Morgunblaðið - 03.01.1997, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Þýzkir
jafnaðar-
menn deila
umEMU
Bonn. Reuter.
ESB-RIKI SKIPTAST A UM FORSÆTIÐ
Aðildarríki Evrópusambandsins skiptast á um að gegna forsæti í
ráðherraráði sambandsins, hálft ár í senn. írland skilaði af sér
forsætinu um áramótin í hendur Hollands. Hollendinga bíður það
verkefni að stýra lokaspretti ríkjaráðstefnu ESB og halda áfram
undirbúningi fyrir gildistöku Efnahags- og myntbandalagsins (EMU).
Belgía
júlí-des.
2001
Svíþjóö
jan.-júní
2001
Austurríki
júlí-des.
1998
Þýskaland
jan.-júní
1999
REUTERS
OSKAR Lafontaine, formaður
þýzka Jafnaðarmannaflokksins
(SPD), gaf fyrr í vikunni út skýr-
ustu stuðningsyfirlýsingu við
áformin um
Efnahags- og
myntbandalag
Evrópu (EMU),
sem komið hefur
frá forystu
flokksins. La-
fontaine setur
með þessu ofan
í við Gerhard
Schröder, for-
sætisráðherra
Neðra-Saxlands
og einn skæð-
asta keppinaut
Lafontaines um
útnefningu sem
kanzlaraefni
flokksins í kosn-
ingum á næsta ári, en hann hefur
látið í ljós miklar efasemdir um
EMU-áformin.
„Við erum fylgjandi Efnahags-
og myntbandalagi vegna þess að
það mun auka hagvöxt, atvinnu
og stöðugleika í öllum aðildarríkj-
unum,“ segir Lafontaine í grein,
sem hann ritaði í viðskiptablaðið
Handelsblatt.
Ummæli hans
eru talin til
merkis um að
undir forystu
Lafontaines
muni SPD ekki
gera ágreining
við stjórn Helm-
uts Kohl kanzl-
ara, sem leggur
ofuráherzlu á að
EMU taki gildi í
ársbyijun 1999,
og ekki heldur
gera EMU að
kosningamáli í
þingkosningun-
um á næsta ári.
Lafontaine segir að ekki megi
víkja frá núverandi áætlun um
gildistöku EMU; slíkt myndi að-
eins hægja á efnahagslegum sam-
runa innan Evrópusambandsins.
Hann bætir við: „Það myndi hafa
víðtækar pólitískar afleiðingar að
kasta fyrir róða áætluninni, sem
[Maastrichtjsáttmálinn kveður á
um. Það myndi valda kreppu í
gervöllu Evrópusambandinu."
Stjórnmálaskýrendur segja að
með greininni hafi Lafontaine sett
ofan í við Schröder og staðfest að
hin opinbera stefna SPD hvað
EMU varðar sé í meginatriðum
sú sama og ríkisstjórnar Kohls.
Efasemdir um EMU gætu
skilað SPD fleiri atkvæðum
Schröder sagði í viðtali við tíma-
ritið Focus fyrr í vikunni að SPD
ætti ekki að samþykkja EMU fyrr
en tilhögun myntbandalagsins
lægi endanlega fyrir. Ef sú tilhög-
un væri Þýzkalandi ekki í hag,
ætti að hafna henni.
Schröder sagði að þýzka markið
væri „fyrir Vestur-Þjóðveija tákn
endurfæðingar þeirra úr rústum
fasismans og fyrir Austur-Þjóð-
veija tákn um einhvers konar von
um góð lífskjör og frelsi." Hann
bætti við að hann myndi gera
EMU að kosningamáli á næsta ári
ef hann fengi brautargengi sem
kanzlaraefni SPD.
Jafnaðarmannaflokkurinn hef-
ur enn ekki valið kanzlaraefni.
Telja má líklegt til árangurs á
atkvæðaveiðum að velja leiðtoga,
sem hefur efasemdir um EMU,
því að meira en hálf þýzka þjóðin
segist í skoðanakönnunum andvíg
EMU og hrædd um að hið nýja
evró verði ekki jafnstöðugt og
þýzka markið. Þrátt fyrir þetta
nýtur Schröder ekki almenns
stuðnings í flokknum.
EMU svar við alþjóðavæðingu
og erlendri samkeppni
Lafontaine reyndi í grein sinni
að höfða til verkalýðshreyfingar-
innar með því að segja að EMU
væri hluti af nauðsynlegum við-
brögðum við alþjóðavæðingu efna-
hagsmála og erlendri samkeppni,
sem ógnaði atvinnu Þjóðveija.
„Þeir, sem halda að Þýzkaland
geti unnið gengisfellingarkeppni
um það hvaða land geti borgað
lægstu raunlaunin, haft lægstu
fyrirtækjaskattana og slökustu
velferðar- og umhverfískröfurnar,
hafa misskilið heimsmarkaðinn,"
skrifar Lafontaine. „Svarið við al-
þjóðavæðingu efnahagslífs er ekki
stefnumótun á vettvangi þjóðríkis-
ins, heldur aukið alþjóðlegt sam-
starf. Fyrir okkur Þjóðveija þýðir
þetta fyrst og fremst: Við þurfum
á EMU að halda sem samræmdri
stefnu aðildarríkjanna með það að
markmiði að tryggja lífskjör, hæfí-
legan og stöðugan hagvöxt, hátt
atvinnustig, viðskiptajöfnuð og
stöðugan gja!dmiðii.“
Langur laugavegur og nágrenni
Gleðilegt nfll ár
UTSALA - UTSALA
Lokað í dag - útsalan hefst á morgun, langan laugardag
Allt á að seljast. Verslunin hættir
afsláttur af öllum
kngan langar dag
vorum
Versuin Laucavegi 83
Revkjavík
Opið laugardag kl. 10—18 og sunnudag kl. 13—18
b
enellon
Laugavegi 97, sími 552 2555
1
m
■ .
DJÁSN OG ^
GRÆNIR SKÓGAR
. SKÓLAVÖRÐUSTÍGI 21.
■w SfMI 552 5100
551-4301
r
Oskum
viðskiptavinum
okkar og
landsmönnum
öllum farsældar
á nýju ári.
Þökkum viðskiptin