Morgunblaðið - 29.10.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1996 11
Björgunarleiðang-
ur varnarliðsins
Breskar
þyrlur
skorti
flugþol
BRESKA strandgæslan bar
upphaflega ábyrgð á björgun
alvarlega veiks sjómanns um
borð í japönsku túnfiskveiði-
skipi sem var á veiðum á
bresku björgunarsvæði um
390 mílur suður af landinu í
síðustu viku.
Björgunarþyrlur þeirra
hafa ekki nægilegt flugdrægi
né búnað til að taka elds-
neyti á flugi og því var leitað
til varnarliðsins sem kom
manninum á sjúkrahús í
Reykjavík á fimmtudag,
sagði Helga Hallvarðssonar
skipherra hjá Landhelgis-
gæslunni í samtali við Morg-
unblaðið
Landhelgisgæslunni barst
beiðni um aðstoð frá strand-
gæslunni í Kinloss á norð-
austurströnd Skotlands á
fímmtudag en þar sem þyrla
Landhelgisgæslunnar TF LÍF
hefur heldur ekki nægilegt
flugdrægi en skipið var statt
um 420 mílur suður af ís-
landi var leitað aðstoðar varn-
arliðsins á Keflavíkurflug-
velli. „Japanska skipið hefði
því þurft að sigla mun nær
landi ef varnarliðið hefði ekki
komið 'til bjargar, “ sagði
Helgi.
Björgunaraðgerðir tókust
giftusamlega en notast var
við tvær Sikorvsky HH 60G
Pave Hawk þyrlur og HC-130
Hercules flugvél sem í gegn-
um slöngur úr hylkjum yst á
vængjum dælir eldsneyti í
þyrlurnar.
Japanski sjómaðurinn var
útskrifaður af Landspítalnum
s.l. laugardag og var líðan
hans tiltölulega góð að sögn
deildarhjúkrunarfræðings
lyfjadeildar.
Ókaf
vettvangi
EKIÐ var á ljósastaur við
Njálsgötu á laugardag og sið-
an á brott af vettvangi. Mikl-
ar skemmdir hlutust af.
Bifreiðin fannst skömmu
síðar og var ökumaðurinn á
bak og burt. Samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglu leikur
grunur á að ökumaðurinn
hafi verið undir áhrifum
áfengis.
GUÐMUNDUR Árni Stefánsson,
varaformaður Alþýðuflokksins,
segist munu gefa yfírlýsingu um
hvort hann býður sig fram til for-
manns í dag eða á morgun. Guð-
mundur Árni kveðst hafa verið önn-
um kafinn við að kanna hug flokks-
manna að undanförnu en í gær-
kvöldi átti að halda fund í Alþýðu-
flokksfélagi Hafnarfjarðar vegna
kjörs fulltrúa á flokksþingið í næsta
mánuði. „Þetta er allt að taka á sig
mynd,“ sagði hann.
Um helgina fór fram kjör fulltrúa
Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur á
flokksþing og voru 47 fulltrúar
kjörnir. Skv. upplýsingum sem
fengust á skrifstofu Alþýðuflokks-
ins mun nýstofnað félag alþýðu-
flokksmanna í Hafnarfirði sækja
um aðild að Alþýðuflokknum og
FRÉTTIR
Stjórn Internet á íslandi deilir á samgönguráðherra vegna ummæla hans
Telja ráðherra gera
fyrirtækið tortryggilegt
Stjóm Intemet á íslandi, INTIS, deilir á
samgönguráðherra vegna ummæla hans um
------------------------------------------
fyrirtækið. Arni Matthíasson tók tali stjóm-
armenn INTIS sem segja að ráðherra sé að
gera fyrirtækið tortryggilegt að ófyrirsynju.
INTERNET á íslandi, INTIS, og
forveri þess, SURIS, hafa rejkið
ISnet, alnetssamband íslands við
umheiminn frá upphafi, eða um tíou
ára skeið. ISnet tengist NORDU-
net, norræna háskóla- og rann-
sóknanetinu, og EUnet, stærsta
fyrirtækjaneti Evrópu. INTIS er
sdameign um 50 aðila, opinberra
og einka.
Stjórn INTIS, hefur gert athuga-
semdir við ummæli Halldórs Blön-
dals samgönguráðherra í fjölmiðl-
um undanfarnar vikur og telur að
ráðherra sé að gera fyrirtækið tor-
tryggilegt. Stjómarmenn, þeir Mar-
íus Olafsson og Helgi Jónsson, segja
að ummæli ráðherra gefi til kynna
að INTIS sé handbendi erlends fyr-
irtækis en það sé fjarri sanni.
