Morgunblaðið - 21.03.1997, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. MARZ 1997 25
LISTIR
Voltaire
meðtrukki
TÓNLIST
Iláskólabíó
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Verk eftir Smetana, Bemstein og
Mendelssohn. Sigrún Hjálmtýsdóttir
sópran og Sinfóníuhljómsveit íslands
undir stjórn Lev Markiz. Kynnir:
Jónas Ingimundarson. Háskólabíói,
finuntudaginn 20. marz kl. 20.
„BLÁU“ tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands í gær stóðu
óvenjumikið undir nafni, því meist-
ari Bernstein átti heil þrjú atriði á
dagskrá, þar sem sérstaklega hið
fyrsta, úr söngleiknum On the
Town (1944), fetaði í fótspor
Gershwins með blöndu af Gamla-
heimshljómkviðu og Nýjaheims-
jassi. Og það sem meira var: spilað
með sveiflu. í það heila fjölbreytt
og skemmtilegt prógramm, sem
hefði kannski dregið að fleiri gesti
en raun varð á, hefði dagskráin
verið gerð opinber fyrir fram. En
það kvað víst hinsvegar prinsipp
að láta ekkert uppi fyrr en á sjálf-
um hólminum um viðfangsefnin í
þessari sérstæðu tónleikaröð, þar
sem Jónas Ingimundarson kynnir
og „tekur sýni“ af tónlistinni. Hér
var allt kynnt á staðnum, tónskrá
aðeins útbýtt að leikslokum, og því
ekki á vísan að róa með aðsókn,
sem heldur var dræmari í þetta
sinn en sl. nóvember.
Þetta var í annað skipti að und-
irr. fór á bláa tónleika í vetur, og
verður að segjast eftir tveggja tón-
leika reynslu, að „konseptið" er
gott; n.k. „skólatónleikar" fyrir
alla aldursflokka í senn, og athuga-
semdir, kynningar og sýnatökur
Jónasar vel valdar og ígrundaðar
- burtséð kannski frá einu: kynnir-
inn mætti stundum vera ögn létt-
ari í framkomu og leyfa þeim húm-
or sem hann er kunnur fyrir undir
afslappaðri kringumstæðum að
njóta sín aðeins meira. Eins og hjá
Bernstein í Young Peoples Conc-
erts, sællar minningar!
Leikurinn hófst með rómantískri
hermitónlist, þegar hljómsveitin
flutti hina óslítandi og sífersku
Moldá eftir Smetana með hlaup-
andi kynningum Jónasar ofan í
tónlistina: „Uppsprettan" - „Þjóð-
lagastef" - „Kankvís polki“ (þjóð-
ardans Bæheimsbúa) - „Slæðu-
dans vatnadísa í tunglskini“ -
„Söngur Moldár“ - „Boðaföll“ -
„Áin breiðir úr sér við Prag“ -
Morgunblaðið/ Stefán Ólafsson
LEIKENDUR, Hólmgrímur Elís Bragason og Vilborg Þórhallsdóttlr.
Á sama tíma að ári
LEIKFÉLAG Hornafjarðar frum-
sýnir leikritið Á sama tíma að ári
eftir Bernard Slade laugardaginn
22. mars. Leikstjóri er Guðrún
Alfreðsdóttir og leikendur þau
Hólmgrímur Elís Bragason og Vil-
borg Þórhallsdóttir. 20 ár eru síðan
Guðrún leikstýrði hér eystra, þegar
leikfélagið setti Skírn á svið. Leik-
félag Hornafjarðar er 35 ára gam-
alt og á að baki yfír 60 uppfærslur
auk þess að koma nálægt ijölmörg-
um menningarviðburðum öðrum.
Þar ber hæst götuleikhúsið sem
er árviss viðburður á Humarhátíð
Hornfirðinga.
LEIKENDUR og leikstjóri: Jóna Guðrún Jónsdóttir, Melkorka
Tekla Ólafsdóttir, Rósa Guðný Þórsdóttir og Steinunn Ólafsdóttir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
RÚSSNESK-HOLLENZKI hljómsveitarstjórinn Lev Markiz
að loknum tónleikunum í gærkvöldi.
„Hverfur í faðm Elbufljóts“. Rúss-
nesk-hollenzki hljómsveitarstjór-
inn Lev Markiz, sem í seinni tíð
er m.a. kunnur af upptökum sínum
á Schnittke fyrir BIS, mótaði þessa
vatnamúsík Tékka fagurlega, þó
að polkinn væri e.t.v. ekki eins
fjaðurmagnaður og maður átti von
á.
