Morgunblaðið - 11.10.1996, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 11.10.1996, Blaðsíða 50
50 FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Háskólabíó HASKOLABIO SÍMI 552 2140 Landsbanka fá 25% KVIKMYNDAHA TIÐ HASKOLABIOS OG FRUMSYNING: KLIKKAÐI PROFESSORINN DJOFLAEYJAN BALTASAR KORMÁKUR • GÍSLIHALLDÓRSSON • SIGURVEIG JÓNSDQTTIR 43 s41 f d CHARUE SHEEN I RONKILVER Vertu alveg viss um að þú viljir finna líf á öðrum hnöttum áður en þú byrjar að leita.. THE NUTTY PROFESSOR eftip Friðrih Þúr friöriksson ★ ★ ★ 1 72 S.V. Mbl ★ ★ ★ V2 H.K. DV ★ ★ ★ Ó.H.T. Rás 2 Hún er komin, fyndnasta mynd ársins! Prófessor Sherman Klump er {ungavigtarmaður" en á sér þá ósk heitasta að tapa si sona 100 kílóum. Hann finnur upp efnaformúlu sem breytir genasamsetningunni þanng að Shermanb breytist úr klunnalegum og góðhjörtuðu fjalli í grannan og gr...gaur. Eddie Murphy fer hreinlega á kostum og er óborganlegur í óteljandi hlutverkum. Einhversstaðar á Jörðinni eru geimverur búnar að koma sér fyrir og eru að reyna senda boð til félaga sinna úti i geimnum. Meðalhiti jarðar fer ört vaxandi og blómi vaxin engi finnast á miðju Suðurskautslandinu. Eldgos er hafið í Vatnajökli. Frábær vísindatryllir með greindarlegum söguþræði. Skrifað og leikstýrt af David Twohy höfundi The Fugetive. KEÐJUVERKUN LE CONFESSIONNAL FLOWER OF MY SECRET HUNANGSFLUGURNAR SKRIFTUNIN Kanadíski leikstjórinn Robert LePage (Jesús frá Montreal) er einn athyglisveröasti leikhúsmaður samtímans en hann hefur einnig skapað sér nafn í kvikmyndagerðinni. Le Confessionnal er sterk mynd um leit ungs manns að uppruna sínum. Rætur framtíðar liggja í fortíðinni og leitin að sjálfum sér leiðir oft til uppgötvanna um aðra. Aðalhlutverk Lothaire Blutheau og Kristín ScottThomas (Fjögur brúðkaup og jarðaför). Sýnd kl. 5.10 og 11. B.i. 16 ára. Enskur texti. Viðfangsefni Almódóvars i þessari nýjustu mynd hans er nokkuð afturhvarf til upprunans því enn er tekist á við konu á barmi taugaáfalls. Aðalsmerki Almódóvars eru öll til staðar, litrikar uppákomur, skrautlegar persónur og djúpur kynferðislegur tónn kryddaður hárfinum húmor. Almódóvar hefur nú tekist á við stórar spurningar og er verk hans gott. Sýnd kl. 5.10 og 9. íslenskur texti. Leikstjóri: Óskarsverðlaunahafinn Bille August (Pelle sigurvegari). Sýnd kl.6. Síðustu sýningar. HELGARMYIMDIR SJONVARPSSTOÐVANINIA Smásmuga í ÞVÍ víðfeðma úthafi engilsaxneskra kvikmynda þar sem sjónvarpsstöðv- arnar stunda nú einkum veiðar við upphaf vetrardagskrár er lítil Smuga. Þar hefur lent ágæt ítölsk kvikmynd í vörpu Stöðvar 2, þýskur krimmi beit á hjá Stöð 3, Ríkissjónvarpið hefur krækt i forvitnilega danska mynd og það sem meira er - ein íslensk bíó- mynd og sú ekkert hornsíli hefur rat- að þangað líka. Og það er engin tilvilj- un - heil torfa af íslenskum kvikmynd- um mun á sveimi í veiðisjá Ríkissjón- varpstogarans og verður væntanlega landað um aðra helgi. Ekki smá- Smugulegt. Föstudagur Sjónvarpið ►22.05 Ég hefekki séð dönsku bíómyndina Svört uppskera (Sort host, 1994), en hún lofar góðu: Leikstjórinn, Anders Refn, er í hópi þeirra fremstu í Danmörku og í aðal- hlutverkum eru sá gamalreyndi Ole Ernst, ein af efnilegri yngri leikkonum Dana, Sofíe Graaböl og svo sænskir úrvalsleikarar - Marika Lagercrantz og Philip Zandén. Og efnislýsing Sjón- varpsins - „átakamikil fjölskyldusaga sem gerist í Danmörku um síðustu aldamót" — er á sviði þar sem Dönum tekst oft best upp. Stöð2 ►13.00 Columbo, sjúskaða rannsóknarlöggan í rykfrakkanum með vindilstubbinn í munnvikinu, leik- in af Peter Falk, var vel þegin í gamla daga, en seinni tíma sjónvarpsmyndir um hann eru því miður háðar form- úluflatneskju flestra amerískra sjón- varpshandrita. Morð í Malibu (Murd- er in Malibu, 1990) er þar engin und- antekning. -kVi Stöð 2 ►20.55 