Morgunblaðið - 07.02.1997, Page 12

Morgunblaðið - 07.02.1997, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sjómælingar íslands vara við mikilli sjávarhæð við stórstreymi Nauðsynlegt að fylgj- ast vel með veðurspá Sjávarflóð í Reykjavík 26. janúar tiM 1. febrúar 1997 Mesta flóðhæð 4,7 metrar kl. 7:37 Deilt um kynn- ingu á stóriðju- möguleikum SPÁÐ er allt að 4,7 metra flóðhæð áttunda til tíunda febrúar næst- komandi, sem er mesta reiknanleg flóðhæð fyrir Reykjavík, en þar er meðalstórstraumsflóð 4,0 metr- ar. Sjómælingar íslands vekja sér- staka athygli á þessari miklu sjáv- arhæð og benda á nauðsyn þess að fylgjast vel með veðri samfara stórstreymi í þeim höfnum og á þeim stöðum sem þekktir eru fyrir flóðahættu, eins og víða er við strendur Suður- og Suðvestur- lands. Eitt millibar breytir flóðahæð um sentímetra í flóðaspá Sjómælinga íslands er miðað við meðalioftþrýsting, sem er um 1.013 millibör við yfir- borð sjávar, og kemur frávik frá meðalloftþrýstingi fram í flóðhæð til aukningar við lægri loftþrýsting og Öfugt. Reiknað er með að eitt millibar breyti flóðhæð um einn senti- metra. Langvarandi hafáttir geta einnig aukið flóðhæð. Flóðhæð gæti orðið um fimm metrar á þriðjudagsmorgun Guðmundur Hafsteinsson, veð- urfræðingur á Veðurstofu íslands, segir útlit fyrir tiltölulega rólegt veður og sæmilega háan loftþrýst- ing að morgni sunnudagsins 9. febrúar þegar spáð er 4,7 metra flóðhæð, þannig að þann dag sé ekki ástæða til að óttast flóð. „Hins vegar benda spár til þess að nokkuð djúp lægð fari norður yfir austanvert landið á mánudag- inn og það er rétt að fylgjast mjög vel með því hvernig henni reiðir af, það er hvort hún verður eins djúp og nú lítur út fyrir, eða ná- lægt 950 miilibörum. Eins og horf- ir nú gæti orðið hvöss norðanátt á Norðurlandi aðfaranótt þriðju- dagsins og því helst ástæða til að vera á varðbergi þá,“ segir Guð- mundur. Búist er við 60 sentímetra hækkun Sé gert ráð fyrir því að 950 millibara djúp lægð fari yfir landið á þriðjudagsmorgun bætast sam- kvæmt áðurnefndri reiknireglu um það bil 60 sentimetrar við áætlaða flóðhæð, sem er 4,4 metrar klukk- an 9.05, og yrði því um 5,0 metr- ar. Guðmundur segir þó ástæðu til að slá marga varnagla, þar sem veðurspá geti enn breyst. NOKKRAR deilur spunnust á Al- þingi í fyrradag um hvernig staðið hefði verið að kynningu á íslandi fyrir erlenda íjárfesta á sviði stór- iðju. Hjörleifur Guttormsson, þing- maður Alþýðubandalags og óháðra, gerði í utandagskrárum- ræðu að umtalsefni bækling Mark- aðsskrifstofu iðnaðarráðuneytisins og Landsvirkjunar, MIL, frá því í janúar 1995 og sagði að þar væri því haldið fram að hér á landi stæði til boða lægsta orkuverð í Evrópu, einhver lægsti launakostnaður, lægstu skattar á fyrirtæki og að hér gætu erlend fyrirtæki gengið í umhverfisvænar orkulindir hindr- analítið af skriffinnsku og leyfis- veitingum. Rétt sagt frá aðstæðum á Islandi Finnur Ingólfsson iðnaðarráð- herra sagði að umræddur bækling- ur Markaðsskrifstofu iðnaðarráðu- neytisins og Landsvirkjunar væri ágætis kynningarrit fyrir Island og í honum væri sagt bæði satt og rétt frá um aðstæður á íslandi þegar bæklingurinn var gefinn út. Sagði hann að um staðhæfingar um orkuverð á útsölu væri það að segja að