Morgunblaðið - 17.12.1996, Page 57

Morgunblaðið - 17.12.1996, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1996 5 7 því á, að listamenn víða um lönd þyrftu svokölluð „denazifiserings“- vottorð, svo að list þeirra væri flutt opinberlega. Hann sendi því ráðu- neytinu skýrslu um dvöl sína í Þýskalandi, sem var í samræmi við yfirheyrslur þeirra Ragnars Stef- ánssonar og Ragnars H. Ragnars yfir honum í Reykjavík í júlí 1945 á vegum leyniþjónustu Bandaríkja- hers, og fór þess á leit, að ráðuneyt- ið sendi skýrsluna til bandaríska sendiráðsins í Reykjavík með ósk um, að það staðfesti, að hún væri í samræmi við yfirheyrslurnar og að ekki hafi legið fyrir að þeim loknum ákæra né ásökun af hendi hers eða yfírvalda í Bandaríkjunum gegn honum. Ráðuneytið taldi að fenginni reynslu, að ekki yrði komist lengra með þetta mál gagnvart bandarísk- um stjórnvöldum og því tilgangs- laust að taka það upp við þau á ný. Hins vegar varð ráðuneytið við 1 þeirri ósk Jóns að leita upplýsinga hjá þremur mönnum um það, hvort I skýrsla hans væri í samræmi við skoðanir þeirra um feril hans í Þýskalandi fyrir stríð og á stríðsár- unum, en Jón hélt því fram, að menn þessir væru allkunnugir hög- um hans á þeim tíma. Þetta voru þeir Helgi P. Briem, sendiherra í Stokkhólmi, Kristján Albertsson, sendifulltrúi í París og Jón Helga- I son, prófessor í Kaupmannahöfn. Jafnframt sendi ráðuneytið þre- 1 menningunum skýrslu Jóns til um- | sagnar. Jafnhliða þessu kom stjórn Tón- skáldafélags íslands saman til fundar í nóvember 1950 og sam- þykkti ályktun, þar sem var vottað samkvæmt ósk Jóns, að stjórninni væri ekki kunnugt um, að hann hefði verið nasisti eða á nokkurn hátt í tengslum við þá. Stjórnin | studdi eindregið þá ósk Jóns, að I málið yrði rannsakað, ef ástæða þætti til. Undir þessa ályktun skrif- I uðu þeir Páll ísólfsson, Jón Þórar- i insson og Skúli Halldórsson, sem sat fundinn í stað Jóns Leifs. Meiri- hluti félagsmanna í Tónskáldafé- laginu, þ.e. félagsmenn búsettir í Reykjavík, undirritaði sams konar ályktun. Jafnframt tók Tónskálda- félagið að sér að senda umrædda skýrslu, sem var á sænsku, til er- I lendra tónskáldafélaga og skyldra | stofnana. Helgi P. Briem, sem hafði verið * verslunarfulltrúi við danska sendi- ráðið í Berlín 1937-39, svaraði fyrirspurn utanríkisráðuneytisins á þá lund, að hann minntist þess ekki að hafa nokkurn tíma rætt við þýsk stjórnvöld um Jón Leifs. JÓN Leifs á Þýskalandsárunum. Hann hafði því engar upplýsingar um Jón aðrar en þær, sem Jón sagði honum sjálfur. Það var aðal- lega um ýmsa hjálp, sem hann reyndi að veita tengdaforeldrum sínum og hvað honum varð ágengt í því efni, enda vissi Helgi til, að Jón fór nokkrum sinnum til Tékkó- slóvakíu í þeim erindum. Helgi hafði því ekki upplýsingar um, hvort bannað hefði verið að flytja verk Jóns, nema frá honum sjálf- um. Jóni Helgasyni prófessor var ekki annað kunnugt um athafnir Jóns Leifs í Þýskalandi en hann hafði sjálfur sagt prófessornum, enda kynntust þeir ekki að ráði fyrr en á stríðsárunum, þegar Jón Leifs kom í heimsókn til Kaup- mannahafnar. Jón Helgason þóttist ráða það af samtölum við nafna sinn Leifs, að sú hugsjón, sem hann bar helst fyrir bijósti, væri aukinn vegur íslands og frami með öðrum þjóðum. Hugmyndir hans um hlut- verk íslendinga í menningarmálum álfunnar hefðu verið miklar, einatt meiri en svo, að Jóni Helgasyni hefði þótt þær eiga stoð í veruleik- anum. Hins vegar kvaðst hann aldrei hafa orðið var við, að Jón Leifs aðhylltist kenningar nasista né mælti þeim bót. Jón Helgason mundi líka eftir því, að nafni hans bar um skeið mikinn kvíðboga fyr- ir, að vel mætti fara svo, að ís- lenska þjóðin yrði flutt af landi brott, og hefði Jón Leifs vitnað þessum ugg sínum til staðfestingar í fólksflutninga nasista. Kristjáni Albertssyni var ekki ljóst, hvaða tilgangi áðurnefnd skýrsla um feril Jóns Leifs átti að ANNIE Leifs. þjóna, úr því að utanríkisráðuneyt- ið ætlaði ekki að taka málið upp að nýju við bandarísk stjórnvöld. Honum virtist ekki ólíklegt, að best væri fyrir Jón Leifs að gera ekkert frekar í málinu. Sá, sem afsakaði sig, ásakaði sig, segði