Morgunblaðið - 21.03.1997, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 21. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Indriði Pálsson stjórnarformaður Skeljungs hf. á aðalfundi félagsins
Ekkert bendir til að flutn-
ingsjöfnun verði afnumin
ÞRÁTT fyrir að nú sé ár liðið frá
því að Samkeppnisráð úrskurðaði
að ákvæði í iögum um jöfnun á
flutningskostnaði olíuvara brjóti í
bága við samkeppnislög er ekkert
sem bendir til þess að viðskiptaráð-
herra sem hefur yfir málinu að
segja hyggist bæta þar úr.
Þetta kom fram í ræðu Indriða
Pálssonar, stjórnarformanns Skelj-
ungs, á aðalfundi fyrirtækisins i
gær. „Forsvarsmenn Skeljungs
hafa á liðnum árum ítrekað bent á
að flutningsjöfnun á olíuvörum sem
hér hefur viðgengist sé í beinni
andstöðu við samkeppnisreglur. Að
fengnu áliti Lagastofnunar Háskóla
íslands komst Samekeppnisráð að
sömu niðurstöðu. Það eru því mikil
vonbrigði að viðskiptaráðherra skuli
ekki hafa séð ástæðu til að bregð-
ast við í samræmi við þá niður-
stöðu,“ sagði Indriði.
Hann sagði að afkoma Skeljungs
hefði verið góð á síðasta ári, en
fyrirtækið skilaði 187 milljón króna
hagnaði eftir skatta að teknu tilliti
til hlutdeildarfélaga. Sala félagsins
hefði verið meiri á liðnu ári en
nokkru sinni fyrr og þetta ásamt
ýmsum jákvæðum breytingum sem
gerðar hafi verið á starfsháttum
félagsins á liðnu ári gefi „rökstudda
ástæðu til að ætla, að framhaid
verði á góðri afkomu þess, þótt
efiaust verði róðurinn þungur á
stundum, enda hafa, eins og þið
vitið, hluthafar góðir, aðalkeppi-
nautar þess á íslenska olíumarkaðn-
um nánast runnið saman í eitt fyrir-
tæki, þó að forminu til og af hag-
kvæmnisástæðum sé rekstur þeirra
undir tveimur vörumerkjum."
Indriði sagði að félagið hefði sett
sér ákveðin markmið til dæmis
varðandi umhverfismál, markaðs-
samstarf og hagnað af rekstrinum.
Markmiðin væru skýr en sveigjan-
leg og tækju mið af þjóðfélagsað-
stæðum á hveijum tíma. Til þess
að þau næðust væri mjög mikilvægt
að stöðugleiki ríkti í þjóðfélaginu
og hagvöxtur héidi áfram að auk-
ast eins og áætlað væri. „Þess
vegna er ákaflega mikils um vert
og raunar öllum fyrir bestu, að þær
deilur, sem uppi eru á vinnumark-
aði um þessar mundir, séu settar
niður á raunhæfan hátt hið fyrsta
og hér ríki áfram friður á milli laun-
þega og atvinnurekstrarins."
10% arður
Aðalfundurinn samþykkti
greiðslu 10% arðs og að auka
hlutafé um 10% með útgáfu jöfn-
unarhlutabréfa. Stjórn félagsins
var endurkjörin, en í henni eiga
sæti Indriði Pálsson, Björn Hall-
grímsson, Haraldur Sturlaugsson,
Hörður Sigurgestsson og Sigurður
Einarsson.
Danske
Bank fær
77% í sænsk-
um banka
Kaupmannahöfn.
DEN DANSKE BANK A7S -
stærsti banki Danmerkur - hefur
keypt 77,2% í Ostgota Enskilda
Bank og boðið í það sem eftir er
af hlutabréfunum í sænska bankan-
um.
Verð hlutabréfa í Ostgota En-
skilda hækkaði um 23,60 krónur í
50,50, sama verð og Den Danske
Bank greiddi fyrir hlut sinn og býð-
ur fyrir afganginn af hlutabréfun-
um. Bréf í Den Danske lækkuðu
um 9 krónur í 601 krónu.
Ef gengið verður frá kaupunum
fyrir 2,8 milljarða króna verður hér
um að ræða þriðju yfirtöku banka
í Skandinavíu á þremur mánuðum
og þróun í átt til sameiningar held-
ur áfram í geiranum.
Danski bankinn verður þriðji
stærsti bankinn í Skandinavíu, en
er nú sá fjórði stærsti.
