Morgunblaðið - 17.12.1996, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 17.12.1996, Blaðsíða 59
\ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1996 59 MORGUNBLAÐIÐ I ------------------------------------- Elín Birgitta var gædd eftir- minnilegum mannkostum og reynd- ist vinsæl í hópi skólafélaga sinna sem nú sakna hennar sárt. Fyrir hönd kennara og starfs- manna Foldaskóla votta ég fjöl- skyldu Elínar Birgittu dýpstu sam- úð. Blessun fylgi minningu hennar. Ragnar Gíslason. Elsku Elín Birgitta, nú ertu farin úr þessu lífi, það er ekki spurt um tíma né aldur. Við biðjum Guðs blessunar sálu þinni og geymum vináttu okkar í hjartanu. Við send- um fjölskyldum og vinum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margs er hér að þakka. Guð sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Far þú í friði, / friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, ( Guð þér nú fylgi hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Blessuð sé minning Elínar Birg- ittu Þorsteinsdóttur. Valgerður og Guðmundur. Þegar við systkinin fréttum af ( andláti frænku okkar vorum við | harmi slegin. Það að setjast niður , og skrifa minningargrein um þann sem stendur manni svo nærri, er svo erfitt en gerir manni það einnig ljóst hversu lífið er dýrmætt og hvað maður fer oft á mis við tíma með fjölskyldunnni og er þess í stað að velta sér upp úr lífsgæðakapp- hlaupinu. Elín var aðeins sextán ára gömul þegar hún var tekin frá okkur. En 1 við trúum því að henni sé ætlað I eitthvað meira annars staðar. Á | þessum sextán árum gaf hún okkur margar minningar. Skatan hjá ömmu og afa á Nesinu er okkur mjög minnisstæð þar sem fjölskyld- an kom öll saman á Þorláksmessu. Einnig það þegar við frænkurnar fórum saman í einnar viku sumar- búðir í Ölver. Svo og heimsókn mín til hennar þegar hún var búsett í Danmörku. Svo þegar Elín flutti til Danmerk- ur með mömmu sinni og Alla, Palla og Ágústi litla, héldum við sam- bandinu við með bréfaskriftum. Bréf hennar voru oftast löng og skemmtileg aflestrar. Alltaf gat hún séð eitthvað gott við lífíð og tilveruna. Elín var ævintýramanneskja, brosmild og falleg stelpa. Einnig var var hún alveg einstaklega barn- góð og réð oft á tíðum furðuvel við bræður sína og reyndar öll systkin- in sín. Elsku Hildur, vertu sterk; sorgin er eitthvað sem við þurfum að læra að lifa með, ekki endilega að yfír- vinna. Missirinn er mikill en hún Elín mun alltaf lifa í hjarta okkar. Elsku Hildur og Alli, Steini og Lára og systkini, amma og afi á Nesinu, Guð gefi ykkur öllum styrk og veiti ykkur huggun í þessari miklu sorg. Eva Hlín, Hulda, Guðrún og Alfreð. Ég vaknaði við þær sorglegu fréttir að vinkona mín, Elín Birg- itta, væri látin. Ég hélt að það gæti ekki verið því að ég hafði tal- að við hana fyrr um nóttina. Ég beið eftir að vakna upp af þessum sorglega og óþægilega draumi, en ég var ekki sofandi, þetta var að gerast. Ég heyrði fyrst talað um Elínu eftir að nokkrir vinir mínir héðan frá Eyjum höfðu farið til Reykaj- MINIMINGAR víkur 17. júní og kynnst Elínu. Þau sögðu að hún væri ekkert venjuleg, hún væri svo indæl og skemmtileg. Þá vissi ég strax að mig langaði til að kynnast henni. Ég kynntist henni svo á þjóðhátíðinni og við skemmtum okkur svo vel. Ég komst fljótt að því að krakkarnir höfðu á réttu að standa, hún var sérstök. Hún flutti til Eyja stuttu seinna og við urðum fljótt vinkon- ur. Það var svo gaman að heim- sækja hana, alltaf líf og fjör, hleg- ið og talað. Ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast Elínu þó ekki hafi ég fengið að njóta þess að hafa hana hjá mér lengur. Það er ekki spurt um tíma eða aldur þegar Guð kallar okkur til sín. Elsku vinkona. Það er svo skrýt- ið að hafa þig ekki í vinnu, að geta ekki talað og spilað við þig í kaffi- tmanum, og að geta ekki horft á fallega brosið þitt og lífsglatt og skínandi andlit þitt. Takk fyrir samverustundirnar og vinskapinn. Guð blessi minningu Elínar Birg- ittu og hjálpi foreldrum hennar, systkinum og öðrum vandamönnum gegnum sorgina og söknuðinn. