Morgunblaðið - 21.03.1997, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 21. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
Norðurlöndin kynnt í Mýrdal
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
NEMENDUR Ketilsstaðaskóla stóðu fyrir kynningu á Norðurlöndunum á árlegum
fræðsludegi í skólanum.
Fagradal - nemendur og kennar-
ar Ketilsstaðaskóla í Mýrdal voru
með fræðsludag fyrir skömmu.
Að þessu sinni voru Norðurlönd-
in tekin fyrir.
Ketilsstaðakóli er með fá-
mennustu skólum landsins, nem-
endur eru alls fjórtán, á aldrinum
sex til tólf ára. Skólinn hefur
mörg undanfarin ár staðið fyrir
fræðslu- og menningardegi einu
sinni á vetri þar sem nemendur
hafa undirbúið og flutt efni sem
tengist heimabyggð þeirra beint
eða óbeint. Norðurlöndin voru
verkefni þessa árs.
Gjaldeyrinum skilað með hraði
„Skólinn þarf að vera virk
stofnun í sínu samfélagi. Oftast
eru það aðeins nemendurnir sem
njóta þess sem fram fer inni í
skólastofunum. Þessu viljum við
Vinna
nemenda
nýtist um-
hverfinu
breyta því þessi vinna nýtist for-
eldrunum og umhverfinu. Nem-
endurnir fá svo ýmsa fræðslu hjá
foreldrum og öðrum gestum sem
koma,“ segir Kolbrún Hjörleifs-
dóttir skólastjóri. Hún segir að
þegar nemendur fóru að vinna
að verkefninu hafi þeir fundið
ótrúlega margt sem tengist
Norðurlöndunum. Þegar kannað
var vöruframboð í kaupfélaginu
í Vík kom í Ijóst að mikið af vör-
um er frá Danmörku en ekkert
frá Færeyjum svo dæmi sé tekið.
A fræðsludeginum var sér bás
frá hverju Norðurlandanna með
vörum og ýmsum upplýsingum
sem tengjast landinu.
Börnin sjá um kynninguna.
A fræðsludeginum voru bömin
með dagskrá, tónlist og upplestur
og einnig mat sem tengist Norð-
urlöndunum. Þar var til dæmis
gefíð smakk af færeyskum fiski-
bollum, Knetti, en í þeim er m.a.
tólg. Gjaideyrir var fenginn að
láni í bankanum í Vík en á þriðju-
dag varð að skila dönskum krón-
unum með hraði því búið var að
selja þær en því höfðu banka-
mennirair alis ekki átt von á.
Morgunblaðið/Kristinn Bendiktsson
NEMENDUR starfsbrautarinnar í tölvuveri við ritvinnslunám.
Braut fyrir fatl-
aða nýtur velvilja
Grindavík - Starfsbraut fyrir fatl-
aða eða nemendur með sérþarfir tók
til starfa í bytjun árs í fjölbrauta-
skóla Suðurnesja og sækja hana 8
nemendur á aldrinum 18-25 ára.
Að sögn Magna Hjálmarssonar kenn-
ara, stjórnanda brautarinnar, gengur
brautin mjög vel og nýtur áhuga og
velvilja hjá stjórnendum skólans,
kennurum, bæjaryfirvöldum og ekki
síst öðrum nemendum skólans sem
hafa tekið hinum nýju skólasystkin-
um sínum mjög vel.
„Brautin er hugsuð fyrir nemend-
ur með sérþarfír í námi. Þar sem
námið er einstaklingsmiðað er þó
ekkert sem mælir gegn því að aðrir
fái inngöngu óski þeir eftir því.
Námsskipulag miðar þannig að því
að koma til móts við þarfír hvers og
eins. Skilyrði er að nemendi sé
áhugasamur og óski sjálfur inngöngu
í skólann," sagði Magni og bætti við
að einnig væri félagsleg fæmi nauð-
synleg og að nemandinn ætlaði út á
almennan vinnumarkað og hefði til
þess burði að ráða við að minnsta
kosti hálfsdags vinnu.
Bóklegt og verklegt nám
Starfsbrautin er byggð upp sem
þriggja anna nám. Á fyrstu önn skipt-
ist námið milli bóklegra og verklegra
námsgreina, og fylgir því svonefnt
vinnustaðanám. Kennd er íslenska,
stærðfræði, heilbrigðisfrseði, rit-
vinnsla, samfélagsfræði, smíði, saum-
ur, myndlist, líkamsrækt og mat-
reiðsla.
Kennari og nemandi fínna sameig-
inlega út hvaða atvinna henti nem-
andanum og í samvinnu við Svæðis-
skrifstofu fatlaða er fundinn vinnu-
staður sem tekur við nemandanum
undir lok annarinnar.
Á annarri önninni fer vinna og nám
saman og er nemandinn í vinnu fyrri
hluta dags en fer síðan í skólann og
lýkur deginum þar. Lokaönnin er
uppbyggð með svipuðum hætti og sú
fyrsta en mikil áhersla verður lögð á
að fínna nemandanum starf við hæfí.
