Morgunblaðið - 21.03.1997, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. MARZ 1997 19
VERIÐ
Loðnuvertíð
senn að ljúka
„VIÐ ERUM að berja á hrygndri
kerlingu og það er fremur dræm
veiði. Það er langt á milli kasta
og lítið í. Veiðin hefur hins veg-
ar farið minnkandi og þetta er
smám saman að fjara út,“ sagði
Þorsteinn Kristjánsson, skip-
stjóri á Hólmaborg SU, í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, en
skipið var þá að veiðum suður
af Malarrifi á Snæfellsnesi. Þor-
steinn sagði vertíðina vera að
líða undir lok sem væri ekki
óeðlilegt miðað við árstíma.
Hrognavinnslu víðast
hvar lokið
Ágætis veiði var hins vegar
norðvestur af Garðskaga í
fyrradag og fengu skipin þá
óhrygnda loðnu sem átti að
kreista til hrognavinnslu. Fram-
leiðendur Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna hættu vinnslunni
fyrir skemmstu og að sögn Vík-
ings Gunnarssonar, deildar-
stjóra hjá íslenskum sjávaraf-
urðum, er hrognaframleiðsla
þeirra nú á lokastigi. Kap VE
landaði í gær síðasta farminum
sem fer í kreistingu í Vest-
mannaeyjum.
Þá var Húnaröst SF á leið til
Hornafjarðar í gær og átti að
freista þess að vinna hluta
farmsins í hrognavinnslu. „Það
var mjög skörp veiði norður af
Garðskaga í gærmorgun [í
fyrramorgunj. Það hefur verið
góð veiði í birtingunni á morgn-
ana og aftur á kvöldin síðustu
daga. Við náðum ágætis köstum
af óhrygndri kerlingu og karli
og líklega á að reyna að taka
aflann i kreistingu. Það er 30
tíma stím fyrir okkur úr Faxa-
flóanum og austur til Horna-
fjarðar en vonandi verður hægt
Morgunblaðið/Sigurgeir
HROGNAVINNSLU hefur víða verið hætt enda þegar búið að vinna það magn, sem kemst á
markaði í Japan.
að kreista úr þessu hrognin.
Aðallega til að halda við græj-
unum en það hefur mjög lítið
verið unnið af hrognum á
Hornafirði á þessari vertíð,“
sagði Jón Axelsson, skipstjóri á
Húnaröstinni.
Þá hafa borist um 633 þúsund
tonn af loðnu á land frá áramót-
um og eru nú aðeins eftir um
170 þúsund tonn af útgefnum
loðnukvóta.
21 þúsund tonn
flutt út af fersk-
fiski 1994-96
í SVARI sjávarútvegsráðherra við
fyrirspum Einars K. Guðfinnssonar
alþingismanns um útflutning á
ferskum fiski, kom fram að alls
voru flutt út 21.126 tonn af fersk-
fiskflökum á árunum 1994-1996
að Fob-verðmæti 7,2 milljörðum
króna og námu heildartollgreiðslur
útflutningsins um 231 milljónum
króna. Ennfremur kom fram í svar-
inu að EES-samningurinn hefur
haft veruleg áhrif til lækkunar tolla.
Verðmæti útflutningsins er á
föstu verði og er miðað við verðlag
í desember 1996. Ekki eru reiknað-
ir tollar á útflutning til Hong Kong
og Singapore, þar sem ekki fengust
upplýsingar um tollskrár þessara
landa.
Þá kom fram í svari ráðherra að
GATT-samkomulagið hefur ekki
áhrif á tollgreiðslur af útflutningi
ferskfiskflaka. Aftur á móti leiddi
EES-samningurinn, sem gekk að
fullu í gildi 1. janúar sl., til lækkun-
ar á heildargreiðslum tolla um rúm-
ar 373 milljónir króna, miðað við
gefnar forsendur í útreikninum á
áætluðum álögðum tollum.
Mest flutt
út af ýsu
Á tímabilinu 1994-1996 voru
flutt út um 6.465 tonn af ferskum
ýsuflökum, að verðmæti um 2,6
milljarðar króna og námu toll-
greiðslur vegna þessa um 16,2 millj-
ónum króna. Aðeins eru greiddir
tollar á útflutning ýsuflaka til
Bandaríkjanna, þar sem greidd er
ákveðin upphæð af hveiju kílói.
Langmest var flutt út af ýsuflökum
til Bandaríkjanna á umræddu tíma-
bili, samtals um 5.859 tonn að verð-
mæti um 2,4 milljarðar króna. Af
ferskum karfaflökum voru flutt út
á þessum þremur árum samtals
6.265 tonn, að verðmæti 1,7 millj-
arðar króna og námu tollgreiðslur
um 158 milljónum króna. Langmest
var flutt út af karfaflökum til
Bandaríkjanna, Þýskalands og
Belgíu. Mest var flutt út af ferskum
til Bandaríkjanna á árunum 1994-
1996, um 3.178 tonn, en samtals
voru flutt út 5.714 tonn af ferskum
þorskflökum og var verðmæti þeirra
rúmur 1,9 milljarður króna.
•{§*
ifSÝ
W:'-i'
■
m
■■■
m
SAFARIKUR KIUKLINCUR EÐA 4 ELDSTEIKTIR
HAMBORCARAR A AÐEINS 790 KR.
SLAKAÐU NÚÁMEÐ FJÖLSKYLDUNNI,
SLEPPTU MATARCERÐINNIOC NÝTTU ÞÉR
FRÁBÆRTTIWODÁVÍBON. ÞÚ FÆRÐ ÞÉR
ANNAÐHVORT CRILLAÐAN SAFARÍKAN
KJÚKLINC, BEINTAFTEININUM, EDA
4 ELDSTEIKTAOC ILMANDI HAMBORCARA
ÁADEINS790 KRÓNUR.
BORÐADU Á STAÐNUM EÐA TAKTU MED HEIM.
CÓDURSTAÐUR
v:
-J
SÉ
■
,'b
Aöeins fallegir hlutir til fermingargjafa - engar málamiðlanir
Habitat I Kringlunni er verslun fult af húsgögnum og smávörum sem njóta sín vel sem fermingargjöf.
[ Sllfurskrin 1750 kr. » 3 Ilmsápur 630 kr. « Þvottapok
| Camp leíkstjórastóH 2950 kr. |