Spennumyndin Rétt- lætismál (A Matter Of Justice, 1994) er sögð byggð á samnefndum sjón- varpsþáttum með Carroll O’Connor, Carl Weathers og George C. Scott. Leikstjóri er Reza Badiyi en ég þekki ekki til verksins og þess er ekki getið í handbókum. Stöð 2 ►22.30 Felixverðlaunin sem besta mynd Evrópu og útnefning til Óskarsverðlauna voru verðskuldaðar viðurkenningar til handa ítölsku myndinni Stolnu börnin (IlLadroDi Bambini, 1992). Þetta er áhrifamikil lýsing á sambandi lögreglumanns við unga stúlku og bróður hennar sem hann þarf að flytja á upptökuheimili. Góður leikur og mannlýsingar prýða þessa úrvalsmynd leikstjórans Giannis Amelio sem áður gat sér gott orð fyr- ir Opnar dyr. ★ ★ ★ Stöð 2 ►0.25 Hugur fylgir máli (Mood Indigo, 1992) e rennein spennumyndin þar sem Tim Matheson leikur mann ofsóttan af konum með einum eða öðrum hætti; það er nánast orðinn fastur liður eins og venjulega að fjalla um svona týpískar Matheson- myndir. Hér er hann geðlæknir í helj- argreipum eins sjúklinga sinna. Að venju sæmilegasti tímadrápari. Leik- stjóri John Patterson. ★ ★ Stöð3 ►20.25 Því miður er fágætt - eins og lesendur þessara dálka kann- ast við - að myndir Stöðvar 3 hafi sést hér áður eða nái í handbækur; því verða umsagnir um þær gjaman fátæklegri en skyldi. Snillingurinn (Color Me Perfect) er hér ekki undan- skilinn en viðfangsefnið er vægast sagt sérkennilegt: Andlega fötluð kona gengst undir greindaraukandi tilraun hjá læknum með þeim afleið- ingum að annar læknanna fer að hafa of mikinn áhuga á henni fyrir smekk hins læknisins! Aðalhlutverk Michele Lee, Susan Blakely og Robin Thomas. Stöð 3 ►22.40 Götz George er þykk- ur og traustur þýskur leikari sem við þekkjum úr þarlenskum lögguþáttum. Hann leikur aðalhlutverkið í spennu- myndinni Óli lokbrá (DerSandman) um sjónvarpsfréttakonu sem kemst í kynni við sérfræðingí raðmorðingjum. Leikstjóri er Nico Hofman. Stöð 3 ►O .05 Mál Sophiu Hansen virðist ekki langt undan þar sem er efni myndarinnar Örþrifaráð (De- sperate Search). Mariel Hemingway leikur móður sem stendur frammi fýr- ir örþrifaráðum þegar fyrrum eigin- maður hennar rænir dóttur þeirra til heimalands síns Jórdaníu. Sýn ►21.00 Nixon, mynd Olivers Stone, var forvitnileg en vægast sagt sagnfræðilega umdeilanleg innsýn í ormagryfju Hvíta hússins, einkum undir lok valdatíma Richards Nixon. Kapalmyndin Kissinger og Nixon (Kissinger and Nixon, 1995) skaut bíómyndinni ref fyrir rass og var viku á undan {frumsýningu. Ron Silver og Beau Bridges leika undir þungum gervum titilpersónanna en handritið fjallar um samskipti þeirra á hálfs árs tímabili 1972-73. Maltin gefur meðal- einkunn. Leikstjóri Daniel Petrie. Sýn ►23.15Urvalsleikarar-Char- les Dance, Sarah Miles, Greta Scacc- hi, John Hurt, Joss Ackland og marg- irfleiri, meira að segja Hugh Grant í einu sinna fyrstu smáhlutverka - eru aðalsmerki myndarinnar Brögð í tafli (White Mischief, 1988) umfor- boðnar ástir og nautnalíf bresks ný- lenduaðals í Kenýja á tímum heims- styijaldarinnar síðari. Nokkuð hnýsi- legt úrkynjunardrama undir leikstjórn Michaels Radford sem síðar gerði garðinn frægan með II Postino. ★ ★ 'h Laugardagur Sjónvarpið ►21.25 Leikstjórinn Jack Gold hefur gert nokkrar ágætar myndir, bæði fyrir tjald og sjónvarp (The Medusa Touch, The Naked Civil Servant) en engar umsagnir liggja fyrir um sjónvarpsmynd hans Vor- koma (Spring Awakenings, 1994), sem byggð er á sögu Willa Cather um unga elskendur í amerískum smábæ um aldamótin. Aðalhlutverk Sherilyn Fenn, Jamey Sheridan og Fritz Wea- ver. Sjónvarpið ►22.55 Peter Strauss er flugkennari sem þarf að beita hörð- um viðurlögum þegar fyrrum nemandi hans (William O’Leary) fær þá gölnu flugu í höfuðið að hann sé refsiengill og beinir stolnum kjarnorkuvopnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.