samningar um orkusölu til stóriðju hefðu bætt hag Lands- virkjunar mjög mikið og átta millj- arða króna hagnaður væri af nýj- um samningi við Isal og þetta leiddi til þess að orkuverð í landinu gæti lækkað. Þá sagði iðnaðarráð- herra það alrangt að verið væri að lofa erlendum fyrirtækjum starfsleyfi með lágmarks mengun- arkröfum. Ástæðulaust að gera starfsemi MIL tortryggilega Margir þingmenn blönduðu sér í umræðuna og sagði Geir H. Ha- arde, formaður þingflokks Sjálf- stæðisflokks, að fullkomlega ástæðulaust væri að gera starfsemi Markaðsskrifstofunnar tortryggi- lega. Skrifstofan hefði starfað ötul- lega að markmiðum sínum en því miður hefði ekki tekist eins og vonast hafí verið til að draga hing- að erlenda fjárfesta til samstarfs. Steingrímur J. Sigfússon, þing- maður Alþýðubandalags og óháðra, sagði að spurningar um samningsstöðu um orkuverð hlytu að vakna þegar boðið væri upp á lægsta orkuverð í Evrópu, og sagði hann að með þessu lagi væru menn að leggja af stað á hnjánum ' í hvaða samningaviðræður sem ) vera skyldi. Samið við Friðþjóf hf. á Eskifirði Lægra álag fyr- ir frysta loðnu FRIÐÞJÓFUR hf. á Eskifírði og Verkalýðsfélagið Árvakur hafa undirritað vinnustaða- samning sem tekur til vinnu við loðnufrystingu. Sigurður Ingvarsson, formaður Árvak- urs, segir að samningurinn feli ekki í sér kauphækkun frá eldri samningi. Breytingar á vaktatilhögun Sigurður sagði að samning- urinn fjallaði um ýmis atriði varðandi vinnutilhögun í Frið- þjófi og einkum varðandi vinnu við loðnuvinnslu, sem fyrirtækið hefur lítið verið í fram að þessu. Hann sagði að samið hefði verið um álag fyrir frysta loðnu, sem væri 250 kr. á tím- ann fyrir loðnu á Rússlands- markað og 300 kr. fyrir verð- mætari loðnu. Jafnframt hefði verið samið um að breyta vin- nutíma á þann veg að í stað 8-10 tíma vakta yrði unnið á tveimur 11 tíma vöktum. Féllust ekki á óbreyttan samning Sigurður sagði að það álag sem samið hefði verið um í loðnufrystingu væri heldur lægra en sá taxti sem unnið var eftir samkvæmt eldri samningi. Forsvarsmenn Samherja, sem nýlega keyptu sig inn í rekstur Friðþjófs, hefðu ekki fallist á óbreyttan samning. Slæmt ástand bygginga Sjúkrahúss Reykjavíkur Endurbætur á öldr- unardeild gengu fyrir RÍKIÐ hefur veitt verulegt fjár- magn til endurbóta á öldrunardeild Sjúkrahúss Reykjavíkur að Landa- koti á þessu ári eða um 120 milljónir króna. Ingibjörg Pálma- dóttir heilbrigðisráðherra segir því óhjákvæmilegt að önnur meiri- háttar viðhaldsverkefni sjúkra- hússins verði út undan. Elstu byggingar Sjúkrahúss Reykjavíkur eru illa farnar og lek- ur jafnvel inn á gjörgæsludeild í mikilli rigningu. Fram kom hjá Ólafi Erni Arnarsyni lækni að fjár- framlag ríkisins til viðhaldsverk- efna sjúkrahússins hefði ekki verið hækkað undanfarin ár. Sam- kvæmt lögum um heilbrigðisþjón- ustu ber hlutaðeigandi sveitarfé- lagi að greiða 15% af framlagi ríkissjóðs til meiriháttar viðhalds og tækjakaupa sjúkrahúsa, en rekstrarkostnaður er einungis greiddur af ríkinu. Að sögn Kristínar Á. Ólafsdótt- ur formanns stjórnar Sjúkrahúss Reykjavíkur er reglan því sú að ríkið ákveður í fjárlögum þá upp- hæð sem fer til viðhalds Sjúkra- húss Reykjavíkur en við það fram- lag bætist sjálfkrafa 15% frá Reykjavíkurborg. Þannig