Morgunblaðið - 20.02.1997, Side 1
80 SÍÐUR B/C
42. TBL. 85. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Deng Xiaoping, leiðtogi Kína, andast af völdum Parkinsons-veiki og lungnasýkingar
Vona að valdaskiptin við frá-
fall Dengs verði friðsamleg
Deng lofsamaður fyrir þátt sinn í
miklum umskiptum í Kína
Peking, Washington, London. Reuter.
DENG Xiaoping, æðsti leiðtogi Kína, lést af völdum fylgikvilla
Parkinsons-veiki og lungnasýkingar í gær, á 93. aldursári. Leiðtog-
ar erlendra ríkja fóru lofsamlegum orðum um Deng og þátt hans
í að koma á róttækum efnahagsumbótum í landinu og nánari
tengslum við Vesturlönd. Þeir létu ennfremur í Ijós þá von að
andlát hans leiddi ekki til mannskæðrar valdabaráttu.
Reuter
DENG Xiaoping (t.v.) ræðir við Maó formann í Shandong-héraði
í mars 1959, tíu árum eftir að kommúnistar komust til valda í Kína.
Sérfræðingar í stjórnmálum
Kína töldu að forystumenn komm-
únistaflokksins myndu þjappa sér
saman fyrstu vikurnar eftir andlát
Dengs og spáðu því að lítil breyt-
ing yrði á stefnu stjórnarinnar í
innanríkis- og utanríkismálum
næstu mánuðina. Þeir sögðu þó
líklegt að leiðtogarnir tækjust á
um völdin siðar þar sem þeir stæðu
frammi fyrir mjög erfiðum ákvörð-
unum vegna hinna miklu umskipta
sem ættu sér stað í landinu.
Bandarískir embættismenn
töldu ekki ástæðu til að óttast
harða valdabaráttu í Kína. Deng
hefði ekki tekið virkan þátt í stjórn
landsins síðustu árin og eftirmaður
hans, Jiang Zemin, væri þegar
orðinn leiðtogi kommúnistaflokks-
ins, forseti landsins og æðsti yfir-
maður hersins. Valdaskiptin væru
því þegar afstaðin.
„Mikill byltingarmaður og
stjórnskörungur"
Fréttastofan Xinhua birti langa
minningargrein þar sem farið var
fögrum orðum um manninn sem
stjórnaði Kína frá árinu 1978 þar
til hann lét af síðasta embættinu
árið 1990 og hafði úrslitaáhrif á
stefnu stjórnarinnar til dauðadags.
„Félagi Deng Xiaoping var af-
burðaleiðtogi sem naut mikillar
virðingar innan flokksins og hers-
ins og meðal fólks af öllum þjóð-
flokkum í Kína,“ sagði fréttastof-
an. „Hann var mikill marxisti,
mikill byltingarmaður, stjómskör-
ungur, herstjórnarsnillingur og lip-
ur samningamaður, þrautreyndur
baráttumaður fyrir málstað kom-
múnismans, aðalhöfundur sósíal-
ísku umbótanna í Kína og frumhöf-
undur kenningarinnar um upp-
byggingu sósíalisma með kínversk-
um sérkennum."
Útfararnefnd skipuð
Tilkynnt var að skipuð hefði
verið 459 manna nefnd til að ann-
ast útför Dengs og Jiang Zemin
forseti verður formaður hennar.
Allt stjórnmálaráðið, sem er skipað
18 mönnum, verður í nefndinni,
svo og tveir menn sem tóku þátt
í byltingu kommúnista, Yang
Shangkun, 89 ára fyrrverandi for-
seti, og Peng Zhen, 95 ára fyrrver-
andi forseti þingsins. Öldungarnir
tveir voru nánir bandamenn Dengs
og eru taldir geta haft veruleg
áhrif á þróunina í kínverskum
stjórnmálum á bak við tjöldin.
Utfararnefndin tilkynnti í gær-
kvöldi að samkvæmt kínverskri
hefð yrði engum erlendum gestum
boðið í útförina.
„Einstakur stjórnmálamaður"
Erlendir leiðtogar fóru lofsam-
legum orðum um Deng. Bill Clint-
on, forseti Bandaríkjanna, lýsti
honum sem „einstökum stjórn-
málamanni" sem hefði sett mark
sitt á heimsmálin í tvo áratugi.
„Ævi Dengs náði yfir öld umróts,
örðugleika og einstakra breytinga
í Kína,“ sagði forsetinn. „Hann
ýtti úr vör sögulegri umbótaáætl-
un, sem stórbætti lífskjör Kínverja
og færði stóran hluta landsins í
nútímalegt horf.“
Madeleine Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði að
það væri Kínveijum og öðrum þjóð-
um heims fyrir bestu ef andlát
Dengs leiddi ekki til valdabaráttu
í Peking.
