Morgunblaðið - 11.10.1996, Page 46
46 FÖSTUDAGUR 11. OKTÖBER 1996
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Lambalifur
með ávöxtum
Ný vel matreidd lambalifur er herra-
mannsmatur segir Kristín Gestsdóttir,
sem segist ekki hafa borðað lifur sem
bam enda verið mjög matvönd.
E™„V„EEN .^JL
komst ég hjá því
að borða lifur, en í
þá daga borðuðu böm
flest allt sem borið var
á borð. Hrædd er ég
um að eitthvað hefði
heyrst ef við systkinin
hefðum sagt „oj bara,
þetta er vont“ eða eitt
hvað í þeim dúr, sem
mörg böm nútímans komast
upp með að segja um matinn
sem borinn er fyrir þau. En
þó ég hafi ekki viljað lifur sem
barn, þykir mér hún mjög
góð í dag ef hún er vel ma-
treidd, en vanda þarf ma-
teiðsluna, sneiða lifrina mjög
þunnt, skera vandlega úr æðar
og taugar og steikja bara í örfá-
ar mínútur. Lifur er vinsælust
af svokölluðum innmat, hún er
ódýr og mjög jámauðug og hægt
er að búa til hreinan veislumat
úr henni. Flestir borða lifur með
lauk en margir ávextir henta
mjög vel með henni, svo sem
appelsínur og epli að ónefndu
mangói, sem á einkar vel við lifur.
Meðferð á lifur fyrir
matreiðslu
Hver lambslifur vegur yfirleitt
um i kg.
1. Himna umlykur lifrina, en
óþarfi er að taka hana af lamba-
lifur, hún er svo þunn, en skera
þarf úr allar æðar og taugar og
þvo blóð af. Leggið lifrina á bretti
og skerið síðan örþunnar sneiðar
á ská. Notið beittan hníf. Ekki
verða allar sneiðamar stórar, en
þær litlu má líka nota.
2. Setjið hveiti, salt og pipar
í plastpoka og hristið saman, setj-
ið lifrarsneiðamar í pokann og
hristið þannig að hveitiblandan
þeki sneiðarnar vel. Steikið síðan,
sjá eftirfarandi uppskriftir.
Lifur með mangó
Mangó er einn af svokölluðum
framandi ávöxtum, það fæst
víða og er ekki mjög dýrt.
1 lifur, u.þ.b. kg
1 dl hveiti
________1 tsk. salt________
tsk. pipar
_______dl matarolía____
_____1 súputeningur (duft)_
2 dl vatn
hveitihristingur (hveiti + vatn)
1 mangó
30 g ósalt smjör
þunnar sneiðar, og hristið með
hveitiblöndunni í plastpoka, sjá
hér að framan.
3. Setjið matarolíuna á pönnu,
hafið góðan hita. Steikið lifrar-
sneiðarnar í um 3 mínútur á
hvorri hlið.
4. Leysið súputeninginn (duft-
ið) upp í vatninu og hellið yfir.
5. Hristið saman hveiti og
vatn og jáfnið sósu. Látið sjóða
með lifrinni við hægan hita í 3-5
mínútur. Alls ekki lengur. Setjið
á fat, raðið mangósneiðunum
utan með og stráið lauknum yfir.
Meðlæti: Soðnar kartöflur.
Lifur með beikoni
og eplum
1 lifur
1 dl hveiti
1 tsk. salt
'A tsk. pipar
'A tsk. karrí
dl matarolía
2 frekar litlir laukar
2 msk. matarolía til að steikja
laukinn í
1. Afhýðið mangóið, takið
steininn úr og skerið í rif. Steinn-
inn er flatur og er best að skera
niður með breiðari hlið mangósins
og skera aldinkjötið frá steinin-
um. Geymið. Setjið smjör á pönnu
og brúnið mangóið örlítið. Takið
síðan af pönnunni og geymið.
Bætið matarolíu á pönnuna og
steikið laukinn. Geymið.
2. Hreinsið lifrina og skerið í
5 stórqr sneiðar beikon
2 græn eða gul epli
30 g ósalt smjör
1 súputeningur eða duft
____________2 dl vatn___________
hveitihristingur (vatn + hveiti)
1. Klippið eða skerið beikonið í
bita. Steikið á pönnu. Takið af
pönnunni og geymið.
2. Afhýðið eplin, stingið úr
þeim kjarnann, skerið í sneiðar,
setjið smjörið á pönnuna og steik-
ið eplasneiðamar.
3. Hreinsið lifrina og skerið í
þunnar sneiðar, hristið með
hveitiblöndunni og karríi, sjá hér
að framan.
