Morgunblaðið - 21.03.1997, Qupperneq 48
48 FÖSTUDAGUR 21. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
5JÓMENN ATHU6ÍÐ:
Skerpir athygli
- eykur þol.
RAUTT
EÐALGINSENG
Gagnlegar fermingargjafir.
mm
'cssa
inga
7^vt ac*ft ^cnAaía^ii átfijan.
SEGLAGERÐIN
Æ6 m
Samtök sveítarfélaga
á höfudborgarsvædinu
Umsókn um skólavist
grunnskólanema utan lögheimilissveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu.
• Umsón skal send til skólaskrifstofu eða
skrifstofu þess sveitarfélags sem nemandi á
lögheimili í fyrir 1. apríl vegna næsta
skólaárs.
• Þegar lögheimilissveitarfélag hefur
samþykkt að greiða kostnað vegna
nemanda í öóru sveitarfélagi skal það
senda umsóknina til viðtökusveitarfélags
eigi síðar en 15. apríl.
• Hafni lögheimilissveitarfélag umsókninni
skal sú niðurstaða tilkynnt forráðamönnum
eigi síðar en 15. apríl.
• Viðtökusveitarfélag skal tilkynna
forráðamönnum nemenda og lögheimilis-
sveitarfélagi sína niðurstöðu eigi síðar
en 1. maí.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á
skólaskrifstofum sveitarfélaganna.
Þar eru einnig veittar frekari upplýsingar.
Gildir fyrir eftirtalin sveitarfélög:
Reykjavík, Kópavog, Hafnarfjörð, Garðabæ,
Seltjarnarnes, Mosfellsbæ, Bessastaðahrepp,
Kjalarneshrepp og Kjósarhrepp.
Samtök sveitarfélga á höfuðborgarsvæðinu.
IDAG
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á Klo-
oster mótinu í Ter Apel í
Hollandi sem hófst um
helgina. Hollendingurinn
Loek Van Wely (2.645)
var með hvítt, en Lettinn
Aleksei Shirov (2.690),
sem nú teflir
fyrir Spán, hafði
svart og átti
leik:
28. - Rf4! 29.
Rd6 (Hvítur tap-
ar heilum hrók
eftir 29. gxf4? —
Dg4+ 30. Rg3 —
Dxf3) 29. -
Bg2! 30. Be4 -
Dg4 31. Hd4 -
Bxf3 32. Bxf3 -
Rh3+ 33. Kg2
- Dxd4 34.
Kxh3 —Bxe5 og
svartur vann
auðveldlega á
liðsmuninum.
Sex stórmeistarar tefla
í Ter Apel. Auk þessara
tveggja þeir Júsupov, And-
ersson, Khalifman og
Hiibner. Sviinn Ulf Anders-
son byrjaði vel með sigri á
Robert Hiibner. Um helg-
ina: Skákþing íslands,
keppni í áskorenda— og
opnum flokki hefst á morg-
un laugardag kl. 14 í
Skákmiðstöðinni, Faxafeni
SVARTUR leikur og vinnur.
Með morgunkaffinu
ÉG var heppinn í dag.
i
t
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi tU föstudags
Netfang: eUy@mbl.is
Glerbyggingin
við Iðnó
hlíðinni. Uppl. í síma
588-4199.
KONA hringdi í
Velvakanda og hún er
mjög óhress með að lesa
um það að glerbyggingin
við Iðnó verði rifm. Telur
hún að það sé hnefahögg
í andlit skattborgara að
slíkt bruðl sé látið
viðgangast. Þessi
bygging er teiknuð af
fagmönnum og henni
finnst að það eigi að
bera þessa ákvörðun
undir Arkitektafélag
íslands. Henni finnst að
það eigi ekki að koma
til greina að rífa þessa
byggingu.
Handtaska
tapaðist
SVÖRT hliðartaska með
snyrtivörum og leður-
hönskum tapaðist senni-
lega á Kaffi Austur-
stræti á laugardags-
kvöld. Skilvís fínnandi
vinsamlega hafi
samband í síma
557-4443.
Dýrahald
Ryksugufiskur
fæst gefins
Góð þjónusta hjá
Ingvari og Gylfa
ÉG undirrituð keypti
mér rúm hjá Ingvari og
Gylfa hinn 16. mars. Ég
vil þakka starfsfólki fyrir
frábæra þjónustu,
sérstaklega Elíasi. Aðra
eins þjónustu hef ég ekki
fengið. Ég ráðlegg fólki
að versla þar því þetta
fyrirtæki er til fyrir
fyrirmyndar varðandi
þjónustu.
Hulda K. Vatnsdal.
Tapað/fundið
Vasaúr fannst
VASAÚR í keðju fannst
fyrir utan blokk í Stiga-
RYKSUGUFISKUR
fæst gefins. Fiskurinn
er orðinn frekar stór og
þarf að komast í stórt
búr. Uppl. hjá Karenu í
síma 550-1000 á daginn.