Forvamir gegn
vímuefnum í Eyjum
Vestmannaeyjum - Forvarnardeild
SÁÁ hefur hrundið af stað svoköll-
uðu sveitarfélagaverkefni, sem miðar
að því að koma á sem víðtækustu
forvamarstarfí í fímm sveitarfélög-
um víða um land, sem nái til sem
flestra þátta sem haft geta áhrif á
vímuefnaneyslu unglinga.
Með verkefninu eru settar í gang
víðtækar forvamir sem beinast að
bömum, unglingum, foreldrum, skól-
um, tómstundastarfi, heilsugæslu,
barnavemd, löggæslu, kirkju og al-
menningi.
Sveitarfélögin fímm eru Vest-
mannaeyjar, Akranes, Húsavik, Eg-
ilsstaðir og Mosfellsbær. Verkefnið
hófst í Eyjum fyrir skömmu.
Markmið sveitarfélagaverkefnis-
ins er að sveitarfélögin marki sér
heildstæða stefnu í forvömum, sem
taki til margra þátta. Við undirbún-
ing verkefnisins hefur m.a. verið
unnið að þýðingu, staðfærslu og
samningu fræðsluefnis og námskeið
undirbúin. Forkönnun er síðan gerð
af Félagsvísindastofnun Háskólans
þar sem ýmsir þættir er tengst geta
vímuefnaneyslu eru kannaðir, m.a.
útbreiðsla neyslu, tíðni neyslu, magn,
skólaárangur, tíðni afbrota, líðan í
skóla, tómstundaiðkun og ýmislegt
fleira.
Námstefna verður haldin í sveitar-
félögunum með fulltrúum þeirra
stofnana og samtaka sem koma að
málefnum unglinga. Starfið verður
kynnt á almennum borgarafundi og
námskeið haldin fyrir kennara og
starfsfólk skóla, leiðtoga í æskulýðs-
og íþróttastarfí og foreldra. íþrótta-
mót verða undir fororðinu íþróttir
gegn vímu og þemavika haldin í
grunnskólunum til að vinna að for-
vömum. Þá verður efnt til auglýs-
ingaherferðar í fjölmiðlum innan
sveitarfélaganna.
Við lok verkefnisins mun Félagsvís-
indastofnun Háskólans gera könnun
þar sem sömu þættir verða athugaðir
og í forkönnuninni við upphaf verk-
efnisins. Á grundvelli könnunarinnar
verður síðan gerð framtíðaráætlun
um forvamir í sveitarfélaginu.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
GESTIR á námstefnu Forvaraadeildar SÁÁ í Eyjum.
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
UNNIÐ við framkvæmdir við matvöruverslunina.
Byggt fyrir
807 millj.
Vogum - Á Keflavíkurflugvelli
standa yfír framkvæmdir við mat-
vöruverslun Varnarliðsins fyrir 807
milljónir króna. Hluta þeirra er lokið
en það er bygging vöruskemmu
ásamt skrifstofum og hefur verslunin
flutt til bráðabirgða í það húsnæði
eða á meðan miklar endurbætur fara
fram á húsnæði hennar.
Samkvæmt upplýsingum frá Frið-
þóri Eydal, blaðafulltrúa Varnarliðs-
ins, eru verklok áætluð í júlí. íslensk-
ir aðalverktakar byggja og ýmsir
undirverktakar koma þar að t.d.
Dverghamar sf., Félag Vatnsvirkja,
Rafmagnsdeildin o.fl.
Bömin nýta „lifandi“ msl
Egilsstöðum - Leikskólinn Tjarn-
arland á Egilsstöðum fékk gefins
tvo safnkassa til þess að selja í
lífrænan úrgang. Starfsfólk og
böm hafa verið að flokka sorp,
þannig að allur lífrænn úrgangur
hefur verið aðskilinn frá öðru
sorpi síðan í sumar. Síðan voru
þessir kassar afhentir og kannað
hversu mikið lífræna sorpið er
sem kemur frá leikskólanum.
Verkefnið er liður í umhverfis-
verkefni Egilsstaðabæjar. Börnin
eru mjög meðvituð um flokkunina
enda hafa þau tekið þátt í henni
frá upphafi. Aðspurð svöruðu þau
í einum kór að það væri „lifandi"
rusl sem færi í þessa kassa. Kass-
arnir eru smíðaðir hjá Hamra-
landi á Egilsstöðum. Til stcndur
að fara út í markvissa framleiðslu
á þeim og veita fólki upplýsingar
um flokkun og meðferð lífræns
úrgangs, í samvinnu við Sorpsam-
lag Mið-héraðs.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
HELGI Halldórsson bæjarstjóri Egilsstaða afhendir leikskóla-
börnum safnkassa.
I
I
t