Morgunblaðið - 29.10.1996, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Hjálmar Jónsson
STARFSMENN í eftirlitsflugi hjá Landhelgisgæslunni stóðu togarann Ými HF að því í gær
að dæla 120 lítrum af olíu í sjóinn úti af Breiðafirði.
Tveir togarar staðnir að
því að dæla olíu í sjóinn
Landhelgisgæslan tilkynnir
Hollustuvernd um atvikin
STARFSMENN Landhelgisgæsl-
unnar komu í gær auga á 30
metra breiðan olíuflekk sem lá
aftan úrtogaranum Ými HF, norð-
ur af Jökultungu úti af Breiðafirði.
Helgi Hallvarðssou, skipherra
hjá Landhelgisgæslunni, segir að
flekkurinn hafi teygt sig sjö sjómíl-
ur aftur fyrir skipið og giski menn
á að Ýmir hafí dælt 120 lítrum
af olíu í sjóinn. Segir Helgi að
olíulosun í sjó, sem og önnur rusla-
losun, varði sektum ög sé tilkynnt
til mengunarvarnasviðs Hollustu-
verndar ríkisins.
Helgi segir að starfsmenn í eft-
irlitsflugi reyni eftir föngum að
fylgjast með því að skip losi hvorki
olíu né rusl í sjó. „Við teljum því
miður, að nokkuð mikil brögð séu
að þessu og að menn séu að læða
olíu í sjóinn. Þá höfum við mikið
orðið varir við þetta utan 200
mílnanna, sérstaklega hjá Rússun-
um,“ segir Helgi.
Hinn 13. október síðastliðinn
voru skipveijar á Stakfellinu ÞH
staðnir að því að dæla olíu út í
sjó, líklega um 140 lítrum, úti af
Reykjanesi. „Þeir viðurkenndu
strax mistökin og sögðust eiga í
vandræðum með olíuskilvindu, þeg-
ar við höfðum samband við þá og
bentum þeim á þetta,“ segir hann.
Mannleg mistök eða
spilliefnagjald?
Helgi segir aðspurður hvort úr-
gangsolíu sé dælt í sjóinn til að
sleppa undan spilliefnagjaldi að
mannleg mistök geti vissulega orð-
ið til þess að menn missi olíu í
sjóinn. „En ég neita því ekki að
einhver grunur leiki á um að menn
reyni þetta,“ segir hann.
Helgi segir erfitt að koma auga
á flekkina nema skyggni sé gott
og sjór sæmilega sléttur. „Það er
kominn ttmi til þess að við getum
útbúið vélina okkar með sérstök-
um mengunarvarnaleitartækjum."
Segir Helgi að með þeim sé hægt
að reikna út stærð olíuflekkja og
hvaða tegund olíu sé um að ræða,
auk þess sem búnaðurinn komi að
góðum notum við leit.
Öxarfjarðarheiði
Afskipti
höfð af
rjúpna-
skyttum
LÖGREGLAN á Húsavík
hafði afskipti af allmörgum
rjúpnaskyttum á Öxarfjarðar-
heiði um síðustu helgi og að
sögn Sigurðar Brynjólfssonar
yfirlögregluþjóns var hald
lagt á nokkur skotvopn þar
sem bæði vantaði skotvopna-
leyfi og veiðileyfi eða þá að
vopnin voru ekki lögleg til
fuglaveiða. Sigurður sagði að
flestar ijúpnaskytturnar sem
afskipti voru höfð af um helg-
ina hefðu þó verið með öll sín
mál í lagi.
„í einhveijum tilfellum
fengu menn færi á því að
fara heim og ná í leyfin og
þegar þeir gátu framvísað
þeim máttu þeir halda veiðum
áfram ef vopnin þeirra voru
í lagi,“ sagði Sigurður.
Umgengnin um
veiðisvæðið reyndist í lagi
Hann sagði að umgengni
ijúpnaskyttanna á veiðisvæð-
inu hefði verið í lagi og menn
hefðu ekki verið staðnir að
akstri utan vega, en nokkuð
hefur borið á því í haust að
ijúpnaskyttur hafi valdið
landspjöllum á Öxarfjarðar-
heiði.
„Það er búið að vera tals-
vert mikið um það bæði í
haust og undangengin haust
að það er engu eirt, hvorki
grónu eða ógrónu landi, þann-
ig að þetta virðist vera land-
lægt á þessum slóðum. Við
ætlum okkur að reyna að vera
með eftirlit áfram eftir því
sem veður og færð leyfir en
við skorum á menn að sýna
landinu virðingu og bráðinni
einnig,“ sagði Sigurður.
Andlát
BRÍET
HÉÐIN SDÓTTIR
VÍNHÚSAEFTIRLIT lögreglunnar
í Reykjavík hafði afskipti af 15 ára
stúlku inni í vínveitingahúsi í mið-
bænum aðfaranótt sunnudags og
er það í annað skiptið á stuttum
tíma sem svo ungir einstaklingar
hafa fundust inni á skemmtistað í
miðbæ.
{ öðru tilvikinu bar eigandi
skemmtistaðarins það fyrir sig að
hann hefði ekki vitað um aldur við-
komandi og aukinheldur fundist I
lagi að hleypa honum inn, sökum
þess hve fátt var gesta.