Kettlingur
fæst gefins
FALLEGAN og hressan
kettling vantar gott
heimili. Uppl. í síma
565-3672 eða 555-0501.
Hundaeigendur
Þeir hundaeigendur sem
týnt hafa hundum sínum
eru vinsamlega beðnir
um að hafa samband við
dýraspítalann í Víðidal
strax í síma 567-4020.
Víkverji skrifar...
EKKIALLS fyrir löngu var aust-
asta hluta Hafnarstrætis lok-
að fyrir umferð annarra en strætis-
vagna og leigubifreiða. Sett var upp
skilti við hornið á Pósthússtræti og
Hafnarstræti, sem gaf þetta til
kynna. Ekki voru allir á eitt sáttir
um þessa ráðstöfun og einn daginn
var skiltið horfið og kaupmenn við
götuna mótmæltu. Skiltið hefur
ekki verið sett upp á ný og nú er
öllum fijálst að aka þama um.
En umferðarljósin á gatnamót-
um Hafnarstrætis og Kalkofnsveg-
ar eða við Lækjartorg takmarka
mjög umferð. Græna ljósið, sem
hleypir þessari umferð áfram, log-
ar svo stutt, að aðeins örfáir bílar
komast í senn yfir gatnamótin og
það án tillits til þess hve umferð
er þung úr öðrum áttum yfir gatna-
mótin. Getur verið að menn séu
viljandi að tefja umferðina úr
Hafnarstræti eftir að skiltið var
tekið niður?
xxx
UMFERÐARUÓS eru afar
hentug aðferð til þess að
stýra umferð og víða í borginni
hefur verið komið upp ljósum, sem
hafa innbyggða skynjara. Ljósin
skynja, þegar bíll nálgast gatna-
mótin og breyta þá yfir í grænt
umsvifalaust, ef engin önnur um-
ferð er. Þetta er einkar hentugt á
næturnar, þegar lítil umferð er enda
ástæðulaust að láta fólk bíða mínút-
um saman eftir grænu ljósi. Slík
ljós eru t.d. á gatnamótum Síðu-
múla og Ármúla og eru til mikillar
fyrirmyndar.
Engu slíku er að heilsa á gatna-
mótum Listabrautar og Kringlunn-
ar. Þar eru ljós sem ekkert tillit
taka til umferðarinnar og skipta sér
með sama hraða allan sólarhring-
inn, sama hvort umferð er mikil eða
engin. Þeir, sem aka suður Kringlu
og ætla að beygja austur Listabraut
geta þurft að bíða í langan tíma
unz græna ljósið kemur. Á stundum
sjá menn fólk aka af stað á rauðu,
orðið úrkula vonar um að græna
ljósið kvikni og telja menn ugglaust
að um bilun sé að ræða í ljósabúnað-
inum. Slík ljós, sem ekkert tillit
taka til umferðarþungans, eru ekki
tæki til þess að ýta undir virðingu
fyrir lögum og rétti. í raun er það
bráðnauðsynlegt að skynjara verði
komið á þessi ljós, svo að ekki sé
viljandi verið að reyna á þolrifín í
vegfarendum.
xxx
VRÓPUBÚI, kunningi Vík-
veija, sem flutzt hefur til Is-
lands og var í fyrsta sinni að kynn-
ast íslenzkum verkfallsaðgerðum,
ætlaði varla að trúa sínum eigin
eyrum, þegar honum var sagt, að
nú væri að skella á Dagsbrúnar-
verkfall og mjólk yrði ófáanleg.
Hann neitaði í fyrstu að trúa slíku,
mjólk hlyti að vera til handa börnum
- annað væri „barbarismi" eins og
hann orðaði það. Hvernig getur eitt
verkalýðsfélag beitt sér gegn því
að ungviðið á Islandi fái jafnnauð-
synlegan drykk og mjólk? Þetta
verkalýðsfélag er gjörsamlega
veruleikafirrt, sagði þessi Evrópu-
búi.
í raun er þetta hveiju orði sann-
ara hjá manninum. Hvers á íslenzkt
ungviði að gjalda? Hvernig getur
eitt verkalýðsfélag, þótt í kjarabar-
áttu sé, beitt sér gegn börnum og
tekið af þeim mjólkina? Eitt sinn
sagði Guðmundur J. Guðmundsson
frá því er hann tók mjólkurflösku
af ungu bami, sem var að koma
til borgarinnar með mjólk og ætlaði
að gefa ömmu sinni. Þetta var í
verkfallinu árið 1955 og Guðmund-
ur gerði sér lítið fyrir og hellti
mjólkinni niður fýrir framan barnið.
Síðar varð bamið framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasambands Is-
lands og enn síðar ráðherra. Guð-
mundur telur að þar hafi hann gert
hina mestu skyssu. Leitt er að
Dagsbrúnarmenn hafa öllu gleymt
og ekkert lært.