Kaupþing hf. með 121,5 milljón króna hagnað í fyrra
Hagnaður sexfald-
aðist frá fyrra ári
FRÁ undirritun samnings Landsbréfa, Landsbankans og Mjólkursam-
sölunnar, f.v. Jóhann Ágústsson aðstoðarbankastjóri Landsbanka
íslands, Guðlaugur Björgvinsson forstjóri Mjólkursamsölunnar og
Gunnar Helgi Hálfdanarson forstjóri Landsbréfa hf.
Nýr lífeyrissjóður
til Landsbréfa
ÁRIÐ 1996 var besta ár Kaup-
þings hf. frá stofnun fyrirtækisins
árið 1982. Hagnaður af rekstri
fyrir skatta var tæplega 193 millj-
ónir króna sem er sexföldun frá
árinu 1995. Eftir skatta nam hagn-
aðurinn tæplega 121,5 milljónum
sem er um 57% arðsemi af eigin
fé. Eigið fé Kaupþings hf. jókst
um tæplega 281 miiljón og var í
ársiok 493 milljónir, að því er seg-
ir í frétt frá fyrirtækinu.
Þar er einnig greint frá því að
markmið fyrirtækisins fyrir rekstr-
arárið hafí náðst og fór árangurinn
á flestum sviðum langt fram úr
björtustu vonum. Heildarumfang
viðskiptanna fór í 140 milljarða
króna og jókst um 46% frá fyrra
ári.
Skýringar á auknum hagnaði
eru margar, en felast að miklu leyti
í því að Kaupþing náði að nýta sér
VIÐSKIPTI með hlutabréf voru
með líflegasta móti í gær og seld-
ust bréf fyrir tæpar 140 milljónir
króna sem er með því mesta sem
selst hefur á einum degi.
Fóðurblandan var skráð í fyrsta
skipti á Verðbréfaþingi íslands í
gær og urðu mikil viðskipti með
hið hagstæða árferði sem verið
hefur hjá verðbréfamörkuðum hér-
lendis og erlendis, ásamt því að
halda kostnaði niðri. Þrátt fyrir
fjölgun starfsfólks og breytingar á
húsnæði, urðu hækkanir á gjalda-
liðum miklu minni en á tekjuliðum.
Tveir milljarðar í
verðbréfasjóðum í Lúxemborg
Heildartekjur Kaupþings voru
650 milljónir kr. á árinu 1996, sem
er 108% aukning frá fyrra ári, sem
má að hluta til þakka aukningu á
eigin viðskiptum félagsins sem
blómstruðu í mjög hagstæðu um-
hverfi. Með auknum umsvifum fyr-
irtækisins hefur efnahagsreikning-
urinn stækkað til muna en niður-
stöðutala hans er tæplega 2.816
milljónir króna, sem er 48% hækk-
un á milli ára, segir ennfremur í
frétt félagsins.
hlutabréf í fyrirtækinu eða fyrir
samtals 38 milljónir króna að
markaðsvirði. Gengi á bréfum í
félaginu í upphafi dags var 3,80,
en hækkaði í viðskiptum dagsins
í 4,05 við lok þingsins. Hlutabréf
í félaginu voru nýlega seld í útboði
hjá Kaupþingi á genginu 2,60 og
Kaupþing stofnaði á síðasta ári
dótturfyrirtækið Kaupþing Mana-
gement Company í Lúxemborg.
KMC er rekstraraðili verðbréfa-
sjóða Kaupþings í Lúxemborg og
fyrstu tveir sjóðirnir hófu starfsemi
í október á síðastliðnu ári. Hvor
sjóður ávaxtar nú nálægt milljarði
íslenskra króna og hefur árangur
þeirra verið mjög góður.
Sparisjóðirnir keyptu í mars á
síðasta ári 50% hlut Búnaðarbank-
ans í Kaupþingi fyrir 185 milljónir
króna. Er það ívið minna en hagn-
aður fyrirtækisins fyrir skatta á
síðasta ári.
í stjóm Kaupþings hf. voru
kosnir Guðmundur Hauksson,
Geirmundur Kristinsson, Hallgrím-
ur Jónsson, Jónas Reynisson og
Sigfús Sumarliðason. Varamenn
Björn Jónasson og Sigurður Haf-
stein.
fengu færri en viidu. Hækkunin
frá útboðsgenginu nemur 56%.
SÍF á Verðbréfaþing
Mikil viðskipti urðu einnig með
hlutabréf í Islandsbanka eða fyrir
33 milljónir króna, Flugleiðum 21
milljón og í Haraldi Böðvarssyni
fyrir tæpar 14 milljónir - króna.
