Morgunblaðið - 28.12.1996, Side 47

Morgunblaðið - 28.12.1996, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1996 47' Frá 1. janúarnk. bera fjármagnstekjur sem ekki stafa af atvinnurekstri 10% tekjuskatt. Skattskyldan nær til allra sem hafa fjármagnstekjur og ekki eru sérstaklega undanþegnir. Staðgreiðsla Frá 1. janúar 1997 verður innheimt staðgreiðsla af arði og vaxtatekjum öðrum en gengishagnaði. Af gengishagnaði, söluhagnaði og leigutekjum er skattur greiddur eftir á. Fj ármagnstekj ur Fjármagnstekjur eru tekjur af eignum, þ.e. söluhagnaður, leigutekjur, arður og vaxtatekjur. Með vaxtatekjum er átt við vexti, verðbætur, afföll, gengishækkun hlutdeildarskírteina og gengishagnað af kröfum og gjaldeyrisreikningum í erlendri mynt. Vaxtatekjur fyrir 1. janúar 1997 Vaxtatekjur sem áfallnar eru fyrir þann tíma falla utan þessarar skattlagningar. Bankar, sparisjóðir, verðbréfafyrirtæki og aðrir umsýslumenn fjármuna draga staðgreiðslu af um leið og vaxtatekjur eru greiddar. Hlutafélög draga staðgreiðsluna frá þegar arður er greiddur. Skatturinn reiknast einungis af vaxtatekjunum, ekki höfuðstólnum. Dæmi: Bankainnstæða, 100.000 kr., ber 2,5% vexti. Vextir reiknast 2.500 kr. og afþeim er dregin 10% staðgreiðsla 250 kr. sem bankinn heldur eftir og skilar í ríkissjóð. Á bankabókina eru lagðar 2.250 kr. Einungis vextir sem falla til eftir 1. janúar 1997 eru skattlagðir. Staðgreiðsla er dregin af vaxtatekjum af kröfum og verðbréfum við afborgun, innlausn eða sölu. Dæmi: Spariskírteini frá 1989 í fyrsta flokki Dað nafnveröi 100.000 kr. erinnleyst á árinu 1997. Innlausnarverðiö er 218.560 kr. Vaxtatekjur sem falla til fyrir 1. janúar 1997 eru ekki skattlagðar. Verðmæti bréfsins 1. janúarer 213.230 kr. Vaxtatekjur sem til falla eftiráramót eru 5.330 kr. Staðgreiðsla er 10% af þeirrí fjárhæö eða 533 kr. Eigandi fær greiddar 218.027 kr. Fjármálastofnunin sem annast innlausn heldur eftir staðgreiðslunni og skilar í ríkissjóð. Staðgreiðsla er dregin af arði þegar hann er greiddur. Dæmi: Maðursemá 1.000.000 kr. hlutabréf fær 50.000 kr. arðgreiðslu. Afarðinum er dregin 10% staðgreiðsla eða 5.000 kr. sem hlutafélagið heldur eftir og skilar í ríkissjóð. Hluthafinn fær greiddar út 45.000 kr. 4 « 4 4 4 4 -I Kvittanir og yfirlit Nauðsynlegt er að varðveita kvittanir og/eða yfirlit þar sem fram koma upplýsingar um afdregna staðgreiðslu. Ef þörf krefur eru þessi gögn sönnun fyrir því að staðgreiðsla hafi verið dregin af fjármagnstekjum. Skráning upplýsinga á verðbréf Þegar verðbréf er selt eða afhent sem greiðsla er mikilvægt að þess sé gætt að skrá á það söludag, söluverð, nafn seljanda og kennitölu hans. Upplýsingabæklingur liggur frammi í öllum bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum. Einnig upplýsingar um hvernig skal reikna verðmæti verðbréfa 1. janúar 1997. RSK RIKISSKATTSTJORI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.