Morgunblaðið - 11.10.1996, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1996 37
KETILL R.
SIGFÚSSON
Ketill R. Sigfús-
son var fæddur
hinn 24. febrúar
1916 að Borgarseli
í Skagafirði. Hann
lést á Sjúkrahúsi
Reylg'avíkur hinn
3. október síðastlið-
inn. Ketill ólst upp
hjá foreldrum sín-
um, þeim Valgerði
Jónsdóttur, f. 1884,
d. 1959, og Sigfúsi
Bjarnasyni, f. 1871,
d.
Ketils, sem nú eru
öll látin, voru: 1)
Jón, f. 1901, 2) Kristján, f.1903,
3) Sigríður, f. 1905, og tvíbur-
arnir 4) Ingibjörg og 5) Ólöf,
f. 1907. Sambýliskona Ketils
var Guðmundína Bjarnadóttir,
f. 16. maí 1911, d. 6. des. 1988.
Útför Ketils verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Sól yfir landi ljómar
leiftrar um strönd og sjó.
Hátt dunar foss í fjalli
og fuglar syngja í mó.
(Siguqón Friðjónsson)
Ketill vinur minn er allur. Veg-
ferð langri lokið. Stundum stríð og
stundum blíð. Ungur axlaði hann
ábyrgð fullorðins manns. Hefur það
án efa sett sín spor í sál ómótaðs
unglings. Þegar við Ketill kynnt-
umst var hann komin á fimmtugs-
aldur. Þá hófu móðir mín og hann
sambúð. Bjuggum við saman um
tíma. Voru það góð ár í minning-
unni. Dætrum okkar Birgis var
hann sem besti afi.
Vil ég með þessum fáu línum
þakka samfylgdina og þá einkum
elskusemi og hlýju sem hann sýndi
móður minni öðrum fremur. Undir
hrjúfu yfírborði sló svo undurhlýtt
hjarta. Okkar samskipti voru ævin-
lega hreinskiptin og einlæg. Fjöl-
skyldan saknar vinar í stað sem
setti sinn svip á hátíðarstundir um
þijátíu ára skeið.
Guð geymi þig, vinur.
Ljúfsárt tekur hið liðna
líður hitt fram með grun
um óþekktar úthafsstrendur
og ókenndra fossa dun.
(Siguijón Friðjónsson)
Anna Jóna Ágústsdóttir.
Ketill Rebekk Sigfússon var
fæddur að Borgarseli við vestari
Héraðsvötnin í Skagafírði. Þaðan
fór hann árið 1917 með foreldrum
sínum, Sigfúsi og Valgerði, að
Kráksstöðum, sem einnig eru
nefndir Kot, í Hrolleifsdal í Sléttu-
hlíð. Þaðan fluttu þau sig um set
árið 1917 að Geirmundarhóli í sama
dal og voru þar uns Sigfús lést,
eða árið 1927. Þá fer Valgerður
með sveininn Ketil út á Róðhól og
voru þar uns þau hófu búskap í
Keldnakoti 1935 en þá mun Ketill
vera kominn undir tvítugt. Enn
fluttu þau sig um set því Ketili tók
við búskap á Syðsthóli í Sléttuhlíð
og var þar með móður sinni frá
1944-955, er þau fluttust inn á
Hofsós. Eftir að Valgerður móðir
Ketils lést árið 1959 hafði hann
ekki fasta búsetu um skeið, heldur
var hann meðal annars á vertíðum
suður með sjó og á síld á Siglufírði
en þar kynntist hann sambýliskonu
sinni Guðmundínu Bjarnadóttur um
1965. Þau Ketill og Guðmundína
fóru í sambúð árið 1969 í Kópa-
vogi, voru þau þar í eitt ár. Arið
1970 keypti Ketill íbúð á Háteigs-
vegi 22, Reykjavík, og
bjuggu þau þar meðan
bæði lifðu. Guðmund-
ína lést 1988.
