Morgunblaðið - 14.09.1996, Blaðsíða 24
DANSAÐ VIÐ
stelpurnar æfðu sig allar á mér. Seinna kom á daginn, að þeir
blóðöfunduðu mig af því að dansa við stelpurnar og dauðsáu
eftir að hafa ekki þorað að dansa.“
Þegar Heiðar fiutti til Reykjavíkur hóf hann nám í Versl-
unarskóla íslands og aðstoðaði við danskennslu hjá Rigmor
Hanson. Leiðin lá síðan til Bretlands og Þýskalands. Þar lagði
hann stund á bókmenntir og sögu í nokkur ár en sótti einnig
danstíma af fulllum krafti.
„í Þýskalandi kynntist ég Steindóri Steindórssyni frá Hlöð-
um, síðar skólameistara Menntaskólans á Akureyri. Krist-
björgu Búadóttur, eiginkonu hans fannst ég dansa svo ljóm-
andi vel að Steindór stakk upp á að ég kenndi nemendum fyrir
norðan að dansa og það varð úr.“ Síðan eru liðin 40 ár og enn
dansar Heiðar.
Uppáhaldsdansinn hans Heiðars
s
I 40 ár hefur Heiðar svifíð um dans-
----------------------------7---------------
gólfíð og kennt fleiri Islendingum
að dansa en nokkur annar. Hrönn
Marinósdóttur lék forvitni á að
kynnast manninum á bak við goð-
sögnina og bauð honum upp í dans
á Ingólfstorgi.
OISKÓÆÐI og John Travolta dansar í algleymingi.
Hundrað unglingar saman komnir í Brautarholtinu og
Heiðar kennir sporin.
Endurfundir á Ingólfstorgi, sautján árum síðar og undir ör-
uggri handleiðslu Heiðars, svífum við um í rúmbu, vals og
djæf, við mikinn fögnuð vegfarenda.
Heiðar hefur ekki hugmynd um hversu mörgum hann hefur
kennt dans yfir ævina. „Ég er löngu búinn að týna tölunni, en
þeir skipta þúsundum. Þó geri ég ekki ráð fyrir að þjóðin hafi
verið taktlaus áður en ég byrjaði að kenna,“ segir hann sposk-
ur á svip.
Ekki er langt síðan Heiðar tók ákvörðun um að gera dans-
kennsluna að ævistarfi. „Ætlunin var alla tíð að læra lögfræði
en vegna veikinda fyrir tveimur árum, gaf ég loks þann draum
upp á bátinn. Heilsan er komin í samt lag en nú er ég harð-
ákveðinn í að kenna dans það sem eftir er,“ segir hann.
Reyndar finnst honum meira gaman að kenna í dag en
nokkru sinni fyrr. „Ástæðan er líklegast sú að undanfarið hef
ég kennt töluvert á landsbyggðinni, þar sem ég hef kynnst al-
veg bráðskemmtilegu fólki.“
Örlaga t/aldurinn Stsindór
Steindnrssnn frá Hlnðum
„Tilviljun réð því að ég byrjaði að dansa. í gagnfræðaskól-
anum á Siglufirði voru tuttugu stúlkur með mér í bekk en við
strákamir voru bara sex. Enginn af þeim vildi dansa, svo
„Suðrænu dansarnir hafa verið í sérstöku uppáhaldi hjá
mér, einkanlega Paso Doble en þann dans hef ég sýnt svo oft í
gegnum tíðina.
Hins vegar hefur alltaf verið draumurinn að sýna foxtrott
en úr því sem komið er, verður sjálfsagt ekkert úr því.
Foxtrott er mjög erfiður dans því túlkunin á tónlistinni er svo
frábrugðin því sem gerist í öðrum löndum og sporin eru mun
flóknari en þau líta út fyrir að vera.
Dansinn laðar fram persónuleika hvers og eins, segir Heið-
ar. „Sá sem er rólegur að eðlisfari á auðveldara með að að
dansa „standard" dansana en dansari sem er opinn og fjörug-
ur nær frekar tökum á suðrænu dönsunum.
Vinsælustu dansarnir hér á landi
hafa verið enskur vals og rúmba, báðir
mjög rómantískir dansar. Það kemur á
óvart því íslendingar eru þekktir fyrir
annað en rómantík."
öans er íþrntt
Miklu minna er um að fólk læri sam-
kvæmisdansa en áður, sem er skiljanlegt að
mati Heiðars því á skólaböllum eru bara leikin
nýjustu popplögin. Á krám er heldur ekki
miðað við að fólk dansi. „I gamla daga
var hins vegar fúllt til af dans-
stöðum,
til dæmis
Mjólkurstöð-
in, Breiðfirð-
ingabúð og
Vetrargarð-
urinn. Seinna
var farið að setja
borð og stóla út á
mitt dansgólfið, sjálf-
sagt til að koma fleirum að. Þegar
Travolta-æðið byrjaði í kringum
1980 voru dansgólfin rýmd á ný
en nú er svo komið að
áhugafólki um dans er
hálfpartinn úthýst
af skemmtistöð-
um borgar-
innar.“
í sveiflu
með Eddu
Pálsdóttur,
hálfsystur
sinni
Morgunblaðið/Ásdfs
DANSINN dunar á Ingólfstorgi. Heiðar stígur cha cha cha
við blaðamann Morgunblaðsins.
í vetur stendur til að Dansráð íslands fái inngöngu í íþrótta-
samband Islands.
„Von mín er, að upp risi íþróttasalur þar sem verða búnings-
klefar, fólk klæðist dansfótum, dansar síðan og dansar, fer í
Eru einhverráð við skalla?
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Ég er karlmaður um
fertugt og hef áhyggjur af því að
hárið er farið að þynnast allveru-
lega. Er til eitthvað ráð til að
draga úr hárþynningu?
