Morgunblaðið - 29.10.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1996 13
Eimskip leigir 10.000 fm viðbótarlóð á vöruhafnarsvæðinu
Tvöföldun á athafna-
svæði fyrirtækisins
EIMSKIP hefur gert samkomulag
við Akureyrarhöfn um ieigu á tæp-
lega 10.000 fermetra lóð á vöruhafn-
arsvæðinu, til viðbótar við um
10.000 fermetra lóð sem félagið
hefur haft á leigu á svæðinu til fjölda
ára og Oddeyrarskáli stendur á.
Garðar Jóhannsson, forstöðumaður
Eimskips á Akureyri, segir að ætlun-
in sé að stækka gámavöll félagsins
til norðurs og undir hann fari hluti
af viðbótarsvæðinu. Annar hluti
svæðisins fer undir starfsemi land-
flutningafyrirtækisins Dreka, sem
Éimskip á meirihluta í.
„Stefnt er að því að Dreki flytji
á vöruhafnarsvæðið um mánaðamót-
in nóvember/desember næstkom-
andi. Þeim flutningi fylgja töluverð-
ar framkvæmdir í Oddeyrarskála og
m.a. verða sett upp sjö akstursop á
norðurhlið skálans, fimm op fyrir
stóra flutningabíla og tvö minni fyrir
útkeyrslubílana. Um leið verður hægt
að afgreiða mun fleiri bíla innanhúss
en hægt er að gera í núverandi hús-
næði Dreka við Draupnisgötu.“
Ekki er gert ráð fyrir breytingar
á starfsmannahaldi Dreka við flutn-
inginn á vöruhafnarsvæðið, en þar
starfa um 20 manns. „Eina breyting-
in er sú að starfsmenn fá miklu betri
aðstöðu á allan hátt,“ sagði Garðar.
Framkvæmdum við aðrar breyt-
ingar á Oddeyrarskála er að mestu
lokið, en þær miðuðu að því að byggja
upp birgðahaldsþjónustu og tengdist
m.a. beinum siglingum félagsins frá
Akureyri til erlendra hafna.
ÍVAR Baldursson hafnarvörður setur björgunarnetið Markús
ofan í kassa sem hangir utan á Oddeyrarskála.
Björgunarbúnaður
skemmdur
Morgunblaðið/Kristján
Undirstöður styrktar
Bílveltur
o g umferð-
aróhöpp
HELGIN var annasöm hjá lögregl-
unni á Akureyri, töluvert var um
árekstra, ekki urðu teljandi meiðsl
á fólki en eignatjón umtalsvert.
Þá var mikið um útköll vegna ölv-
unar.
Bílvelta varð skammt frá Þela-
merkurskóla á sunnudag, ökumað-
ur var einn í bifreiðinni og slapp
án meiðsla en bíllinn er mikið
skemmdur. Þá valt bifreið á Víkur-
skarði á sunnudag og kvartaði
ökumaður um eymsl í hnakka og
herðum, en hann missti bílinn út
af veginum í mikilli hálku. Bíllinn
var fluttur óökufær af vettvangi.
Ekið var á kind við bæinn Mel-
gerði í Eyjafjarðarsveit á sunnu-
dag. Kindin drapst við áreksturinn
og bíllinn var óökufær eftir.
Lögregla var við eftirlit á Vaðla-
heiði, en þar hafa ijúpnaskyttur
verið á ferðinni síðustu daga. Einn
var kærður fyrir brot á skotvopna-
löggjöfinni, en hann hafði hvorki
byssuleyfi né veiðikort.
Sjö ökumenn voru kærðir um
helgina ýmist fyrir að vera ekki
með ökurita í bifreiðum sínum eða
fyrir að brjóta ás- eða heildarþunga
bifreiða. Þá voru fimm ökumenn
kærðir fyrir að aka of hratt, sá sem
hraðast ók á 140 kílómetra hraða
þar sem var 90 kílómetra hámarks-
hraði. Tveir voru teknir grunaðir
um ölvun við akstur.
