Morgunblaðið - 21.03.1997, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. MARZ 1997 11
FRÉTTIR
RUT Hólmarsdóttir var að koma frá Hveragerði og Selfossi
með um 20 lítra af mjólk.
GUÐMUNDUR Stefánsson hafði í nógu að snúast i bensínaf-
greiðslu á Litlu kaffistofunni.
Gestkvæmt í Litlu kaffistofunni á Sandskeiði vegna verkfallsins
Sótti mjólk austur og
tók bensín í bakaleiðinni
íbúar höfuðborgar-
svæðisins reyna nú
margir að forðast
mjólkur- og bensínskort
vegna verkfalls. Blaða-
maður og ljósmyndari
hittu fólk sem var að
birgja sig upp í gær.
FRÁ því að verkfall bensínaf-
greiðslumanna skall á hefur verið
óvenju gestkvæmt í Litlu kaffistof-
unni á Sandskeiði þar sem gestir
og gangandi geta keypt veitingar
og bensín. Litla kaffistofan er í
tæplega 20 km fjarlægð frá
Reykjavík en tilheyrir Ölfushreppi.
Kaffistofan er þess vegna opin í
verkfallinu og í fyrirtækinu starfa
ekki aðrir en Stefán Þormar Guð-
mundsson eigandi fyrirtækisins,
eiginkona hans og börn.
„Eg var að athuga birgðirnar
og við eigum rúmlega 5.000 lítra
í öðrum tankinum og um 2.000
lítra í hinum,“ sagði Guðmundur
Stefánsson bensínafgreiðslumaður
Litiu kaffistofunnar þegar blaða-
maður og ljósmyndari Morgun-
blaðsins tóku hann tali skömmu
fyrir hádegi í gær.
Guðmundur sagði að þessar
birgðir myndu ekki endast lengi
en höfuðborgarbúar hafa hópast á
staðinn til að birgja sig upp af
bensíni í verkfallinu.
Með 6 plastbrúsa í skottinu
7.000 lítrar af bensíni duga til
að fylla 175 fólksbíla með galtóma
40 lítra tanka en sú tala veitir litla
vísbendingu um fjölda þeirra sem
fá afgreiðslu í Litlu kaffistofunni,
því þangað koma margir til að
birgja sig upp og taka með sér
brúsa.
Meðal þeirra sem blaðamaður
og ljósmyndari Morgunblaðsins
hittu á staðnum í gær var Pálmi
Gestsson leikari. Hann var búinn
að fylla tankinn og var auk þess
með sex 25 lítra plastbrúsa fulla
af bensíni í skottinu.
„Maður verður að eiga bensín
fyrir páskatúrinn,“ sagði Pálmi en
sagði óráðið hvert halda skyldi um
ij páskana. Hann sagðist aðspurður
6 ekki hafa hamstrað mjójkurvörur.
• „Þetta er mitt eina hamstur,“ sagði
-I hann.
- Verður verkfall, mjólkurskort-
- ur og bensínskortur til umfjöllunar
hjá Spaugstofunni í sjónvarpinu á
laugardaginn? „Að sjálfsögðu,“
PÁLMI Gestsson var búinn að
fylla á tankinn og setja um 150
lítra af bensíni á 6 plastbrúsa
sem hann hafði í skottinu.
STEFÁN Þormar Guðmundsson afgreiðir í bensínsölunni á Litlu
kaffistofunni, þar sem viðskiptavinum er boðið upp á kaffibolla
og að líta í blöðin meðan dælt er á tankinn.
Morgunblaðið/Ásdís
MARGRÉT Þorsteinsdóttir fyllti á tankinn úr sjálfsala í gær.
segir Pálmi, „og ég hugsa að það
verði líka spáð í þessa samninga-
menn sem skrifuðu undir um dag-
inn og felldu samninginn sjálfir
um kvöldið."
Litla kaffistofan er opin alla
daga ársins nema jóladag frá
klukkan 6.45-22. Það er sérstakt
að taka bensín þar því viðskipta-
vinum er boðið upp á kaffibolla
meðan dælt er á tankinn.
Stefán Þormar Guðmundsson
hefur rekið staðinn frá 1993. Hann
segir að auk þess að selja bensín
og veitingar sé fyrirtækið hálfgerð
símstöð því óteljandi símtöl berist
á hvetjum degi frá fólki sem sé
að spyija um hvort enn sé til bens-
ín og hvernig færðin sé yfir Hellis-
heiði; hvort það sé óhætt að
skreppa yfir til að ná í mjólk.
Stefán Þormar sagðist ekki
treysta sér til að spá um hvernig
viðskiptin mundu þróast næstu
daga eftir að bensínið verður geng-
ið til þurrðar. „Við höfum opið hér
á meðan við eigum bakkelsi," sagði
Stefán en sagðist einnig vera að
íhuga möguleika á því að kaupa
dísilolíu úr birgðatanki Olíudreif-
ingar í Þorlákshöfn.
„Við tilheyrum Ölfushreppi og
við getum ekki verið að bijóta
neitt þótt við fáum senda olíu frá
Þorlákshöfn," sagði hann. Bensín-
birgðir er hins vegar ekki að finna
fyrr en austur á Höfn í Horna-
firði. „Við munum ekki fara út í
að sækja bensín þangað," sagði
Stefán Þormar.
