Morgunblaðið - 11.10.1996, Side 8

Morgunblaðið - 11.10.1996, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR HVAR í fjáranum felurðu vatnið, skrattinn þinn????? Bæklingur og fræðslufyrirlestur Aspergerheilkenni - hvað er það? MSJÓNARFÉLAG einhverfra hefur nýlega gefið út bækling um Asperg- erheilkenni. Þriðjudaginn 15. október n.k. verður fræðslufyrirlestur um Aspergerheilkenni hald- inn kl. 20.30 í Barna- og unglingageðdeild Land- spítalans við Dalbraut. Ester Jóhanna Adams- dóttir er í stjórn Umsjón- arfélags einhverfra og á son sem er með Asperger- heilkenni. Veit almenn- ingur á íslandi skil á þess- um sjúkdómi? - Nei, almennt rekur fólk upp stór augu þegar það heyrir um þennan sjúkdóm og skilur ekki hver tengsl eru milli Um- sjónarfélags einhverfra og þeirra sem eiga við að stríða Aspergerheilkenni. kenni Aspergerheilkennis eru mörg hin sömu og koma fram hjá einhverfu fólk. Þessi sam- eiginlegu einkenni eru sérkenni- leg orð og hegðun og að einstakl- ingarnir eiga erfitt með að tengj- ast öðrum félagslega. Ekki vegna þess að vilji sé ekki fyrir hendi heldur vantar kunnáttuna. Það er hins vegar hægt að kenna þessu fólki og leiðbeina þannig að það læri þær reglur sem gilda í samskiptum fólks. Hvernig er það kennt? - Það þarf að stýra samskipt- um barna sem hafa Aspergerheil- kenni. Það verður að setja allt upp í reglur fyrir þau, annars vita þau ekki hvernig þau eiga að haga sér. Þessi börn geta mjög vel lært og eru hreint ekki síður gefin en önnur börn, hins vegar eiga þau fáa vini eða enga af því að þau eiga erfitt með öll mannleg samskipti. Ef t.d. barn með Aspergerheilkenni hringir í félaga sinn og spyr hvort hann vilji koma í sund og hinn segir nei þá leggur sá fyrrnefndi um- svifalaust á. Honum dettur ekki í hug að gera það sem flestir aðrir gera: spyija hvort félaginn vilji gera eitthvað annað. Ef hon- um er hins vegar bent á þann möguleika þá hringir hann aftur og spyr um næsta atriði. Þetta á fólk í umhverfinu erfitt með að skilja og líka hitt hve börn með Aspergerheilkenni eru oft klunnaleg og eiga erfitt með hreyfingar. Þetta kemur ekki síst fram í hópleikjum. Þá er Asper- gerbarnið út undan af því að það skilur ekki leikreglurnar og er klaufalegt í hreyfingum. Er erfitt að greina þennan sjúkdóm? - Áður fyrr fengu börn með Asperger- heilkenni oft ekki rétta greiningu strax. Núna fá börn fyrr rétta greiningu og það er mikilvægt, þá er hægt að byija fyrr að þjálfa barnið. Það skiptir óskaplega miklu máli að fá rétta þjálfun fyrir þessi börn. Einnig er rétt greining mikilvæg þegar í skólakerfið kemur. Ef greiningin er fyrir hendi fær barnið væntanlega meiri skilning á vandkvæðum sín- um og aðstoð ef þörf krefur. Fá þessi börn þá aðstoð sem þau þurfa í skólakerfinu? - Leikskólakerfið sinnir þessum bömum vel að því er ég best veit en sömu sögu er ekki hægt að segja um skólana. Flest þessi böm em í venjulegum skólum en sum eru í sérskólum. Börn með ► Ester Jóhanna Adamsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1957. Hún er sjúkraliði að mennt, útskrifuð í mars árið 1977 og hefur starfað á deild 13G á Landspítalanum meira og minna í nær tólf ár. Hún er gift Guðmundi Hannessyni við- skiptafræðingi og endurskoð- anda og eiga þau tvö börn. Aspergerheilkenni eiga að fá að hefja sitt nám á sama tíma og önnur sex ára börn en sú er ekki alltaf raunin. Ég veit a.m.k. um tvö dæmi þar sem það brást. Það er mjög slæmt fyrir viðkomandi böm. Þó að þessir krakkar eigi ekki við námsörðugleika að stríða, sem sum eiga þó, þá er þeim mikilvægt að fá tækifæri til að aðlagast öðmm bömum sem fyrst félagslega, það getur skipt sköp- um fyrir framtíð þeirra. Ef þau læra ekki ung að skipta við börn á sínum aldri getur það leitt til þess að þau flosni upp frá námi af því að þau eignast enga vini. Þurfa þessi börn ekki sérstaka aðstoð í skóia? - Oft þurfa börn með Asperg- erheilkenni stuðning inni í bekk, aukatíma t.d. í leikfimi og jafn- vel fleiri greinum. Þess má geta að þessum börnum hefur verið boðið upp á leikfimistíma og sund hjá Júlíusi Árnasyni. Mörg þess- ara barna hafa tilsjónarmann sem sér þá um að aðstoða þau við að tengjast öðrum börnum. Einnig er möguleiki á að þessi börn eigi sér stuðningsfjölskyldur til að létta á foreldrum og boðið er upp á dvöl, bæði á sveitaheim- ilum og í venjulegum sumarbúð- um. Slík lífsreynsla er þessum börnum dýrmæt eins og öðrum börnum. Veldur einstaklingur með Aspergerheil- kenni miklu áiagi á umhverfi sitt? - Já, mjög miklu. Oft skilur fólk í stórfjölskyldunni ekki hvað að er eða vill ekki viðurkenna það - mín reynsla er reyndar ekki sú. Skilningsleysi eykur mjög mikið á vanda foreldranna og einangrar þá, og er þó nóg samt. Það er þörf á stóraukinni fræðslu um Áspergerheilkenni. Eins og fyrr sagði var verið að gefa út bækling um þetta efni og fyrirlestur verður senn hald- inn. Foreldrar barna með Asper- gerheilkenni hafa hist reglulega í tæpt ár, slíkir fundir eru í senn fræðandi og styrkjandi og hafa þegar skilað árangri, sem er umræddur bæklingur, og fleira er á döfinni. Ester Jóhanna Adamsdóttir Ein- Mörg einkenni sömu og hjá einhverfum L

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.