Morgunblaðið - 20.02.1997, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 20.02.1997, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1997 MINIUINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJÖRN VILHJÁLMSSON garðyrkjumeistari, áðurtil heimilis f Brautarlandi 18, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli þann 19. febrúar sl. Hjörtur Þór Björnsson, Þórunn Halldórsdóttir, Lárus Björnsson, Eygló Ragnarsdóttir og barnabörn. t Móðir mín, MARGRÉT TRYGGVADÓTTIR, Fornhaga 13, Reykjavfk, lést á Landakotsspítala þriðjudaginn 18. febrúar. Fyrir hönd vandamanna. Tryggvi P. Friðriksson. t Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka, MAGNEA ÁRNADÓTTIR, Kirkjuvegi 11, Keflavík, lést að kvöldi þriðjudagsins 18. febrúar í Sjúkrahúsi Suðurnesja. Svava Árnadóttir, Halldóra Árnadóttir, Guðrún Árnadóttir, Páll Árnason, Dóróthea Friðriksdóttir, Þuríður Halldórsdóttir og systkinabörn. \ t Móðir okkar, GUÐLAUG LOFTSDÓTTIR, Strönd, Meðallandi, er lést á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum 15. febrúar, verður jarðsett frá Langholtskirkju í Meðallandi laugardaginn 22. febrúar kl. 14.00. Sætaferð frá Umferðarmiðstöðinni kl. 8.30. Loftur Runólfsson, Guðlaug Runólfsdóttir, Gunnar Runólfsson. t Móðir okkar og tengdamóðir, FANNÝ AÐALHEIÐUR MAGNÚSDÓTTIR frá Neskaupstað, verður jarðsungin frá Norðfjarðarkirkju laugardaginn 22. febrúar kl. 14.00. Fyrir hönd vandamanna, Magnús Kristinn Herjólfsson, Sjöfn Hólm Magnúsdóttir, Herdi's Ósk Herjólfsdóttir, Jóhann Sævar Símonarson, Viðar Norðfjörð Sigurðsson. t Ástkær systir mín, LILJA BJARNADÓTTIR, Mundakoti, Eyrarbakka, Verður jarðsungin frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 22. febrúar kl. 14.00. Fyrir hönd vina og vandamanna, Jóhannes Bjarnason. t Elskulegur bróðir okkar, MAGNÚS GUÐMUNDSSON, Álfaskeiði 64, Hafnarfirði, áður Lyngbergi, verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 21. febrúar kl. 13.30. Systkini hins látna. SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR + Sigríður Krist- ín Kristjáns- dóttir (Siddý) var fædd á Akranesi 7. janúar 1939. Hún lést á heimili sínu, Birkihæð 2 í Garðabæ, 8. febr- úar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Dóm- kirkjunni 14. febr- úar. Ég kynntist Sigríði, eða Siddý eins og hún var ávallt nefnd, fyrsta daginn sem ég hóf skólagöngu í barnaskólanum á Akranesi haustið 1946. Mér er sá dagur í fersku minni. Ég tók strax eftir prúðbúinni, fallegri stúlku á stærð við mig. Hún var eitthvað svo aðlaðandi og fijálsleg í allri fram- komu. Það var eitthvað við hana sem kom mér til að hugsa sem svo: Þessa stúlku væri gott að eiga að vinkonu. Það atvikaðist einhvern veginn þannig að við Siddý settumst hlið við hlið í fyrstu kennslustundinni í barnaskólanum. Líklega hefur okkur fallið svona vel að sitja saman og líkað það vel hvorri við aðra, að við sátum saman öll árin okkar í barna- skólanum. Ekki minnist ég þess, að óánægju hafi nokkurn tíma gætt okkar á milli. Sú vinátta sem þarna hófst óx og styrktist með árunum og hélst alla tíð. Þessar minningar koma fyrst í hugann er ég minnist vinkonu minnar, Sigríðar Kristjánsdóttur, sem lést 8. þ.m. Það er gott að geta litið til baka og rifjað upp ánægjulegar stundir sem maður átti með látunum vini, þegar söknuður og eftirsjá vilja gagntaka hugann vegna þess að hinn látni vinur er horfinn á braut. Það er svo margt