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Elva Björk Einarsdóttir. Elsku Elín. Ég vil þakka þér fyrir allar yndis- legu stundirnar, sem við áttum sam- an. Þú varst alltaf svo brosmild og komst öllum í kringum þig til að brosa. Ég vona að þú hafir það gott og að þér líði vel. Þú átt alltaf stað í hjarta mínu. „Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur,“ segir máltækið. Elín, ég sakna þín, við sjáumst. Þín Margrét Dögg. Elsku Elín mín. Aldrei hef ég skrifað bréf sem ég vissi að ekki yrði lesið af viðtak- anda. Aldrei hefði mig órað fyrir að það yrði til þín. Mig langar al- veg óskaplega að skrifa eitthvað viturlegt, eitthvað sem sýnir hvem- ig vinkona þú varst, hversu mikið þú hafðir að gefa og eitthvað sem sýnir fram á hve dýrmæt þú varst mér. Því miður er erfitt að koma þannig löguðu í orð, sem segja allt. Við kynntumst fyrir tilviljun í íslenskuskólanum í Kaupmanna- höfn fyrir um það bil fjórum árum. Við urðum ágætis vinkonur, betri og betri með tímanum. Við hringd- um hvor í aðra á milli helganna þegar við hittumst í íslenskuskólan- um og alltaf höfðum við jafnmikið að segja. Það leið ekki á löngu áður en okkar reglulegu helgarheim- sóknir hófust hvorrar til annarrar og alltaf var jafnskemmtilegt, manstu eftir ,joðunum“, diskótek- unum þegar ég fór með þér í skól- ann og þegar við settum allt álegg innan úr ísskáp á franskbrauðið og borðuðum það í hádegismat? Við skrifuðumst á þegar önnur fór til íslands í frí og það voru sko bréf. Það var svo þannig að þú flutt- ir á undan mér til Islands, en skrif- in héldu áfram. Við ákváðum að talast við á dönsku þegar ég flutti til íslands, því að þú hélst því fram að þú værir farin að kalka á fram- burðarsviðinu. Þegar ég svo loksins flutti til íslands höfðum við ekki tíma til að hittast, en hittumst þó stundum í Kringlunni eða mætt- umst í strætó; önnur á leiðinni út en hin inn. Einu sinni birtist þú heima hjá mér í Keflavík með vin- konu þinni, en þar sem ég var ekki heima spjallaðir þú bara við mömmu, svona varst þú alltaf; op- in, glöð og öllum, sem ég þekkti og kynntust þér, Iíkaði vel við þig. Það var í vor að ég sá þig fyrir utan Kringluna og ég kallaði á þig en þú heyrðir ekki í mér, ég lét það ekki á mig fá og hugsaði að ég myndi skrifa þér bréf frá Danmörku þar sem ég ætlaði að eyða sumrinu. Það var þegar ég sá þig síðast og það var í gær, þegar ég las sunnu- dagsmoggann, að mér varð ljóst að ég myndi aldrei sjá þig aftur. Þangað til í gær trúði ég að allir hlutir gerðust því að þeir ættu að gerast, já, þangað til í gær. Ég veit ekki hvernig þú yfirgafst þenn- an heim, en ég veit að það er pláss fyrir þig enn ... og verður alltaf. Ég votta foreldrum þínum, fóst- urforeldrum og systkinum innilega samúð mína. Endurminningin merlar æ í mána silfri hvað, sem var, yfir hið liðna bregður blæ blikandi Qarlægðar, gleðina jafnar, sefarsorg. Svipþyrping sækir þing í sinnis hljóðri borg. (Höf. ók.) Þín vinkona að eilífu, Þórdís Þórhallsdóttir. