Morgunblaðið - 11.10.1996, Síða 51

Morgunblaðið - 11.10.1996, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1996 ' 51 íh#lu^i SAeA-OK) MeviJí bíóhöll http://www.islari4ia.is/sambioin ÁLFABAKKA 8 SÍMI 5878900 DAUÐASOK FYRIRBÆRIÐ DJOFLAEYJAN Sýnd kl. 4.50. 6.55, 9 og 11.10. THX DIGITAL GULLEYJA PRÚÐULEIKARANNA Far- eða Gullkortshafar VISA og hlámu- oa Gengismeðlimir Landsbanka fá 25% AFSLATT. Gildir fyrirtvo. Sýnd kl. 4.50, 6.55, 9 og 11.05. THX, KlltSTI^AIÍ.l'.V IT TAKES 4W \KYNNIR , Það er erfitt að vera svalur ^ þegar pabbi þinn er Gufgr y íslenskt tal. SAMBiO SAMBtOm SAMBtO SAMBiO Uinsæluslu sögur síðari tímáaíslandi birtast í nýrri stórmynd ettir Friðrik Þór Friðríksson ★ ★ ★ V2 S.V. Mbl ★ ★ ★ V2 H.K. DV 1 ★ ★ ★ O.H.T. Ras 2 ERASER TRUFLUÐ TILVERA Sannkölluð stórmynd gerð eftir samnefndri metsölubók John Grisham (The Client, Pelican Brief, The Firm). Faðir tekur lögin í sínar hendur þegar illmenni ráðast á dóttur hans. Saksóknarinn krefst þyngstu refsingar og réttarhöldin snúast upp í fjölmiðlasirkus. Frábærir leikarar i öllum hlutverkum. Samuel L. Jackson (Pulp Fiction), Sandra Bullock (While You Were Sleeping), Matthew McConaughey, Oliver Platt (Flatliners), Brenda Fricker (My Left Foot). Leikstjóri: Joel Schumacher (The Client, Batman Forever, Falling Down, Flatliners). m\ lli k-J Náttúrulega gott BÖRN NÁTTÚRUNNAR Gísli og Sigríður - aftur til upprunans. VÍÐFRÆGASTA bíómynd íslendinga til þessa, Börn nátt- urunnar eftir Frið- rik Þór Friðriksson, er verðug opnun ís- lenskrar kvik- myndaviku í Sjón- varpinu (sunnudag- ur 21.55). Þrátt fyr- ir að tvö atriði í fyrri hluta myndarinnar gætu verið betur heppnuð nær frásögn Friðriks Þórs og Einars Más Guðmundssonar af hinstu ferð gamalla elskenda til æskuslóðanna þar sem þau verða „börn náttúrunnar" að nýju nánast klassískri stærð. Fuilt af húmor er á leiðinni og allur lokakafiinn á áfangastað á Hornströndum er áhrifamikill óður til lífsins og dauð- ans og landsins sem hýsir hvoru tveggja; ljóðrænt myndmálið er áreynslu- og tilgerðarlaust og ákaf- lega fallegt. Gísli Halldórsson og Sigríður Hagalín eru framúrskar- andi, tónlist Hilmars Arnar Hilmars- sonar líka. Þið sem ekki hafið séð þessa mynd — ekki missa af henni. Þið hin - njótið hennar að nýju. Ég hef séð hana hátt í tíu sinnum og hún heillar enn. ★ ★ ★ 'k að Sódómu og Gómorru Bandaríkj- anna - Las Vegas. Þetta er grunnur Svarta hefndarengilsins (The Flight Of The Black Angel, 1991). Áhuga- verð spennumynd framan af, segja Martin og Potter, en verður heimsku- •eg um miðbikið. Þau gefa ★ ★ 'h af fimm mögulegum, Blockbuster Video sama, og Maltin segir myndina fyrir ofan meðallag. Stöð 2 ►l 5.00 Vandamál í sambandi ekkils og ungrar dóttur var í brenni- depli í vinsælli fjölskyldumynd frá 1991 sem hét My Girl. Þremur árum síðar var gert framhald með flestum sömu leikurunum og sama leikstjóra, Howard Zieff. í Stúlkan mín 2 (My Girl 2, 1994) fer dóttirin, orðin unglingur, í ferðalag til frænda síns í Los Angeles til að fræðast um látna móður sína. Anna Chlumsky er best sem stúlkan en aðrir leikarar eru m.a. Dan Aykroyd og Jamie Lee Curtis. ★ ★ Stöð 2 ►21.10 Heiður himinn (BlueSky, 1994) er svanasöngur Ton- ys Richardson, góðs bresks leikstjóra sem lést úr alnæmi árið 1991. Hann gerði sín mistök en Tom Jones, Look Back In Anger, The Loved One og A Taste Of Honey munu halda nafni hans lengi á lofti. Hann þarf heldur ekki að skammast sín fyrir þessa ágengu dramatísku mynd um kjarn- orkufræðing sem þarf að takast á við yfirhilmingu á vinnustað sem hjóna- bandsvanda heima fyrir. Jessica Lange og Tommy Lee Jones eru fyrirtak að vanda og Lange fékk Óskarsverðlaun að launum. Herslumun vantar þó. ★ ★ 'h Stöð 2 ^22 ■55Franska