sem við áttum eftir að gera saman, margt sem við áttum eftir að tala um. En nú er það orðið of seint. Slíkar myndir koma í hug- ann við sviplegt fráfall góðs vinar. Það er einmitt þá sem það kemur svo berlega I ljós, hve minningarnar eru dýrmætar. Þess vegna er til þeirra leitað í harmi og sorg. Líklega gerir maður sér þá fyrst fyllilega grein fyrir því, hve dýrmætt það er að hafa átt góðan vin, þegar vinurinn er horfínn sjónum okkar. Já, þær eru margar minningarnar sem tengdar eru Siddý vinkonu minni. Þær eru ógleymanlegar stundirnar sem við áttum saman heima hjá henni. Hvort sem við vor- um að læra undir skól- ann, leika okkur eða bara spjalla saman. Eða þá að við spiluðum vist við for- eldra hennar, en heimili hennar var mér alltaf opið. Það var mikið myndarheimili, rómað fyrir smekkvísi og hrein- læti. Fólkið hennar var svo vingjamlegt og við- mótsþýtt. Maður var ávallt velkominn, hvernig sem á stóð. Sem börn og unglingar áttum við margt sameig- inlegt. Við sungum sam- an og spiluðum á gítar á skólaskemmtunum, æfðum leikrit og dansa. Fyrir utan alla útileikina sem við tókum þátt í með öðrum krökkum á Akranesi. Eftir að við fluttumst frá Akra- nesi skrifuðumst við á og fylgdumst alla tíð hvor með annarri. Seinna þegar við vorum báðar sestar að í Reykjavík vorum við saman í sauma- klúbbi ásamt öðrum konum frá Akranesi. Alltaf, hvort sem var í skóla eða við leik, þá var Siddý þessi góði fé- lagi, sem aldrei skipti skapi. Eg man ekki til þess að okkur hafi nokkurn tíma orðið sundurorða. Hún var þessi fágaða stúlka, sem kom oft fram eins og fullorðin væri, að því er varð- ar stillingu í framkomu við aðra. Hún var afar falleg, það var eftir henni tekið. Það gerði einnig hið rólega fas og glaðlega viðmót. Siddý var glæsileg kona, það var eitthvað tigið og háleitt við hana. Hún var afar myndarleg í öllum sín- um verkum, afkastamikil og vand- virk við allt sem hún tók sér fyrir hendur. Hún var mjög listræn í sér, mikil hannyrðakona og fyrirmyndar húsmóðir. Heimili hennar bar vitni fáguðum smekk hennar og skipu- lagsgáfu. En fyrst og fremst var hún hinn trausti vinur og góði félagi; var ætíð boðin og búin til að rétta hjálp- arhönd og leggja góðu málefni lið. Það er dýrmætt að hafa átt þess kost að kynnast slíkri konu og hafa átt hana að vini. Minningamar um Siddý, skólasystur mína og vinkonu, munu iifa um ókomin ár. Því þær minningar bera með sér birtu og fegurð frá stúlku, sem sjálf var ljós á vegi samferðamanna sinna. Eiginmanni hennar, syni, tengda- dóttur og ömmubörnum bið ég bless- unar Guðs. Megi almáttugur Guð láta bjartar minningar um góða t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTMUNDUR JÓNSSON, húsasmíðameistari, Seljahlíð, áður til heimilis að Rauðagerði 10, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 21. febrúar kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Steinunn I. Guðmundsdóttir, María Kristmundsdóttir, Guðmundur Hjálmarsson, Magnea Kristmundsdóttir, Skúli Halldórsson, Helga Kristmundsdóttir, Guðmundur Kristmundsson, Þórunn Júlíusdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, HULDA ÞÓRÐARDÓTTIR frá Miðhrauni, Ljósheimum 11, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 21. febrúar kl. 13.30. Þórólfur Ágústsson frá Stykkishólmi, Erla Þórólfsdóttir, Ágúst Magni Þórólfsson, Rannveig Ásdis Gunnlaugsdóttir, Valgerður Kristjánsdóttir og barnabörn. konu, ástríka móður og ömmu lýsa upp hug og hjarta þeirra sem stóðu henni næst og hrekja á braut sorg og söknuð. Guð blessi ástvini hennar nú og alla tíð. Sigrún I. Halldórsdóttir. