Morgunblaðið - 14.09.1996, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1996 29
NEYTENDUR
AÐSENDARGREINAR
Ýmsar bandarískar matvörur ekki geymsluþolsmerktar
Ómögnlegt að átta sig
á aldri matvælanna
ER nú í athugun hvort hægt sé að víkja frá reglum Evrópusam-
bandsins þegar vörur frá Bandaríkjunum eru annars vegar.
SAMKVÆMT gildandi reglugerð
um merkingar matvæla frá árinu
1993 eiga flestar matvörur að vera
merktar með „best fyrir“ dagsetn-
ingu. Vörur sem framleiddar eru að
mestu úr sykri eins og alls konar
sælgæti eða kakóvörur, edik, salt,
ferskir ávextir, ýmsar víntegundir
og hunang eru undanþegnar þessum
reglum. Hins vegar hefur borið á
því að vörur, sem eiga að vera merkt-
ar með þessum hætti og koma frá
löndum utan Evrópusambandsins,
séu ekki merktar og ómögulegt fyr-
ir neytendur að sjá aldur vörunnar
eða fyrir hvaða tíma æskilegast er
að neyta hennar. Umfangsmestur
er innflutningur frá Bandaríkjunum.
Eftir lauslega athugun í einum stór-
markaði kom í ljós að ýmsar tegund-
ir matvara eins og t.d. kryddaðar
tómatsósur í dósum „salsa“-sósur
eða súrsætar sósur, tómatar í dós,
og kryddvörur eru ekki merktar með
„best fyrir“ né framleiðsluári.
„Þessi reglugerð númer 588 frá
árinu 1993 um merkingu, kynningu
og auglýsingu matvæla er komin til
vegna inngöngu íslands í EES,“ seg-
ir Sigríður Klara Ámadóttir, mat-
vælafræðingur hjá Hollustuvernd rík-
isins. „Hún var sett samkvæmt til-
skipunum frá Evrópusambandinu þar
sem kveðið er á um geymsluþols-
merkingar ákveðinna matvæla. Vör-
ur sem geymast lengur en í 18 mán-
uði við stofuhita, svo sem niðursuðu-
vörur og pakkamatur, þurfti ekki að
geymsluþolsmerkja samkvæmt fyrri
merkingarreglugerð en það breyttist
með tilkomu nýju reglnanna.
Sigríður Klara vísaði á umhverf-
isráðuneytið þegar hún var spurð
hversu langan aðlögunartíma
bandarísku vörurnar fengju svo og
hvers vegna þær væru enn á mark-
aðnum.
Málið í biðstöðu
Ingimar Sigurðsson, skrifstofu-
stjóri í umhverfisráðuneytinu, segir
að reglugerðin hafi átt að taka gildi
í ársbyrjun 1995 eftir ákveðinn að-
lögunartíma. „f Ijós komu ákveðnir
erfiðleikar varðandi ýmsar vörur frá
Bandaríkjunum sem eru merktar
öðruvísi en í Evrópu." Því var ákveð-
ið að líta á þessi mál annars vegar
út frá því hvort við værum skuld-
bundin til að hlíta reglum Evrópu-
sambandsins þegar í hlut ættu vörur
utan sambandslandanna og síðan
var gefinn ákveðinn aðlögunarfrest-
ur í viðbót.
- Hversu lengi stendur sá frestur?
„Þessi mál eru til athugunar hjá
umhverfis- og utanríkisráðuneytinu
sem stendur og það er að vænta
niðurstaðna á næstu vikum. Það er
því biðstaða í málinu um þessar
mundir," segir Ingimar.
- Á þetta ekki við um önnur lönd
utan Evrópusambansins?
„Það er einungis merkingarkerfið
í Bandaríkjunum sem hefur komið
inn á borð til okkar.
- Eru bandarísku vörurnar ekki
ólöglegar á markaðnum samkvæmt
gildandi reglugerð?
„Það má segja að gildistöku reglu-
gerðarinnar hafí verið frestað um
sinn eða henni er ekki framfylgt eins
og er gagnvart bandarískum vörum.“
Samræmdar heimsreglur?
Stefán S. Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra stór-
kaupmanna, segir að bandaríska
stofnunin Food and Drug Administr-
ation hafi nýlega endurnýjað reglur
sínar um umbúðamerkingar. Ýmsir
sem eru í viðskiptum við Bandaríkin
vonuðu að tekið yrði mið af þeim
reglum sem verið er að samræma í
heiminum um þessar mundir og
unnið er að hjá Álþjóða staðlaskrár-
ráðinu fyrir matvæli (Codex).
Bandarísk neytendasamtök töldu
hins vegar að Codex-reglurnar
gengju ekki nægilega langt hvað
varðaði merkingar matvæla og
kröfðust þess að settar yrðu þær
reglur sem nú eru þar í gildi.“
- En hvernig hyggjast innflytj-
endur aðlaga bandarískar vörur ís-
lenskum markaði?