Ómar Smári Ármannsson aðstoð-
aryfirlögregluþjónn segir lögregl-
una hafa að undanförnu fengið
ábendingar um skemmtistaði þar
sem ungmenni undir lögaldri hafi
átt greiðari aðgang en annars stað-
ar. Þetta séu fáir staðir og hafi
lögreglan aukið eftirlit við þá „við
litla ánægju leyfishafa", segir Ómar
Smári.
Hann segir algengast að þeir
unglingar sem finnast á vínveit-
ingastöðum hafi komist inn með
því að framvísa ökuskírteinum eða
bankakortum sem búið sé að breyta.
Stúlkur séu í meirihluta. Hins vegar
séu dyraverðir misjafnlega mikið á
varðbergi gagnvart slíkum fölsun-
um.
Dráttur á lokun
Eftirlitið tók einnig fyrir skömmu
þá ákvörðun að óska eftir því að
skemmtistað við Lækjargötu yrði
lokað tímabundið vegna veru 16 og
17 ára unglinga á honum, en eig-
endur staðarins kærðu þá ákvörðun
til dómsmálaráðuneytis og hefur
málið verið til umföllunar þar sein-
ustu þijár vikur, að sögn Ómars
Smára. Frá því að umrætt mál kom
upp, liggur fyrir skýrsla eftirlitsins
um of marga gesti á sama stað.
„Það hefur gengið hægt að fá
ákvörðun um lokun annaðhvort
staðfesta eða hnekkja henni, sem
er óvanalegt því að yfirleitt frestast
þessi afgreiðsla ekki meira en um
viku,“ segir Ómar Smári.
BRÍET Héðinsdóttir,
leikkona og leikstjóri,
lést á Landspítalanum
sl. laugardag á 62.
aldursári. Banamein
hennar var krabba-
mein.
Hún fæddist 14.
október 1935 og var
dóttir hjónanna Guð-
rúnar Pálsdóttur
söngkennara og Héð-
ins Valdimarssonar,
formanns Dagsbrúnar
og framkvæmda-
stjóra.
Árin 1955-1960 dvaldi Bríet í
Vínarborg og stundaði nám í bók-
menntum og leiklist. í tvo vetur
nam hún leiklist við Leiklistar-
skóla Þjóðleikhússins og útskrifað-
ist þaðan árið 1962.
Lengst af starfaði Bríet sem
leikkona hjá Þjóðleikhúsinu og eru
hlutverk hennar þar um 70 tals-
ins. Meðal minnisstæðra hlutverka
má nefna hjúskaparmiðlarann
Yentu í Fiðlaranum á þakinu,
mállausu dótturina Katrínu í Mutt-
er Courage eftir Bertold Brecht,
Mariu Llovnu í Sumargestum
Gorkís, Láru, aðalkvenhlutverkið
í Snjó eftir Kjartan
Ragnarsson, Poncu i
Heimili Vernhörðu
Alba eftir Lorca og
Karenu Blixen í Dótt-
ur Lúsifers eftir Will-
iam Luce.
Bríet leikstýrði
einnig óperusýningum
hjá íslensku óperunni
auk fjölda leiksýninga
m.a. eigin leikgerð af
Svartfugli eftir Gunn-
ar Gunnarsson hjá
Leikfélagi Akureyrar
og hjá Þjóðleikhúsinu
leikstýrði hún í eigin leikgerð
skáldsögu Guðmundar Kambans,
Skálholti, og fyrr á þessu ári leik-
stýrði hún Hinu Ijósa mani eftir
íslandsklukku Halldórs Laxness.
Hún var einnig mikilvirkur þýð-
andi en einkum þýddi hún leikrit
fyrir útvarp. Fyrir nokkrum árum
kom út eftir hana bókin Strá í
hreiðrið, sem er ævisaga ömmu
hennar, Bríetar Bjarnhéðinsdótt-
ur.
Bríet eignaðist þijár dætur og
eftirlifandi eiginmaður hennar er
Þorsteinn Þorsteinsson, kennari
og þýðandi.
Tveggja skrokka
skip í Hólminn
NÝTT skemmtiferðaskip í eigu Eyja-
ferða hf. kom til heimahafnar í
Stykkishólmshöfn á laugardaginn.
Um er að ræða skip sem keypt var
frá Noregi, 26 metrar á lengd og
rúmir 9 metrar á breidd. Skipið er
tveggja skrokka og er fyrsta skipið
af þessu tagi á íslandi.
Skipið tekur um 130 manns í
sæti. Það er knúið tveimur 1.200
ha. vélum og er meðalganghraði
þess rúmar 20 mílur fullhlaðið. Það
er smíðað árið 1976 og endurnýjað
árið 1984. Fjöldi bæjarbúa tók á
móti hinu nýja skipi Eyjaferða er
það lagðist að bryggju.
■ Skemmtiferðaskip/U
Afskipti höfð af unglingum á vínveitingastöðum
Akveðnir veitinga-
staðir undir eftirliti
i
I
I
fe
I
:
i
I
I
i
I
!
I
t
É
I
I
1