Morgunblaðið - 14.09.1996, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1996 19
ERLEIMT
„Eg verð aldrei
annað en stjórn-
málamaður“
Mona Sahlin segir sögu sína í nýrri bók
MONA Sahlin elskar ekki
lengur flokkinn sinn og er
reið út í blaðamenn.
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
HÚN elskar ekki lengur flokkinn,
hún er reið út í blaðamenn og finnst
að margir flokksmenn hennar hafl
komið fram á heigulslegan hátt, en
hún segist aldrei verða annað en
stjórnmálamaður. Mona Sahlin er
aftur í fjölmiðlunum eftir að bók
hennar, „Með eigin orðum“ kom út
í Svíþjóð í gær. Jafnaðarmaðurinn
Mona Sahlin stefndi fyrir tæpu ári
hraðbyri í forsætisráðherra- og
flokksformannsstólinn, en eftir að
athyglin beindist að misnotkun á
greiðslukorti ríkisstjórnarinnar og
reikningsóreiðu missti hún stuðn-
inginn.
Nú undrast hún sjálf að hún skuli
hafa sagst elska flokkinn. Jafnaðar-
mannahugsjónina elski hún enn, en
ekki flokkinn. í samtali við sænska
útvarpið í gær sagði hún að bæði
flokksmenn og aðrir hefðu átt erfitt
með sjá konu en ekki mann sem
valdatákn og erfitt sé að sameina
móðurhlutverki hlutverkið stjóm-
málamannsins. Sahlin heldur enn
við fyrri skoðun sina að sem kona
í valdastöðu hafi hún verið dæmd
harðar en karl í sömu aðstöðu hefði
verið. Sahlin segir í viðtali við
Svenska Dagbladet að það sé auð-
velt að vera reið við blaðamenn, en
sársaukinn yfir viðbrögðum flokks-
ins hafi verið mikill, því hún sé alin
upp í flokknum, sem sé eins og flöl-
skylda sín. Því hafi verið sárt að
fínna að allir hlupu frá henni, þegar
hún lenti í mótbyr.
í bókinni, sem er 360 bls., segir
hún sögu sína, er stelpan, konan,
mamman og stjómmálamaðurinn.
Síðasti þriðjungur bókarinnar eru
dagbókarbrot frá því að greiðslu-
kortamálið stóð sem hæst. Útkoma
bókarinnar vekur aftur upp vanga-
veltur um Sahlin, hvort hún hafi
notað fjölmiðla til að skapa ímynd,
sem síðan stóðst ekki eða hvort
fjölmiðlar hafi notað hana. Og
vangavelturnar leiða einnig til al-
mennari vangaveltna um hvort
stjórnmálaumræðan snúist í aukn-
um mæli um persónu einstakra
stjórnmálamanna í stað málefna.
Þá getur dálæti fjölmiðlanna snar-
lega snúist upp í andhverfu sína
og uppáhöldin fengið slæma útreið,
ef hegðun þeirra stangast á við
ímyndina.
Sprengja
þotu í til-
rauna-
skyni
New York, Washington. Reuter.
BJARTSÝNI ríkir um að hægt verði
að leiða í Ijós með óyggjandi hætti
hvað olli því að breiðþota banda-
ríska flugfélagsins TWA sprakk á
flugi skömmu eftir flugtak frá
Kennedy-flugvellinum í New York
17. júlí sl.
Stjórnendur rannsóknarinnar
vonast til að hægt verði að sjá hvað
gerðist þegar tekist hefur að ná upp
af hafsbotni öllu braki þotunnar.
Tekist hefur að ná um 80% braks-
ins á land en það hefur tekið sinn
tíma þar sem brot úr vélinni voru
dreifð yfir stórt svæði.
Að sögn blaðsins Washington
Post er í ráði, að sprengja Boeing-
747 þotu í loft upp á jörðu niðri í
tilraunaskyni. Tilgangurinn er að
auðvelda rannsóknaraðilum að sjá
nákvæmlega hvað grandaði þotu
TWA.
Líklegasta skýringin á afdrifum
TWA-þotunnar er talin sú, að um
sprengjutilræði hafi verið að ræða.
Fundist hafa efnaleifar tveggja
sprengiefna á braki úr þotunni en
þó ekki nógu mikið til þess að full-
yrt verði að sprengja hafi grandað
henni.
-----» ♦ »-----
Framlengir
leyfi fyrir
herstöðvar á
Okinawa
Tókíó. Reuter.
MASAHIDE Ota, héraðsstjóri Ok-
inawa, sagðist í gær hafa fyrir sitt
leyti samþykkt áframhaldandi veru
bandarískra hersveita á eynni og
ákveðið að hrinda af stað lögform-
legum aðgerðum í því skyni. Leyfi
fyrir herstöðvarnar rennur út í maí
næstkomandi.
Meirihluti íbúa eyjunnar sam-
þykkti í atkvæðagreiðslu sl. sunnu-
dag, að dregið skyldi úr umfangi
bandaríska heraflans á Okinawa og
Ota vill, að stöðvunum verði lokað
í síðasta lagi árið 2015.
„Þetta er erfiðasta ákvörðun sem
ég hef tekið í embætti," sagði Ota
í gær. Það sem réði úrslitum var,
að fyrir þremur dögum hét Ryutaro
Hashimoto forsætisráðherra sér-
stökum fjárveitingum til þess að
styrkja efnahagslífið á Okinawa,
fátækasta héraði Japans. Afkoma
íbúa þar er sýnu verri en annars
staðar í landinu og meðaltekjur
helmingi lægri en í Tókíó.
Allt að 64.000 kr.
verðlækkun á
Skoda Felicia
Seljum síðustu bílana afSkoda Felicía árgerð 1996 á einstöku sértilboði.
rmrmM----
959.0001 895.000
■Hl
Aukabúnaður á mymi: áifelgur
ii ..
FEUCtA
Aukabúnaður á mynd: álfelgur
Skoda Felicia 1500
IK®: '■
I I 1 'llll MM ....................................................................................... ■■
Fyrirtæki og stofnanir
Bjóðum einnig vsk-útgáfu á einstöku verði, eða frá 659.000 kr.
Komdu núna í Jöfur og tryggðu þér glænýjan
Skoda Felicia á sértilboði.
Söluaðilar Jöfurs á landsbyggðinni
Akranes: Bílver, (safjörður: Bílaþjónusta Daða, Sauðárkrókur: Kaupfélag Skagfirðinga,
Akureyri: Skálafell, Húsavík: Skipaafgreiðsla Húsavlkur, Egilsstaðir: Bllasalan Fell,
Höfn: Egill H. Benediktsson, Vestmannaeyjar: Bílaverkstæðið Bragginn, Selfoss: Bilasala Suðurlands
Nýbýlavegur 2
Sími: 554 2600