„ Við erum að vonast eftir að vinnu
á alþjóða vettvangi verði hraðað og
settar verði samræmdar reglur sem
gildi í heimsviðskiptum með mat-
væli. Okkar félagsmenn vilja gjarn-
an eiga viðskipti við lönd þar sem
vörur eru ódýrar svo hægt sé að
bjóða íslenskum neytendum fjöl-
breytt vöruval en á hagstæðu verði.
Þá er oft hagstæðast að leita út
fyrir markaði Evróusambandsins.
Áusturlönd verða gjarnan fyrir val-
inu, Bandaríkin og ef til vill lönd
eins og Ástralía. Vegna reglna sem
gilda hérlendis um umbúðamerking-
ar er okkur þröngur stakkur skor-
inn. Við teljum á hinn bóginn brýnt
að hafa valið til að leita á hagstæð-
ustu markaði hverju sinni.“
Stefán segir að íslenskir neytend-
ur séu hrifnir af mörgum vöruteg-
undum sem koma til dæmis frá
Bandaríkjunum og hann segir sína
félagsmenn telja að fínna megi fleiri
vörutegundir þar í landi sem eigi
fullt erindi hingað til lands. Það er
ljóst að ýmsir vilja útiloka aðgengi
þessarar vöru hér á markaði af sam-
keppnisástæðum.
Víða í Evrópu ómerktar vörur
frá Bandaríkjunum
Hann segir að það sé ekki bara
á Islandi sem bandarískar vörur séu
merktar að þeirra hætti heldur er
þær að finna víða í Evrópu. Enn
fremur segir hann að í sumum tilfell-
um merki bandarískir framleiðendur
vörur fyrir erlenda markaði en til
slíks sé auðvitað ekki hægt að ætl-
ast fyrir markað sem er eins lítill
og á íslandi. „Hugsanlega væri
hægt að fá umbúðir merktar á
spönsku eða þýsku en vörur sem
selja á hérlendis verða að vera
merktar á Norðurlandamáli öðru en
finnsku eða ensku.
Hjá Samtökum iðnaðarins er af-
staðan til þessa máls deginum ljós-
ari. „Við teljum að allar vörur sem
eru hér á markaði eigi að uppfylla
íslenskar reglugerðir og erum ósátt
við að innfluttar vörur uppfylli ekki
þær kröfur sem gerðar eru til okkar
innlendu framleiðanda," segir Ragn-
heiður Héðinsdóttir, matvælafræð-
ingur hjá Samtökum iðnaðarins.
Handverksfólk
sýnir og selur á
Garðatorgi
UM helgar gefst fólki kostur á að
heimsækja yfirbyggingu Garðatorgs
og skoða varning hjá handverksfólki.
Handverksfólk fær ókeypis að-
stöðu á torginu en þarf að koma
með borð og stóla með sér. Undan-
farið hafa um 30 manns nýtt sér
aðstöðuna og þar verið hægt að
skoða og kaupa ýmsa handavinnu
eins og útskorna og málaða trévöru,
prjónavöru, blómaskreytingar, dúkk-
ur og dúkkuföt, silkimyndir, postulín
og margt fleira. Handverksmarkað-
urinn er opinn frá 10-21 á laugardög-
um og á sunnudögum frá 12-21 aðra
hveija helgi.
Kvenfélagið sér um að selja kaffí
og vöfflur á laugardögum. Þeir sem
vilja koma með varning á markaðinn
þurfa að hringja og panta áður, en
það er gert hjá G.H. ljósabúðinni eða
H-búðinni á Garðatorgi.
NYTT
Morgunblaðið/Ásdís
Fjórar nýjar
tegundir af
kökudropum
KATLA hefur sett á markað fjórar
nýjar tegundir af kökudropum, kon-
íaks-, romm-, banana- og pipar-
myntudropa. Ekki er notað áfengi í
koníaks-, og rommdropana heldur er
undirstaðan svokallað monopropyi-
ene glycol og síðan er bætt saman
við vatni og bragðefnum.
Sumarhúsasápa
SÁPUGERÐIN Hreinn
hefur hafið framleiðslu á
nýrri gerð sápu sem hlot-
ið hefur nafnið sumarhús-
asápa. Sápuna má nota
við hvers kyns hreingern-
ingar, en áhrif hennar eru
sérlega kröftug þegar um
er að ræða þrif á flugna-
skít og öðrum óhreinind-
um sem fylgja sumarhús-
um, að því er segir í
fréttatilkynningu.
Þar kemur fram að sé
sápan notuð til að þrífa
gluggakistur, veitir hún m.a. öfluga
vöm gegn roðamaur. Hafa Mein-
dýravarnir íslands sannreynt virkni
sápunnar og mæla með notkun henn-
ar. Sumarhúsasápan fæst á bensín-
stöðvum Olís um land allt og í helstu
stórmörkuðum og byggingavöru-
verslunum.
Sómi Ríkisútvarpsins
- hvað um hann?
