Morgunblaðið - 20.02.1997, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1997 17
Dýrar ryksugur hjálpa
ekki gegn rykmaurum
MARGIR hafa undan-
farin ár fjárfest í ryk-
sugum fyrir hátt á
annað hundrað þúsund
krónur. Sölumenn
koma í heimahús og
kynna kosti tækisins
fyrir fólki, sýna því
hvernig hægt er að
ryksjúga miðað við
heimilisryksuguna.
í síðustu viku fjallaði
Bjöm Árdal bama-
læknir og sérfræðingur
i ofnæmis-, og ónæmis-
fræði á rás 2 um áhrif
þeirra á rykmauraof-
næmi. „Það hefur verið
í gangi mikil söluherferð fyrir þess-
um dým ryksugum og ég veit til
þess að þær hafí verið seldar fólki
á þeim forsendum að þær hjálpuðu
gegn rykmauraofnæmi. Þetta em
ryksugur sem kosta um 150.000
krónur og sannleikurinn er að þegar
um rykmauraofnæmi er að ræða
koma þær ekki að gagni. Þáð em
miklu fremur allskyns aðrar breyt-
ingar í umhverfínu sem virka gegn
rykmauraofnæmi. “
Loftið vel út
Björn segir að breytingar þurfi
að gera á svefnherbergjum þeirra
sem hafa rykmauraofnæmi og hafa
þar ekki hluti sem safna ryki. „Til
eru sérstakar dýnuhlífar sem ryk-
maurar komast ekki í gengum og
ákveðnar sængur sem þvo má við
hátt hitastig svo þeir drepist. Þá
hjálpar að viðra við
lágt hitastig og lofta
vel út. Það borgar sig
ennfremur að hafa á
gólfi svefnherbergisins
dúk eða parket.“ Björn
segir að hreinsa eigi
síðan gólf og annað
yfirborð með rökum
klút því á þann hátt sé
best að ná burt ofnæm-
isvökunum sem er skít-
urinn frá rykmaurum.
„Fólk andar þessu að
sér og fær ofnæmisvið-
brögð i slímhúð og
jafnvel niður í lungu.
Þessar dýru ryksug-
ur gagnast ekki í baráttunni við
rykmaura. Þær hleypa rykmaura-
ögnum í gegnum sig.“ Bjöm segir
að ýmsar rannsóknir sýni að vem-
legt magn af ofnæmisvökum fari í
útblástursloftinu frá svona ryksug-
um.
Ryksugur með útblásturssíum
„Hinsvegar eru til ryksugur sem
sía ofnæmisvakana að einhveiju
leyti úr útblástursloftinu. Vissar
tegundir af Miele og Nilfisk ryksug-
um gera þetta og eru mun ódýrari.
Hlutlausar rannsóknarstofur hafa
kannað ryksugur með tilliti til sog-
krafts og síunar á ofnæmisvökum
og hefur niðurstaðan sýnt þetta."
Bjöm segir að slæmt sé að fólk
haldi að með kaupum á þessum
dým ryksugum sé það að leysa
vandamálið með rykmaurana. Ef til
Svona líta rykmaurar út
vill geti þessar dým ryksugur hreins-
að gróf óhreinindi en þær hafi ekk-
ert með lausn ofnæmis að gera.
„Aðalatriði fyrir fólk með rykmaura-
ofnæmi era umhverfisbreytingar
þær sem búið er að nefna. “
Fiestir með kattarofnæmi
Rykmauraofnæmi er ekki óal-
gengt hér á landi en þó segist Bjöm
álíta að færri þjáist af því hér en
í nágrannalöndunum. Algengast er
kattarofnæmi og frjóofnæmi er
einnig algengt.
„Ástæðan fyrir því að færri em
með rykmauraofnæmi hérlendis
kann að vera sú að við búum i þurra
og góðu húsnæði og opnum glugga
sem lækkar hita- og rakastigið en
það hentar rykmaumnum illa.
Björn Árdal læknir
HOLTS APÓTEK
Glæsibæ
15% kynningarafsláttur og
veglegur kaupauki!
Zancaster
X _ X
1 /2 VERÐ Á UTSÖLUNNAR
.
SKÍÐAÚLPUR
ÁÐUR 4.980,
nú 2.490/
KÖFLOTTAR
VESTISPEYSUR
ÁÐUR 4.980,-
NU
2.490,
JAKKAFOT
ÁÐUR 17.900,-
NU
8.950,-
ÞYKKAR
VINNUSKYRTUR
ÁÐUR 1.980,-
LAUGAVEGI 18 B - REYKJAVIK