Morgunblaðið - 09.11.1996, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C/D
257. TBL. 84. ÁRG. LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Nígerísk farþega-
vél fórst með
ölhmi um borð
Lagos. Reuter.
EMBÆTTISMAÐUR nígeríska flug-
málaráðuneytisins sagði í gær að
nígerísk farþegaflugvél af gerðinni
Boeing-727, sem hafði verið saknað
frá því á fimmtudagskvöid, hefði
hrapað og hefðu allir um borð far-
ist. 141 maður var í vélinni.
Flugvélin var í eigu Flugþróunar-
félagsins, einkaflugfélags í Nígeríu.
Hún missti samband við flugturninn
í Lagos klukkan fimm síðdegis á
fímmtudag (16 að íslenskum tíma),
um fimm mínútum fyrir áætlaðan
lendingartíma.
Ekki greint frá slysstað
Embættismaðurinn sagði að
greint yrði frá því hvar flugvélin
hefði hrapað og öðrum atriðum máls-
ins þegar ráðuneytið hefði lagt mat
á alla þætti þess.
Vélin var á leið frá olíuborginni
Port Harcourt til Lagos með 132
farþega og níu manna áhöfn.
Samkvæmt heimildarmönnum á
flugvellinum voru nokkrir útlending-
ar um borð í vélinni og gætu þeir
hafa verið stjórnendur olíufyrirtækja.
Dagblöð í Nígeríu höfðu eftir flug-
manni, sem flaug skammt þar frá,
er vélin sást síðast á ratsjá, að hann
hefði séð mikla eldsúlu.
Slæmt ástand efnahagsmála hefur
haft áhrif samgöngur í Nígeríu og á
undanförnum árum hafa flugslys
verið tíð í landinu.
Ein af vélum Flugþróunarfélags-
ins hrapaði i Líberíu í fyrra.
Fjárlagavandi Þjóðverja
Waigel hyggst
halda áætlun
Bonn. Reuter.
ÞÝSKA ríkisstjórnin lýsti yfir því í
gær að takast mundi að halda fjár-
lagahallanum innan þeirra marka,
sem eru skilyrði fyrir aðild að efna-
hags- og myntbandalagi Evrópu,
þrátt fyrir nýjar spár um að skatt-
tekjur yrðu um 10 milljörðum
marka (um 435 milljörðum ís-
lenskra króna) lægri en áður hafði
verið áætlað.
Theo Waigel fjármálaráðherra
hét því að fjárlagahallinn mundi
ekki fara yfir 56,6 milljarða marka
(um 2.462 milljarða króna), en það
mark setti stjórnin sér. Skoraði
hann á sambandslönd Þýskalands
að leggja sitt af mörkum til að tak-
ast mætti að halda opinberri lán-
töku undir mörkum Maastricht-
sáttmálans.
Waigel sagði að aukinn sparnað-
ur, að andvirði sjö milljarða marka
(304,5 milljarða króna), væri þegar
í drögum að fjárlögum næsta árs,
en skera þyrfti niður um þijá millj-
arða marka (130 milljarða króna)
til viðbótar.
Helmut Kohl kanslari stjórnaði
ríkisstjómarfundi í gærmorgun og
náðist þar samkomulag um niður-
skurðinn í megindráttum. Búist er
við lokaákvörðun á morgun, eftir
að allir þrír stjórnarflokkarnir hafa
farið yfir tillögurnar.
Reuter
40.000 ára skögultönn
FORNLEIF AFRÆÐIN GUR
rannsakar 3,5 metra langa og
150 kílóa þunga skögultönn úr
forsögulegum mammút er
fannst skammt frá borginni
Kikinda í Serbíu í september.
Leifarnar af dýrinu eru stein-
gerðar og er beinagrindin fimm
metrar að hæð. Hún fannst á
um 20 metra dýpi og er talin
vera að minnsta kosti 40.000 ára
gömul.
Reuter
Fórnarlömb fellibyls
NOKKRIR íbúar borgarinnar
Kakinada í indverska sambands-
ríkinu Andra Pradesh syrgja lát-
inn ættingja sem var eitt af fórn-
arlömbum fellibyls er heijaði á
suðurströnd Indlands á fimmtu-
dagskvöld. Vitað var að minnst
510 manns týndu lífi en óttast
er að allt að þúsund manns hafi
farist. Mörg þúsund manns slös-
uðust og um 400.000 hús eru
skemmd eða ónýt. Flóðbylgja
braust sums staðar fimm km inn
í landið. Er talið að tjón í Austur-
Godavari héraði geti numið allt
að 36 milljörðum króna.
Clinton
velur nýj-
an skrif-
stofustjóra
Washington. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti til-
kynnti í gær að Erskine Bowles, fjár-
málasérfræðingur og fyrrverandi
embættismaður forsetans, tæki við
starfi skrifstofustjóra af Leon Pan-
etta.