Ketill starfaði m.a.
um skeið hjá trésmiðj-
unni Víði, en var þó
lengst af starfsmaður
hjá Reykjavíkurborg.
Fyrstu kynni mín af
afabróður mínum,
Katli eða Kalla eins og
hann gjarnan var kall-
aður, voru í húsum
móðurforeldra minna á
Róðhóli í Sléttuhlíð.
Hann var mikill maður
á velli, karlmannlegur, skarpleitur
og dökkur á hár. Mér eru enn í
barnsminni haustverkin í sveitinni,
verk sem þurfti að vinna og fá orð
voru höfð um. Þannig var Ketill út
á við, fáorður og ekki allra, en
undir skelinni leyndist kímnigáfa,
frásagnargleði og afburða frásagn-
arlist; íslenskt orðfæri sem unun
var á að hlýða. Hörð lífskjör og
lífsbarátta einkum framan af ævi
settu mark sitt á manninn, bóndann
sem byggði sitt á íslensku náttúruf-
ari, og var veiðimaður af lífí og
sál. Það var lán að fá að skyggn-
ast ögn undir skelina hans Ketils,
æ oftar og því meir sem árin liðu.
Það var lán að fá að skyggnast ögn
inn í hugarheim manns sem ólst
upp við kringumstæður löngu horf-
innar tíðar og tengjast vinarbönd-
um. Ketill Rebekk Sigfússon, afa-
bróðir minn, sem fæddist við fljótið
mikla norður í Skagafírði hefur nú
verið feijaður yfír sitt hinsta fljót.
Steinn Kárason.
Ketill, hver er hann? Hann er
kærastinn hennar ömmu. Á amma
þín kærasta? Já, hann er risi. Nei-
hei, þú ert að plata. Nei, hann er
víst risi, hann er minnsta gerðin
af risa.
Kæri Ketill afi.
Manstu: Litla bláa kannan lesin
inn á segulband og allar sögumar
sem voru lyginni líkastar, Búkollu-
sagan sem aldrei var eins og batn-
aði í hvert sinn er hún var sögð.
Ferðir á hjólinu frá Háteigsvegin-
um í Kópavoginn, á bögglaberanum
á fleygiferð niður Kringlumýrar-
brautina með hjartað í buxunum
og engan hjálm. Allar kleinumar,
kollhnísarnir, flugferðirnar, og allir
hinir leikirnir. Manstu aðfanga-
dagskvöldin hjá ykkur ömmu og
öll biðum við alltaf jafnspennt eftir
skreyttu ijómatertunni.
Svo hin síðari ár: Snarpar um-
ræður í jólaboðum um gamlar og
nýjar venjur. Svo ekki sé nú talað
um hangikjötið frá Bjössa og
hnakkaspikið á sviðunum. Manstu
gamlárskvöldin þar sem við mátt-
um hafa okkur allar við, að passa
að raketturnar færu ekki í nær-
liggjandi hús.
Ferðir í blómabúðir á vorin til
að versla „rósir“ á leiðið hennar
ömmu. Alltaf tók það jafn langan
tíma að velja réttu ',,rósirnar“ sem
reyndust svo vera stjúpur. Manstu
þegar Birna Rebekka fæddist og
þú gafst Mundu leyfi til að nota
Rebekk nafnið þitt.
Allt eru þetta góðar minningar
og við systumar viljum þakka þér
samfylgdina. Harpa Dís þakkar
sérstaklega fyrir síðustu dagana
sem þið áttuð saman. Við biðjum
þig fyrir kveðjur og kossa til henn-
ar gömlu og minntu hana á að
sumar ömmur gleymast aldrei.
Far í friði og megir þú eiga góða
ferð.
Birgisdætur.
Handrit afmælia- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár.
Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má
greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar
um má lesa á heimaslðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki
yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega Ifnulengd — eða 2.200 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sin cn ekki stuttnefni undir greinunum.