Gengi bréfa í Flugleiðum hækkaði
lítillega, en lækkaði lítillega í ís-
landsbanka. Þá lækkaði, gengi
hlutabréfa í Eignarhaldsfélaginu
Alþýðubankinn um tæp 5% og í
Marel um tæpt 2,5%.
Sölusamband íslenskra fisk-
framleiðenda var einnig skráð á
Verðbréfaþingi í fyrsta skipti í
gær, en fyrirtækið var áður skráð
á Opna tilboðsmarkaðnum. Gengi
bréfanna var 3,70 og breyttist
ekki yfir daginn.
Þá seldust einnig húsbréf í
flokknum 96/2 og lækkaði ávöxt-
unarkrafan á þinginu um 5 punkta
eða í 5,73%
SAMNINGAR hafa verið undir-
ritaðir um að Landsbréf hf. taki
að sér rekstur Lífeyrissjóðs
Mjólkursamsölunnar. Sljórn
sjóðsins og reglugerð verður
með óbreyttu fyrirkomulagi, en
sjóðurinn tryggir sér hagkvæm-
an rekstur og sérfræðiþekkingu
við stýringu fjármuna með samn-
ingnum. Eignir Lífeyrissjóðs
Mjólkursamsölunnar nema um
800 milljónum króna, virkir sjóð-
félagar eru um 450 og lífeyris-
þegar rúmlega 200, segir í frétt.
Lífeyrissjóður Mjólkursamsöl-
unnar bætist í hóp fjögurra ann-
STÆRSTI hluthafí Tæknivals hf.,
Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn
hf.. seldi í gær tæpan helming
hlutabréfa sinna í fyrirtækinu. Um
er að ræða 9,4% hlpt eða bréf að
nafnvirði 11,3 milljónir króna.
Kaupendur bréfanna voru Lífeyris-
sjóður Norðurlands, Lífeyrissjóður-
inn Lífiðn, Lífeyrissjóður Fram-
sóknar, Lífeyrissjóður Austur-
lands, Lífeyrissjóður Vestmanna-
eyja.
Kaupverð bréfanna hefur ekki
verið gefíð upp en miðað við síð-
ustu viðskipti á Verðbréfaþingi
nemur markaðsverðmæti þeirra 97
milljónum króna. Eftir sölu bréf-
arra almennra lífeyrissjóða sem
Landsbréf annast rekstur á. Þeir
eru: Eftirlaunasjóður FÍ A, Líf-
eyrissjóður Tannlæknafélags Is-
lands, Lífeyrissjóður Flugvirkja-
félags íslands og Lífeyrissjóður
starfsmanna Áburðarverksmiðju
ríkisins. Þá starfrækja Lands-
bréf einnig Islenska lífeyrissjóð-
inn sem er frjáls séreignarlífeyr-
issjóður. Heildareignir þessara
sjóða nema rúmum 8 milljörðum
króna. Landsbréf stýra einnig
verðbréfasöfnun fyrir fleiri líf-
eyrissjóði og veita ráðgjöf á því
sviði.
anna nemur hlutur Eignarhaldsfé-
lagsins um 10,2% í Tæknivali.
Á aðalfundi Tæknivals sem hald-
inn var i gær voru kjömir í stjórn
þeir Einar Kristinn Jónsson, Rúnar
Sigurðsson, Ómar Öm Ólafsson,
Gylfí Arnbjömsson og Gunnar
Gíslason. I varastjóm vora kjömir
Gunnar Ólafsson, Páll Jensson og
Eggert Gíslason. Þeir Einar Krist-
inn og Gylfí koma í stað Eysteins
Helgasonar, sem verið hefur for-
maður og Sigrúnar E. Jónsdóttur.
Á fundinum var samþykkt var
að greiða 10% arð af hlutafé til
hluthafa og auka hlutafé um 10%
með útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
Miðlum lífeyristryggingum til Bretlands og Luxemborgar
Lífeyrissparnaður
í nýju ljósi
tSLINSKA VÁTRVCCIItCAMiBLUM
Jlöqyilt iHÍtrijijtjinijantiöltnt
mf
SUNLIFE
I-Kl r: N D S I’ROVIDLN'I
winterthur
Mörkinni 3 • 108 Reykjavík • Fax 533 4081
Sími 533 4080
Fóðurblandan hækkar um
56% frá gengi á útboðsdegi
Eignarhaldsfélagið
selur 9% í Tæknivali