Morgunblaðið - 21.03.1997, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 21. MARZ 1997
ERLEINIT
MORGUNBLAÐIÐ
Játningar á banabeði um morðið á Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar
Sjúklegt hatur á sænsku
samfélagi og yfirvöldum
Christer Pettersson sagður einn af
fjórum mönnum, sem stóðu að morðinu
LARS Tingström, kunnur afbrota-
maður í Svíþjóð, kallaður
„Sprengjumaðurinn“, skýrði lög-
fræðingi sínum frá því á banabeði
fyrir fjórum árum hver hefði myrt
Olof Palme, forsætisráðherra Sví-
þjóðar, og nokkum veginn hvar
morðvopnið væri að finna. Sagði
lögfræðingurinn, Pelle Svensson,
að Christer Pettersson, sem var
sakaður um morðið á Palme en
sýknaður, hefði verið einn af fjórum
mönnum, sem stóðu að morðinu,
en Tingström hefði lagt á ráðin um
það. Ástæðan var hatur á yfirvöld-
unum og sænsku samfélagi og
meðal annars vegna þess, að fyrr-
verandi unnusta hans hafði tekið
saman við saksóknara, sem rann-
sakað hafði mál hans.
Svensson segist viss um, að þessi
gögn, sem hann hefur nú afhent
Palme-nefndinni, muni verða til að
upplýsa málið. „Það var Lars Ting-
ström, sem skipaði fýrir um morð-
ið, en að því komu fjórir menn.
Tveir þeirra eru enn á lífí,“ sagði
Svensson. Sagði hann, að Ting-
ström hefði lagt svo fyrir áður en
hann dó, að „morðinginn fengi 10
ár eftir morðið til að koma skikkan
á sitt líf“ en ef hann gerði það
ekki, skyldi lögreglan upplýst um
málið.
Notuðu dulmál
Svensson vildi ekki segja það
hreint út, að Pettersson væri morð-
inginn, aðeins, að hann hefði verið
einn af fjórum, sem að því stóðu.
Hann kvaðst hins vegar hafa afhent
lögreglunni nokkurs konar dulmál
eða lykilorð, sem Tingström hefði
notað í samskiptum sínum við morð-
ingjann. Fyndust þessi lykilorð eða
væru kannski fundin, þá myndi það
verða til að styrkja frásögn Ting-
ströms, sem hann kvaðst vera viss
um, að væri rétt.
Nafni Lars Tingströms hefur
áður skotið upp í rannsókninni á
Palme-morðinu en ljóst er, að hann
framdi það ekki sjálfur þar sem í
febrúar 1986 var hann farinn að
afplána lífstíðardóm í fangelsi í
Nörrköping. Var hann dæmdur fyr-
ir að hafa sprengt upp einbýlishús
í Nacka 1982 og orðið 18 ára göml-
um manni að bana. Var hann einn-
ig grunaður um að hafa staðið fyr-
LARS Tingström eða
„Sprengjumaðurinn“.
ir sprengingu á skattstofu í Söder
í Stokkhólmi 1983, sem varð 63
ára gamalli konu að bana, og fyrir
tilraun til að sprengja hjá sýsluemb-
ættinu í Nacka sama ár.
Tók saman við unnustu
Tingströms
Ekki tókst að sanna þessi tvö
síðastnefndu mál á Tingström en
áður hafði hann verið dæmdur fyrir
að hafa sent bréfsprengju til fyrr-
verandi félaga síns. Ákærandinn í
því máli var Sigurd Dencker, eig-
andi einbýlishússins, sem Ting-
ström sprengdi í Nacka 1982.
Tingström hataði hann, ekki vegna
málareksturins, heldur vegna þess,
að meðan á honum stóð tók Denck-
er saman við fyrrverandi unnustu
Tingströms, fertuga ljósmyndafyr-
irsætu.
Tingström og ljósmyndafyrirsæt-
an höfðu búið saman í sjö ár en
voru nýskilin þegar þetta gerðist.
Fylltist hann sjúklegri afbrýðisemi
TVÆR sænskar lögreglukonur við grafreit Olofs Palme. Steinn-
inn á leiði hans vegur eitt tonn og var sóttur til eyjarinnar Farö.
