Morgunblaðið - 07.02.1997, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hæstiréttur
Skilorðs-
bundinn
dómur fyrir
misnotkun
Þriðja veltan sl. 3 ár
Fagradal. Morgunblaðið.
FLUTNINGABIFREIÐ frá
Austfrakt fullhiaðin kjöti og fiski
fór út af veginum fyrir framan
Víkurskála í Vík í Mýrdal á mið-
vikudagskvöld. Þetta er þriðja
veltan á jafnmörgum árum sem
þessi bíll lendir í.
Bíllinn var að koma frá Aust-
fjörðum á leið til Reykjavíkur.
Þegar bílstjórinn ætlaði að stöðva
við Víkurskála, virðist sem hemlar
tengivagnsins hafi gripið fyrr en
hemlar bílsins með þeim afleiðing-
um að bíllinn snerist og vait í
brattan vegkantinn en mikil hálka
var á veginum og rok í éljum.
Bílstjórinn slapp nær ómeiddur
en bíllinn var á mjög lítilli ferð
þegar hann valt. Við fyrstu athug-
un virðist bíllinn mikið skemmdur
ef ekki ónýtur. Vika er síðan
tengivagninn kom úr viðgerð sem
kostaði u.þ.b. 2 milljónir kr.
Björgunarsveitarmenn í Vík
voru kallaðir til aðstoðar við að
afferma bílinn svo hægt væri að
rétta hann við. Farmurinn virðist
nær óskemmdur.
BJÖRGUNARSVEITARMENN úr Vík aðstoða við að afferma bilinn.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Sagði si g úr
nefnd vegna
þóknunarinnar
MAGNÚS Thoroddsen hæsta-
réttarlögmaður hefur sagt af sér
sem formaður úrskurðarnefndar
um hollustuhætti. Ástæðan er sú
að reikningur sem Magnús setti
upp fyrir sín störf innan nefndar-
innar samkvæmt sinni gjaldskrá
var ekki viðurkenndur. Þess í
stað var þóknun hans úrskurðuð
af þóknunarnefnd og við svo
búið sagði Magnús af sér. Nýr
formaður hefur verið skipaður
Sigurmar Albertsson hæstarétt-
arlögmaður.
„Þetta var úrskurðað af
þóknunamefnd rétt eins og þegar
verið er að úrskurða um þóknun
til opinberra starfsmanna sem
vinna í nefndum í vinnutímanum
á fullu kaupi. Ég sætti mig ekki
við þetta,“ sagði Magnús.
Sigurmar var skipaður formað-
ur nefndarinnar 24. janúar sl.
Formaður er tilnefndur af Hæsta-
rétti og umhverfisráðherra skipar
í stöðuna.
Kærunefnd
Úrskurðarnefndin tekur til um-
fjöllunar mál sem stjórn Hollustu-
verndar ríkisins hefur fjallað um
áður. Nefndin er kærunefnd sam-
kvæmt lögum um hollustuhætti
og heilbrigðiseftirlit.
Magnús hafði verið formaður
nefndarinnar frá 1992 og kveðst
hann hafa fengið greitt fyrir sín
störf samkvæmt uppsettum reikn-
ingi fram að því að nefndin flutt-
ist frá heilbrigðisráðuneyti til um-
hverfisráðuneytis.
HÆ STIRÉTTUR dæmdi í gær mann
í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir kynferðislega misnotkun á
fimm ára dóttur sinni. Maðurinn
hafði verið dæmdur í átta mánaða
fangelsi í héraðsdómi fyrir brot sitt.
Mál þetta kom upp þegar stúlkan
sagði starfsmanni leikskóla sögu
sína og síðar endurtók hún frásögn
um kynferðislega tilburði af hálfu
föðurins, m.a. í viðtölum við sálfræð-
inga. í dómi Hæstaréttar kemur
fram að ákærði hefur staðfastlega
neitað þeim ásökunum sem á hann
eru bornar í ákæru og móðir stúlk-
unnar kveðst aldrei hafa orðið neins
vör sem bendi til þess að þetta geti
verið rétt. Séu samskipti ákærða og
barna hans mjög góð og dóttir þeirra
hænd að honum.
