Morgunblaðið - 09.11.1996, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1996 7
FRETTIR
íslandsmynd úr eigu dönsku kon-
ungsfjölskyldunnar á uppboð
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
MÁLVERK með Snæfellsjökul
og fjallasýn í bakgrunn og
danska konungsskipið í forgrunn
í innsiglingunni, sem verið hefur
í eigu dönsku konungsfjölskyld-
unnar, verður boðið upp í danska
uppboðshúsinu Boye’s Auktíoner
20. nóvember. Matsverðið er 80
þúsund danskar krónur eða um
900 þúsund íslenskar. Málverkið
var málað í tílefni komu Friðriks
8. tíl íslands 1907 og var strax
keypt af hinni sænsku Lovísu
drottningu og eiginkonu Frið-
riks. Myndin hékk síðast í Sorg-
enfri-höll.
Málverkið er eftir Vilhelm
Arnesen, 95x143 cm að stærð
og fellur inn í danska hefð sjó-
og skipamynda, sem var vinsæl
grein fram á þessa öld. Myndin
sýnir glæsilegt eimskip, sem
konungur kom með, en á innsigl-
ingunni eru auk þess millilanda-
skipin Geiser og Hekla, gæslu-
skipið Islands Falk og gufuskip-
ið Atlanta, sem flutti þing-
mannanefndina er var í föru-
neyti kóngsins. í kring er svo
fjöldinn allur af smábátum, sem
flagga stórum dönskum fánum,
utan hvað að nokkrir hvítbláir
fánar með fálka sjást. A einum
bát á áberandi stað er fálkafán-
anum haldið hátt á lofti af einum
bátsveija.
R-listi um
Reykjavíkurflugvöll
Borgin
verði mið-
stöð innan-
landsflugs
ÁRNI ÞÓR Sigurðsson, borgarfull-
trúi R-lista, sagði á fundi borgar-
stjórnar á fimmtudaginn að engin
ástæða væri til að draga í efa af-
stöðu meirihluta R-listans í borgar-
stjórn um að Reykjavíkurflugvöllur
verði áfram miðstöð innanlands-
flugs. Sagði hann að reynt hefði
verið að gera málflutning R-listans
tortryggilegan í fjölmiðlum með því
að orð voru slitin úr samhengi og
skoðanir affluttar.
Árni Þór sagði löngu tímabært
að samgönguráðherra afráði að
hefja endurbætur á flugvellinum.
Tillögur nefndar, sem kannað hefði
rækilega sambýli flugs og byggðar,
hefðu legið á borði ráðherrans í
eitt og hálft kjörtímabil.
Mikilvægasta skrefið til að
tryggja öryggi á Reykjavíkurflug-
velli sagði hann vera að flytja allt
æfinga- og feijuflug frá Reykjavík-
urflugvelli og minnti á að aðeins
fimmtungur flugumferðar um völl-
inn væri eiginlegt innanlandsflug.
----------♦ ♦ ♦----
Dregur úr
frosti
STILLT en kalt veður með miklu
frosti í innsveitum Norðanlands
hefur ríkt á landinu að undanförnu.
Samkvæmt upplýsingum frá Veður-
stofunni er gert ráð fyrir hægri
vestlægri átt án úrkomu víðast hvar
á landinu í dag og síðdegis mun
gera þíðu sunnanlar.ds og vestan.
Á sunnudag er búist við slyddu
eða snjókomu sunnanlands og vest-
an. Frostlaust verður um tíma um
mestallt land. Á mánudag er gert
ráð fyrir nokkuð hvassri norðanátt
og frosti og á þriðjudag er útlit
fyrir snjókomu og eljagangi í flest-
um landshlutum. Á miðvikudag er
búist við norðanátt og éljum norð-
anlands.
Aftan á málverkið er skrifað
að það sýni skipakomuna klukk-
an átta að morgni 30. júlí 1907
er konungur sigldi að landi. Lík-
legt er talið að myndin hafi ver-
ið máluð samkvæmt pöntun kon-
ungs, en a.m.k. keypti eiginkona
hans Lovísa drottning málverk-
ið handa manni sínum næstum
áður en litirnir náðu að þorna.
Myndin var á sínum tíma á vor-
sýningunni á Charlottenborg
1908, en hékk annars í Amalien-
borgar-höll. Eitt af átta börnum
Friðriks og Lovísu var Kristján
10., afi Margrétar
Þórhildar drottning-
ar, sem erfði síðan
málverkið. Þegar
hann var settur í
stofufangelsi í Sorg-
enfri-höll af Þjóðveij-
um 1943 tók hann
myndina með sér
þangað og þar hefur
hún hangið síðan.
Það eru ættingjar
Margrétar Þórhildar,
sem selja myndina
núna.
JM
_ ' ' >.
? ðáafe',..S'P
■
5 '• < • ' < A' • -V;
Öflugur skutbíll
fyrir íslenskan vetur
Stór, vel búinn og öflugur Elantra Wagon Nordic Style: Heildarlengd 4,45 m, hjólahaf 2,55 m.
Wmon
NORDIC STYLE
Stór og kraftmikil vél:
1.6 lítra rúmmál
16 ventlar
Fjölinnsprautun
116 hestöfI
rstg
Upphækkun
Heilsársdekk
Álfelgur
Vindskeið
• Hæð undir lægsta punkt 20 sm.
•Flutningsrými: Breidd 136,4 sm,
hámarkslengd 152,3 sm,
hámarksrúmmál 1785 lítrar.
Rafknúnar rúður
Rafknúnir hliðarspeglar
J Samlæsing í hurðum
Vökva- og veltistýri
Tveir styrktarbitar í hurðum
Útvarp/kassettutæki
með 4 hátölurum
Litað gler
Statíf fyrir drykkjarmál
Hólf milli framsæta
Stafræn klukka
Snúningshraðamælir
Barnalæsingar
CC
z>
Q
<
o
D3
<
Q
í
tn
C£L
LU
jí
UJ
£L
1.495
Beinskiptur, verð
TTiTn
kr. á götuna
o.m.fl.
HYURDni
til framtídar
IlIíMííir
ÁRMÚLA 13, SÍMI: 568 1200
BEINN SÍMI: 553 1236