndi alltaf að bústörfum og um 1970 réðst hann í að byggja stórt fjós og hlöðu rétt hjá nýja húsinu. Þessa vinnu þoldi hann nú ekki allt of vel, og 1976 lét hann son sinn Sigurð Pál taka við jörðinni og búinu, en fékk sjálfur ásamt Ragnheiði konu sinni vinnu við virkjunina í Búrfelli. Ásólfur var sextíu og eins árs þegar hann hætti að búa og fékk jörðina í hendur syni sínum, Sigurði Páli. Ásólfur hafði skilað miklu bóndastarfi, bæði með föður sínum og systkinum og mest þó með konu sinni og bömum. Hann hafði tekið mikinn þátt í margvíslegum félags- málastörfum, verið formaður Bún- aðarfélags Gnúpveija, verið í hreppsnefnd, gegnt forðagæslu og verið í sóknamefnd í áratugi og formaður hennar um árabil. Vafa- laust var Ásólfur einn mesti félags- málaforkólfur sveitarinnar, og hjálpsemi og aðstoð við alla sem áttu í erfiðleikum var honum í blóð borin. Ásólfur lifði alla tíð í mjög farsælu hjónabandi og þrátt fyrir margháttaða erfíðleika, var heimili þeirra Rönku og Ása alltaf glað- vært og veitti öllum sem þar dvöldu skjól, hlýju og öryggi. Að sjálfsögðu var Ranka systir mín alltaf eins og klettur sem allir gátu treyst og leit- að til, en Ásólfur veitti konu sinni og börnum mikið ástríki og öllum á heimilinu lét hann vináttu sína í té og aðstoð, ef með þurfti. Þau hjónin nutu mikils barnaláns. Þau eignuð- ust fjögur börn, sem öllum hefur vegnað vel í lífinu. Elst er Margrét, f. 1943, starfar hjá skrifstofu Flug- leiða, gift Þorsteini Hallgrímssyni verkfræðingi og eiga þau tvö börn. Þá er Guðný, f. 1945, fulltrúi heil- brigðiseftirlitsins, ekkja eftir Óttar Proppé fv. bæjarstjóra og áttu þau tvo syni. Sigurður Páll, f. 1948, bóndi og vatnamælingamaður, kvæntur Hrafnhildi Jóhannesdóttur og eiga þau tvö börn. Yngstur er Gestur, f. 1953, raffræðingur, kvæntur Þórunni Hjaltadóttur og eiga þau þijú börn. Þó að Ásólfur gengi ekki heill til skógar hin síðari ár, þá má segja að þau hjónin hafi átt notaleg og friðsæl ár, eftir að þau létu af störf- um í Búrfelli og nutu þess að. taka á móti vinum og vandamönnum á sínu góða heimili í fallega hirtum garðinum og til allra átta stórbrot- inni náttúrufegurð. Á liðnu vori voru 54 ár frá því að þau Ásólfur og Ragnheiður stofnuðu sitt heimili og alla tíð síðan hefur heimili þeirra einkennst af glaðværð og gestrisni. Hér að framan var lýst nokkuð föð- ur Ásólfs, Páli Stefánssyni, og riíjuð upp vísa úr kvæði Eiríks Einarsson- ar, sem honum var flutt þegar hann lét af oddvitastörfum og flutti úr sveitinni. Þetta kvæði og þessi vísa hefði alveg eins getað átt við um Ásólf, enda voru þeir feðgar nauða- líkir, bæði í sjón og raun. Ásólfur hafði svo sannarlega „skapið í birt- unni baðað, og bjartsýnið fóstrað í þessari sveit.“ Það er því ekki óeðlilegt að okkur sem eftir lifum fínnist skyggja í sveitinni við brottför Ásólfs, en þannig megum við ekki hugsa né álykta. Sem betur fer eru ungir menn og konur að vaxa hér upp og taka þroska sem munu lýsa upp umhverfí sitt, á sama hátt og honum var svo lagið að gera. En við fráfall Ásólfs hafa margir misst mikið, og að sjálfsögðu mest konan hans og börnin og allt vina- fólkið sem er margt og hefur átt góðu að mæta alltaf þegar knúið hefur verið dyra á Ásólfsstöðum. Ég samhryggist þeim öllum og skil þeirra sorg, en tel þó, að einnig sé ástæða til að líta á Ásólf og líf hans sem ferðalag, þar sem gleði og bjart- sýni hefur mótað lífíð og lífsviðhorf- ið og gefíð samferðafólkinu aukinn kjark og óttaleysi. Um leið og ég vil þakka honum það sem hann hef- ur verið mér og mínum, vil ég að lokum færa fram innilegar þakkir fyrir líf Ásólfs Pálssonar og störfm hans öll. Hjalti Gestsson. Nú þegar sól tekur að lækka og haustið gengur í garð með þeirri litadýrð sem því _ fylgir kveður tengdafaðir minn, Ásólfur Pálsson, þennan heim. Það var fyrir hartnær 30 árum að ég hitti Ása fyrsta sinni. Ekki leið á löngu að kynni okkar yrðu það mikil að ég áttaði mig á að þar færi stórhuga maður. Hann hafði átt við erfiðan sjúkdóm að stríða sem gerði það að verkum að fjöl- skyldan varð að bregða búi og flytja suður til Reykjavíkur. Þótt árin þar yrðu nokkur var hugurinn ætíð bundinn jörðinni fyrir austan. Ási fór ekki alltaf troðnar slóðir í lífínu og þar kom að hann og Ranka fluttu aftur austur, þá rétt um fimmtugt, og með þeim fór yngri sonur þeirra. Strax réðust þau í að byggja nýtt íbúðarhús ásamt útihúsum og hófu búskap á ný. Sýnir þetta nokkuð hversu stórhuga Ási alltaf var. Ási var mikil félagsvera sem átti hægt með að spjalla við og umgang- ast fólk og var alla tíð mikill gesta- gangur á heimilinu. En Ása var í blóð borin gestrisni og ánægjan af að vera samvistum við fólk skipti hann miklu máli. Víðlesinn var hann og átti margt góðra bóka enda gat hann varla stað- ist að kaupa bók. Alltaf gaf hún til- efni til að velta fyrir sér innihaldinu og ræða efnið við þann sem nálægur var hveiju sinni. Hann hafði mikinn áhuga á landsmálum sem öðrum málum og myndaði sér skoðanir sem hann hélt fram af festu. Gegndi hann ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélagið og til margra ára var hann í sóknarnefnd Stóra-Núps- kirkju sem var honum afar kær. Söng hann í kirkjukómum og reynd- ar fleiri kórum á yngri ámm. Árið 1976 lét Ási búið í hendur okkar Sigga Palla og fór að vinna hjá Landsvirkjun. Síðustu árin starf-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.