Guðmundur sonur Stefáns sagði
að þau keyptu sína mjólk frá Mjólk-
urbúi Flóamanna en ekkert um-
fram það sem þyrfti í reksturinn.
Með 20 lítra af mjólk
Rut Hólmarsdóttir býr í Hafnar-
firði en var að koma vestur yfir
fjall og renndi í hlað á Litlu kaffi-
stofunni til að taka bensín á bílinn
sinn á leiðinni heim. í bílnum var
hún með 20 lítra af mjólk. „Ég fór
fyrst í Hveragerði og svo á Selfoss
á eina 4-5 staði til að kaupa mjólk.
Það var skammtað og ég tók það
sem ég gat og fékk 20 lítra," sagði
Rut. Hún sagðist vera að kaupa
alla þessa 20 lítra til eigin heimil-
is. „Ég þarf að eiga mjólk. Ég á
tvær stelpur sem þykir Cheerios
gott,“ sagði Rut.
Sjálfsalar farnir að tæmast
Biðraðir hafa myndast við bens-
ínsjálfsala á bensínstöðvum á höf-
uðborgarsvæðinu og í fyrrakvöld
fóru fyrstu dælurnar að tæmast. I
bensínstöð Skeljungs við Miklu-
braut var enn til bensín á nokkrum
dælum um hádegisleytið í gær og
fjöldi fólks var þar að athafna sig.
Margrét Þorsteinsdóttir var að
fylla á bílinn sinn en rennslið úr
dælunni var orðið tregt og greini-
legt að síðustu droparnir voru á
leið á tankinn hjá Margréti. Hún
sagðist aka minna þessa dagana
en venjulega. Ástæðan er hins veg-
ar ekki verkfallið heldur er hún
komin í frí úr vinnu fram yfir
páska.
Sigríður Magnúsdóttir var hins
vegar að fylla á tankinn á jeppan-
um sínum en sagðist svo ætla að
leggja bílnum í þar næstu viku.
„Eg ætla til Akureyrar um pásk-
ana og ætla að spara bensínið
þangað til ég fer norður," sagði
hún.
Nýr prestur
á ísafirði
•SKÚLI S. Ólafsson, guð-
fræðingur, var kjörinn aðstoð-
arprestur í ísafjarðarpresta-
kalli á fundi
kjörmanna
sóknanna
þriggja,
Hnífsdals,
ísafjarðar
og Súðavík-
ur 18. þ.m.
Tveir um-
sækjendur
voru um stöðuna.
Skúli lauk guðfræðiprófi frá
Háskóla íslands í fyrra eftir
að hafa stundað nám bæði við
guðfræðideildina hér og Kaup-
mannahafnarháskóla og
Prestaháskólann danska.
Kona Skúla Sigurðar er Sig-
ríður Björk Guðjónsdóttir
sem skipuð var skattstjóri
Vestfjarðaumdæmis síðasta
haust. Mun Sigríður vera eina
konan í hópi skattstjóranna.
Utanríkisráð-
herra vill við-
ræður við Pal
estínumenn
ÍSRAELSSTJÓRN er með ný-
iegum ákvörðunum sínum um
byggingu íbúðarhverfis fyrir
gyðinga í austurhluta Jerúsal-
ems orðin einn helsti þrándur
í götu friðarumleitana í Mið-
Austurlöndum og er nú talin
hætta á því að þær stöðvist
algjörlega, að því er segir í.
fréttatilkynningu frá utan-
ríkisráðuneytinu.
Þá segir í fréttatilkynning-
unni að utanríkisráðherra ít-
reki andstöðu sína við þessar
framkvæmdir ísraelsmanna og
hvetji til þess að þeim verði
hætt án tafar. Þess í stað verði
aftur teknar upp viðræður við
Palestínumenn um frekari
friðarumleitanir í samræmi við
Óslóarsamkomulagið frá 1993
og aðra samninga sem fylgt
hafa í kjölfarið.
Flugstöð Leifs
Eiríkssonar
Nýtt gjald á
bílastæðum
FRÁ og með næstu mánaða-
mótum verður tekin upp gjald-
skylda á afmörkuðum bifreiða-
stæðum norðan og vestan
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
og mun bílastæðisgjald fyrir
hvern sólarhring verða 250
krónur.
Þá verður einnig óheimilt
að leggja bifreiðum lengur en
í þijá tíma samfleytt á afmörk-
uðum svæðum fyrir framan
aðalinngang flugstöðvarinnar,
en þar er á hinn bóginn ókeyp-
is að leggja.
Skýrsla um flug-
rekstrarmarkaðinn
Væntanleg
innan fárra
vikna
SKÝRSLA Samkeppnisstofn-
unar um flugrekstrarmarkað-
inn verður væntanlega gefin
út innan fán-a vikna en að
sögn Georgs Ólafssonar, for-
stjóra Samkeppnisstofnunar,
verður Flugleiðum gefinn kost-
ur á að tjá sig um hana þegar
gengið hefur verið frá henni.