George Bush, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, sagði að Deng
hefði gegnt „mikilvægu hlutverki
í að koma á sterkum tengslum
milli Bandaríkjanna og Kína“.
Bush var sendiherra Bandaríkj-
anna í Peking á árunum 1974-76
og átti fund með Deng í Kína
skömmu eftir að hann varð forseti
árið 1989.
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, lýsti Deng sem „spá-
manni“ sem hefði átt stóran þátt
í efnahagsuppganginum í Kína.
Hann bætti við að sú stefna Dengs
að innleiða markaðshagkerfi í
Kína hefði greitt fyrir yfirlýsingu
Breta og Kínveija frá árinu 1984,
sem tryggði að kapítalíska hag-
kerfinu í Hong Kong yrði haldið
í hálfa öld eftir að breska nýlend-
an yrði aftur hluti af Kína síðar
á árinu.
Háttsettur embættismaður í
Tævan hvatti íbúa eyjunnar til að
taka fréttinni um andlát Dengs
með ró og sagði hana ekki hafa
áhrif á afstöðu tævönsku stjórnar-
innar til Kína. „Stjórnin hefur þeg-
ar mótað stefnu sem samræmist
aðstæðum eftir andlát Dengs.“
Reyndu barkaskurð
Allt var með kyrrum kjörum á
götum Peking eftir að tilkynnt var
um andlát Dengs um miðja nótt
að staðartíma. Lögreglan var þó
með óvenju mikinn viðbúnað við
skrifstofur stjórnarinnar í mið-
borginni og helstu gatnamót. Tveir
lögreglumenn, vopnaðir rifflum,
voru á varðbergi á götu við hús
Dengs í miðborginni og yfirheyrðu
erlenda fréttamenn sem námu þar
staðar á bílum sínum.
Andlát Dengs var tilkynnt í bréfi
til Kommúnistaflokksins, hersins
og forystumanna ýmissa þjóð-
flokka í Kína, að sögn Xinhua, sem
sagði að hann hefði andast klukkan
13.08 að íslenskum tíma. Frétta-
stofan sagði að öndunarfærin
hefðu hætt að starfa og læknum
hefði ekki tekist að bjarga lífi hans.
Kínverskir heimildarmenn sögðu
að læknarnir hefðu gert barka-
skurð til að freista þess að bjarga
lífi Dengs en það hefði ekki borið
tilætlaðan árangur. Hann mun
hafa andast í höfuðstöðvum stjóm-
arinnar nálægt Torgi hins him-
neska friðar.
Undanfarna daga höfðu átt sér
stað miklar vangavelíur um að
Deng lægi banaleguna.
■ Drottnari Kína/30-31
Hirðingjar
numdir á brott
YASSER Arafat, leiðtogi palestínsku sjálf-
stjórnarsvæðanna, mótmælti í gær áformum
ísraela um að reisa nýtt hverfi fyrir gyðinga
í Austur-Jerúsalem og sagði þau torvelda frek-
ari friðarumleitanir. Benjamin Netanyahu, for-
sætisráðherra ísraels, hóf viðræður við stjórn-
arsinna og stjórnarandstæðinga á ísraelska
þinginu til að freista þess að tryggja samstöðu
um málið.
ísraelska lögreglan lauk í gær við að bera
út palestínska hirðingja úr tjaldbúðum austur
af Jerúsalem til að rýma fyrir íbúðum handa
gyðingum. Hirðingjarnir voru fluttir á annan
stað þar sem hver fjölskylda fær lítinn land-
skika á leigu til 25 ára. Mannréttindahreyfing-
ar segja að ný heimkynni hirðingjanna séu
heilsuspillandi þar sem þau séu um 500 metra
frá öskuhaugum.
Reuter
ÍSRAELSKIR lögreglumenn draga aldraðan hirðingja, sem reynir að beija þá með staf.
Mannskæð
aurskriða
í Perú
Cuzco. Reuter.
ALBERTO Fujimori, forseti Perú,
sagði í gærkvöldi að 250-300
manns hefðu grafist undir aur-
skriðu sem lagði tvö afskekkt þorp
í Andesfjöllum í rúst.
íbúar þorpanna tveggja, Ccoc-
ha og Pumaranra í suðaustur-
hluta Perú, höfðu yfirgefið heim-
ili sín vegna flóða um helgina.
Þeir höfðust við í fjallshlíð fyrir
ofan þorpin og urðu þar fyrir
aurskriðunni.
Björgunarsveitir höfðu fundið
47 lík í gærkvöldi og Fujimori
sagði að fáir hefðu fundist á lífi.