Morgunblaðið - 28.12.1996, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 28.12.1996, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1996 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Stjórnarandstæðingar láta enn að sér kveða í Belgrad Oeirðalögregla tekur hart á mótmælendum Reuter SERBNESK óeirðalögregla ræðst gegn mótmælendum í mið- borg Belgrad að kvöldi aðfangadags. SLOBODAN Milosevic, forseti Serbíu, fyrirskipaði hundruðum óeirðalögreglumanna að koma í veg fyrir mótmæli í miðborg Belgrad á annan dag jóla. Eru þetta harkalegustu aðgerðirnar sem gripið hefur verið til gegn stuðningsmönnum stjórnarand- stöðunnar. Beittu lögreglumenn- imir táragasi og háþrýstislöngum, auk þess sem þeir voru vopnaðir rifflum og skjöldum. Annar leið- togi mótmælenda, Vuk Draskovic, hvatti þá til að sýna stillingu, sagði að Milosevic myndi nota hvaða tækifæri sem gæfíst til að grípa til harkalegra aðgerða gegn mót- mælendum. „Við höfum um það áreiðanleg- ar upplýsingar að miðstöð hryðju- verka vilji koma af stað miklum átökum í von um að að minnsta kosti einn lögreglumaður láti lífíð, svo að þeir geti fyrirskipað alls- heijarárás á okkur,“ sagði Draskovic. Að kvöldi jóladags lét Milosevic kalla til fjölda lögreglumanna til að gæta stuðningsmanna sinna en það leiddi til átaka á milli lögreglu og stjórnarandstæðinga. Slösuðust 59 í þeim. Á fimmtudag gekk lög- reglan enn ákveðnari til verks þótt við færri væri við að eiga sökum kulda. Gerðu fjölmargir borgarbúar hróp að lögreglunni vegna þessa. Þagað yfir dauða stjórnarandstæðings Að kvöldi aðfangadags lést 39 ára gamall maður sem hafði slas- ast illa í átökum mótmælenda og lögreglu í byijun vikunnar. Ekki var sagt frá því fyrr en á annan dag jóla, þar sem læknum var skip- að að þegja yfir dauða mannsins. Sama dag var haft eftir heimild- armönnum innan stjórnarinnar að Milosevic hygðist draga úr aðgerð- um gegn mótmælendum vegna krafna stjórnvalda á Vesturlönd- um. Hann hefði sýnt fram á að hann ætti sér stuðningsmenn og hann leitaði nú leiða til að viður- kenna kosningasigur stjómarand- stæðinga. Annað hvort myndi hann boða til nýrra kosninga í vor eða viðurkenna kosningasigurinn frá því í nóvember. Forsetinn hafi vanmetið mátt stjórnarandstöð- unnar og hafi gert sér grein fyrir því að engin von sé til þess að mótmælunum Iinni. í ræðum sínum hefur Milosevic forðast að styggja námsmenn sem SUHARTO, forseti Indónesíu, skor- aði í gær á landsmenn sína að sýna hver öðrum umburðarlyndi en síð- ustu daga hefur múgur manns, aðallega ungir múslimar, farið um götur í bænum Tasikmalaya á Vest- ur-Jövu og brennt kirkjur kristinna manna og verslanir í eigu fólks af kínverskum ættum. Hundruð hermanna gættu friðar- ins í Tasikmalaya í gær en óeirðim- ar í fyrradag brutust út vegna frétta um, að lögreglumaður hefði mis- þyrmt múslimskum kennara. Fyrstu uppþotin urðu hins vegar í október þegar múslimi, sem sakað- ur var um guðlast, leitaði hælis í kristinni kirkju. Þá voru 25 kirkjur brenndar til grunna á Austur-Jövu. Suharto, forseti fjölmennasta múslimasamfélags í heimi, sagði í ávarpi sínu, sem var sérstaklega ætlað kristnu fólki í þjónustu ríkis- eru íjölmennir á meðal mótmæl- enda og hafa stjómmálaskýrendur getið sér þess til að með því von- ist hann til þess að reka fleyg á milli þeirra og stjómarandstöð- unnar og ijúfa samstöðuna. ins og í hemum, að svo væri guði fyrir að þakka, að tekist hefði að binda enda á óöldina. Kvaðst hann viss um, að sanntrúað fólk kynni að hafa stjórn á sér en varaði við hópum, sem kyntu undir úlfúð milli trúflokka. Ráðist á Kínveija Um 80% af 200 milljónum íbúa Indónesíu em múslimar en önnur helstu trúarbrögðin njóta fullrar viðurkenningar. Hefur leiðtogi fyöl- mennustu múslimasamtakanna í landinu fordæmt ofbeldið og hvatt til stillingar. Auk þess að ráðast á kirkjur og skóla kristinna manna réðst múgur- inn einnig á verslanir og annað húsnæði í eigu fólks af kínverskum ættum. Er það mjög umsvifamikið í efnahagslífínu og því vinsælt skot- mark ýmissa hópa. Lebed stofnar flokk ALEXANDER Lebed, sem var áður æðsti embættismaður ör- yggismála í Rússlandi, kvaðst í gær hafa stofnað nýjan flokk sem yrði „þriðja aflið“ í rússneskum stjórnmálum. Hann sagði að nokkrir