MIWNIMGAR
SINDRI
KONRÁÐSSON
+ Sindri Konráðs-
son var fæddur
á Akureyri 15. maí
árið 1978. Hann lést
af slysförum í
Gnúpveijahreppi
þriðjudaginn 1.
október síðastlið-
inn. Sindri var
yngsti sonur Kon-
ráðs Oddgeirs Jó-
hannssonar, sonar
Jóhanns Konráðs-
sonar og Fanneyjar
Oddgeirsdóttur, og
Lifju K. Helgadótt-
ur, dóttur Helga
Árnasonar og Guðlaugar Kar-
elsdóttur. Sindri átti fjögur
systkini, þau Svanhildi, f. 18.11.
1965, Hrafnkel, f. 26.2. 1971,
Jóhann Helga, f. 30.10. 1973,
og Aðalheiði, f. 27.5. 1976. Fjöl-
skyldan fluttist frá Akureyri í
Hver óttast er lífið við æskunni hlær
sem ærslast um sólríka vegi,
og kærleikur útrás í kætinni fær,
sé komið að skilnaðardegi.
Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm
er verður að hlíta þeim lðgum
að beygja sig undir þann allsheijardóm
sem ævina telur í dögum.
Við áttum hér saman svo indæla stund
sem aldrei mér hverfur úr minni
og nú ertu genginn á guðanna fund,
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson)
Með sorg í hjarta kveðjum við
þig nú, elsku Sindri. Það er svo
sárt að horfa á eftir þér í blóma lífs-
ins, þar sem þú áttir svo margt
ógert. En við þökkum fyrir þær
stundir sem við áttum saman og
varðveitum minninguna um góðan
frænda. Við biðjum góðan Guð og
engla hans að gæta þín og lýsa
veginn þinn.
Far vel héðan, friður sé með þér;
Nú þú heyrir sönginn, sem þú þreyðir,
Sólvang rósum vaxinn mót þér breiðir
Eden þitt, sem enga þyma ber.
(Steingrímur Thorsteinsson)
Elsku Lilla, Konni, Svana, Hrafn-
kell, Jóhann Helgi, Aðalheiður, Guð-
rún og aðrir ástvinir. Missir ykkar
er mikill og söknuðurinn sár, en ást
janúar árið 1990 er
Konráð og Lilja
tóku við umsjón fé-
lagsheimilis og
fér ðamannamið-
stöðvar í Árnesi i
Gnúpverjahreppi.
Sindri gekk í Gnúp-
veijaskóla og svo lá
leiðin í Grunnskól-
ann á Flúðum þaðan
sem hann lauk
grunnskólaprófi.
Hann var á þriðja
ári náms síns á fé-
lagsfræðibraut Fjöl-
brautaskólans á
Suðurlandi og stefndi á tónlist-
arnám. Hann lætur eftir sig
kæra vinkonu, Guðrúnu.
Útför Sindra fer fram frá
Dómkirkjunni i dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30. Jarðsett
verður i Gufuneskirkjugarði.
ykkar til Sindra lifir og mun verða
ljós í huga ykkar.
Megi algóður Guð styrkja ykkur
á þessum erfíðu tímum og vísa veg-
inn áfram.
Herdis, Ragnheiður og
Atli Már.
Kveðja frá Fj ölbrautaskóla
Suðurlands á Selfossi
Að morgni 2. október berast þær
sorgarfregnir í skólann að einn nem-
enda okkar hafi farist í bílslysi
kvöldið áður. Við erum sem lömuð.
Enn einu sinni erum við minnt á
það hversu stutt er á milli lífs og
dauða. Hversdagsleikinn víkur fyrir
harmleik, við stöndum framnii fyrir
þeirri staðreynd að piltur í blóma
lífsins er hrifinn frá okkur. Enn eitt
mannslífið hefur orðið umferðinni á
Suðurlandi að bráð.