4. Hitið matarolíuna, hafið
góðan hita og steikið lifrarsneið-
amar i um 3 mínútur á hvorri
hlið. Setjið síðan 2 dl af vatni
ásamt súputeningi (dufti) út í.
5. Hristið saman hveiti og
vatn og jafnið sósu. Sjóðið við
hægan hita ásamt lifrinni í 3
mínútur. Alls ekki lengur. Leggið
eplasneiðamar ofan á og stráið
beikonbitum yfir.
Meðlæti: Soðnar kartöflur.
SKÁK
Umsjön Margcir
Pétursson
Staðan kom upp á Ólymp-
íumótinu í Jerevan sem lauk
í síðustu viku. Stórmeistar-
inn Branko Damljanovic
(2.470) hafði hvítt og átti
leik gegn alþjóð-
lega meistaranum
Beat Ziiger
(2.460), Sviss.
Svartur lék síðast
gróflega af sér, 28.
- Rc5-d3??, í
heldur lakari
stöðu.
29. Hxh7+! -
Hxh7 30. Dc8+ -
Kg7 31. Dxd7+ -
Kf8 32. Dd8+ -
Kg7 33. De7+ og
svartur gafst upp
því mátið blasir
viði
Báðar þessar
sveitir mega muna
sinn fífil fegurri. Júgóslavia
var stórveldi í skákinni á
árum áður, en eftir að sam-
bandsríkið sundraðist er
landsliðið ekki svipur hjá
sjón. Hámark niðurlæg-
ingarinnar var þegar Júgó-
slavía (Þ.e. Serbía og Svart-
fjallaland) tapaði fyrir
Króatíu og hlaut aðeins
hálfan vinning gegn þremur
og hálfum. Það háði Sviss-
lendingum að Viktor
Kortsnoj var fjarri góðu
gamni, hann vildi ekki tefla
í Armeníu. Júgóslavía end-
aði í 22. sæti á mótinu, en
Sviss í því 58.
Deildakeppni Skáksam-
bandsins hefst í kvöld kl.
20 í Skákmiðstöðinni Faxa-
feni 12. Búist er við þátt-
töku 10—11 stórmeistara,
sem er algert met. Flestir
íslensku stórmeistaramir
verða með auk þess sem
Taflfélag Reykjavíkur teflir
fram þremur erlendum.
HVÍTUR mátar í sjöunda leik
Með morgunkaffinu
ÞAÐ eina sem gerðist
var að mamma Lisu tók
við gjöfunum, setti hatt
á hausinn á okkur og
sendi okkur svo heim.
Farsi
UAH6>lASS/ccO(--tUAO.T
ŒDC
□
D
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Enn meira
um bláber
FULLORÐIN kona, sem
alin er upp fyrir vestan,
hringdi til Velvakanda
og langaði að segja frá
því að hún kannaðist við
aðalberin svokölluðu,
sem fjallað var um í
Velvakanda nýverið.
Hún þekkti að vísu ekki
nafnið, en vildi benda á
að aðalbláberin em upp-
haflega blá, þó þau geti
orðið svört í góðu ár-
ferði, en aðalberin era
svört frá upphafi. Laufíð
á þeim er öðravísi en á
aðalblábeijunum og þau
era sætari og betri. Þá
kannaðist hún einnig við
aflangt afbrigði af
krækibeijum sem uxu
fyrir vestan, en hún hef-
ur hvergi séð þau annars
staðar. Börnin kölluðu
berin „flöskuber" vegna
lögunarinnar.
Hégómleg deila
DEILURNAR á Balkan-
skaga og á milli ísraels-
manna og gyðinga era
hliðstæðar því máli sem
upp korn um árið 1000
þegar Islendingar stóðu
frammi fyrir trúardeil-
um. Þeir fólu Þorgeiri
Ijósvetningagoða að
skera úr um málið. Hann
sá að hér var deilt um
hégóma og kvað upp úr
með það að menn skyldu
taka hinn nýja sið, en
jafnframt vera heimilt
að hafa þann gamla fyr-
ir sig.
Einar Vilhjálmsson
Smáraflöt 10,
Garðabæ.
Tapað/fundið
Eyrnalokkar
fundust
SILFUREYRNALOKK-
AR fundust á Kaffi
Reykjavík 27. september
sl. Upplýsingar eru veitt-
ar í síma 567-5204.