Framkvæmdastjórn INTIS telur
að ráðherra sé að gera íslenskt
fyrirtæki tortryggilegt með því að
segja það handbendi erlends fyrir-
tækis og alvarlegast að ráðherra
sé að gera annan samkeppnisaðila
af tveimur tortryggilegan með
hreinum rangfærslum, en INTIS
og Samkeppnissvið Pósts og síma
keppa um sölu á alnetsaðgangi.
Talsmenn INTIS; Helgi Jónsson
framkvæmdastjóri fyrirtækisins og
Maríus Ólafsson netstjóri, bentu
meðal annars skrif Halldórs Blön-
dals í Morgunblaðið 27. september
síðastliðinn þar sem segir íslend-
ingar hafi aðeins átt völ á einni
gátt til útlanda sem byggi á þjón-
ustu sænska símafyrirtækisins Tel-
ia. „Síðan segir Halldór að slík ein-
okunaraðstaða sé óþolandi og þess
vegna sé ekki seinna vænna að
Póstur og sími bjóði upp á sömu
þjónustu. Þarna hefur ráðherra því
miður fengið rangar upplýsingar
sem gera starfsemi okkar tor-
tryggilega og gefa í skyn að við
séum leppar erlends fyrirtækis."
INTIS segir samgönguráðherra
höggva í sama knérunn þegar hann
lýsti því yfir á ráðstefnu Pósts og
síma um fjarskiptaþróun 7. október
sl. að það nái engri átt „að eina
gáttin út úr landinu byggi á þjón-
ustu erlends samkeppnisaðila
Pósts og síma, eða sænska síma-
fyrirtækisins Telia“. „Að slá slíku
fram er eins og að segja að þjón-
usta Flugleiða byggist á þjónustu
erlends fyrirtækis af því að fyrir-
tækið kaupir flugvélar af Boeing-
verksmiðjunum.“
NOTANDI:
1. Leigir símalínu af P&S(e)
Svipuð þjónusta
INTIS-menn segja að þjónusta
INTIS og Samkeppnissviðs Pósts
og síma sé að mörgu leyti svipuð
fram að því að tenging er komin á
við endursöluaðila ytra. Almennt
er málum svo háttað að notandi
leigir símalinu af Einkaleyfissviði
Pósts og síma, á sinn síma. Hann
kaupir alnetsþjónustu hjá endur-
sala, en tugir fyrirtækja veita slíka
þjónustu. Endursalinn leigir síma-
línu af Einkaleyfíssviði Pósts og
síma og kaupir alnetsþjónustu hjá
INTIS. INTIS leigir símalínu hjá
einkaleyfíssviði Pósts og síma og
Telia og semur síðan við NORDU-
net a/s um alnetsþjónustu. Að sögn
INTIS-manna er einfaldlega aldrei
hægt að kaupa línu til útlanda nema
frá tveimur aðilum. Einkaleyfíssvið
Pósts og sfma selur INTIS aðgang
hálfa leið til Svíþjóðar og Telia sel-
ur aðgang að því sem eftir er. í
Svíþjóð tengist INTIS við NORDU-
net, sem leigir símalínur til annarra
landa og semur um alnetsaðgang á
hveijum stað, „Það skiptir í raun
engu máli hver á legginn þaðan sem
þjónustu Pósts og síma sleppir,"
segir Helgi, „og Telia hefur ekki
hugmynd um hvaða umferð fer um
línuna sem það leigir okkur, veit
ekki að um hana fer alnetsumferð,
það er bara verið að selja okkur
samband.“
Þeir segja að álíka sé því farið
með Samkeppnissvið Pósts og síma.
Notandi leigi símalínu af Einkaleyf-
issviði Pósts og síma og kaupi al-
netsþjónustu hjá endursala sem
gæti eins verið Samkeppnissvið
Pósts og síma. Endursalinn leigi
símalínu af Einkaleyfissviði Pósts
og síma og kaupir alnetsþjónustu
hjá Samkeppnissviði Pósts og síma.
Samkeppnissviðið leigi símalínu hjá
einkaleyfísþjónustu Pósts og síma
hálfa leið til Bandaríkjanna, og hjá
einhverjum bandarískum aðila það
sem eftir er og semur síðan við
bandaríska fyrirtækið UUnet Inc.
um alnetsþjónustu. „Það má því
eins segja að þessi starfsemi Sam-
keppnissviðs Pósts og síma sé á
vegum erlends aðila eins og ráð-
herra hefur sagt um okkar starf-
semi.“
NORDUnet og UUnet ekki
sambærilegir hlutir
INTIS er hluthafi í NORDUnet
og á mann í stjórn fyrirtækisins,
sem INTISmenn telja fyrirtækinu
til hagsbóta. „NORDUnet og UU-
net eru ekki sambærilegir hlutir.
