Morgunblaðið - 17.12.1996, Side 12

Morgunblaðið - 17.12.1996, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Jólatréð frá Hamborg KVEIKT var á jólatrénu frá Hamborg á Miðbakkanum við Reykjavíkurhöfn föstudaginn 13. desember sl. Starfandi sendiherra Þýskalands, dr. Alexander Olbrich, afhenti tréð Hannesi Valdimarssyni, hafnarsljóra, að viðstöddum framkvæmdastjóra Þýsk- íslenska verslunarráðsins, Kristínu S. Hjálmtýsdóttur og Páli Kr. Pálssyni, formanni ÞIV. Þetta er í 31. skiptið sem jólatré er sent frá Hamborg. Jólatréð var sent 2. desember með Viktartindi, sem er í eigu Eimskipafélagsins, frá Ham- borg til Reykjavíkur og kom til landsins 11. desember, skip- stjórinn var Þjóðverjinn Carst- en Jebsen. Félagssamtökin í Wikingerrunde í Hamborg og Hamburger Gesellschaft e. V. sem hafa annast jólatrésgjöfina síðastliðin 30 ár bejttu sér fyrir því að tréð færi til íslands en gefandinn er að þessu sinni sölu- og auglýsingastofa hafn- arinnar í Hamborg „Hafen Hamburg Werkaufsförderung und Webung e. V.“ - dr. Hans Ludwig Beth. Stjórnarformað- ur Wikingerrunde er Hans Her- mann Schliinz, og sendir hann bestu jólaóskir til Reykvíkinga og allra Islendinga í Hamborg. I fyrra var 30. jólatréð af- hent sem var sérstaklega til- einkað Þýsk-íslenska verslun- arráðinu sem var nýstofnað í október 1995 en hefur nú þegar þroskast töluvert og stækkað í meira en 110 félaga í báðum löndum. ÞIV er að stefna að því að halda sérstakan þýskan jólamarkað í tengslum við af- hendingu trésins á komandi árum. Fyrsta jólatréð frá Hamborg kom til Reykjavíkur með m/s Isborgu árið 1965. Eimskipafé- lag Islands hf. hefur í öll skipt- in flutt tréð endurgjaldslaust til Reykjavíkur. Sá skipstjóri hjá Eimskipafélaginu sem oft- ast hefur flutt Hamborgartréð til Reykjavíkur er Erlendur Jónsson en hann hefur flutt 18 tré á jafnmörgum árum. Arleg afhending trésins er þakklætis- vottr.r til íslenskra sjómanna fyrir matargjafir til barna í Hamborg á árunum eftir seinni heimsstyijöldina. Morgunblaðið/Þorkell Reyklausir bekkir og nemendur í grunnskólum verðlaunaðir ísleifur A. Pálsson Andlát ÍSLEIFUR A. PÁLS- SON LÁTINN er í Reykjavík ísleifur A. Pálsson verslunarmaður, 74 ára að aldri. ísleifur var skrifstofustjóri Samlags skreiðarframleiðenda á fyrstu starfsárum þess á sjötta ára- tugnum og átti þátt í að byggja upp Skreiðarsamlagið sem sölusamtök á sviði skreiðarviðskipta. Isleifur var síðar fulltrúi í sendi- ÁTTA bekkjardeildir 8. bekkjar I grunnskólum landsins og 60 níundu og tíundu bekkingar hlutu viðurkenningu Tóbaks- varnanefndar og Krabbameins- félags Reykjavíkur fyrir að segja nei við tóbaki. Yfirskrift tóbaks- varnaátaksins var Tikk, takk, tóbak, nei takk! Bekkimir fengu að launum myndskreytta há- skólaboli og einn þeirra, 8. F í Tóbak, nei takk! Hagaskóla, tók við verðlaunum sínum í gær eins og sést á mynd- inni. Einstaklingar hlutu að laun- um úr með mynd og áletruninni Morgunblaðið/Þorkell „reyklaus framtíð" á skífunni. Auk 8. bekkjar F í Hagaskóla hlutu eftirtaldar 8. bekkjar- deildir verðlaun: 8. bk Hall- ormsstaðaskóla, 8 bk Grunn- skóla Reyðarfjarðar, 8. HS Foldaskóla, 8. bk Steinsstaða- skóla og 8. RR Njarðvíkurskóla. Einstaklingsverðlaun dreifðust víða um land en verðlaunin verða afhent í viðkomandi skóla. * Arekstur á gatnamótum LÖGREGLAN í Reykjavík leitar vitna að árekstri, sem varð á mótum Miklubrautar og Grens- ásvegar miðvikudaginn 11. des- ember sl. um kl. 19.30 um kvöldið. Toyotu, LU-922, var ekið norður Grensásveg og beygt til vinstri áleiðis vestur Miklubraut og Daihatsu, R-18153, var ekið suður Grensásveg á hægri ak- rein, Bílarnir skullu saman á gatnamótunum, en ökumenn- irnir eru ekki á eitt sáttir um tiidrögin. Þeir sem veitt geta upplýs- ingar eru beðnir um að hafa samband við rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík. Slagsmál í Tunglinu MAÐUR gaf sig fram við lög- reglu í miðbæ Reykjavíkur að- faranótt sunnudags eftir bar- smíðar og högg á skemmtistaðn- um Tunglinu. Hann var alblóð- ugur í framan og missti meðvit- und skömmu eftir að hann hafði látið vita af sér. Hann var flutt- ur á slysadeiid. Tildrög málsins voru að átök hófust milli tveggja manna. Þriðji maðurinn, sem komið hefur við sögu lögreglu áður, kom öðrum þeirra til að- stoðar og endaði á því að sparka í höfuð fórnarlambsins. Lög- reglu var vísað á mennina á skemmtistaðnum og voru þeir fluttir á lögreglustöð. Búðarþjófar gripnir ELLEFU