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur af skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (H.I.H.) í dag sit ég heima og á erfitt með að trúa því að ég sé að kveðja góða vinkonu og félaga, Elínu Birg- ittu. Ég kynntist Elínu í sumar er hún flutti til Vestmannaeyja. Elín flutti á Hásteinsveginn í kjallarann á Héðinshöfða eins og húsið er kallað. Besta vinkona mín býr á efri hæðinni og tókst mikill vinskap- ur með okkur þremur. Varla leið sá dagur að maður kíkti ekki „nið- ur“ til Elínar. Það var auðvelt að kynnast El- ínu, enda átti hún marga vini. Það skipti ekki máli hver stóð fyrir utan hurðina, hún bauð honum inn. Ég man ekki eftir Elínu í öðru en góðu skapi og síhlæjandi. Enda ófá hlát- urköstin sem við tókum. Aðeins tveimur dögum áður en þú kvaddir, þegar við Ásdís klipptum á þér hárið og lituðum. Þú skoðaðir ekki hárið fyrr en við vorum búnar að klippa það. Þú fórst að skellihlæja, og hláturinn þinn, sem var svo smitandi, kom okkur til þess að hlæja. Svo vorum við allar farnar að grenja úr hlátri. Ég veit ekki alveg af hvetju, en það var allavega erfitt að hætta. Það er svo ósanngjarnt að þú varst tekin frá okkur, það var svo margt sem þú ætlaðir að gera, svo margir draumar sem áttu eftir að rætast. Svo mörg ókláruð verkefni. En eins og sagt er þá eru vegir Guðs órannsakanlegir. Ég á ekki erfitt með að trúa því að svona falleg og góð sál eins og þú varst, sé komin á æðra tilveru- stig. Ég á eftir að sakna þín mikið og það verður skrýtið að koma ekki til þín á kvöldin í smáspjall. í hjarta mínu verður alltaf skarð sem aðeins þú getur fyllt upp í. Það er aðeins eitt skref milli lífs og dauða, þitt var bara of stutt. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst þér, þó að það hafi aðeins verið í stuttan tíma. Og ég vil þakka þér fyrir að hafa verið vinur minn. Þá vissi ég fyrst hvað tregi er og tár sem tunguna heftir - bijósti veitir sár. Er flutt var mér sú feigðarsaga hörð að framar ei þig sæi’ég hér á jörð. Er flutt var hin sára sorgarfregn - er sálu mína og hjarta nísti í gep að þú hefðir háð þitt hinsta stríð svo harla fjarri þeim sem þú varst blíð. (Höf.ók.) Elín, ég mun aldrei gleyma þér. Ég votta öllum vinum og vanda- mönnum mína dýpstu samúð. Birgit Jóhannsdóttir, V estmannaeyjum. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RANNVEIG GUÐJÓNSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Seljahlíð, andaðist föstudaginn 13. desember. Pálína Júlíusdóttir, Andrés K. Guðlaugsson, Þórunn J. Júliusdóttir, Kristján Örn Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, PÉTUR MAGNÚSSON, Miklubraut 5, Reykjavík, ( lést á heimili sínu aðfararnótt 15. desember. Sigurveig Hauksdóttir, Ásta Ingibjörg Pétursdóttir, Helgi Hjálmtýsson, i Sigurveig Þórhallsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, INGÓLFUR HUGO BENDER, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 18. desemberkl. 15.00. Fyrir hönd fjölskyldu og vina, Júlfana Bender. + Konan mín og móðir okkar, GUÐRÚN BENEDIKTSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 15. des- ember. Útförin verður gerð frá Áskirkju mánu- daginn 23. desember kl. 13.30. Jóhannes Zoéga, TómasZoéga, Fríða Bjarnadóttir, GuðrúnZoéga, Ernst Hemmingsen, Benedikt Jóhannesson, Vigdís Jónsdóttir, Sigurður Jóhannesson, Solveig Sigurðardóttir. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi, langafi og langalangafi, JÓHANN ÓLAFUR JÓNSSON, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Fjóluhvammi 1, Hafnarfirði, sem lést 10. desember sl., verður jarð- sunginn frá Hafnarfjarðarkirkju miðviku- daginn 18. desember kl. 13.30. Jón Gunnar Jóhannsson, Unnur Jóhannsdóttir, Guðjón Jóhannsson, Helga Ólafsdóttir, Hjalti Jóhannsson, Helga Bjarnadóttir, Edda Jóhannsdóttir, Kristinn Fr. Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför KRISTÍNAR SIGVALDADÓTTUR frá Þórunnarseli. Aðstandendur. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, PETRU ÞÓRU JÓNSDÓTTUR, Hrauntungu 6, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks St. Jósefsspítala og kórs Söngskólans. Pétur Auðunsson, Guðrún Óla Pétursdóttir, Þorsteinn Auðunn Pétursson, Ragnheiður Pálsdóttir, Hinrik Pétursson, Erla Margrét Margeirsdóttir og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.