spennu- myndin Vélin (LaMachine, 1994)er því miður mislukkuð saga um geð- lækni sem gerir jafn mislukkaða til- raun á geðveikum glæpamanni. Jafn góðir leikarar og Gerard Depardieu og Nathalie Baye ættu að forðast mislukkaðar tilraunir af þessu tagi. Leikstjórinn Francois Dupeyron Iíka. Að ekki sé minnst á okkur hin. ★ Stöð 2 ►O .35 Hugmyndin á bak við gamanmyndina Tuttugu dalir (Twenty Bucks, 1994) er glúrin: Tutt- ugu dollara seðli er fylgt eftir handa á milli - frá útigangskonu til hjóla- brettastráks til tyggigúmmíframleið- anda til hjónaefna til nektardansmeyj- ar og svo framvegis. Utkoman þykir umdeilanleg en forvitnileg. Leikstjóri Keva Rosenfeld og meðal leikara Brendan Fraser, Christopher Lloyd og Linda Hunt. Martin og Potter gefa ★ ★ 'h, Blockbuster Video sama og Maltin ★ ★. Stöð 3 ►20.25 Gamla tvíbura- systraplottið ber uppi Hlaupið í skarðið (Change ofPlace) - sumsé önnur er voða vond og hin er voða góð og að þessu sinni er vettvangurinn tískuheimurinn í París. Aðalhlutverk Andrea Roth, Rick Springfield, Ian Richardson og Stephanie Beacham. Að öðru leyti gjörsamlega hulin ráð- gáta. Stöð3 ►21.55 Tom Berenger, Charlton Heston og James Coburn eru meðal ágætra leikara banda- ríska sjónvarpsvestrans Hefndar- engillinn (The Avenging Angel, 1995) sem ekki má rugla saman við Svarta hefndarengilinn á RÚV; ég held reynd- ar að báðar stöðvar eigi við refsi- engia. Berenger leikur mormóna sem gerist lífvörður Brighams Young og fieiri mormónaleiðtoga. Maltin segir þessa í meðallagi og leikstjórann verá Craig R. Baxley en Martin og Potter eru ánægð, gefa ★★★'/! en segja leikstjórann vera Peter Markle. Hvað er eiginlega að gerast? Stöð 3 ►23.250g ekki veit ég svo gjörla hvað gerist í spennumyndinni Blikur á lofti (Hard Evidence), hef ekki hitt nokkurn mann sem veit það en ég les hins vegar að kona nokkur komist að því í þessari mynd að nýtt starf á nýjum vinnustað er ekki endi- lega himnasending. John Shea, Dean Stockwell og Kate Jackson geta leikið - svo mikið veit ég. Sýn ►21.00Engarumsagnirliggja fyrir um Upp komast svik (Frequent Flyer). Þar segir frá flugmanni einum sem notfærir sér aðstöðu sína - og væntanlega afsláttarfargjöldin til að halda þrjár eiginkonur í þremur borg- um í Bandaríkjunum. Ailar þrjár halda að hún sé sú eina - en auðvitað kom- ast upp svik um síðir. Aðalhlutverk Jack Warner, Shelley Hack, Joan Se- verance og Nicole Eggert. Sunnudagur Sjónvarpið ►14.15 Góða, gamaldags síðdegisskemmtan má hafa af bardaga- myndinni Riddarasveitin (The Charge Of The Light Brigade, 1936) sem leik- stjórinn Michael Curtiz (Casablanca) gerði eftir kvæði Tennysons um gífur- legt afhroð breska hersins á Krímskaga á síðustu öld. Úrvalsleikarar: Errol Flynn, Olivia de Havilland, Nigel Bruce, David Niven o.fl. Tilkomumikil orustu- atriði en þykir sagnfræðilega hæpin. Endurgerð 30 árum síðar af Tony Ric- hardson heitnum. ★ ★ 'h Sjónvarpið ^21.55 Böm náttúrunn- ar - Sjá umfjöliun í ramma. Stöð 2 ►23.10 Spennutryllirinn F/X þar sem ástralski leikarinn Bryan Brown lék brellumeistara í kröppum dansi var prýðis afþreying. Framhald- ið Brellur 2 (F/X2,1991)er það líka. Hér er Brown enn og aftur í kröppum dansi og nú á hælum raðmorðingja. Brian Dennehy er til staðar sem fyrr, hraðinn og hasarinn iíka. Leikstjóri Richard Franklin. ★ ★ 'h Sýn ►23.00 Brian Dennehy, sá mikil- úðlegi leikari, er einnig til staðar f spennumyndinni Lokasókn (Final Appeal, 1993) sem og Jobeth Williams sem leikur konu sem leitartil bróður sfns þegar hún er handtekin fyrir morð að yfirlögðu ráði á ótrúum eiginmanni sínum. Tíðindalítil afþreying. ★ ★ Árni Þórarinsson 1 tg$c>reAri»ié X AKUREYRI DAUÐASÖK Sýnd kl. 9.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.