Morgunblaðið - 17.12.1996, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 17.12.1996, Qupperneq 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1996 MENNTUN MORGUNBLAÐIÐ Samanburðarkannanir í íslensku meðal fyrsta árs nema í KHÍ Kunnáttu fer hrakandi Morgunblaðið/ SIGURÐUR Konráðsson, prófessor í Kennaraháskóla Islands. Nám í Rússlandi UNDIRRITAÐUR hefur verið samningur milli Háskóla ís- lands og Plekhanov viðskipta- háskólans í Moskvu sem felur m.a. í sér gagnkvæm skipti á kennurum og stúdentum, að því er fram kemur í nýlegu Frétta- bréfi Háskóla íslands. Samningurinn gildir til næstu fimm ára og er lögð megináhersla á skipti á kennur- um og öðru starfsliði háskól- anna, svo og stúdentaskipti bæði í byrjunar- og framhalds- námi. Plekhanov býður upp á BA- og MA-nám í um 10 deild- um, m.a. í alþjóðlegum viðskipt- um, markaðsfræði, hagfræði og stjómun. Um 13.000 nemendur stunda nám við skólann. http://www.plekhanov.ru. Grunnskólinn Valgreinar án kostnað- ar nemenda SAMKVÆMT úrskurði menntamálaráðuneytis er ekki heimilt að krefja nemendur í grunnskóla um greiðslur fyrir námsgögn í valgreinum, þar sem þær eru bundnar í reglu- gerð, að því er fram kemur í nýju fréttabréfi ráðuneytisins. Allt að þriðjungi vikulegra kennslutíma nemenda má veija til valgreina. Samkvæmt niðurstöðu um- boðsmanns Alþingis er óheimiit að krefja nemendur í gmnn- skólum um greiðslu fyrir m.a. kennslu og námsgögn og var það haft til hliðsjónar við ný lög um grunnskóla 1995. Segir í fréttabréfinu að í 2. grein reglugerðar um valgrein- ar sé gert ráð fyrir að valgreina- tilboð skóla þurfi samþykki sveitarstjórnar, enda greiði sveitarstjórn kostnað. Nemendur HI í misserisnám erlendis HÁSKÓLI íslands gerðist ný- lega aðili að bandarísku stúd- entaskiptasamtökunum ISEP (International Student Exe- hange Program). Um 200 bandarískir háskólar eru aðilar að samtökunum að þvj er fram kemur í fréttabréfi HÍ. Með þatttökunni gefst stúd- entum HÍ kostur á að taka hluta af námi sínu, 1-2 misseri, í Bandaríkjunum og fá það meticl sem hluta af námi sínu við HÍ. Farið er fram á að nemendur hafi lokið a.m.k. eins árs námi við háskólann áður en þeir geta farið utan. Stúdentar þurfa að útbúa námsáætlun sem viðkom- andi skorarformaður eða for- maður námsnefndar samþykkir til að umsóknin verði gild. Háskóli íslands Reglugerðir um nýjar stofnanir DRÖG að reglugerðum um fjór- ar nýjar stofnanir innan Há- skóla íslands; Umhverfisstofn- un Háskóla íslands, Rann- sóknastofnun í hjúkrunarfræði, Tannlækningastofnun og Lyfja- fræðistofnun hafa verið sam- þykktar í háskólaráði auk breytinga á reglugerðum tveggja eldri stofnana, þ.e. Mannfræðistofnunar og Orða- bókar Háskólans. Eru þær nú til umsagnar hjá menntamála- ráðuneyti. SAMKVÆMT könnun sem Sigurð- ur Konráðsson, prófessor við Kenn- araháskóla íslands (KHÍ), hefur nýlega skýrt frá eru vísbendingar um að kunnáttu nemenda í stafsetn- ingu, málfræði og málnotkun fari hrakandi. Kannanirnar voru lagðar fyrir nemendur í fyrsta tíma á fyrsta ári haustið 1991 og haustið 1995. „Frávikið er reyndar ekki mikið en okkur finnst kunnáttan slök og að heldur skuli stefna í þessa átt eru váleg tíðindi,“ sagði hann. Fleiri með 4 og 5 Sigurður tekur fram að tölur í könnunum geti alltaf verið misvís- andi en augljost sé að kunnáttu nýnema í KHI í málfræði og staf- setningu sé verulega áfátt. „Það virðist vera sem hópur með ein- kunnina í kringum 4-5 sé að stækka og þá einkum í stafsetningu og málfræði," segir hann og telur að skýringarnar geti verið ýmsar, s.s. að nú séu að koma inn í skólana árgangar sem lentu í einum og jafn- vel fleiri verkföllum kennara. „Enn- fremur er Ijóst að í mörgum fram- haldsskólum er áhersla á málfræði- kennslu mjög lítil, þó að hún sé sums staðar mikil. Áherslan á bók- menntir