Sindri var nemandi á þriðja ári í
námi sínu við skólann til stúdents-
prófs. Sindri tók virkan þátt í félags-
lífi nemenda og ófáar voru þær
stundir sem hann átti inni á Hreiðri,
bækistöð nemendaráðs, með gítar í
hönd. Þar er nú skarð fyrir skildi.
Það er skuggi yfir skólanum, en
eftir lifír minning um góðan dreng
og þakklæti fyrir samvistir á liðnum
árum. Fyrir hönd okkar allra í Fjöl-
brautaskóla Suðurlands færi ég Qöl-
skyldunni í Árnesi okkar dýpstu
ÖRN
EIRÍKSSON
+ Öm Eiriksson
fæddist á Akur-
eyri 28. janúar
1926. Hann lést í
Reykjavík 15. júní
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Dómkirkjunni 24.
júní.__________
In memoriam
Það er óskemmtilegt
að sjá á bak skemmti-
legum vini og frænda,
að sjá hann ganga fyr-
ir ætternistapa óþarf-
lega snemma.
Ekkert er jafnhollt og heilsusam-
legt og skemmtilegur félagsskapur.
Örn Eiríksson siglingafræðingur,
Bassi Eiríks, eins og hann var kall-
aður bæði fyrir norðan og sunnan,
er nú allur og með honum hvarf
viss goðsögn. Hann var áberandi
karakter, sem litaði umhverfið með
lífsorku sinni, sem ýmist var skilið
rétt eða skilið á verri veg. Hann var
vinfastur úr hófi fram eins og fleiri
af Skeggstaðaættinni húnvetnsku,
sem Reagan er talinn vera af, plús
ýmsir, sem þykja vera í sér um-
slagi: Jón Leifs, Jón í Stóradal, Jón
Kaldal, Klemenz kvekari í Bólstað-
arhlíð, Sigurður skólameisteari, Sig-
urlaug í Einarsnesi, Jón á Akri og
náttúrlega Pálmi sonur
hans. Það er ekki hægt
annað en að sanna sitt
mál með þessari upp-
talningu. Bassa kippti
í kynið, mest í austur-
húnvetnska kynið, ekki
hvað sízt varðandi ætt-
rækni og þessa hviku,
sem hann duldi og
breiddi yfir eins og kú-
reki úr villta norðrinu
- A-Hún., sem sumir
kalla Texas íslands. Afi
Bassa, Kristján Gísla-
son kaupmaður og
faktor á Sauðárkróki,
var ógnlega glæsilegur - minnti á
lord, spilaði á orgel eins og snilling-
ur, hann var afí Árna Elfars fjöl-
listamanns og einnig Páls Axelsson-
ar, sem löngum þótti fallegasti
maður á íslandi (hann er nú búsett-
ur í Kjöben).
Bassi nam siglingafræði í Banda-
ríkjunum, tók próf í þeirri grein með
láði og einnig atvinnumannsflug-
próf. Hann skilað af _sér farsælu
starfi hjá Flugfélagi íslands sem
„navigator" og skapaði alltaf visst
andrúmsloft bæði meðal áhafnar og
farþega að því er sagt er. Síðast
vann hann sem flugumsjónarmaður
hjá Flugleiðum á Reykjavíkurflug-
velli fram að aldursmörkum. Þótti
samúðarkveðjur og biðjum við henni
styrks og blessunar í óbærilegri
sorg. Blessuð sé minning Sindra
Konráðssonar.
Sigurður Sigursveinsson,
skólameistari.
