Morgunblaðið - 29.10.1996, Blaðsíða 56
RpC
lÁGMARKSOfNÍMl
ENONHMETN
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1
ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Seðlabankinn
3,5-4%
launahækk-
un tryggir
stöðugt
raungengi
SVIPAÐAR launahækkanir hér á
landi og í viðskiptalöndunum eða á
bilinu 3,5-4% munu gera það að
verkum að raungengi verður stöðugt
og verðbólga hér svipuð og í við-
skiptalöndunum.
Þetta kemur meðal annars fram
í nýrri haustskýrslu Seðlabanka ís-
lands. Þar er lögð áhersla á nauðsyn
—þess að jafnvægi náist í ríkisfjármál-
um, en það geti skapað forsendur
fyrir slökun í peningamálum á sama
tíma og þjóðhagslegur sparnaður
aukist og viðskiptahaili minnki.
Jafnframt er bent á að niðurstaða
þeirra viðræðna um kjarasamninga
sem eru framundan í vetur geti ráð-
ið miklu um framhald þess stöðug-
leika sem náðst hefur í verðlagsmál-
um hér á landi og þar með hvort
hægt verður að lækka vexti á nýjan
leik.
^^Þá segir að mikilvægt sé að ekki
hvikað frá áformum um lítils
háttar afgang á fjárlögum næsta
árs eða sem nemur um einum millj-
arði króna. „Mjög er mikilvægt að
frumvarpið verði afgreitt með a.m.k.
þeim afgangi og að framkvæmd fjár-
laga tryggi þann afgang í raun. Þá
er og mikilvægt að kjarasamningar
verði ekki til þess að kynda undir
verðbólgu," segir í skýrslunni.
■ Nauðsynlegt/14
_ „ Morgunblaðið/Guðmundur Sv. Hermannsson
URSLITASÆTIÐ tryggt. íslenska bridslandsliðið fagnar sigri í síðustu umferð riðlakeppninnar á Ólympíumótinu í brids.
I úrslit í fyrsta sinn
Ródos. Morgunblaðið.
ISLAND komst í gær í úrslita-
keppni Ólympíumótsins í brids, í
fyrsta skipti í 36 ára sögu þessa
móts. Átta þjóðir keppa til úr-
slita en 72 þjóðir hófu keppni í
mótinu.
„ Við erum kátir enda búnir að
ná nýjum áfanga í íslenskri brids-
sögu, að komast íj>essi langþráðu
átta-liða úrslit á Olympíumóti,"
sagði Björn Eysteinsson, fyrirliði
íslenska liðsins, I gær.
Islenska liðið beið stærsta
ósigur sinn í riðlakeppninni í gær
gegn Rússum, 6-24, og mátti því
ekki við að tapa síðasta leiknum
gegn Búlgaríu. Þótt taugaspenn-
an væri mikil sýndu íslensku spil-
ararnir styrk sinn og unnu síð-
asta leikinn 19-11. Rússar kom-
ust hins vegar í úrslitakeppnina
á síðustu stundu, á kostnað Isra-
elsmanna sem höfðu lengst af
verið í efstu sætum riðilsins.
Mæta Indónesum í dag
íslendingar enduðu í þriðja
sæti í sínum riðli og mæta Indó-
nesíu í 64-spila úrslitaleik í dag
þar sem spilað er um sæti í und-
anúrslitum. „Mér líst ekkert illa
á þessa andstæðinga. Þeir spila
sagnkerfi sem við þekkjum vel
og kunnum að spila gegn,“ sagði
Björn.
Úrslitakeppnin hefst klukkan
níu að íslenskum tíma og lýkur
um klukkan 22.30 í kvöld. Þau
fjögur lið sem standa uppi sem
sigurvegarar hefja undanúrslita-
leiki á miðvikudagsmorgun en
hin eru úr leik.
■ Langþráðum áfanga/6
VIS kaupir rekstur
Skandia á Islandi
Býður nýtt sparnaðarform
í samvinnu við Skandia
FULLTRÚI Skandia, Per Bjorgás, og Axel Gíslason forstjóri
VÍS við lok samningalotunnar í fyrrinótt.
VÁTRYGGINGAFÉLAG íslands hf.
og Líftryggingafélag íslands hf.
keyptu í gær þtjú félög sænska
~=jsyggingafélagsins Skandia hér á
landi. Tryggingastarfsemi Skandia
verður sameinuð VÍS. Með kaupun-
um og samstarfi við sænska félagið
mun VÍS fara lengra inn á fjár-
magnsmarkaðinn en íslensku trygg-
ingafélögin hafa áður gert og bjóða
ýmis ný sparnaðarform.