Viðskiptaleg tengsl Pósts og síma
og UUnet eru þau sömu og tengsl
til að mynda Miðheima og INTIS;
UUnet er bara söluaðili og Póstur
og sími eins og hver annar við-
skiptavinur. NORDUnet var stofn-
að í framhaldi af samvinnu á sviði
netmála á Norðurlöndum og er tal-
ið eitt af bestu dæmum um hve
norrænt samstarf getur skilað góð-
um árangri. Landsnet á Norð-
urlöndum reka NORDUnet og INT-
IS á einn af fimm fulltrúum í stjórn
Nordunet."
INTIS segist svo virðast sem
samgönguráðherra sé að reyna að
réttlæta umdeilda ákvörðun sína
um að hleypa Pósti og síma inn á
alnetsmarkaðinn með því að gera
INTIS tortryggilegt. „Við þetta
bætist svo að á landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins lét ráðherra þau orð
falla að ýmis fyrirtæki hér á landi
hefðu ekki getað sótt þessa þjón-
ustu til íslenskra aðila og því hafi
það staðið þróun í fíarskiptum og
upplýsingaþjónustu fyrir þrifum að
Póstur og sími hafi ekki fyrr farið
að veita alnetsþjónustu. Þetta er
auðvitað ekki rétt og erfitt að svara
af nokkru viti enda nefnir ráðherra
engin dæmi máli sínu til stuðnings."
- INTIS:
1. Leigir símalínu af P&S(e)
og Telia
2. Semur um alnets-
þjónustu við
NORDUnet a/s
um alnetsaðgang á hverjum stað.
Alnetstengingar
Samkeppnissviðs
Pósts & síma
1. Leigir símalínu af P&S(e)
2. Kaupir alnetsþjónustu
hjá P&S(s)
BandaríkiN
s UUnet
P&S(s):
1. Leigir símalínu af P&S(e)
og bandariskum aðila
2. Semur um alnetsþjónustu
við UUnet Inc.
1. Leigir símalínu af P&S(e)
2. Kaupir alnetsþjóriustu
hjá P&S(s)
Alnetstengingar
INTERNETS
á íslandi
P&S(e); Einkaleyfissvið Pósts & síma
P&S(sj: Samkeppnissvið Pósts & síma
INTIS: Internet á íslandi hf.
NORDUnet a/s
UUnet Inc.
leigir símalinur til annarra landa og semur um alnetsaðgang á hvetjum stað. leigir símalinur til annarra landa og semur
Formannskjör í Alþýðuflokknum
Yfirlýsing frá Guðmundi
Arna í dag eða á morgun
kjósa fulltrúa á þingið en flokks-
þingið tekur svo afstöðu til aðildar-
umsóknarinnar við upphaf flokks-
þingsins.
Kosningu flokksþings-
fulltrúa að ljúka
Kosning fulltrúa á flokksþingið
í flokksfélögum er nú að verða lok-
ið og eiga niðurstöður úr öllum fé-
lögum að vera-ljósar fyrir 1. nóvem-
ber. Skv. lögum Alþýðuflokksins
miðast tala fulltrúa við fíölda full-
gildra félagsmanna og er kjörinn
einn fulltrúi fyrir hveija 20 félags-
menn. Auk þess eiga alþingismenn
og sveitarstjómarmenn Alþýðu-
flokksins rétt til setu á flokksþingi.
Reiknað er með að minnsta kosti
350 fulltrúar muni sitja flokksþing-
ið sem haldið verður í Perlunni dag-
ana 8.-10. nóvember, skv. upplýs-
ingum sem fengust á skrifstofu
Alþýðuflokksins.
Sighvatur Björgvinsson alþing-
ismaður hefur einn lýst yfir fram-
boði sínu til formennsku. „Eg er
búinn að gefa kost á mér og það
er flokksþingsins að skera úr. Ég
sagði á sínum tíma, þegar ég gaf
kost á mér, að ég væri ekki allra
frekar en aðrir stjórnmálamenn og
það verður bara að láta á þetta
reyna,“ sagði hann. Sighvatur sagði
ennfremur í framhaldi af stofnun
nýs fétags alþýðuflokksmanna í
Hafnarfirði. „Það verður fíallað um
aðildarumsókn þess að Alþýðu-
flokknum á flokksþingi af þeim
fulltrúum sem þar mæta.“
Rannveig Guðmundsdóttir, sem
einnig hefur verið orðuð við fram-
boð, er stödd í New York, en hún
sagði í samtali við Morgunblaðið á
föstudag að ekki væri að vænta
yfirlýsingar um hvað hún hygðist
gera fyrr en eftir að hún kemur
heim 2. nóvember.