Morgunblaðið - 28.12.1996, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1996 47'
Frá 1. janúarnk. bera fjármagnstekjur sem ekki stafa af atvinnurekstri 10% tekjuskatt.
Skattskyldan nær til allra sem hafa fjármagnstekjur og ekki eru sérstaklega undanþegnir.
Staðgreiðsla
Frá 1. janúar 1997 verður innheimt staðgreiðsla af arði og
vaxtatekjum öðrum en gengishagnaði. Af gengishagnaði,
söluhagnaði og leigutekjum er skattur greiddur eftir á.
Fj ármagnstekj ur
Fjármagnstekjur eru tekjur af eignum, þ.e. söluhagnaður,
leigutekjur, arður og vaxtatekjur. Með vaxtatekjum er átt
við vexti, verðbætur, afföll, gengishækkun
hlutdeildarskírteina og gengishagnað af kröfum og
gjaldeyrisreikningum í erlendri mynt.
Vaxtatekjur fyrir 1. janúar 1997
Vaxtatekjur sem áfallnar eru fyrir þann tíma falla utan
þessarar skattlagningar.
Bankar, sparisjóðir, verðbréfafyrirtæki og aðrir umsýslumenn
fjármuna draga staðgreiðslu af um leið og vaxtatekjur eru
greiddar. Hlutafélög draga staðgreiðsluna frá þegar arður
er greiddur.
Skatturinn reiknast einungis af vaxtatekjunum,
ekki höfuðstólnum.
Dæmi:
Bankainnstæða, 100.000 kr., ber 2,5% vexti. Vextir reiknast 2.500 kr. og
afþeim er dregin 10% staðgreiðsla 250 kr. sem bankinn heldur eftir og
skilar í ríkissjóð. Á bankabókina eru lagðar 2.250 kr.
Einungis vextir sem falla til eftir 1. janúar 1997 eru skattlagðir.
Staðgreiðsla er dregin af vaxtatekjum af kröfum og verðbréfum
við afborgun, innlausn eða sölu.
Dæmi:
Spariskírteini frá 1989 í fyrsta flokki Dað nafnveröi 100.000 kr. erinnleyst
á árinu 1997. Innlausnarverðiö er 218.560 kr. Vaxtatekjur sem falla til
fyrir 1. janúar 1997 eru ekki skattlagðar. Verðmæti bréfsins 1. janúarer
213.230 kr. Vaxtatekjur sem til falla eftiráramót eru 5.330 kr. Staðgreiðsla
er 10% af þeirrí fjárhæö eða 533 kr. Eigandi fær greiddar 218.027 kr.
Fjármálastofnunin sem annast innlausn heldur eftir staðgreiðslunni
og skilar í ríkissjóð.
Staðgreiðsla er dregin af arði þegar hann er greiddur.
Dæmi:
Maðursemá 1.000.000 kr. hlutabréf fær 50.000 kr. arðgreiðslu.
Afarðinum er dregin 10% staðgreiðsla eða 5.000 kr. sem hlutafélagið
heldur eftir og skilar í ríkissjóð. Hluthafinn fær greiddar út 45.000 kr.
4
«
4
4
4
4
-I
Kvittanir og yfirlit
Nauðsynlegt er að varðveita kvittanir og/eða yfirlit þar sem
fram koma upplýsingar um afdregna staðgreiðslu. Ef þörf
krefur eru þessi gögn sönnun fyrir því að staðgreiðsla hafi
verið dregin af fjármagnstekjum.
Skráning upplýsinga á verðbréf
Þegar verðbréf er selt eða afhent sem greiðsla er mikilvægt
að þess sé gætt að skrá á það söludag, söluverð, nafn
seljanda og kennitölu hans.
Upplýsingabæklingur liggur frammi í öllum bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
Einnig upplýsingar um hvernig skal reikna verðmæti verðbréfa 1. janúar 1997.
RSK
RIKISSKATTSTJORI