GSM-sími
tapaðist
ERICSON GH-388 far-
sími tapaðist á leiðinni
frá Súlnasal Hótels Sögu
og að gatnamótum
Hringbrautar og Sóleyj-
argötu aðfaranótt sl.
sunnudags. Finnandi er
vinsamlega beðinn að
hringja í síma 567-8909
eða 550-6700. Páll.
Gleraugu
fundust
LESGLERAUGU í
brúnu hulstri með reim
í opinu fundust á bfla-
stæði fýrir utan Hótel
Eskju fyrir u.þ.b. viku.
Upplýsingar í síma
567-7856.
Úr fannst
VANDAÐ kvenúr fannst
á planinu fyrir framan
Skógarhlíð 6, sýslu-
mannsembættið í
Reykjavík, fyrir rúmri
viku. Úrið er með áletr-
un. Sá sem telur sig eiga
úrið má hringja í síma
569-2400, skiptiborð.
Æfingaskór
fundust
NÝLEGIR bamaæfinga-
skór fundust í Hamra-
hverfí í Grafarvogi si.
mánudag. Upplýsingar í
síma 567-6674.
Armband
fannst
LÍTIÐ bamaarmband
með plötu sem á er greipt
nafnið Magnús xxx
fannst á mótum Baróns-
stígs og Eiríksgötu.
Upplýsingar gefur Guð-
rún í síma 557-8097.
Pennavinir
SAUTJÁN ára finnsk
stúlka, m.a. með áhuga á
hestum, útivist og bréfa-
skriftum:
Niina Aronen,
Eramiehentie 8,
86800 Pyhásalmi,
Finland.
TUTTUGU og eins árs
japönsk stúlka með marg-
vísleg áhugamál:
Yukako Takagi,
2-26/116-10 Shikann
on H.,
Tashiro, Chikusa,
Nagoya 464,
Japan.
Víkverji skrifar...
OFULLKOMIN tölvuvæðing
getur stundum orðið okkur
að fótaskorti. Kunningi Víkveija
stundar nám við Háskólann og
þurfti að flytja í haust. Hann breytti
að sjálfsögðu heimilisfanginu sam-
viskusamlega niðri á Hagstofu,
meira að segja nokkrum dögum
fyrir flutninginn 1. september. Hon-
um brá því í brún er hann komst
að því í lok mánaðarins að gamla
heimilisfangið var enn skráð í gögn-
um skólans. í ljós kom að Hagstof-
an hafði skráð breytinguna 5. sept-
ember en Háskólinn uppfærir breyt-
ingar 10. hvers mánaðar og fer þá
eftir þjóðskrá Hagstofunnar.
Þegar kunningi Víkveija hafði
komist að því með nokkrum sím-
hringingum að eitthvað hafði farið
úrskeiðis og breytingin ekki komist
í gegn hjá Háskólanum fékk hann
að vita að ekki væri hægt að laga
villuna fýrr en 10. október. Engin
leið væri til að hnika við röngu
skráningunni fyrr en þá.
Þegar hann spurði hvað myndi
nú gerast ef lagfæringin gleymdist
eða mistækist var svarið að þá yrði
ekkert hægt að gera fyrr en við
næstu uppfærslu, þ.e. 10. nóvem-
ber!
Þarf ekki að vera beintenging
milli þessara stofnana svo að grund-
vallargögn af þessu tagi séu þannig
að þeim megi treysta?
xxx
NAFN nýja nóbelsverðlaunahaf-
ans í bókmenntum, pólsku
skáldkonunnar Wislawa Szym-
borska, hefur stundum verið ritað
Wislawa og stundum Wieslava. í
þeirri bók, sem geymir þýðingar á
þremur Ijóðum hennar á íslenzku,
er e í nafninu, en Wieslava mun
vera algengt nafn í Póllandi. Hins
vegar heitir skáldkonan Wislava,
sem mun álíka sjaldgæft og hin
útgáfan er algeng.
xxx
AÐ vakti athygli á dögunum,
þegar listaheimspekingurinn
Arthur Danto kom hingað til lands
til fyrirlestrarhalds, að húsnæði það
sem honum var vísað til, reyndist
hvorki þægilegt fyrir hann né nógu
stórt til að hýsa nema hluta þeirra,
sem áhuga höfðu á máli hans.
Er það undarlegt að skipuleggj-
endur heimsóknar Dantos til lands-
ins, skuli ekki hugsa fyrir svo sjálf-
sögðum hlut sem að hafa nægilegt
pláss fyrir áhugasama áheyrendur
og er skipuleggjendum ekki sómi
að því hvernig staðið var að þessum
annars skemmtilega og áhugaverða
fyrirlestri Dantos.