Hæstiréttur kemst að þeirri niður-
stöðu að staðfesta beri héraðsdóm
varðandi sakarmat að öðru leyti en
því, að óvarlegt þyki að fullyrða að
verknaðurinn sem ákærða sé gefinn
að sök hafi verið framinn utan einu
sinni. Fram kemur að foreldrar
stúlkunnar hafi búið saman án þess
að hegðan hennar beri merki annars
en að hún búi við gott atlæti, en
viðkomandi yfirvöld hafi haft að-
stöðu til að fylgjast með henni. Seg-
ir í dómi Hæstaréttar að með hlið-
sjón af aðstæðum og tilvísun til
framangreinds um hagi ákærða og
dóttur hans þyki mega skilorðsbinda
refsingu hans.
Mál þetta dæmdu hæstaréttar-
dómararnir Haraldur Henrysson,
Guðrún Erlendsdóttir, Hjörtur
Torfason, Hrafn Bragason og Pétur
Kr. Hafstein.
Framsoknarflokkur
styður ekki stefnu
sljórnar ÁTVR
FRAMSÓKNARFLOKKURINN mun
ekki styðja stefnu stjómar ÁTVR
um sölu á áfengi og tóbaki, að því
er fram kom í máli Guðna Ágústsson-
ar, þingmanns Framsóknarflokksins,
í utandagskrárumræðum á Alþingi í
gær. Skiptar skoðanir voru um málið
í umræðunum meðal annarra þing-
manna. Guðni sagði að ef fjármála-
ráðherra styddi stefnu stjómar
ÁTVR gerði hann það af óbilgirni
og gegn stefnu ríkisstjórnarinnar í
áfengis- og tóbaksmálum sem kynnt
var í desember.
Guðni sagði að tillögur um verð-
lækkun á léttum vínum og bjór
stefndu að aukinni_ sölu á áfengi.
Lækkað verð frá ÁTVR þyrfti þó
ekki að skila sér í lækkuðu verði til
neytenda því álagning væri fijáls á
veitingastöðum. Guðni sagði að
stjórn ÁTVR hefði algjörlega mis-
skilið hlutverk sitt og það væri ekki
á dagskrá Framsóknarflokksins að
leggja niður ÁTVR eins og stjórn
fyrirtækisins boðaði.
„Hér verður engin glundroða-
stefna keyrð í gegnum þingið. Fram-
sóknarflokkurinn mun koma að
þessu máli stefnufastur og öruggur
og ég trúi því að hér náist fram far-
sæl lausn sem sátt náist um,“ sagði
Guðni.
Alvarlegasta
heilbrigðisvandamál heims
Steingrímur J. Sigfússon, þing-
maður Alþýðubandalagsins, sem hóf
umræðuna, sagði að tillögurnar
vektu upp spurningar um stefnu rík-
isstjórnarinnar í forvamamálum.
„Hvaða stöðu telur hæstvirtur fjár-
málaráðherra að þessi tillögugerð
hafi í samhengi við verksvið heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra
um forvamir og þá áætlun sem í
gildi er um að draga úr áfengisnotk-
un?“ sagði Steingrímur.
Hann sagði að svo virtist sem sum-
ir þingmenn gerðu sér það ekki ljóst
að ofnotkun áfengis og tóbaksreyk-
inga væri alvarlegasta heilbrigðis-
vandamál heimsins. Hann sagði að
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
hefði ítrekað á undanförnum árum
hvatt ríkisstjórnir heims til þess að
taka sér aðhaldssama stefnu Norður-
landanna, einkum Svíþjóðar, Noregs
og íslands til fyrirmyndar, vegna
þess að þessum þjóðum hefði tekist
með miklu forvarnastarfi og að-
haldssamri stefnu að ná meiri ár-
angri í baráttu við þetta vandamál
en nokkrum öðrum þjóðum í heimin-
um.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra sagði að fylgt hefði verið stefnu
sem mótuð hefði verið fyrir tíu árum
um að semja við aðila um að reka
útsöluverslanir ÁTVR og það væri
gert víða um landið. Á næstunni
mætti búast við því að verslanir yrðu
opnaðar í Kópavogi og á Patreksfirði
og yrðu þá tíu af 26 útsölustöðum
sem væru í rekstri einkaaðila.