-----»—»—«-----
Valt við Hús-
eyjarkvísl
ÖKUMAÐUR fólksbíls var fluttur
á Sjúkrahúsið á Sauðárkróki eftir
að bíll hans lenti út af veginum
við Húseyjarkvísl skammt frá
Varmahlíð. Farþegi, sem með hon-
um var, slapp án teljandi meiðsla.
Atburðurinn varð síðastliðið laug-
ardagskvöld.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar á Sauðárkróki er ekki
nákvæmlega vitað um tildrög
slyssins, en bílnum var ekið í aust-
urátt þegar hann lenti út af vegin-
um og valt. Bíllinn er ónýtur.
VEGAGERÐIN vinnur nú að því
að styrkja undirstöður Glerárbrú-
ar við Hörgárbraut, en töluverðar
skemmdir urðu á þeim i miklu
flóði í fyrrasumar. Brúin var
byggð árið 1972 og um hana er
mikil umferð á degi hveijum.
Einar Hafliðason, yfirverkfræð-
ingur Vegagerðarinnar, sagði að
FYRIRTÆKIÐ Kraftur hf. í Reykja-
vík hefur gert samkomulag um kaup
á tæplega 700 fermetra húsnæði að
Draupnisgötu 6 og hyggst opna þar
viðgerðar- og þjónustuverkstæði og
varahlutaverslun fyrir vörubíla og
þungavinnuvélar um miðjan desem-
ber. Húsnæðið hefur verið í eigu land-
flutningafyrirtækisins Dreka hf. sem
flytur í Oddeyrarskála Eimskips.
mikið efni hefði verið tekið úr
ánni og botninn þannig lækkað
um tvo metra. Lítið var í ánni í
gær og var þá hafist handa við
verkið sem klárast líklega í dag.
Grjóti verður hlaðið að undir-
stöðum brúarinnar og svo steypt
í. Kostnaður við verkið er á bilinu
ein til tvær milljónir króna.
Kraftur hf. er með umboð fyrir
MAN-vörubifreiðar, Hitachi þunga-
vinnuvélar og Pesci bílkrana. Björn
Erlingsson, framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins, segir að boðið verði upp á
þjónustu fyrir allar gerðir vörubíla
og stærri vélar. Hann sagði ekki Ijóst
hve margir starfsmenn yrðu ráðnir
til starfa á Akureyri en stefnt væri
að því að ráða aðallega heimamenn.
NOKKUR brögð hafa verið að því
að. björgunarbúnaður á bryggjum á
Akureyri hafi verið skemmdur og þá
oftast að næturlagi um helgar.
Björgunarhringir hafa verið brotnir
og/eða þeim hent í sjóinn, krókstjak-
ar hafa einnig verið brotnir og þeir
farið sömu leið og björgunarnet hafa
verið rifin upp úr kössum og þvælt
um bryggjurnar, eins og ívar Bald-
ursson hafnarvörður orðaði það.
Astandið hefur verið hvað verst á
Oddeyrarbryggjunni og segir ívar
að það hafí stundum gerst helgi eft-
ir helgi, að björgunarbúnaður hafí
verið skemmdur. Hjá höfninni er
málið litið mjög alvarlegum augum.
„Þótt ekki þurfí oft að grípa til björg-
unarbúnaðar, getur sú staða alltaf
komið upp og brotin björgunarhring-
ur eða brotinn krókstjaki gera þá
lítið gagn,“ sagði ívar.
Við Fiskihöfnina var kassi með
björgunarhring spenntur frá veggn-
um sem hann var festur á og segir
ívar að töluverðan kraft hafí þurft
til þess, enda kassinn boltáður á
vegginn með fjórum boltum. Ekki
hefur tekist að hafa hendur í hári
þeirra sem þessa iðju hafa stundað
en ívar skorar á bæjarbúa að láta
lögregluna vita, verði þeir varir við
að átt sé við björgunarbúnaðinn.
