Morgunblaðið - 20.02.1997, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 20.02.1997, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1997 29 „Á undanförnum árum hef ég kynnst Brian Tracy gegnum bækur hans, myndbönd og hljóðsnældur. Hann er tvimælalaust í hópi hæfustu manna á sviði sjálfsþekkingar, timastjórnunar og þjálfunar til árangurs." -ThomasMöllerframkvæmdastjóri Aðalskipulag í ógöngum Á FUNDI borgar- stjórnar Reykjavíkur 6. febrúar sl. var samþykkt að auglýsa tillögu að endurskoð- uðu aðalskipulagi Reykjavíkur 1990 - 2010, sem samþykkt var í borgarstjórn i desember 1991 og staðfest af ráðherra í febrúar 1992. Tillag- an að endurskoðuðu aðalskipulagi og framsetning hennar ber vott um fagleg og vönduð vinnu- brögð starfsmanna Borgarskipulags og um mörg stefnumarkandi atriði virðist vera full samstaða í borgarstjórn. Á hinn bóginn er verulegur ágreiningur milli borg- arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og R-listans um mikilvæga skipu- lagsþætti er varða framtíðar- byggðarþróun og landnotkun á Geldinganesi svo og skipulag og uppbyggingu hluta stofnbrauta- kerfis borgarinnar. Það er einkum tvennt sem ein- kennir framlagðar tillögur að end- urskoðuðu aðalskipulagi Reykja- víkur. í fyrsta lagi er um afar ómarkvissa stefnumörkun að ræða hvað varðar landnotkun og skipu- lag stofnbrauta. Þetta kemur fram í tillögu að breyttri landnotkun að Geldinganesi og umferðarskipulagi Miklubrautar, m.a. gatnamótúm Kringlumýrarbrautar og Miklu- brautar. I öðru lagi er greinargerð að endurskoðuðu aðaiskipulagi víða hlaðin innantómum fullyrð- ingum, sem eiga sér engan grunn í aðgerðum og framkvæmdum R- listans. Þar að auki fylgir engin framkvæmdaáætlun þeim tillögum sem lagðar eru fram sem sýnir á hvern hátt eigi að framkvæma þær. Marklausar yfirlýsingar Andstaða margra borgarfulltrúa R-listans við starfrækslu Reykja- víkurflugvallar og kröfur um að hann yrði lagður niður og starf- semin flutt til Keflavíkur er fokin út í veður og vind. Deiliskipulag Reykjavíkurflugvallar, sem Sjálf- stæðismenn höfðu forystu um og samþykkt var 1986 í mikilli and- stöðu við vinstri flokkana í borgar- stjórn, þ.á m. nokkra núverandi borgarfullrúa R-listans, s.s. Guð- rúnu Ágústsdóttur, formann skipu- lagsnefndar, er nú lagt fram óbreytt. R-listinn reynir að gefa til kynna að í tillögum þeirra að endurskoð- uðu aðalskipulagi Reykjavíkur fel- ist ný stefnumörkun og breyttar áherslur í umhverfis- og útivistar- málum. Eins og víða á sér stað í greinargerðinni með aðalskipu- lagstillögunum eru þessar fullyrð- ingar algjörlega órökstuddar og oft og tíðum einungis um orðskrúð að ræða. Gefið er til kynna með margvíslegum fullyrðingum að um einhver nýmæli sé að ræða eða einhveijar setningar settar á blað, sem í raun eru merkingarlausar sem slíkar. Slíkar yfirlýsingar er að finna víða í greinargerð með aðalskipu- lagsstilögunni, m.a. eftirfarandi setningu: „í þessari endurskoðun eru settar fram nýjar áherslur í samgöngumálum sem lúta að vist- vænni samgöngum, umferðar- öryggi og vistlegu umhverfi". Hvorki í greinargerð né landnotk- unarkorti er að finna rökstuðning fyrir þessum fullyrðingum. í sömu greinargerð er einnig að finna þessa setningu: „í samræmi við markmið um að draga úr óheftri aukningu umferðar einkabíla eru áætlanir aðalskipulagsins um um- bætur á aðalgatnakerfi borgarinn- ar smærri í sniðum en eldri áætlan- ir“. Þetta eru innan- tómar fullyrðingar og eiga sér enga stoð, hvorki í tillögum til breytinga né sýnt fram á það á landnotkunar- korti aðalskipulagsins. Græn svæði dragast saman Eftirfarandi stað- reyndir liggja fyrir varðandi umhverfis- þáttinn í tillögum að endurskoðuðu aðal- skipulagi Reykjavíkur: 1. Græn svæði í borgarlandinu dragast saman frá því sem er í gildandi aðalskipulagi Reykjavík- ur. M.a. á það sér stað á Geldinga- nesi, Grafarholti og í Hólmsheið- inni. Auk þess er gert ráð fyrir að skerða Miklatún vegna breikk- unar á Miklubraut. 2. Eitt fegursta útivistarsvæði í Reykjavík og hentugusta fram- tíðarbyggingarland undir íbúðar- byggð, Geldinganesið, er gert að athafna- og iðnaðarsvæði. Þar er einnig gengið á svæði í borgar- vernd. 