Morgunblaðið - 03.01.1997, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1997 27
ERLEIMT
Neitar að
skrifa
undir
MICHAL Kovac, forseti Slóv-
akíu, neitar að skrifa undir
umdeild lög um undirróður
gegn ríkinu en Evrópusam-
bandið, ESB, og Bandaríkin
hafa gagnrýnt þau sem and-
lýðræðisleg. Skýrði talsmaður
forsetans frá þessu í gær en
lögin, sem minna á sams kon-
ar lög á tímum kommúnista,
kveða á um bann við að skipu-
leggja mótmæli gegn stjórn-
völdum og öðrum aðgerðum
gegn ríkinu. Kovac neitaði að
undirrita sams konar lög á síð-
asta ári en ríkisstjórn Vladim-
irs Meciars lagði þau fram
öðru sinni, lítið breytt. Beinast
þau aðallega gegn kröfum
ungverska minnihlutans í
landinu, 600.000 manns, um
menningarlegt sjálfstæði.
„Styijöld“ í
Búdapest
OFBELDIÐ í undirheimum
Búpapest í Ungverjalandi hefur
slegið öll fyrri met að sögn lög-
reglunnar þar en á nýársnótt
var skriðdrekabyssu beint gegn
samkvæmi, sem eigendur og
starfsfólk næturklúbbs efndu
til. Svo vel vildi til, að sprengj-
an sprakk ekki en talið er, að
hún hefði annars orðið ijölda
manns að bana. Mikið hefur
verið um árásir á næturklúbba
og slíka staði að undanfömu.
Ekki mynd
um West
TALSMAÐUR breska fyrir-
tækisins Portman Entertain-
ment Group sagði í gær, að
það hefði engin áform um að
gera kvikmynd um ævi fjölda-
morðingjanna Fred og Rose-
mary West. Tilefnið var, að
lögskipaður skiptaráðandi í búi
þeirra seldi fyrirtækinu réttinn
til að gera um þau kvikmynd
en það hefur valdið mikilli
hneykslan um allt land. Hefur
ríkisstjórnin heitið að endur-
skoða lög um valdsvið skipta-
ráðenda.
Tapie sakað-
ur um mútur
FRANSKA blaðið Le Monde
sagði í gær að knattspyrnufé-
lagið Marseille hefði notað
rúman millj-
arð króna til
að múta leik-
mönnum ann-
arra liða á ár-
unum 1987-
1993 og hag-
ræða þannig
úrslitum
leikja. Fjár-
mála- og stjórnmálamaðurinn
Bernard Tapie var stjórnar-
formaður félagsins.
Loftárásir á
Kúrda
TYRKIR gerðu loftárásir á
búðir kúrdískra skæruliða í
Norður-írak í gær og tyrk-
neskar hersveitir héldu áfram
sókn gegn þeim á landi. Segj-
ast Tyrkir hafa fellt 72 skæru-
liða síðan á mánudag og að-
eins misst tvo hermenn sjálfir.
Meira en 12.000 manns hafa
fallið í þessu stríði Tyrkja og
Kúrda síðustu 12 árin.
Ríkisfjölmiðlarnir í Serbíu undir hæl Slobodans Milosevic forseta
Reynt að kæfa mótmæli með þögn
Belgrad. Reuter.
RÍKISSJÓNVARPIÐ í Serbíu,
RTS, hélt uppteknum hætti um
áramótin og skýrði ekki frá fjölda-
fundi stjórnarandstæðinga í mið-
borg Belgrad á gamlárskvöld. Talið
er að fundurinn hafi verið sá fjöl-
mennasti frá upphafi mótmælanna
fyrir nær 50 dögum, alls hafi
250.000 manns verið á götunum.
Sjónvarpið sagði að „nokkrir
Belgrad-búar“ hefðu komið saman
og fagnað áramótunum en sýndi
myndir frá hefðbundnum fjölda-
samkomum í New York, London
og fleiri milljónaborgum í öðrum
löndum.
„RTS er helsti framleiðandi
skáldskapar í landinu okkar,“ sagði
einn af mótmælendunum í Belgrad.
Slobodan Milosevic forseti lét á
aðfangadag flytja tugþúsundir
stuðningsmanna sinna frá sveita-
héruðum til Belgrad til að láta þá
taka þátt í aðgerðum til stuðnings
sér og stjórn sinni. Ætlunin var að
hundruð þúsunda manna yrðu á
götunum en stjórnarandstæðingar
voru langtum fjölmennari og kom
til slagsmála þar sem einn lét lífið.
„Hvað er að gerast?“ spurði elli-
lífeyrisþegi örvæntingarfullur er
hún sá þúsundir stjórnarandstæð-
inga ganga í fylkingu í áttina til
sín. „Eg vissi ekki að nokkur væri
óánægður með ríkisstjórnina okk-
ar. Enginn sagði okkur að hér
gæti komið til vandræða."
Stjórnarandstæðingar segja að
hugmynd Milosevic muni hafa allt
önnur áhrif en hann hugði, fólkið
sem sent var til höfuðborgarinnar
hafi nú sagt grönnum sínum frá
því sem sé að gerast í Belgrad og
tíðindin breiðist út um landið. Sjálf-
stæða timaritið Vreme, sem túlkar
sjónarmið stjórnarandstöðunnar,
berst lítið til sveitahéraðanna og
sendingar útvarpsstöðvarinnar
B-92 ná aðeins til Belgrad og næsta
nágrennis.
Upplag Vreme hefur tvöfaldast
á skömmum tíma, er nú um 60.000
og talið er að 700.000 til ein millj-
ón manna hlusti á B-92 að stað-
aldri, áður voru hlustendur um
300.000.
Ingvar Helgason hf. og
Bílheimar ehf. bjóða uppá
rekstrarleigu nýrra bifreiða.
Komið og fáið allar nánari upplýsingar hjá sölumönnum
Ingvars Helgasonar hf. og Bilheima ehf.
y Engin útborgun aðeins mánaðarlegar afborganir.
✓ Fjármagn er ekki bundið í bifreið.
✓ Engin áhætta vegna endursölu bifreiðar.
✓ Hefðbundið viðhald og þjónusta er innifalin.
✓ Reglulega er skipt um bifreið svo alltaf er ekið
á nýrri bifreið.
/ Leigugreiðslur með vsk frádráttabærar frá
tekjuskatti og vsk fæst endurgreiddur.
©Helgason hf.
Sími 525 8000
Bilheimar ehf
Scevarhöfba 2a Sími:525 9000