VÍS og Skandia ræddu fyrst um
kaupin fyrir rúmu ári, að frumkvæði
VÍS, en óslitnar samningaumleitanir
hafa staðið yfir frá því í lok síðasta
árs. Síðasta samningalotan hófst á
fimmtudagsmorgun og lauk með
undirritun samninga í fyrrinótt,-
ffaupverð fæst ekki gefið upp.
Fjárfestingarfélagið óbreytt
VÍS mun yfirtaka rekstur félag-
anna þriggja, Vátryggingafélagsins
Skandia hf., Líftryggingafélagsins
Skandia hf. og Fjárfestingarfélags-
ins Skandia hf., um næstu mánað-
ajnót. Fjárfestingarfélagið verður
rekið áfram í óbreyttu formi en
tryggingastarfsemin sameinuð sam-
svarandi starfsemi hjá VÍS. For-
svarsmenn félagsins segja að veru-
leg hagræðing náist með sameiningu
trygginganna. Þeir segjast ekkert
geta sagt um breytingar á iðgjöldum
þeim sem Skandia hefur boðið, eftir
sameiningu trygginganna, þau ráð-
ist af endurmati á áhættu.
Með því að taka yfir trygginga-
stofna Skandia verður hlutdeild VÍS
á tryggingamarkaðnum 43-45%, ef
félagið heldur öllum viðskiptavinum
Skandia. Forsvarsmenn félagsins
benda hins vegar á breytingar á
markaðnum vegna nýrrar sam-
kepjpni.
Olafur B. Thors, forstjóri Sjóvár-
Almennra trygginga, segir að sala
Skandia á rekstri sínum sýni að
ekki gangi til lengdar að bjóða
óraunhæf iðgjöld til að komast inn
á markaðinn og geti fleiri dregið
lærdóm af því.
Fyrst á sparnaðarmarkað
Forsvarsmenn VÍS binda miklar
vonir við þá nýju þjónustu sem félag-
ið býður með kaupum á verðbréfa-
fyrirtæki Skandia og samstarfi við
sænska félagið um þróun og sölu á
nýju lífeyrissparnaðarformi, svipuðu
og mjög hefur verið að aukast í
Evrópu á undanförnum árum. Félag-
ið er fyrst íslensku tryggingafélag-
anna ti! að fara inn á sparnaðar-
markaðinn en umboðsmenn erlendra
tryggingafélaga hafa boðið hlið-
stæða þjónustu. „Okkar trú er að
þessa sé þörf, ekki síst hafi unga
fólkið þörf á að leggja fyrir til seinni
tíma. Þó lífeyrissjóðakerfið sé gott
dugar það fólki ekki eitt og sér,“
segir Axel Gíslason forstjóri VIS.
■ FyrsttryggingaféIaganna/4
Framkvæmdastjóri
hjá Alusuisse-Lonza
Lítil álver
óhagkvæm
Ztirich. Morgunblaðið.
KURT Wolfensberger, fram-
kvæmdastjóri álsviðs Alusuisse-
Lonza, segist ekki vera sannfærður
um að fyrirhugað álver við Grund-
artanga verði reist fyrr en fyrsta
skóflustungan hefur verið tekin og
framkvæmdir hafnar.
„Nú til dags borgar sig ekki að
reisa álver sem framleiðir minna
en 160.000 til 200.000 tonn. Ég á
bágt með að trúa að það sé hag-
kvæmt að taka nýtt álver í notkun
á Grundartanga sem framleiðir
aðeins um 60.000 tonn. En Peter-
son er klókur fjármálamaður, ef
einhver er fær um að reka slíkt
álver með ágóða þá er það líklega
hann.“
Alusuisse athugaði möguleikann
á að flytja gamalt álver til íslands
og endurreisa það við Straumsvík
þegar stækkunin á álverinu var
þar til athugunar. Það kom í ljós
að það borgaði sig frekar að byggja
nýtt en að flytja inn gamalt ver.
„Við vonumst til að hefja fram-
leiðslu seinni partinn á næsta ári.“
Wolfensberger sér ekkert því til
fyrirstöðu að ísal eigi samvinnu
við önnur álver á íslandi þegar þau
verða byggð. Hann telur góðar lík-
ur á að fleiri álver rísi á Islandi í
framtíðinni. „Það er bara tíma-
spursmál," sagði hann.