Svar: Hárþynning sem á endan-
um leiðir oftast til skalla er gríð-
arlega algengt íyrirbæri hjá karl-
mönnum og er langoftast ætt-
gengt. Það er ættgengt hversu
snemma á ævinni skallinn kemur
og hvert útlit hans er; hjá sumum
byrjar skallinn sem hækkun á
kollvikum en hjá öðrum sem
tungl í hvirflinum. í stuttu máli
er frekar lítið við þessu að gera
og sumir segja að eina góða
lausnin sé að sætta sig við
ástandið og taka því eins og öðr-
um breytingum sem fylgja hækk-
andi aldri. Það er að vísu augljós-
lega auðveldara að sætta sig við
skalla á sjötugsaldri en þrítugs-
aldri. Fyrir þá sem ekki vilja
sætta sig við ástandið er einkum
um þrenns konar ráð að ræða,
hárkollur eða toppa, hárígræðslu
og lyfjameðferð. Hárkollur eða
hártoppar geta verið góð lausn
fyrir suma og eins er með
Hárþynning
hárígræðslu en þá eru teknir
smábútar af húð á þeim hluta
höfuðsins sem er með hári og
græddir á hárlausu svæðin.
Einnig er hægt að beita lyfja-
meðferð en fyrir nokkrum árum
kom á markað lyf sem eykur hár-
vöxt. Þetta lyf heitir mínoxidfl
(hér undir nafninu Regaine), það
er selt sem áburður eða hlaup
sem borið er á hárlitlu húðsvæðin
tvisvar á dag. Þessi meðferð tek-
ur langan tíma, eftir 3 mánuði má
búast við byrjandi árangri og
fullur árangur næst eftir u.þ.b.
eitt ár. Ef meðferð er hætt hverf-
ur árangurinn á u.þ.b. þremur
mánuðum. Þessi meðferð ber
ekki árangur nema hjá 25-30%
þeirra sem reyna hana til þrautar
og hárið sem þá kemur er hýj-
ungur fremur en eðlilegt hár.
Þess ber þó að geta að margir
eru mjög ánægðir með þann ár-
angur sem næst. Að lolöim ber
að geta þess að einstaka sinnum
er hármissir af öðrum ástæðum
en hér hefur verið lýst, en þá er
útlit hans venjulega ekki eins og
hinn algengi karlmannaskalli.
Hér er m.a. um að ræða bletta-
skalla sem hrjáir jafnt konur sem
karla en þá dettur hárið af á
blettum hér og þar. Einnig getur
hármissir stafað af ýmiss konar
lyfjameðferð, þekktast er að
mörg krabbameinslyf geta valdið
hármissi en sum önnur lyf geta
einnig gert það.
Spurning: Hvað er bjúgur? Af
hverju fá menn bjúg, til dæmis á
fætur eða jafnvel í sár eftir upp-
skurð? Og hvemig losna menn
við hann?
Svar: Bjúgur er vökvasöfnun í
vefi líkamans, hann getur verið
dreifður um allan líkamann eða
bundinn við ákveðin svæði eða
líffæri. Bjúgur getur tekið á sig
mjög margvíslegar myndir eftir
því hver orsökin er og hvemig al-
mennt heilsufar viðkomandi ein-
staklings er. Stundum stafar
bjúgur af hjartabilun og getur þá
lýst sér sem ökklabjúgur, þ.e.
bjúgur sem sígur á lægsta hluta
líkamans, eða sem lungnabjúgur,
allt eftir því hvort bilunin er í
hægri eða vinstri helmingi hjart-
ans. Við lungnabjúg verður sjúk-
lingurinn móður vegna vökva-
söfnunar í lungu og eru einkenn-
in venjulega verst ef legið er út
af. Bjúgur vegna hjartabilunar er
nokkuð algengur hér á landi.
Bjúgur vegna nýrnasjúkdóma
byrjar stundum í andliti en dreif-
ist síðar um allan líkamann.
Bjúgur vegna lifrarbilunar er
sjaldgæfari hér en víða annars
staðar og lýsir sér stundum með
vökvasöfnun í kviðarholi en bjúg-
urinn er oftast einnig dreifður
um líkamann. Flestir kannast við
myndir af vannærðum bömum
með útþaninn kvið en við mikinn
próteinskort safnast fita í lifrina
og vökvasöfnun verður m.a. í
kviðarholi; kviðurinn er því stór
vegna lifrarstækkunar og vökva.
Stundum er bjúgur bundinn við
minna svæði en hér hefur verið
lýst og getur það verið vegna
sýkingar, ertingar eða ofnæmis.
Upphleypt útbrot geta m.a. staf-
að af ofnæmi eða skordýrabiti og
em upphleypt vegna bjúgs í húð-
inni. Ofnæmi getur einnig valdið
miklum bjúgi í efri vör, augnlok-
um, koki eða barka en barka-
bjúgur getur valdið öndunarerf-
iðleikum og jafnvel verið lífs-
hættulegur. Nokkur lyf, m.a.
sum þeirra sem notuð em við
háum blóðþrýstingi geta valdið
vökvasöfnun í líkamanum og
bjúgi. Ráð við bjúgi era jafnmörg
og orsakimar en oftast er reynt
að beina lækningunni gegn or-
sakavaldinum, þó má nefna að til
er flokkur lyfja sem kallast þvag-
ræsilyf sem era notuð til að losa
líkamann við vökva og sölt.
•Lesendur Morgunblaðsins geta spurt
lækninn um það sem þeim liggur á hjarta.
Tekið erá móti spumingum á virkum
dögum milli klukkan 10 og 17 í síma 569
1100 og bréfum eða símbréfum mcrkt:
Vikulok, Fax 5691222.