sé það í raun ríkið sem ráði upphæð fram- lags til viðhaldsverkefna. Skyldan er fyrst og fremst við sjúídingana Kristín segir ennfremur í sam- tali við Morgunblaðið að stjórnend- ur Sjúkrahúss Reykjavíkur hafi margoft gert þingmönnum ítar- lega grein fyrir fjárþörf sjúkra- hússins á undanförnum árum, nú síðast á fundi með þeim í nóvem- ber. „En því miður höfum við ekki fengið það fé á fjárlögum þessa árs sem þyrfti til að koma húsun- um í eðlilegt horf,“ segir hún. Aðspurð um það hvort komið hafi til álita stjórnar að færa fé frá öðrum kostnaðarliðum sjúkra- hússins til viðhaldsverkefnanna segir hún að það hafi alls ekki komið til greina. „Þótt við höfum þungar áhyggjur af ástandi hús- anna er skylda okkar fyrst og fremst sú að sinna þeim sjúku sem koma á spítalann, en eins og kunnugt er hefur einnig skort fé til að gera það eins og við vildum.“ Gísli Hermannsson forstöðu- maður rekstrar- og viðhaldssviðs Sjúkrahúss Reykjavíkur segir að sú fjárhæð sem spítalinn hafi til viðhaldsverkefna á þessu ári dugi einungis til nauðsynlegs viðhalds á spítalanum innanhúss. „Við veigrum okkur við að fara út í dýrar framkvæmdir utanhúss á meðan við sjáum ekki fram á að hafa fjármagn til að klára þær.“ Aðalræðis- maðurlslands [ heiðraður \ í New York • STURLA Siguijónsson, aðal- ræðismaður Islands í New York, New Jersey, Connecticut og Rhode Island, var heiðraður af Ameríska-norr- k æna félaginu í New York, í * húsakynnum Landkönnuðar- félagsins, á dög- unum í tilefni þess að hann hefur nýtekið við starfi aðalræðismanns. Sturla hefur gegnt ýmsum | störfum fyrir utanríkisþjónustuna undanfarin ár, en auk þess að gegna starfi aðalræðismanns er | hann sendiráðunautur fastanefnd- ar íslands hjá Sameinuðu þjóðun- um. Hann er kvæntur Elínu Jóns- dóttur og eiga þau fjögur börn. Tíðindalítill fundur Verkamannasambands og vinnuveitenda hjá ríkissáttasemjara Rætt um launa- lið eftir helgi BJÖRN Grétar Sveinsson, formað- ur Verkamannasambands íslands, segir að á samningafundi vinnu- veitenda og sambandsins í næstu viku verði látið reyna á hvort ein- hver grundvöllur sé fyrir sam- komulagi um launalið samninga. Deiluaðilar ræddust við á fundi hjá ríkissáttasemjara í gærdag og var fundurinn tíðindalítill, að sögn Björns Grétars. Vinnuveitendur hafa ekki boðað nýjar tillögur Björn Grétar sagði að vinnuveit- endur hefðu ekki boðað að þeir myndu leggja fram nýjar tillögur á næsta samningafundi. Menn hefðu hins vegar orðið sammála um það í gær að gera alvarlega tilraun til að takast á við launalið samninga á næsta fundi. Hann sagði að ef ekkert gerðist á þeim fundi hlytu félögin að þurfa að endurmeta stöðu málanna og ræða baráttuaðferðir í sínu bak- landi. Formenn landssambanda Al- þýðusambands íslands hafa enn ekki gengið formlega frá kröfu- gerð á hendur stjórnvöldum. Áherslumunur á milli landssambandanna Áherslumunur hefur verið milli landssambandanna um kröfurnar. Verkamannasamband íslands hefur viljað leggja alla áherslu á að knýja fram launahækkanir félagsmanna í viðræðum við vinnuveitendur sína, en Samiðn og Rafiðnaðarsamband íslands telja að breytingar á skatta- lögum séu forsenda fyrir kjara- samningum við vinnuveitendur. > í i i I i \-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.