3. í greinargerð með tillögum að breyttu aðalskipulagi Reykja- víkur kemur fram að haldið er áfram þeirri stefnu sem sjálfstæð- ismenn mörkuðu í útivistarmálum, holræsamálum, gerð göngu- og hjólreiðastíga og fegrun og ræktun í borgarlandinu. Þær tillögur sem nú liggja fyrir fela ekki í sér nein- ar sérstakar breytingar frá því aðalskipulagi sem nú er í gildi. Sú stefnumörkun um landnotkun á Geldinga- nesi, sem kemur fram í tillögum R-listans, telur Yilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, vera ein- staka í íslenskri skipu- lagssögu. Ómarkviss stefna í umferðarmálum R-listinn heldur því fram að í tillögum þeirra að endurskoðuðu aðalskipulagi Reykjavíkur felist ný stefnumörkun í umferðarmálum. Þessi stefnumörkun R-listans virð- ist einkum felast í þeirri yfirlýsingu sem fram kemur í greinargerð með tillögunum, að dregið verði úr óheftri aukningu umferðar einka- bíla. Helstu merki þess að sporna eigi gegn óheftri umferð einkabíla virðist vera að velja ekki vönduð- ustu kosti í skipulagi og uppbygg- ingu stofnbrauta í Reykjavík, m.a. Miklubrautar. Sem dæmi má nefna að R-listinn hefur ákveðið að hverfa frá tillög- um um gerð mislægra gatnamóta á mótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar sem eru tvímæla- laust hættulegustu og þyngstu gatnamótin í Reykjavík. Umferð- arsérfræðingar hafa bent á að gerð mislægra gatnamóta stuðli að meira umferðaröryggi en planfrí gatnamót og að greiðari umferð. Sú tillaga sem R-listinn hefur valið er ekki góð framtíðarlausn og mun valda því að þjónustustig þessara gatnamóta mun versna verulega. Auk þess verður niðurstaðan sú að um meira umferðarálag verður að ræða í nærliggjandi íbúðahverf- um. Benda má á þá staðreynd að 75 þúsund bílar fara daglega um þessi gatnamót og um helmingur allra Reykvíkinga sækir atvinnu sína vestan Kringlumýrarbrautar. Ný flugstöð fyrir innanlands- flugið er fyrirhuguð suðaustan við Hótel Loftleiðir. Ný gata, Hlíðar- fótur, myndi auðvelda umferð að miðbænum og nýrri flugstöð og jafnframt draga úr umferð á gatna mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar, en tillagan gerir ráð fyrir því að Hlíðarfótur falli niður. Geldinganesið fyrir íbúðarbyggð Við samþykkt aðalskipulags Reykjavíkur fyrir skipulagstíma- bilið 1990-2010 í október 1991, sem sjálfstæðismenn höfðu forystu um, var um það fullt samkomulag í borgarstjórn að Geldinganesið sem er u.þ.b. 220 hektarar að stærð yrði að mestu tekið undir íbúðabyggð. Gert var ráð fyrir 30 hektara athafnahverfi í Geldinga- nesi í tengslum við fyrirhugað hafnarsvæði í Eiðsvík. í maí 1990 voru kynntar tillögur úr hugmyndasamkeppni um íbúða- byggð á Geldinganesi sem sýndu fram á, að þar mætti koma fyrir 4.000-5.000 manna byggð. Dóm- nefnd keppninnar sem meðal ann- arra átti sæti í núverandi borgar- stjóri, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, var sammála um að tillögur höf- unda undirstrikuðu hversu sérstakt nesið væri sem byggingarland og að þær sýndu ennfremur fram á margvíslega möguleika til að skapa fjölskrúðugt mannlíf og öflugt atvinnulíf á þessu fallega svæði í borgarlandinu. Það var einnig mat dómnefndar að Eiðið, frábært útsýni og nálægð við sjó- inn staðfestu enn frekar þau um- hverfisgæði sem til staðar eru á Geldinganesi. Sjálfstæðisflokkurinn leggur mikla áherslu á að áfram verði haldið þeirri stefnu að byggja íbúðabyggð meðfram ströndinni á svæðum sem til þess henta. Þess vegna beittu sjálfstæðismenn sér fyrir því í borgarstjórn 1983 að svæði sem áður voru ætluð undir iðnaðar- og atvinnustarfsemi, m.a. þar sem nú er Hamrahverfi, Húsa- hverfi og Borgarhverfi, yrði breytt í svæði fyrir íbúðarbyggð. Mikil- vægt er að landnotkun sem sýni íbúðarbyggð á stærstum hluta Geldinganess komi skýrt fram á aðalskipulagsuppdrætti. Sú stefnumörkun um landnotkun á Geldinganesi, sem kemur fram í tillögum R-listans, er einstök í ís- lenskri skipulagssögu. Geldinganes er í næsta nágrenni við Viðey og byggðina í Grafar- vogi. Það væri meiriháttar skipu- lagsslys út frá umhverfis- og byggðarsjónarmiðum að taka stærstan hluta Geldinganessins undir atvinnu- og iðnaðarstarfsemi eða e.t.v. stóriðju. Höfundur er borgarfulltrúi í Reykjavík. TILBOÐ • Bók Brian Iracy - HÁMARKS ÁRANGUR hefur fengid frábærar móttökur. • Fyrsta upplag er nú UPPSELT hjá okkur. Annað upplag er nýkomið. • Yid höf iiin ákveðið að bjóða sérstakt tilboð fram til páska. Áður kr.Jí49Í IYú kr. 2.790 Fæst hjá: Bókabúðuin Máls og menningar, Bókabúðum Pennans og Eymundsson, Betra Líf, Bókabúðinni Hlemmi, Bókabúðinni í Mjódd, Bókabúðin Suðurströnd, Bókabúð Árbæjar, Bókbær, Veda Kópavogi, Bókabúð Böðvars, Hafnarfirði, Bókabúð Keflavíkur, Bókav. Jónasar, ísafirði, Tölvutæki — Bókval, Akureyri. LEIÐARLJ^S ehf. Leiðandi í útgáfu sjálfsræktarefnis. Okkar markmið er... að hjálpa þér að ná þínu! Dreifingarsfmar: 567 3240 og 896 1240. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.