manns voru staðnir að hnupli í Reykjavík um heig- ina. Fjögur þessara tilfella urðu í Kringlunni og voru þjófarnir allir á aldrinum 13-14 ára en á öðrum stöðum var um að ræða eldra fólk. Samtals hefur lög- reglu borist á fjórða tug til- kynninga um hnupl það sem af er mánuðinum. Að sögn lög- reglu er mun meira um búðar- þjófnaði fyrir jól en á öðrum árstímum en jafnframt eru kaupmenn meira vakandi og því fleiri sem nást. Jólamatnum stolið BROTIST var inn í tvær geymslur í fjölbýlishúsum um helgina. í öðru tilvikinu var öll- um jólamat og_ gosi flölskyldu einnar stolið. í hinu tilvikinu höfðu þjófarnir á brott með sér meira en tuttugu kíló af folalda- kjöti. Einnig var brotist inn í bakarí við Fálkagötu á aðfara- nótt mánudags og stolið 6-7 þúsund krónum. Hollendingur flutti inn 964 E-pillur og 58 g af kókaíni 6 ára fangelsi og 2 milljónir í sekt ráði Bandaríkjanna auk þess sem hann gegndi ýmsum verslunar- og skrifstofustörfum. Ennfremur stundaði hann ýmis almenn störf til sjós og lands. Hann starfaði um skeið við eigin atvinnurekstur á sviði skreiðarútflutnings og heildsölu. ísleifur A. Pálsson fæddist í Vest- mannaeyjum 27. febrúar 1922, sonur hjónanna Matthildar ísleifsdóttur og Páls Oddgeirssonar, kaupmanns og útgerðarmanns þar. Hann lauk prófi frá Verslunarskóla íslands 1942 og stundaði nám í verslunarfræðum við Rider College í New Jersey í Banda- ríkjunum. Hann kvæntist 1946 Ág- ústu Jóhannsdóttur dóttur hjónanna Magneu D. Þórðardóttur og Jóhanns Þ. Jósefssonar, alþm. og ráðherra. ísleifur og Ágústa eignuðust þtjá syni. Þau slitu samvistir. ísleifur A. Pálsson andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans að morgni laugardagsins 14. desember sl. Utför hans verður gerð frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 19. desember. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef- ur dæmt hollenskan mann á þrítugs- aldri, Lahouari Sadok, í 6 ára fang- elsi og til greiðslu tveggja milljóna króna í sekt vegna innflutnings á 964 E-pillum og rúmum 58 grömm- um af kókaíni. Maðurinn var handtekinn í nóv- ember, eftir að lögreglunni höfðu borist vísbendingar um að íslenskur maður ætti von á stórri sendingu fíkniefna til landsins frá Hollandi. Við leit í farangri Hollendingsins fannst. innrömmuð mynd, pökkuð í gjafapappír. Við nánari athugun kom í ljós að í rammanum voru fal- in fíkniefni, 58,1 gramm af kókaíni og 964 E-pillur. Við yfirheyrslur hjá lögreglu bar maðurinn að útlent fólk hefði keypt fyrir hann farseðilinn og hann hafi átt að fá peninga fyrir að flytja mynd- ina til landsins. Pakkann hafí hann átt að afhenda á veitingastað í Reykja- vík og myndi íslensk stúlka gefa sig fram við hann þar. Hann hefði vitað að eitthvað ólöglegt væri í pakkanum, en ekki hvað það væri. Hann hefði tekið myndina og glerið úr ramman- um, en ekki séð neitt óeðlilegt. Óttaðist hefnd Maðurinn kvaðst ekki vilja segja til fólksins sem lét hann fá pakk- ann, af ótta við hefndaraðgerðir sem beindust gegn fjölskykldu hans í Hollandi. Fyrir dómi sagði hann þó, að hann væri tilbúinn til að gefa lögregiunni í Hollandi upp þessi nöfn, ef hann fengi tryggingu fyrir því að fólkið yrði látið gjalda fyrir gerðir sínar og að fjölskyida hans yrði vernduð fyrir hefndaraðgerðum. Maðurinn bar einnig, að hann hefði verið hér á landi í viðskiptaer- indum. íslendingar þeir, sem tengd- ust manninum hér á landi og voru m.a. með honum þegar hann var handtekinn, báru af sér allar sakir í málinu. Frásögnin yfirvarp eitt 1 niðurstöðu dómarans, Péturs Guðgeirssonar, segir að maðurinn hafi viðurkennt að hann hafi grunað að eitthvað ólöglegt væri falið í myndinni. Framburður hans hafi verið óstöðugur og frásögn hans um tilganginn með ferðinni hingað, þ.e. að hann hafi verið í viðskiptaerind- um, væri harla ótrúverðug og engin trúleg gögn eða vitnisburðir styddu hana. „Álítur dómarinn að hún sé yfirvarp eitt og að ákærði hafi vitað hvað væri fólgið í myndarammanum, bæði hve mikið væri þar af fíkniefn- um, hvað þau væru hættuleg og eins að þau væru flutt inn til þess að verða seld mörgum mönnum gegn verulegu gjaldi," sagði dómarinn og taldi refsingu hæfilega 6 ára fang- elsi, auk tveggja milljóna króna sekt- ar og upptöku á fíkniefnunum. Þá var Hollendingurinn dæmdur til að greiða allan sakarkostnað, þar með talin saksóknarlaun, 50 þúsund krónur, og laun veijanda, 50 þúsund krónur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.