Morgunblaðið - 28.12.1996, Page 6

Morgunblaðið - 28.12.1996, Page 6
6 LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kringlubíó opnað KRINGLUBÍÓ, hið nýja kvik- myndahús Sambíóanna í Kringl- unni, var opnað með viðhöfn ann- an í jólum með Evrópufrumsýn- ingu á kvikmyndinni Ransom með Mel Gibson í aðalhlutverki. I kvik- myndahúsinu eru þrír sýningar- salir sem taka samtals rúmlega 700 manns í sæti og eru sérstök rými fyrir fatlaða í hjólastólum íöllum sölunum. Að sögn Alfreðs Arnasonar, markaðsstjóra Sam- bíóanna, sýndu kvikmyndaáhuga- menn nýja bíóinu mikinn áhuga og seldust aðgöngumiðar í stærsta sýningarsalinn upp á fimmtán mínútum. Formleg vígsla kvikmyndahússins verður næstkomandi mánudag. _ Morgunblaðið/Halldór ÁRNI Samúelsson, forstjóri Sambíóanna, og Guðný Björnsdóttir, eiginkona hans, ásamt sonum sínum, Alfreð Árnasyni, t.v., og Birni Árnasyni, við opnun Kringlubiósins annan í jólum. Mikil og glæsileg flugeldasýning var í tilefni af opnun Kringlubíósins. Launakönnun Félagsvísindastofnunar meðal félagsmanna í VR Meðallaun um 157 þúsund á mánuði LAUN VR-FELAGA skv. könnun Félagsvísindastofnunar í nóvember 1996. Úrtak: 1.500 manns. I heildsöluverslun í þjónustu í iðnaði í smásöluverslun Meðaltal allra Mánaöar- laun kr. 171.439 159.719 156.035 134.529 157.305 Meðal- vinnutími, st. á viku 46,75 46,50 45,74 46.50 45.51 408 267 Fjölskyldu- tekjur (þús. kr.) Tekjur eftir menntun (þús. kr.) Alit á yfirmönnum eftir launum # ^ s? o? aP & Hæstu laun 7,3 14,7 22,7 29,9 Þriðji fjórðungur 29,3 25,0 26,6 23,9 Annar fjórðungur 34,1 33,8 28,1 26,6 Lægstu laun 29,3 26,5 22,7 19,6 Kröfur gerðar ^ í vinnu * * / * é / Karlar 12,4 21,3 24,7 41,7 Konur 24,6 28,4 23,7 23,2 3 V. | E3 £ ‘co 'O ? c: 2 CD '2 S co 2: 'ÍU co 162 <d162 o § c a S :o ? 2 ^ 3 || | CO V3 </) « « SJ 2 2 3: GREIDD laun félagsmanna í Verzlunarmannafélagi Reykjavík- ur, sem eru í fullu starfi, eru 157.305 kr. að meðaltali á mánuði samkvæmt könnun sem Félagsvís- indastofnun Háskóla íslands gerði fyrir VR í seinasta mánuði. Meðal- laun starfsmanna sem könnunin tók til eru auk fastra launa yfir- vinnulaun, akstursgreiðslur og önnur hlunnindi. Meðallaun félagsmanna í VR eru nokkuð mismunandi eftir at- vinnugreinum. í ljós kom að með- allaun starfsfólks í iðnaði eru rúm 156 þús. kr. á mánuði, í smásölu- verslun eru meðallaunin hins veg- ar rúm 134 þús. kr, í heildverslun rúm 171 þús. og í þjónustugrein- um eru meðallaun á mánuði tæp 160 kr. Samtals voru 1.500 manns í úrtaki könnunarinnar en haft var samband við þátttakendur í gegn- um síma. Meðaliaun VR-félaga eru tals- vert hærri samkvæmt könnun Fé- lagsvísindastofnunar en fram kom í kjarakönnun sem VR gerði fyrr í vetur en í henni var stuðst við niðurstöður kjararannsóknar- nefndar. Skv. kjarakönnun VR voru meðallaun félagsmanna um 134 þús. kr. á mánuði að meðtal- inni yfirvinnu en í þeirri könnun voru greiðslur fyrir akstur og önn- ur hlunnindi ekki meðtalin. Meðallaun lægst launaða hópsins 