CHRISTEk
Pettersson
og teikning,
sem gerð var
af hugsan-
legum morð-
ingja Palme.
og hatri á Dencker og sænskum
yfirvöldum og fannst sem samband
þeirra saksóknarans og unnustunn-
ar fyrrverandi væri svik og niður-
læging, sem hann gæti ekki sætt
sig við. Lagði hann sérstakt hatur
á Olof Palme sem persónugerving
samfélagsins.
Tingström afplánaði dóminn fyrir
bréfsprengjuna í Kumla, rammger-
asta fangelsi í Svíþjóð, og þar sagði
hann nokkrum samföngum sínum,
meðal annarra Christer Pettersson,
frá því hvemig Dencker hefði leikið
sig. í augum fanga hafði Dencker
gerst sekur um mesta glæp, sem
hugsast gat — að samrekkja konu
fanga.
Ætlaði að myrða
konunginn
Tingström og Pettersson urðu
vinir, jafnt innan fangelsismúranna
sem utan, og þegar Tingström losn-
aði sprengdi hann upp einbýlishús
Denckers með fyrrnefndum afleið-
ingum. Fyrir það var hann svo
dæmdur í lífstíðarfangelsi 1985 og
lést úr krabbameini 1993.
Áður en Tingström fór í fangelsi
í síðasta sinn var Pettersson lífvörð-
ur hans og lærði að fara með skot-
vopn í kjallaranum á heimil Ting-
ströms. Þar lagði hann á ráðin um
að hefna sín á samfélaginu og upp-
haflega átti að myrða Karl Gústaf
Svíakonung fyrst með sprengju.
Tingström sagði Svensson, að Pett-
ersson hefði hafnað því þar sem það
væri „of sóðalegt". Betra væri að
gera það augliti til auglitis.
Af þessu varð þó ekki því að
fyrir tilviljun gekk morðinginn fram
á Olof Palme þegar þau hjónin voru
að koma úr kvikmyndahúsi. Eftir
það var konungshjónanna gætt svo
vel, að þar komst enginn nærri.
Fjórmenningamir gengu þó svo
langt að fylgja eftir og njósna um
konunginn á ferðum hans erlendis.
•Heimildir: Dagens Nyheter, Aftenposten,
Reuter.
Eitt ár liðið frá upphafi kúariðufársins
Neytendavemd bætt
Brussel. Reuter.
ÁR VAR liðið í gær frá því Stephen Dorrell,
heilbrigðisráðherra Bretlands, viðurkenndi í
þingræðu að tengsl kynnu að vera á milli kúa-
riðu og Creutzfeldt-Jakob-sjúkdóms í mönnum.
Sú yfírlýsing hleypti af stað miklu fári í Evrópu
og varð Evrópusambandinu tilefni til að banna
allan útflutning brezks nautakjöts.
Á þessum tímamótum reyndi Emma Bonino,
framkvæmdastjómarmaður ESB, sem nú hefur
verið falið að hafa yfírumsjón með heilbrigði
matvæla, að sannfæra Evrópuþingið um að fram-
kvæmdastjómin ætlaði að grípa til raunhæfra
aðgerða til að hindra að sagan endurtæki sig
og að neytendum gæti stafað hætta af matvöru.
Bonino lofaði meðal annars að setja á stofn
sérstaka vísindanefnd til að kanna áhrif erfða-
efnisbreyttra matvæla á menn. Hún sagðist jafn-
framt hafa orðið fyrir vonbrigðum með ákvörðun
landbúnaðarráðherra ESB-ríkja fyrr í vikunni,
en þeir ákváðu að skjóta uppmnamerkingum á
nautakjöti á frest fram til ársins 2000.
Bonino lofaði skýrslu um heilbrigði matvæla
í næsta mánuði og ráðstefnu um sömu mál í
september.
Kostnaðurinn
420 milljarðar
Síðastliðinn áratug hafa komið upp 178.000
tilfelli af kúariðu í Evrópusambandinu og Sviss.
Þar af voru 172.000 í Bret-
landi. Næstflest tilfelli voru
í Sviss, 230, og l85 tilfelli
uppgötvuðust á írlandi.
Gert er ráð fyrir að kostn-
aður við aðgerðir ESB til að
beijast gegn sjúkdómnum
og bætur til bænda fyrir
nautgripi, sem þeir hafa orð-
ið að slátra, nemi um 420 milljörðum króna á
þremur árum. Bretar hafa þegar slátrað 1,3
milljónum fullorðinna nautgripa og í þessari viku
var byijað að slátra 100.000 í viðbót.