Town (eða Time?) Square atriðið
úr On the Town var spilað með
furðu mikilli innlifun í amerísku
swing-boppi af virðulegri evrópskri
mörgæsasveit að vera, klarínett
Sigurðar I. Snorrasonar dró bláan
seim í anda Goodmans, og Ásgeir
Steingrímsson „growlaði" á tromp-
etið eins og hann hefði aldrei gert
annað. „Leynigesturinn" reyndist
vera Sigrún Hjálmtýsdóttir, og
söng hún hina makalausu fjögurra
stíla aríu Kúnígúndu, „Glitter And
Be Gay“ úr Candide eftir sama
höfund með trompi, sem sennilega
enginn hérlendur sópran getur
leikið henni eftir, þó að eitt eða
tvö smá-augnablik jöðruðu við að
fara út úr „synki,“ eins og sagt er
á hljóðversmáli. Það eina sem
maður saknaði var aðeins lengri
bil milli síðustu fjögurra hátóna
söngvarans í lokin - fermöturnar
á generalpásunum þar á milli hefðu
þannig getað orðið dramatískari -
en annars var arían næstum því
yfirgengilega glæsilega sungin.
Hljómsveitin og stjómandinn
gerðu gott betra í næsta atriði,
forleik Bernsteins að Candide
(Birtingi Voltaires), einhveijum
flottasta hljómsveitarforleik í leik-
hússögu 20. aldar, þar sem Bern-
stein, auk þess að kynna megin-
stef söngleiksins, eys úr botnlausri
hljómsveitarstjóraþekkingu
sinni á tónbókmenntunum.
Þar er sannarlega hægt að
finna sittlítið af hveiju
(m.a.s. stutta tilvitnun í
Carmina Burana), en allt
snilldarvel saman tengt.
Þetta er alls ekki auðvelt
viðfangsefni, jafnvel ekki
fyrir þrautreyndustu hljóm-
sveitir, en SÍ lék með ná-
kvæmni og „trukki“ sem
maður á ekki alltaf að venj-
ast og hefði komið vandlát-
um hljómplötuupptöku-
stjóra til að æpa: „Stendur!"
ítalska sinfónía Mend-
elssohns, þess er lézt fyrir
réttum 150 árum, var síðust
á dagskrá. Eftir sérkynn-
ingu á helztu stefjum hljóm-
kviðunnar dró Jónas sig í
hlé og leyfði spilurum og stjórn-
anda að flytja verkið í heild án
frekari orða. Fyrsti þáttur var
hugsanlega ívið í það hraðasta,
eins og heyra matti stöku sinni af
nærri því felmtri slegnum fyrstu
fiðlum, þegar kontrapunktsvíra-
virkið varð hvað fyrirferðarmest,
en önnur tempó voru mjög sann-
færandi. II. þáttur (sagður innblás-
inn af helgigöngu presta suður á
Ítalíu) hélt fullri virðingu án þess
að verða daufur, og flautnablástur-
inn var sætur eins og Drottins
huggunarorð. Menúettinn leið hjá
með ljúfsáru brosi, og loka-salta-
rellóið naut góðs af góðri upphitun
mannskaparins, sem fékk að vinna
fyrir kaupi sínu á hnitmiðaðri
fleygiferð sem eitt samtaka sindr-
andi eldflugnager.
Ríkarður Ö. Pálsson
Síðasta sýning
Trúðaskólans
SÍÐASTA sýning á Trúðaskólan-
um verður sunnudaginn 23. mars
kl. 14.
Trúðaskólinn er eftir Fredrich
Karl Waechter. Þýðing og aðlögun
er verk Gísla Rúnars Jónssonar eft-
ir enskri útfærslu Kens Campbells.
Trúðaskólinn var frumsýndur á
Stóra sviði Borgarleikhússins í byij-
un nóvember og hefur leikritið ver-
ið sýnt allar helgar síðan.
„Leikritið er á ýmsan hátt afar
merkileg dæmisaga um kennslu og
lærdóm og ekki síður um tengsl
nemenda og kennara og lýsir sömu-
leiðis tengslum gamanleiks, stjórn-
leysis og kjánaskapar," segir í
kynningu.
Ferðast um
skáldverk
SÍÐASTA bókmenntakynningin
sem Norræna húsið stendur fyrir
að þessu sinni verður laugardaginn
22. mars kl. 16. íslenskar bók-
menntir eru á dagskrá og er þetta
í fyrsta skipti sem þær eru kynntar
sérstaklega á þessum hefðbundnu
kynningum. Dagný Kristjánsdóttir
bókmenntafræðingur hefur tekið
að sér að fjalla um bókaútgáfuna
á íslandi 1996.
Kynningin er einkum ætluð þeim
Norðurlandabúum sem hafa áhuga
NÚ STANDA yfír æfíngar leikrit-
inu Vinnukonurnar eftir franska
leikritahöfundinn Jean Genet í
Kaffíleikhúsinu í Hlaðvarpanum.
Leikstjóri er Melkorka Tekla Olafs-
dóttir og leikendur Rósa Guðný
Þórsdóttir, Steinunn Ólafsdóttir og
Jóna Guðrún Jónsdóttir. Þýðandi
er Vigdís Finnbogadóttir ásamt
leikstjóra.