bank- ar, fyrirtæki og auðugir einstaklingar hefðu boðist til að fjármagna flokkinn, sem hann nefnir „Rússneska þjóðar- og repúblikanaflokkinn". „Við ætlum að leita eftir stuðningi lítilla og meðalstórra fyrirtækja, stórra einkafyrir- tækja, hersins, hergagnafram- leiðenda og menntamanna," sagði Lebed og bætti við að nokkra mánuði tæki að ganga frá stefnuskrá flokksins. Frakkar hætta eftir- litsflugi FRAKKAR sögðust í gær ætla að hætta þátttöku í eftirlitsflugi yfir svæðum Kúrda í norður- hluta íraks sem þeir hafa tekið þátt í frá Persaflóastyijöldinni árið 1991. Þeir sögðust hafa ákveðið þetta þar sem Kúrdum stafaði ekki hætta af íraska hemum. Þeir ætla hins vegar að halda áfram að taka þátt í eftirliti yfír suðurhluta Iandsins með Bandaríkjamönnum og Bretum. Havel af sjúkrahúsi VACLAV Havel, forseti Tékk- lands, var útskrifaður af sjúkra- húsi í gær eftir skurðaðgerð vegna lungna- krabbameins 2. desember. Havel dvelst á heimili sínu í Prag og gert er ráð fyrir að hann ávarpi þjóð sína á ný- Havd ársdag en búist er við að ræðan verði styttri en venjulega. IRA hugðist myrða Karl prins ÍRSKI lýðveldisherinn (IRA) hugðist myrða Karl Bretaprins og Díönu prinsessu á rokktón- leikum í Lond- on árið 1983, að sögn New York Times í gær. Blaðið sagði að Sean O’Callaghan, fyrrverandi liðsmanni IRA, hefði verið skipað að koma sprengju fyrir á hóteli hjónanna en hann hefði verið uppljóstrari fyrir lögregl- una og skýrt henni frá áformun- um. Til að koma í veg fyrir að uppljóstrarinn yrði afhjúpaður var því lekið í bresk blöð að O’Callaghan væri eftirlýstur vegna áforma um að myrða breskan ráðherra. O’Callaghan fór þá úr landi og of seint var fyrir IRA að senda annan mann til London. Svipti sjálfa sig og tvær aðrar kon- ur lífi með handsprengjum Skýringin lík- lega geðræn vandamál Frankfurt. Reuter. LÖGREGLAN í Frankfurt í Þýskalandi sagði í fyrradag, að konan, sem svipti sig lífi með handsprengjum og tvær konur aðrar við miðnæturmessu á aðfangadagskvöld, hefði átt við geðræn vandamál að stríða og verið undir læknishendi. Talið er, að konan hafí aðeins ætlað að deyða sjálfa sig en ekki áttað sig á sprengjumætt- inum. Talsmaður lögreglunnar sagði, að konan, sem var 49 ára gömul, hefði skilið fyrir ári og hefði maðurinn hennar fyrr- verandi forræði yfír níu ára gamalli dóttur þeirra. Fyrir sjö árum hefðu þau hjónin orðið fyrir því að 18 ára gamall son- ur þeirra stytti sér aldur með því að kasta sér fyrir lest og hefði konan aldrei náð sér eftir það áfall. „Svo virðist sem hún hafi viljað fylgja syni sínum eftir í dauðann," sagði talsmað- ur lögreglunnar, Manfred Feist, en ungi maðurinn lét lífíð skammt frá kirkjunni þar sem harmleikurinn átti sér stað á jólanótt. Systur létust Tvær konur, systur, 59 og 61 árs að aldri, sátu næstar konunni í kirkjunni, sem er í hverfinu Sindlingen í Frank- furt, og létust þær báðar þegar konan sprengdi tvær hand- sprengjur, sem hún var með innanklæða. Þrettán aðrir kirkjugestir slösuðust og sumir alvarlega, þar á meðal 12 ára gömul stúlka og móðir hennar. Var stúlkan komin yfir það versta í fyrradag en þá var enn tvísýnt um líf móður hennar. Hnipraði sig saman yfir sprengjurnar Konan hafði bundið sprengj- urnar á maga sér og áður en hún sprengdi þær laut hún áfram og hnipraði sig saman þar sem hún sat aftast í kirkj- unni. Þykir það benda til, að hún hafi ekki ætlað að fyrirkoma öðrum en sjálfum sér en ekki áttað sig á hve sprengjurnar voru öflugar. Nokkurn tíma tók að bera kennsl á konuna því sprengingin lék hana svo illa, að engin fíngraför var hægt að taka. Missti hún höfuðið en fólk þekkti hana af andlitsmyndum, sem lögreglan birti. Rannsókn lögreglunnar bein- ist nú að því hvar konan komst yfir handsprengjumar en þær voru líklega framleiddar í Júgó- slavíu. Lögreglan hefur ekki gefíð upp nafn konunnar en dagblaðið Bild sagði, að hún hefði heitið Heidrun-Erika J. en nefndi ekki eftirnafnið. RÚSTIR kaþólskrar kirkju í Tasikmalaya eftir að múslimskur múgur hafði brennt hana til grunna. Að minnsta kosti tvær manneskjur týndu lífi í óeirðunum. Kirkjur kristinna manna brenndar í Indónesíu Suharto hvetur til stillingar Tasikmalaya. Reuter. Karl prins
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.