------»---------
Slys á börnum
JÓN Knutsen flytur erindi um slys
á bömum í heimahúsum á mömmu-
morgni í Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju á morgun, miðvikudaginn 30.
október en mömmumorgunninn
stendur frá kl. 10 til 12.
Leikföng og bækur eru fyrir böm-
in, en allir foreldrar eru velkomnir
með börn sín. Gengið er inn um
Kapelludyr.
Sértilboð
tn London
11. nóvember
17.570
'1
Nú bjóðum við síðustu sætin á sértilboði þann 11. nóvember, hvort sem
þú vilt aðeins flugsæti eða gista á einu vinsælasta hótelinu okkar, Butlins
Hotel, einföldu en góðu hóteli skammt frá Oxford-stræti. Öll herbergi með
sjónvarpi, síma og baðherbergi. Og að auki getur þú valið um fjölda annarra
hótelvalkosta í hjarta London.
17.570
Verð kr..
Flugsæti. Verð með flugvallarsköttum,
mánudagur til fimmtudags í nóvember.
Síðustu sætin
11. nóvember
20.700
Verð kr.
M.v. 2 í herbergi, Butlins hotel með morgunverði,
4. nóv. og 11 nóv., 3 nætur. Skattar inni£
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 562 4600
(D
dvehir
_ - .5
; — sgjgfl^K ^ S»~^fͧ; ðreklr
Morgunblaðiö/Kristján
DREKI hf. flytur starfsemi sína í Oddeyrarskála innan skamms.
Kraftur hf. kaupir húsnæði á Akureyri
Opnar verslun
og verkstæði
HEIMILISIÐN A Ð A R SK OLINN ■ LAUFÁSVEGI2, REYKJAVÍK, SÍMI 551-7800 FAX 551 5532
Upplýsingar og skráning á skrifstofu skólans mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10.00 til 15.00
SPJALDVEFNAÐUR JURTALITUN
ÚTSKURÐUR HELGARNÁMSKEIÐ ALMENNUR VEFNAÐUR BÚTASAUMUR
5. nóv.-3. des.
Þriðjud.
kl. 19.30-22.30.
Kennari:
Ólöf Einarsdóttir.
31. okt,—22. nóv.
Fimmtud. og föstud.
kl. 19.30-22.30.
Kennari:
Guðrún Kolbeins.
5. nóv.-3. des.
Þriðjud.
kl. 19.30-22.30.
Kennari:
tengt jóium.
Unnlð úr hálmi.
Sunnud. 24. nóv.
kl. 9.00-18.00.
Bjarni Þór Kristj. Kennari:
Guðrún Hadda.
f. byrjendur og
lengra komna.
Miðvikudaga og mánud.
kl. 19.30-22.30.
30. okt.-9. des.
Kennari:
Herborg Sigtryggsdóttir.
HELGARNÁMSKEIÐ
tengt jólum.
4. nóv.-2. des.
Mánudaga KERTAGERÐ.
kl. 19.30-22.30. Laugard. 23. nóv.
Kennari: kl. 10.00-18.00.
Bára Guðmundsdóttir. Kennari:
Guðrún Hadda.
ilj
lIj
FYRIRLESTUR f
NORRÆNA HÚSINU
laugardaginn
23. nóvember kl. 14.00.
Gréta Sörensen tjallar um
vélprjón, tækni og mögu-
leika, útfærslu, munstur,
form og samsetningu.
MÁLÞING 2. NÓVEMBER
KL. 13.00-18.00 I
NORRÆNA HÚSINU UM
HANDVERK OG LIST-
HANDVERK, MENNTUN
OG ATVINNU.
SKRÁNING í S. 551-7800
OG 551 7595.
JUi ■ mAm ■ mJLm ■ mJmrn