í kynningu segir: „Vinnukon-
urnar var frumsýnt í París árið
1947 og hefur ásamt öðrum verk-
um Genet haft mikil áhrif á hug-
myndir manna um leikhús á síðari
hluta tuttugustu aldar. Fjölmargir
leikstjórar hafa tekist á við verkið
á að fræðast um íslenskar nútíma-
bókmenntir.
„í fyrirlestrinum verður ferðast
um skáldverk síðasta árs í leit að
táknum, en ekki stórmerkjum. Bók-
menntaárið 1996 á Íslandi einkenn-
ist af „ferðabókum“ í þeim skilningi
að ferðast er í sögu og rúmi; farið
til útlanda í leit að íslandi, farið í
söguna í leit að samtímanum, farið
hamförum eða á barinn,“ segir i
kynningu.
Þeir rithöfundar sem verða
kynntir sérstaklega eru Gyrðir El-
íasson, Hallgrímur Helgason, Krist-
ín Ómarsdóttir og Vigdís Gríms-
dóttir og lesa þau úr verkum sínum
á skandinavísku.
Aðgangur að bókakynningunni
er ókeypis.
Síðasta sýning á
Kennarar óskast
SÍÐASTA sýning á leikriti Ólafs
Hauks Símonarsonar, Kennarar
óskast, sem sýnt hefur verið á Stóra
sviði Þjóðleikhússins frá liðnu
hausti verður í kvöld, föstudags-
kvöld..
Leikendur eru Sigrún Edda
Björnsdóttir, Þröstur Leó Gunnars-
son, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Örn
Árnason, Hjálmar Hjálmarsson,
Gunnar Éyjólfsson og Harpa Arnar-
dóttir.
Lýsingu hannar Páll Ragnarsson,
höfundur leikmyndar og búninga
er Hlín Gunnarsdóttir. Leikstjóri er
Þórhallur Sigurðsson.
og farið mjög ólíkar leiðir í túlkun
á því enda afar margbrotið verk
og hægt að skoða það frá ýmsum
sjónarhornum. Leikritið hefur einu
sinni áður verið sett upp á Islandi,
hjá Grímu árið 1963.“
Verkið fjallar um mannleg sam-
skipti á öllum tímum. í verkinu
takast á þrjár konur, en átök
þeirra vísa að sögn Kaffileikfólks
til valdabaráttu eins og hún birtist
m.a. innan fjölskyldna, á milli
elskenda, á milli húsbænda og
hjúa, og svo í ólíkum myndum úti
í samfélaginu. Frumsýning í
Kaffileikhúsinu verður í byijun
apríl.
Söng-
bræður í
suðurferð
KARLAKÓRINN Söngbræð-
ur úr Borgarfírði heldur
tvenna tónleika laugardaginn
22. mars. Hina fyrri kl. 15 í
Ytri-Njarðvíkurkirkju og hina
síðari kl. 21 í sal Félags ís-
lenskra hljómlistarmanna,
FÍH, Rauðagerði 27 í Reykja-
vík. Kórinn hyggur á strand-
högg á írlandi um páskana
og eru tónleikarnir á laugar-
daginn liður í undirbúningi
fararinnar.
Kórinn hefur haldið tón-
leika vítt og breitt um Vestur-
land. Stjórnandi kórsins er
Jerzy Tosik Warszawiak,
kennari við Tónlistarskóla
Borgarfjarðar, áður prófessor
við Tónlistarakademíu Krak-
ár-borgar í Póllandi. Hann
hefur stórnað kórnum und-
anfarin þijú ár. Undirleikari
kórsins er Clive Pollard, tón-
skáld, sérmenntaður undir-
leikari og kennari við Tónlist-
arskóla Borgarfjarðar.
Auk kórsöngs verða kvart-
ett, tríó, dúett og einsöngur
einnig á dagskránni, að
ógleymdum samleik á fiðlu
og píanó sem þau Ewa og
Jerzy Tosik-Warszawiak sjá
um. Einsöngvarar með kórn-
um verða Theodóra Þorsteins-
dóttir sópran, Snorri Hjálm-
arsson tenór og Gunnar Örn
Guðmundsson bassi. Theo-
dóra hefur af og til sungið
með Söngbræðrum en hún er
skólastjóri Tónlistarskóla
Borgarfjarðar og söngkennari
við skólann. Hún stundaði
söngnám í Söngskólanum í
Reykjavík, Vínarborg í Aust-
urríki og á Ítalíu. Snorri er
bóndi á Syðstu-Fossum og
Gunnar Örn dýralæknir. Þeir
eru í Söngbræðrum og stunda
söngnám við Tónlistarskóla
Borgarfjarðar.
Aðgangseyrir er kr. 1.000.
Vinnukonurnar í Kaffileikhúsinu