„Ég er ekkert að monta mig, ég
er bara bestur," sagði Sindri eitt
sinn og hló. Þessi orð eru dæmigerð
fyrir hans manngerð og þannig
munum við eftir honum. Hann var
stoltur og þrátt fyrir töff yfirborð
var Sindri ljúfur drengur sem alltaf
var tilbúinn að miðla af kunnáttu
sinni og getu. Þegar gamli bekkur-
inn er spurður að því hvað okkur
detti fyrst í hug er við heyrum nafn-
ið Sindri þá er svarið yfirleitt gítar
og Zeppelin. Hann var fær á gítar-
inn og var ekkert að leyna því. Við
fengum t.d. góða kynningu á laginu
Stairway to Heaven sem hljómaði
ósjaldan í skólanum. Einhvem tím-
ann ætluðu Sindri og nokkrir strák-
ar úr bekknum að stofna hljómsveit
en vegna vankunnáttu þeirra fauk
sú hugmynd út í buskann, þótt mik-
ið hafi verið reynt. 1 körfuboltanum
var Sindri einnig fær og tók þátt í
honum eins og við öll gerðum. Það
t.d. var eitt af því sem styrkti bekk-
inn sem heild þrátt fyrir slæmt orð.
Hægt er að rifja upp óteljandi atriði
sem snertu Sindra og okkur, en það
yrði að heilli bók. Sá 10. bekkur sem
útskrifaðist frá Flúðaskóla vorið ’93
er kannski hafður í minnum þar,
en við stóðum saman í gegnum súrt
og sætt og er Sindri, og mun alltaf
verða, einn af oss.
Kæri vinur. Hugsaðu til okkar,
við hugsum til þín. Það er svo margt
sem okkur langar til að segja og
gera þegar svona stendur á, en það
eina sem við getum er að geyma
minninguna í bijósti okkar.
Bekkurinn.
Ég kynntist Sindra fyrst þegar
hann kom í skólann minn. Við vorum
þá þrettán ára pjakkar og urðum
fljótt mjög góðir vinir. Ég gat alltaf
leitað til Sindra þegar eitthvað bját-
aði á, eða þegar ég var dapur, og
hann sýndi mér alltaf skilning eða
hressti mig upp á einhvem hátt.
Sindri er búinn að gefa mér svo
margar góðar stundir og þvi er erf-
itt að sætta sig við að geta ekki átt
fleiri stundir með honum. Mér finnst
erfitt að trúa að þessi frábæri vinur
minn sé farinn og komi ekki aftur.
Sindri, þakka þér fyrir allt.
Grímur V. Magnússon.
honum illt að hætta, vildi gjama
vinna lengur, hann var ekki makráð-
ur maður, heldur framlínumaður.
Nokkm eftir að hann hætti vinnu
fór heilsa hans að gefa sig.
Bassi var vel kvæntur. Eiginkona
hans, Bryndís Fjjetursdóttir leik-
kona, reyndist honum traustur lífs-
förunautur, fæddi honum hörku vel
gerða og skemmtilega stráka, sem
minna óneitanlega mikið á pabbann.
Frú Bryndís er af austfirzkri eðal-
ætt - af góðu fólki komin.
Síðasta heimsókn til Bassa
frænda var eftir hámessu í Landa-
koti ekki ýkja löngu áður en hann
kvaddi okkur. Það sýndi sterkan
karakter, hvemig viðtökur hans
voru, hvernig viðmót hans var. Hann
brá á glens eins og hann var van-
ur. Hann minnti ekki á nokkum
hátt á dauðann. Hins vegar hélt
hann sinni makalausu reisn eins og
einkennir margan, sem hefur horfzt
í augu við hættur án þess að blikna.
Honum var skenktur sedmsviðar-
kross frá því fjarlæga landi Líban-
on, úr kristna hlutanum að sjálf-
sögðu. Krossinn, þessi kross, var
allt öðm vísi kross en aðrir krossar
alveg á sama hátt og Bassi var
öðra vísi persónuleiki en margir
aðrir. Þau hjónin buðu til málsverð-
ar, háíslenzks matar, sem fer hverf-
andi í íslenzku samfélagi (því mið-
ur). Rétt eftir matinn hallaði Bassi
sér einsog tíðkaðist í sveitinni. Svo
setti hann krossinn á bijóst sér og
sagði gamansögur sem ólguðu af lífi.
Guð blessi Bassa og fólk hans.
Steingrímur St.Th. Sigurðsson.