er almennt miklu meiri. Með því að spyija nemendur hvenær þeir muni síðast eftir sér í málfræði- tíma er svarið oftar en ekki að það hafi verið fyrir samræmd próf í grunnskóla. I þriðja lagi gæti skipt máli að fijáls lestur fólks hefur dregist saman samkvæmt niður- stöðum rannsókna," segir hann. Oft farið fram á aukningu íslenskukennsla í kjarna Sigurður tekur fram að þetta sé kunnátta nemenda þegar þeir hefja nám við skólann. „Eg hef lagt áherslu á að við miðum starfið við að þessir nemendur verða þremur árum síðar komnir með réttindi til að kenna á hvaða stigi grunnskóla sem er. Þess vegna viljum við fá svigrúm til að bæta við þekkinguna og gera væntanlegum kennurum kleift að kenna í samræmi við aðal- námskrá grunnskóla." Hann segir að íslenskukennarar KHÍ hafi verið með síendurteknar tillögur um það innan skólans að íslenskukennsla verði aukin í kjarna. Hann bendir ennfremur á þá umræðu sem eigi sér stað núna um hlutfall uppeldis- og kennslufræði annars vegar og um vægi kennslu í námsgreinum grunnskólans hins vegar. „Að mínu mati og margra annarra er öllum kennslugreinum grunnskólans alls ekki nægilega vel sinnt. Til dæmis þyrfti kennsla í stærðfræði og raun- greinum að vera miklu öflugri í kjarna en nú er.“ Hann tekur þó fram að margt gott megi segja um uppeldis- og kennslufræði, en skoðun margra sé sú að erfitt sé að kenna námsgrein sem menn kunni ekki mikið í og afleiðingin verði að kennarar verði óöruggir í starfi. Það leiði af sér að þeir verði háðir kennslubókinni og eigi erfitt með að leggja verk- efni fyrir nemendur, þar sem þeir þurfi að afla heimilda og draga saman niðurstöður. Urgur í Dönum í Danmörku er kennaranámið fjögur ár og segir Sigurður mikla umræðu eiga sér þar stað. Meðal annars hafi danski menntamálað- herrann nýlega sent út nokkurs konar tilskipun þess efnis að móður- málskennsla verði tvöfölduð, upp- eldisfræði skorin niður um helming og kennsla aukin í kennslugreinum grunnskólans. „Þetta veldur mikl- um titringi í skólakerfinu í Dan- mörku, en þetta er sama tilhneig- ingin sem við heyrum nú hér hjá okkur.“ í framhaldi af því tekur hann fram að íslenskukennarar í KHÍ hafi talið sér skylt að skýra Birni Bjarnasyni menntamálaráðherra frá niðurstöðum og áhyggjum sín- um eftir að hafa gert Þóri Olafs- syni rektor grein fyrir málum. „Við bentum ráðherra m.a. á að með því að bæta fjórða árinu við kennara- námið mætti auka vægi þessa þátt- ar, en auðvitað er það fyrst og fremst skólaráð sem samþykkir kennsluskrá á hveiju ári og ræður að verulegu leyti hvernig námi er skipað í kjarna. Kjarnagreinar skipta meginmáli, því einungis hluti nemenda tekur íslensku sem val- grein.“ Hann segist þó vilja taka fram að kennarar hafi ekki farið á fund ráðherra til að biðja um að hann gæfi út tilskipanir á borð við þá sem danski menntamálaráðherr- ann gerði. Of fáir málfræðingar Sigurður segir að lítil kennsla í málfræði í framhaldsskólum tengist því að fáir málfræðjngar sem ljúki prófi frá Háskóla íslands taki að sér kennslu í framhaldsskólum. „Það er mjög skýr skipting á milli bókmennta og málfræði í Háskólan- um og mun fleiri Ijúka prófi í bók- menntum." Aðspurður hvort íslend- ingar eigi eftir að lenda í sama víta- hring með málfræðina og eigi sér stað í raungreinum segist hann hafa grun um að slíkt ástand sé komið upp. „Ég tel, án þess að vilja fullyrða það, að of fáir kennarar séu í framhaldsskólanum, sem lokið hafa prófi í íslenskri málfræði." Evrópsk ráðstefna um menntun Afskipti foreldra og árangur barna haldast í hendur SJÖTÍU mismunandi rannsóknarverkefni um hlutverk og þátttöku foreldra í menntun barna sinna voru kynnt á ráðstefnu, sem haldin var í Kaupmannahöfn í lok nóvember og bar yfirskriftina Menntun er samvinnu- verkefni. Ráðstefnan var haldin á vegum ERNAPE-samtakanna (European Research Network about Parents in Education). Meðal íslenskra þátttakenda voru Aslaug Brynjólfsdóttir umboðsmaður foreldra og skóla í Reykjavik og Jónína Bjartmarz for- maður Landssamtakanna Heimilis og skóla. Eru þær sammála um að ráðstefnan hafi veri mjög áhugaverð og segir Jónína að hún hafi gefið foreldrum mikinn innblástur. Heimili ogskóli tvær meginlærdómsmiðstöðvarnar Fyrirlesarar voru alls staðar að úr heiminum, s.s. frá Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu og Evrópulöndunum. Meðal þess sem fram kom voru þær staðreyndir að heimilið og skólinn væru hinar tvær megin- lærdómsmiðstöðvar fyrir barnið, þar sem heimilin væru sérstaklega áhrifamikil fyrstu árin. „Hjá öllum fyrirlesurum var áberandi hversu mikilvægur þáttur foreldra er I menntun barna sinna. Því meir sem fjölskyldan er í sambandi við skólann þeim mun betri verður árangur barnanna og líð- an,“ sagði Áslaug. Undir þetta tekur Jónina og segir þessar niðurstöður styrkjandi fyrir foreldrastarfið. Hún segir hins vegar athyglisvert sem fram kom, að gott samstarf heimila og skóla eða vandamál í samskiptum þeirra á milli séu ekki bundin við einstök lönd, lög eða reglur heldur fari það eftir skóium, kennurum, foreldrum og sveitarfélögum. „Þetta segir mér að góð samskipti geta vel átt sér stað allt eftir því hvernig er að verki staðið.“ Sagan segir einungis frá ágreiningi, ekki hinu jákvæða Jónína segir að erfitt sé að nefna eitthvað eitt frá ráðstefnunni sem standi upp úr, því íslensku þátttakendurnir hafi farið á mis- munandi fyrirlestra og mismunandi málþing til að fá sem víðasta yfirsýn. Engin saman- tekt hafi átt sér stað ennþá, en Heimili og skóli stefni að því að taka saman niðurstöð- ur og koma þeim á framfæri síðar. „Mér þótti þó athyglisvert að í fyrirlestri hjá dönskum sagnfræðingi kom fram, að for- eldrar og hlutverk þeirra hefði verið ósýni- legt gegnum aldirnar nema þegar upp hafa risið deilur milli skóla og foreldra. Þetta situr fast í mér án þess að ég vilji gera það að hápunkti ráðstefnunnar. Þetta sýnir að það sem við erum að gera frá degi til dags sést hvergi á blöðum sögunnar." Jónína nefnir sem dæmi um erindi í mál- stofum að gerð hafi verið grein fyrir verk- efni í litlu sveitarfélagi í Svíþjóð þar sem fjárhagur var fremur bágborinn. Þrátt fyr- ir það tókst samstarf heimila og skóla með ágætum. Strax í byrjun skólagöngunnar var lagður grunnur að samstarfinu, sem fólst í heimsóknum kennara á heimilin þar sem skólinn var kynntur og kynni hófust milli foreldra, barna og kennara. Var heimsókn- in síðan endurtekin tvisvar á skólagöng- unni. „Þetta er svipað því sem við viljum leggja áherslu á, þ.e. að við upphaf skóla- göngu fari fram kynning á skólanum og hver ætlast til hvers af hverjum." Áhugasamur stjórnmálamaður Þá segir Jónina að umfjöllun hafi verið frá Manchester. Þar gerði stjórnmálamaður það að sínu verkefni að efla samstarf heim- ila og skóla, aðallega með kynningum af Morgunblaðið/Úr myndasafni RANNSOKNIR sýna að samvinna milli heimila og skóia skilar sér í betri líðan barna og bættum námsárangri. ýmsu tagi, námskeiðum o.fl. „Þannig að víða er verið að gera eitthvað. Athyglisverðast er kannski að þetta er ekki bundið við lönd, heldur er um að ræða að tiltekin sveitarfé- lög, kennarar og foreldrahópar, ná ár- angri.“ Að lokum segir Jónina frá finnskri níu barna móður sem tók við verðlaunum á vegum evrópsku foreldrasamtakanna EPA (European Parents Association) fyrir að vera driffjöður í umbótum skóla í sínu sam- félagi. „Ýmsir aðrir voru tilnefndir, til að mynda foreldrasamtök við skóla í Skot- landi, þar sem sett var upp námskeið til að vinna úr sorg fyrir börn sem höfðu lent í skilnaði, misst foreldra sína eða annað í þeim dúr.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.