Bjórdósabann
Dana í hættu?
BANN danskra stjórnvalda við sölu á bjór
og gosdrykkjum í áldósum kann að vera í
hættu. Framkvæmdasljórn Evrópusambands-
ins hefur sent Dönum rökstutt álit um að
dósabannið brjóti gegn tilskipun ESB um
umbúðir og sé í raun viðskiptahindrun. Dan-
ir tejja hins vegar að um umhverfisvemdar-
mál sé að ræða og að auðveldara sé að endur-
vinna gler en ál, auk þess sem meiri hætta sé
á að áldósum sé ekki skilað
til endurvinnslu, heldur fleygt
á víðavangi.
Framleiðendur bjórs og
gosdrykkja í öðmm ESB-ríkj-
um hafa lengi kvartað undan
banni Dana. Framkvæmda-
stjórnin segir í fréttatilkynn-
ingu að í umbúðatilskipuninni
sé reynt að finna meðalveg á milli frjálsra
viðskipta og umhverfisveradar. Bann Dana
gangi hins vegar of langt í átt til umhverfis-
sjónarmiða, á kostnað viðskiptahagsmuna.
EVRÓPAj
Hwang
áfram á
Filipps-
eyjum
HWANG Jang-yop, landflótta
hugmyndafræðingur norður-
kóreska kommúnistaflokksins,
sem fluttur var úr sendiráði
Suður-Kóreu í Peking til
Filippseyja fyrr í vikunni, mun
að sögn suður-kóreskra emb-
ættismanna dvelja á Filippseyj-
um að minnsta kosti fram yfír
næstu mánaðamót. Þetta hafi
Kínveijar og S-Kóreumenn
komið sér saman um. Fidel
Ramos, forseti Filippseyja,
sagði i fyrradag að Hwang
gæti dvalið þar „aðeins eins
lengi og nauðsyn krefði og eins
stutt og mögulegt er.“ Dvalar-
stað Hwangs er haldið leynd-
um af ótta við launmorðingja.
Nýr forsætis-
ráðherra
Armeníu
LEVON Ter-
Petrosjan
skipaði í gær
Robert Koc-
haijan nýjan
forsætisráð-
herra Armen-
íu. Kochaijan
er leiðtogi
hins einhliða
yfirlýsta lýðveldis í Nagorno-
Karabach-héraði, sem form-
lega er hluti nágrannaríkisins
Aserbajdsjans, en meirihluti
íbúa þar eru Armenar. Þeir
háðu blóðuga baráttu fyrir
sjálfstæði frá Aserbajdsjan
1988-1994, og studdi Armenía
hana af krafti, óformlega þó.
Skipun Kochaijans er líkleg til
að hleypa illu blóði í Asera, sem
stefna að því að endurheimta
héraðið.
Mótmæli
í Ósló
HÓPUR umhverfisvernarsinna
víða að úr heiminum efndu í
gær til háværra mótmæla fyrir
utan norska Stórþingið til að
fordæma áætlanir norskra
stjómvalda um að auka losun
gróðurhúsalofttegundarinnar
koltvísýrings. Sögðu mótmæl-
endurnir Noreg vera að
„hæða“ alþjóðlegar tilraunir til
að koma á samkomulagi um
að minnka losun slíkra efna út
í andrúmsloftið.
Veitir Sam-
stöðu tiltal
WLODZIMIERZ Cimocewicz,
forsætisráðherra Póllands, hélt
því opnu í gær, að til greina
kæmi að grípa til sérstakra
ráðstafana til að bjarga 2.000
störfum, sem til stendur að
leggja niður með gjaldþroti
skipasmíðastöðvarinnar í
Gdansk (Danzig), en sakaði
jafnframt verkalýðsfélagið
Samstöðu um að stuðla að
upplausnarástandi með þeim
aðgerðum, sem það hefur grip-
ið til í viðleitni sinni til að
bjarga skipasmíðastöðinni.
Verkalýðsfélagið efndi í fyrra-
dag til mótmælaaðgerða sem
náðu til alls Póllands. Lögregla
þurfti að beita valdi til að fjar-
lægja mótmælendur, sem ráð-
ist höfðu til inngöngu í ráðu-
neyti í Varsjá.