„Ég er þeirrar skoðunar að það
þurfi að endurskoða hvort vöruverðið
þurfi endanlega að vera það sama
allstaðar. Mér finnst koma til greina
að sett verði mörk svo að um há-
marks- og lágmarksverð verði að
ræða í þeim tilgangi að hægt sé að
móta stefnuna betur, opna verslanir
og bæta þjónustuna víðar en hægt
er ef ætlunin er einungis að ná há-
marksarði af fyrirtækinu sem þó er
eitt aðalatriðið í rekstri þess,“ sagði
Friðrik.
Hann sagði að fjármálaráðuneytið
ætti aðild að vinnu að stefnu ráðu-
neytanna í forvamamálum. „Það
verður séð til þess að sú stefna sem
ríkisstjórnin tekur í málefnum ÁTVR
stangist ekki á við það sem kemur
fram í yfirlýstri stefnu ríkisstjórnar-
innar frá því í desember um forvarna-
mál,“ sagði Friðrik.
Ögmundur Jónasson, þingmaður
Alþýðubandalags, sagði að ástæða
þess að hægt væri að selja smyglað
áfengi á veitingastöðum og víðar án
þess að ríkissjóður fengi nokkuð í
sinn hlut, væri sú að fjármálaráð-
herra hefði afnumið merkingar á
áfengisflöskur.
„Það er ekki nokkur leið að fylgj-
ast með því að smyglað áfengi flæði
um sali veitingahúsa um land allt í
skjóli fjármálaráðherra því hann
beitti sér fyrir því að merkingar voru
afnumdar.“
Ögmundur sagði að sumir teldu
að tap ríkissjóðs vegna sölu á smygl-
uðu áfengi I veitingahúsum næmi
allt að 250 milljónum króna sem er
helmingurinn af öllu fjármagni sem
rennur til forvarnamála á íslandi.
Fj'árveiting til Vetraríþróttamið-
stöðar Islands á Akureyri
Fær 150 millj-
ónir á 5 árum
NÚ hillir undir að Vetraríþrótt-
amiðstöð íslands á Akureyri fái
umtalsvert fjármagn til fram-
kvæmda á næstu árum.
Að sögn Guðmundar Stefáns-
son, bæjarfulltrúa Framsóknar-
flokksins, voru ríkisstjórninni
nýlega kynnt drög að samkomu-
lagi, varðandi fjárveitingar til
Vetraríþróttamiðstöðvarinnar.
Þar er gert ráð fyrir að Akur-
eyrarbær greiði 100 milljónir
króna til verkefnisins á árunum
1998-2002, ef ríkið greiðir á
móti 50 milljónir króna á sama
tímabili.
Guðmundur segir að ríkis-
stjórnin hafí samþykkt að leggja
fram þessar 50 milljónir á áður-
nefndu tímabili en eftir er að
ganga formlega frá málinu af
hálfu bæjarins. „Ríkið fer vænt-
anlega að greiða til Vetrar-
íþróttamiðstöðvarinnar strax á
næsta ári en bærinn byijar ekki
að borga fyrr en árið 2000 og
mun þá borga sína upphæð á
þremur árum.“
Guðmundur segir að í upp-
hafi sé hugmyndin að gera
samning við Skautafélag Akur-
eyrar í haust um að byggja yfir
skautasvell félagsins við Kró-
keyri. „Stjórn Vetraríþróttamið-
stöðvarinnar mun svo gera til-
lögur til bæjarstjómar um frek-
ari ráðstöfun fjárins.“