Sagt er að skrifstofustjórinn gangi
næstur forseta að völdum í Banda-
ríkjunum. Hann stjórnar því hveijir
fá að hitta forsetann að máli og hef-
ur mikil áhrif á hvaða mál komast
inn á borð til hans.
Bowles var aðstoðarskrifstofu-
stjóri Clintons til ársins 1995. Hann
hefur gegnt ýmsum erindum fyrir
Clinton síðan og einnig leikið golf
með forsetanum.
Clinton greindi frá þessu á blaða-
mannafundi í gær. Á fundinum sagði
hann að hallalaus fjárlög yrðu fremst
í forgangsröðinni á næsta kjörtíma-
bili. Bætti Clinton því við að hann
hygðist bjóða leiðtogum beggja
flokka á þingi til viðræðna um ijár-
lögin í næstu viku.
Forsetinn kvaðst telja að það
mundi greiða fyrir allsheijarfriði í
Miðausturlöndum ef samkomulag
tækist um að ísraelar hyrfu á brott
með herlið sitt frá borginni Hebron
á Vesturbakkanum.
Hann sagði einnig að svo gæti
farið að Bandaríkjamenn sendu sveit-
ir til að taka þátt í framhaldi friðar-
gæslu í Bosníu, en hann mundi ekki
taka ákvörðun fyrr en tillögur bær-
ust frá Atlantshafsbandalaginu.
Robert Reich, vinnumálaráðherra
í stjórn Clintons, sagði í gær að hann
hygðist láta af störfum. Hann kvaðst
vilja hafa meiri tíma með flölskyldu
sinni.
Þrýst á um að senda
gæslulið til Zaire
• •
Oryggisráð Sameinuðu þjóðanna ræðir ályktun Frakka
Bujuinbura, Genf, Goma, París. Reuter.
BOUTROS Boutros-Ghali, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
ítrekaði í gær mikilvægi þess að
komið yrði í veg fyrir hrikalegar
afleiðingar hungursneyðar vegna
átakanna í austurhluta Zaire og
búist var við að öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna gengi seint í gær-
kvöldi til atkvæða um tillögu, sem
sagt er að Frakkar séu meginhöf-
undar að, um að senda fjölþjóða-
gæslulið til átakasvæðisins.
Barist var umhverfis bæinn Goma
í austurhluta Zaire í gærkvöldi og
sögðu talsmenn hjálparstofnana á
Spáni að mikill fjöldi manna gæti
látið lífið vegna átakanna þar. Bern-
ard Pecoul, stjórnandi samtakanna
Læknar án landamæra, sagði í Par-
ís að rúmlega 13.600 flóttamanna í
austurhluta Zaire hefðu látið lífið
vegna matarskorts á undanförnum
vikum og taldi hann fórnarlömb
átakanna ekki með.
Boguo Makeli, upplýsingaráð-
herra Zaire, sagði í gær að flótta-
mönnum frá Rúanda og Búrúndí
yrði ekki leyft að vera í Zaire og
ekki mætti reisa nýjar flóttamanna-
búðir neins staðar í landinu. Hann
ítrekaði þá ákvörðun stjórnar Zaire
að bannað væri að dreifa mat til
flóttamanna í landinu.
Óeirðir í Goma
Enginn matur hefur borist til Goma
frá því að uppreisnarmenn náðu
borginni á sitt vald í lok síðustu viku.
I gær brutust út óeirðir í bænum
vegna matarskorts.
Talið er að um 20 þúsund flótta-
menn úr röðum Hútúa frá Burundi
hafi snúið aftur til heimalands síns
frá búðum í austurhluta Zaire. Þeir
hafa hvorki hreint vatn né mat, að
sögn starfsmanna alþjóðamatar-
áætlunar Sameinuðu þjóðanna.
Um 140 þúsund flóttamenn úr
röðum Hútúa frá Búrúndí flúðu
flóttamannabúðir í austurhluta Zaire
vegna átaka fyrir þremur vikum og
ekki er vitað um afdrif 70% þeirra.
Seint í gærkvöldi var talið að ör-
yggisráð Sameinuðu þjóðanna
mundi þá og þegar samþykkja álykt-
un um að mynda alþjóðlegar gæslu-
sveitir, sem ekki yrðu undir stjórn
SÞ, til að koma í veg fyrir að „svelti
endi með þjóðarmorði" eins og Bout-
ros-Ghali, orðaði það.
Mótfallnir
þátttöku Frakka
Pasteur Bizimungu, forseti Rú-
anda, sagði í gær að stjórn landsins
væri mótfallin þátttöku Frakka í
gæsluliði í austurhluta Zaire til að
tryggja öryggi milljóna flóttamanna
frá Búrúndí og Rúanda, sem komast
hvergi vegna átakanna á svæðinu.
Hann sagði að liðið yrði að vera hlut-
laust.
Mikilvægt er að Rúanda styðji
gæslusveitir vegna þess að birgða-
flutningaleiðir til Zaire liggja um
landið og uppreisnarmennirnir, sem
meðal annars hafa lagt undir sig
Goma, eru bandamenn Rúanda.