„SVO geingur það til
í heiminum, að sumir
hjalpa erroribus [mis-
sögnum] á gáng, og
aðrir leitast síðan við
að útryðia aptur þeim
sömu erroribus. Hafa
svo hvorir tveggja nock-
uð að iðia.“
Þessi orð hripaði Ámi
Magnússon á blað á efri
ámm sínum, líklega á
þriðja áratug 18. aldar,
víst orðinn saddur líf-
daga og þreyttur á bar-
áttunni við að „útryðja
erroribus“. Þó var út-
varpið þá ekki komið til
sögunnar.
Ástæða þess að ég rifja þetta upp
nú er sú, að um þessar mundir er
verið að endurflytja í Ríkisútvarpinu
þáttaröð Hjálmars H. Ragnarssonar
um Jón Leifs. Þegar þættirnir vom
fluttir í fyrra sinn nú fyrir tæpu
ári, sá ég mig tilneyddan, sannleik-
ans vegna, að gera athugasemdir
við fjögur atriði í þriðja þættinum,
og birtust þær í allýtarlegri grein í
Morgunblaðinu 11. nóv. 1995. Þátta-
höfundur svaraði í sama blaði með
enn lengri grein 22. nóv. Þegar flett
var umbúðunum af aðalefni þeirrar
ritsmíðar, kom í ljós að í henni fólst
bein og óbein staðfesting á öllum
ummælum mínum, meira að segja
viðbótarröksemdir um sumt sem ég
hafði haldið fram. Kvittaði ég fyrir
þetta með stuttri grein í Mbl. 28.
nóv.
Hélt ég nú að þessu máli væri
lokið, þeim missögnum sem ég hafði
reynt að leiðrétta væri endanlega
„útrutt", og þyrfti ekki að hafa fleiri
orð um. Ég ætlaði því varla að trúa
eigin eyrum, þegar ég heyrði þennan
þátt endurfluttan á rás 1 í Ríkisút-
varpinu nú fyrir skemmstu (10.
sept.), óbreyttan að öllu sem hér
skiptir máli.
Áthugasemdir mínar vörðuðu ein-
göngu tilhæfulausan óhróður, get-
sakir og dylgjur í garð látins merkis-
manns, dr. Páls ísólfssonar, sem
varð fyrir því óláni að verða skot-
spónn Jóns Leifs sökum sjúklegrar
afbrýði hans og öfundar, þótt Jón
ætti honum aldrei annað en gott að
gjalda.
Þáttahöfundur hafði fallið í þá
freistni að trúa gagn-
rýnislaust, og án þess
að leita staðfestingar í
öðrum heimildum, því
sem Jón vildi láta menn
trúa um samskipti
þeirra Páls. Hann hefði
verið meiri maður ef
hann hefði leiðrétt eða
fellt niður verstu mis-
sagnimar, eftir að hon-
um hafði verið bent á
þær og áður en efnið
var endurflutt í útvarp.
En úr því það var
ekki gert, en efnið þó
endurtekið, hlýtur sá
flutningur að vera á
byrgð Ríkisútvarpsins.
Það gengur hér í lið með þeim sem
„hjálpa erroribus á gang“, í þessu
tilviki rakalausum illmælum og til-
hæfulausum rógi um einhvern mæt-
Þáttahöfundur hefði
verið maður meirí,
segir Jón Þóraríns-
son, hefði hann leiðrétt
verstu missagnirnar
áður en efnið var end-
urflutt í útvarp.
asta íslending þessarar aldar, mann
sem stofnunin sjálf stendur auk þess
í mikilli þakkarskuld við allt frá
fyrstu tíð. Það eykur ekki traust né
virðingu þessa öfluga ríkisfjölmiðils,
þegar hann gengur þannig, vitandi
vits, til liðs við Gróu á Leiti. Meiri
sómi hefði það verið útvarpinu að
skipa sér í þann hóp sem leitast við
að „útryðja erroribus“. Það hefði
verið auðvelt að gera í þessu tilviki,
í samráði við þáttahöfund og án
þess að meginefnið spilltist á nokk-
urn hátt. En til þess bar Ríkisútvarp-
ið ekki gæfu að þessu sinni. Eða er
því ef til vill ekki lengur jafn annt
um sóma sinn, traust og virðingu
og áður var löngum?
Höfundur er tónskáld.
I ~iYM ™ Hl I
v i r k a r !
I DAG
DAGUR
Laugardaginn 14. september mun
GYM 80 verða opið fyrir alla þá
sém vilja kynna sér starfsemi
okkar og þær nýjungar sem við
bjóðum upp
á í vetur.
Yusef
Dagskrá
13:00-131 imnkvnnir ’Jeet kune do
13:4014:10 Airobic kvnninn-ím
14:20-15:05 Fyrirlestrar fflfiHliWíBTi nn
BMWFT-ISSA)
Atimed nmn kenns létis nmkun ætinuaiækja assmi pjálturum GVM 60
Ragnheiftur
Hróar
15:05-15:15 HkYnnir afííKutrommunamskeið
15:15-15:30 OHkynniratrodansog
’hipphopp fyrii unglmga
15:35-16:05 Aikirln kvnnion-líltli
Allir velkomnir!
Suðurlandshiaut 6 (baki Sími : 588 8383
Orville
Helma
Fríða Rún