máltækið, og það ætti sérstaklega við um þann, sem héldi áfram að afsaka sig of lengi. í bréfinu segði, að Jón Leifs teldi orðróm um, að hann hefði verið nasisti, hafa spillt fyrir honum í Finnlandi. Síðan hefðu Finnar boðið honum að vera full- trúi fslands á hátíð til heiðurs Sibel- ius, og ætti það að nægja til að sýna, að slíkur orðrómur hefði ekki sakað orðstír tónskáldsins í Finn- landi. Um skýrsluna komst Kristján Albertsson svo að orði: „Um efni skýrslunnar skal tekið fram, að hún er, að því er eg veit best, sannleikanum samkvæm að því er snertir afstöðu Jóns Leifs til nasismans. Jón Leifs er gamall vin- ur minn, sem eg hitti að staðaldri í Berlín á árunum fyrir stríð, og bæði eg og allir aðrir landar þar í bæ vissu að hann var frábitinn nasismanum og á engan hátt bendl- aður við neina pólitíska starfsemi þar í landi.“ í janúar 1951, þegar Jón var staddur í Stokkhólmi, lagði hann dag einn leið sína í íslenska sendi- ráðið þar ásamt fornvini sínum og velgjörðarmanni, Ernst Zúchner, sem hafði borist til Svíþjóðar í stríðslok. Helgi P. Briem sendi- herra þekkti Zúchner frá þeim tíma, þegar hann starfaði í danska sendiráðinu í Berlín, enda hafði Helgi haft frumkvæði að því, að Zúchner var sæmdur riddarakrossi Fálkaorðunnar. Erindi Zúchners í sendiráðið var að undirrita skýrslu þess efnis, að Jón Leifs hefði verið settur á svartan lista ríkishljómlist- arnefndarinnar árið 1937, og stað- festi Helgi undirskrift hans. Skömmu eftir að Zúchner undir- ritaði skýrsluna, hélt Jón Leifs í ferðalag til Þýskalands, m.a. til að fá nafn sitt strikað af svörtum list- um, ef það væri á þeim. í þeirri ferð komst hann á snoðir um, að von Grundherr, forstöðumaður Norðurlandadeildar þýska utanrík- isráðuneytisins á valdatíma nasista, var nú aðalræðismaður Vestur- Þýskalands í Aþenu. í Frankfurt hitti Jón að máli bandarískan emb- ættismann og lét honum í té ýmis gögn, sem lutu að umsókn hans um vegabréfsáritun til Bandaríkj- anna. Þetta bar þann árangur, að Jóni var veitt vegabréfsáritunin í lok mars 1951 að lokinni rækilegri rannsókn á högum hans í Þýska- landi á valdatíma nasista. Taldi Jón sig þar með hafa hnekkt orðrómn- um um, að hann hefði átt samvinnu við Þjóðveija, ekki síst þegar ís- lenska sendiráðið í Stokkhólmi sendi helstu dagblöðum í Svíþjóð bréf um málið ásamt ljósmynd af vegabréfsárituninni. Óskaði hann einnig eftir því við utanríkisráðu- neytið, að ljósmyndir af árituninni yrðu einnig sendar til íslensku sendiráðanna í London, Kaup- mannahöfn og París, svo að þau gætu svarað fyrirspurnum um stjórnmálafortíð hans. Jón Leifs taldi sig hafa unnið fullnaðarsigur með þessum mála- lokum, en þó fór því fjarri, að hann hefði hreinsað sig fyrir fullt og allt af grun um, að hann hefði átt sam- starf við þýska nasista. Sá grunur hefur loðað við hann allt til þessa dags. Af því sem er rakið hér að framan, má vera ljóst, að Jón Leifs var ekki nasisti og hann bauð ekki stjórnvöldum í Þriðja ríkinu þjón- ustu sína. Fjölskylda hans var í stöðugum lífsháska vegna gyðinga- ofsókna valdhafa í Þriðja ríkinu, og hann reyndi að vernda konu sína, dætur og tengdaforeldra eins og hann frekast gat. Allt starf hans í Þýskalandi beindist að því að efla hag íslands, enda var það í samræmi við hugsjónir hans og föðurlandsást, eins og vikið var að hér að framan. • Bókarheiti er Berlínarblús. Höfundur er Ásgeir Guðmundsson. Utgefandi er Skjaldborg. Leiðb. verð er 3.480 kr. Æ?) SILFURBÚÐIN Kringlunni 8-12 «Sími 568 9066 - ÞarfcerÖu gjöfina - FJÖLBRAUTASKÓLINN BREIÐHOLTI Getum bætt við nemendum á eftirtaldar brautir á vorönn 1997 * * Grunnnám rafiðna Rafvirkjun ❖ *í! Grunnnám tréiðna Trésmíði * * Sjúkraliðabraut # # Matvælasvið FB þegar þú velur starfsnám p Baráttan EUG um vaskinr E< \ er OT BOXER hafin - tryggðu þér einn fyrir áramót Peugeot Boxer sendibíll eða fólksflutningabíll Sterkir, rúmgóðir, þægilegir í akstri, traustir, liprir og ódýrir 2,5Turbo diesel Tryggðu þér einn fyrir áramót Aðeins frá kr. 1.960.000 • með vsk. PEUGEOT - þekktur fyrir þœgindi 1 9 4 6 - 1 9 96 Nýbýlavegi 2 Sími 554 2600

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.