92 þús. Þegar laun þátttakenda í könn- un Félagsvísindastofnunar eru sundurgreind kemur í ljós að með- allaun þess fjórðungs launþega í VR sem eru lægst launaðir eru tæp 92 þúsund kr. á mánuði en meðal- laun 25% félagsmanna sem eru með hæst heildarlaun eru tæp 245 þúsund kr. á mánuði. Mismunandi langur vinnutími skýrir að nokkru mismunandi heildarlaun starfsmanna eftir at- vinnugreinum. Skv. könnun Fé- lagsvísindastofnunar er með- alvinnutími félagsmanna innan VR, sem eru í fullu starfí, 45,5 stundir á viku. Vinnutíminn er að jafnaði stystur í þjónustugreinum eða 43,5 stundir en lengstur í heildsölu- og smásöluverslun eða 46,5-47 stundir á viku að jafnaði. Fjölskyldutekjur 241 þús. að meðaltali Svarendur voru einnig beðnir um að gefa upp fjölskyldutekjur, þ.e. samanlagðar tekjur starfs- manns og maka. Könnunin leiddi í ljós að fjölskyldutekur voru að meðaltali 241 þús. kr. á mánuði. Fjölskyldutekjur þess fjórðungs starfsmanna sem voru með minnstar tekjur voru rúm 115 þúsund kr. á mánuði að meðaltali. I næst tekjulægsta hópnum námu fjölskyldutekjur rúmum 190 þús. kr. á mánuði, í næsthæsta tekju- hópnum voru fjölskyldutekjur að meðaltali 267 þús. kr og í hópi þess fjórðungs félagsmanna sem höfðu hæst meðallaun voru fjöl- skyldutekjumar að meðaltali rúm- ar 408 þús. kr. á mánuði. Félagar með grunnskóla- eða háskólanám með hærri laun Lítilsháttar munur er einnig á meðallaunum félagsmanna í VR eftir menntun. Kom í ljós skv. könnuninni að launþegar sem höfðu eingöngu lokið grunnskóla- námi voru með 162.409 kr. í með- allaun á mánuði. Meðallaun fólks sem lokið hafði verknámi voru 152.784 kr., meðallaun þeirra sem lokið höfðu sérskólanámi voru 153.932 kr. og félagsmenn sem lokið höfðu háskólaprófi voru með 162.390 kr. í heildarlaun á mán- uði að meðaltali skv. könnuninni. Minna álit á yfirmönnum meðal hinna lægst launuðu Þátttakendur í könnuninni voru einnig beðnir um að svara því hversu miklar kröfur væru gerðar til þeirra í vinnunni. Kom þá í ljós umtalsverður munur á svörum kynjanna. Um fjórðungur kvenna og um 12% karla eru í hópi þeirra sem segja að hvað minnstar kröfur séu gerðar til starfa þeirra en í hópi félagsmanna sem sögðu að miklar kröfur væru gerðar til þeirra í vinnunni voru tæplega 42% karla samanborið við um 23% kvenna. Svarendur voru einnig beðnir um að láta í Ijósi álit sitt á yfir- mönnum sínum og hvort þeir teldu þá góða eða slaka stjórnendur. Þegar svörin voru borin saman við meðallaun starfsmanna kom í ljós að stærsti hluti félagsmanna sem töldu yfírmenn sína slaka stjórn- endur tilheyrðu jafnframt hópi þeirra sem voru með lægstu laun- in. Um 30% svarenda sem höfðu mest álit á yfírmanni sínum voru hins vegar jafnframt í hópi þeirra sem fengu hæstu meðallaunin. Andlát ÁGÚST JÓNSSON SKIPSTJÓRI ÁGÚST Jónsson, fyrr- verandi skipstjóri hjá Eimskipafélagi Is- lands, lést 26. desem- ber sl., 70 ára að aldri. Ágúst fæddist 2. ágúst 1926, sonur hjónanna Jóns Kristj- ánssonar, læknis í Reykjavík, og Emilíu Sighvatsdóttur. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1947 og lauk farmannaprófi frá Stýrimannaskólan- um í Reykjavík 1952. Ágúst starfaði eftir það hjá Eim- skipafélagi íslands sem stýrimað- ur og síðar skipstjóri á ýmsum skipum félagsins. Hann varð að hætta sjómennsku 1978 vegna heilsubrests. Ágúst tók mikinn þátt í félags- störfum, var í Oddfellow, en afi hans, Sighvatur Bjarnason banka- stjóri, var einn stofnenda Odd- fellow-hreyfing- arinnar á íslandi. Ág- úst var einnig í Kiw- anis-klúbbi Seltjarn- arness og í sóknar- nefnd Seltjarnarnes- kirkju um skeið. Hann lék hand- knattleik í Víkingi á yngri árum og var alla tíð mikill Víking- ur og gegndi trúnað- arstörfum fyrir félag- ið. Ágúst var heiðrað- ur af færeysku land- stjóminni 1974 með heiðursmerkinu „Bundinn er bátleysur maður“ eft- ir að áhöfn ms. Múlafoss hafði bjargað áhöfn færeyska skipsins Kóngshafn úr sjávarháska. Ágúst var tvíkvæntur. Fyrri eiginkona hans var Jónina Guðný Guðjónsdóttir og eignuðust þau tvö börn, Boga og Emilíu. Þau skildu. Eftirlifandi eiginkona hans er Margrét Sigurðardóttir. Andlát ÞÓRÐUR ODDSON LÆKNIR ÞÓRÐUR Vilberg Oddsson læknir lézt á aðfangadag, áttatíu og sex ára að aldri. Þórður fæddist 23. september 1910 í Ráðagerði á Seltjarn- arnesi, sonur hjónanna Odds Jónssonar, hafn- sögumanns í Reykja- vík. og Guðríðar Þórð- ardóttur. Þar ólst Þórður upp til níu ára aldurs er hann flutti með föður sínum á Stýrimannastíginn í Reykjavík. Hann lauk stúdents- prófi frá MR 1932 prófi í læknis- fræði frá HÍ 1940 og stundaði framhaldsnámvið St. James Hosp- ital í London 1949. Þórður var settur staðgengill læknis á Hólmavík 1935, var sett- ur héraðslæknir í Ögurhéraði 1938, í Þistilfjarðarhéraði 1942-50, í Kleppjárnsreykjahéraði 1950-64, á Akranesi 1969-75 og var starfandi læknir í Reykjavík 1975-89. Þórður sat í stjórn Kaupfélags Langnesinga, Sparisjóðs Þórshafn- ar, var formaður hafnarnefndar Þórshafnar, sat í skólanefnd Þórs- hafnarskólahverfís og í skólanefnd Reykholtdalsskóla- hverfís 1952-58. Árið 1943 fékk Þórður, annar tveggja íslenzkra héraðs- lækna, jeppabifreið til afnota í læknisferð- um, og voru þetta fyrstu jepparnir sem íslendingar eignuðust. Lýsti Þórður jeppan- um sem sérstöku þarfaþingi við eftiðar aðstæður norður á Langanesi. Árið 1942 kvæntist Þórður Sigrúnu Aðalheiði Kærne- sted^en hún lézt 1991. Synirþeirra eru Óli Hörður, framkvæmdastjóri Umferðarráðs, Oddur, rannsóknar- maður hjá Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins, og Jón, hús- amsmíðameistari í Svíþjóð. Stjúp- sonur Þórðar var Ámundi Ámunda- son, blikksmiðjueigandi í Reykjavík, en hann lézt snemma á þessu ári. Dóttir Þórðar og Guðnýjar Jónínu Sigurbjömsdóttur er Erla Jóhanna, félagsmálafulltrúi í Reykjavík; son- ur Þórðar og Olgu Bergmann Bjamadóttur er Þórður Bergmann, bmnavörður á Keflavíkurflugvelli. Barnabörn Þórðar em tuttugu og fímm. , >

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.