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Knn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fenp að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Okkar kæra vinkona, Sigríður Kristjánsdóttir, Siddý, eins og hún var alltaf kölluð, er látin eftir stutta en erfiða veikindabaráttu. Það er tæpt ár síðan hún kenndi sér meins og gekk undir aðgerð sem tókst vel. Það var því mikið áfall þegar í ljós kom að sjúkdómurinn hafði tek- ið sig upp aftur. Við kynntumst Siddý fyrir tæpum fjörutíu árum í gegnum skátahreyf- inguna en þar störfuðum við allar á þeim árum. Tvær af okkur voru sam- tíma Siddý í skóla í Englandi og þegar dvölinni þar lauk og heim var komið stofnuðum við sjö saman saumaklúbb. Við höfum haldið sam- an óslitið fram á þennan dag. Það var okkur mikið áfall árið 1990, þegar Alma Magnúsdóttir, ein úr hópnum, lést langt um aldur fram á fimmtugsafmælisdegi sínum, eftir stutta sjúkdómslegu. Og enn er höggvið stórt skarð í litla hópinn okkar þegar Siddý er nú burt kölluð frá okkur. Siddý var glæsileg kona og geisl- aði frá henni góðvild og hlýju, þann- ig að fólk laðaðist að henni. Ekkert mannlegt var henni óviðkomandi eins og sést af störfum hennar að líknarmálum. Alltaf var Siddý kát og glöð, jákvæð og sannur vinur enda heilsteyptur persónuleiki. Minnumst við margra ánægju- stunda, hvort sem var í sauma- klúbbnum sjálfum, ferðalögum eða veislum. Við munum geyma dýr- mætar minningar um Siddý í hjört- um okkar. Það verður erfitt að hugsa sér saumaklúbbana án hennar og ferðirnar okkar út á land verða ekki þær sömu. Það er ekki hægt að minnast Siddýjar án þess að nefna Jón Otta. Þau voru einstaklega sam- hent og elskuleg hjón, og nutum við gestrisni þeirra í ríkum mæli á fal- legu heimili þeirra í Garðabæ og í sumarbústaðnum við Langá. Siddý bar mikla umhyggju fyrir einkasyni sínum Sigurði og fjölskyldu hans og hlakkaði mikið til að fá þriðja barna- barnið. Við og makar okkar erum Guði þakklátar fyrir allar þær ánægju- stundir sem við fengum að njóta með Siddý. Elsku Jón Otti, Sigurður, Guðný, Jón Otti og Pálmar, við biðjum Guð að styrkja ykkur í ykkar miklu sorg og vottum ykkur innilegnstu samúð okkar. Megi elskuleg vinkona okkar hvíla í friði, og við kveðjum hana með kvöldsöng kvenskáta: Sofnar drótt, nálgast nótt, sveipast kvöldroða himinn og sær. Allt er hljótt hvildu rótt. Guð er nær. Elísabet, Halla, Kristín, Ólöf og Sigurveig. Sigríður Kristjánsdóttir, ein mín besta vinkona, er látin, langt um aldur fram. Þessi ótíðindi bárust okkur hjónum til eyrna um hádegis- bil laugardaginn 8. febrúar sl. eða stuttu eftir að hún skildi við. Hún var 58 ára gömul. Við hittum hana fyrir réttum þremur vikum í vina- hópi, glaða og hressa, og áttum síst von á því, að hún væri að yfírgefa þetta jarðlíf. Siddý, eins og hún var alltaf köll- uð frá barnsaldri, var mér og ekki síður eiginkonu minni ákaflega kær. Því tókum við, eins og svo margir aðrir sem höfðum kynnst þessari mannkostakonu, andiátsfregninni afar illa, þar sem við trúðum því staðfastlega að henni tækist að sigr- ast á þessum sjúkdómi sem gerði vart við sig í febrúar á sl. ári. Að minnsta kosti benti flest til þess, að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.